Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,

ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1

MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.

? Lágmúla

? Sporhömrum Grafarvogi

? Sta?arbergi Hafnarfir?i

Opi? allan sólarhringinn í:

? Akureyri

FLUGFÉLAGIÐ Atlanta leigði breska

flugfélaginu British Airways, BA, breiðþotu

í síðustu viku til flugs út frá London þar sem

félagið hafði ekki yfir að ráða nógu mörgum

flugfreyjum og flugþjónum. 

Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta,

segir BA hafa leigt B747-200 þotu hjá 

Atlanta með stuttum fyrirvara til að fara

eina ferð til Kaíró.

Flugfreyjur og flugþjónar hjá BA láta af

störfum við 55 ára aldur eins og flugmenn

félagsins. Hafþór Hafsteinsson segir að ís-

lenskir flugmenn láti af störfum við 65 ára

aldur og búi við ákveðnar takmarkanir eftir

að 60 ára aldri er náð samkvæmt evrópsk-

um reglum en hvert land eða félag geti síð-

an takmarkað það frekar. Hann segir ekki

gilda slíkar reglur um flugfreyjur eða flug-

þjóna og flugvélstjórar hafa einnig getað

starfað fram á eftirlaunaaldur. Atlanta

samdi nýverið við flugvélstjóra sína um að

láta af störfum 67 ára og árið 2005 eiga þeir

að láta af störfum við 65 ára aldur.

Atlanta flaug

fyrir BA

DRENGUR á sjötta ári lést síðdegis í

gær af afleiðingum slyss er grjót féll á

hann í Selvogi í Ölfusi. Hann var flutt-

ur á Heilbrigðisstofnunina á Selfossi.

Tildrög slyssins eru óljós og fengust

ekki nánari upplýsingar um það í gær-

kvöld hjá lögreglunni á Selfossi sem

fer með rannsókn þess. 

Banaslys 

í Selvogi

ELLEFU ára drengur, Guðmund-

ur Ingi Guðmundsson, hlaut ann-

ars stigs brunasár á iljum og milli

táa þegar hann gekk í hver í flæð-

armáli Laugarvatns síðdegis á

laugardag. Að sögn föður drengs-

ins, Guðmundar Inga Kristinsson-

ar, voru þeir feðgar við báta- og

kajakleigu til hliðar við gufubaðið

og gekk drengurinn í flæðar-

málinu.

?Skyndilega rak hann upp mikið

öskur, og ljóst var að hann hafði

labbað í hver og brennst mikið á ilj-

um. Svæðið var ekkert merkt

þarna í kring, og starfsmenn settu

einhverja merkingu þarna við eftir

að slysið varð. Mér leist ekki á blik-

una að sjá fjölda lítilla barna þarna

á svæðinu að leik. Það var undar-

legt að enginn læknir var viðlátinn

á staðnum og þurftum við sjálf að

finna fötu og kæla fætur hans með

köldu vatni.? Fóru foreldrar

drengsins með hann í Laugarás til

læknis. Hann er nú með umbúðir á

fótum.

Flutningur bátaleigu 

fyrirhugaður

Að sögn starfsmanns gufubaðs-

ins og bátaleigunnar á Laugar-

vatni stendur til að færa leiguna

fjær hverasvæðinu. ?Teikningar

eru tilbúnar yfir nýtt svæði hér

norðan við gufubaðið. Svæðið er af-

girt þar sem hverirnir eru en und-

anfarna daga hafa nokkrar hrær-

ingar orðið og nýr hver opnast þar

sem drengurinn brenndist. Starfs-

menn leigunnar vissu ekki af

brennandi heitu vatninu á þessum

stað,? sagði hann í samtali við

Morgunblaðið í gær. Af þeim sök-

um hefði staðurinn ekki verið

merktur. ?Nú er komin merking á

staðnum en ekki virðist streyma

heitt vatn þarna lengur.? 

Starfsmaðurinn segir aðstöðu

vera hjá þeim til að bregðast við

bruna sem þessum. ?Hér hefur

verið mikill mannfjöldi um helgina

og þetta er eina slysið sem ég veit

af,? bætti hann við.

Brenndist á iljum í

hver í Laugarvatni

Morgunblaðið/Sverrir

Guðmundur Ingi Kristinsson og

sonur hans, Guðmundur Ingi, sem

brenndist illa á iljum.

ÓVENJUGÓÐ tíð hefur verið í Skaga-

firði undanfarnar vikur og spretta verið

afar góð. Heyannir hafa verið eftir því og

er nú svo komið að margir bændur eru

farnir í seinni slátt þótt ekki sé komið

fram í ágúst. Afar sjaldgæft er að bænd-

ur hefji seinni slátt svo snemma í Skaga-

firði.

Vigfús Þorsteinsson, bóndi í Uppsölum

í Blönduhlíð, sló hána um helgina í blíð-

skaparveðri. Vigfús segir mikla þurrka

hafa einkennt sumarið. ?Það hefur verið

fullþurrt í sumar en það kom bleyta í dag.

Það veitir ekki af regni þessa dagana.?

Morgunblaðið/Björn

Seinni sláttur

í Skagafirði

NOKKUÐ alþjóðlegur bragur var

á skipaflotanum við Faxagarð í

Reykjavíkurhöfn í gær. Við festar

lá auk annarra Pippilotta eða

Lína Langsokkur, gamalt fiski-

skip skráð í Hamborg í Þýska-

landi, sem búið er að breyta í segl-

skip. Í áhöfn þess eru í kringum

30 manns, flestir ferðamenn sem

kaupa sér far með skipinu og

ganga í öll nauðsynleg störf um

borð eins og hverjir aðrir hásetar.

Flestir þeirra voru í landi að

skoða sig um í veðurblíðunni í

gær, þar á meðal skipstjórinn,

Hartwig Schröder, en nokkrir

voru um borð og nutu sólarinnar.

Thomas Wesser, sem býr

skammt frá Düsseldorf í Þýska-

landi, lét vel af vistinni um borð.

Skipið lagði upp frá Þýskalandi

fyrir um tveimur vikum, sigldi

þar á milli nokkurra stórra hafn-

arborga og þaðan um Norðursjó

til Aberdeen í Skotlandi, Orkn-

eyja og Hjaltlandseyja, Færeyja

og Vestmannaeyja og þaðan til

Reykjavíkur þangað sem skipið

kom á föstudag.

Allir í áhöfn eru þýskir og þeir

sem rætt var við létu vel af landi

og þjóð. Þeir höfðu skoðað sig um

í Vestmannaeyjum og fannst mik-

ið til eyjanna koma. Skipið geng-

ur jöfnum höndum fyrir vélarafli

og seglum og sagði Wesser að

veðrið hefði verið ágætt alla leið-

ina og vindur verið skaplegur. Í

þurrkinum í gær hafði kattþrifin

áhöfnin lokið við stórþvotta, sokk-

ar, buxur og önnur þvottaplögg

héngu úti við og dekkið var fín-

pússað. Margir forvitnir Íslend-

ingar gerðu sér far niður á höfn

til að skoða skipið frá bryggju-

kantinum. 

144 feta skúta frá Jersey 

stoppar stutt við

Hinum megin bryggjunnar lá

við festar falleg 144 feta segl-

skúta sem kom til Reykjavíkur í

miðnætursólinni aðfaranótt

sunnudags. Skútan, sem heitir

Zaca a te Moana, er skráð á Erm-

arsundseynni Jersey og siglir að-

allega um Miðjarðarhafið á sumr-

in en Karíbahafið á veturna. Í

áhöfn eru sjö manns. Skipverjar

ráðgerðu að stoppa stutt í Reykja-

vík en héðan verður haldið á suð-

lægari slóðir í Evrópu.

Erlend fley í

Reykjavíkurhöfn

Morgunblaðið/Júlíus

Seglskútan Zaca a te Moana frá Ermarsundseynni Jersey á siglingu í

miðnætursólinni úti fyrir Gróttu aðfaranótt sunnudags. 

Morgunblaðið/Sverrir

Nokkrir úr áhöfn Línu Langsokks

í blíðunni við Faxagarð, Thomas

Wesser fremstur.

LÍTIL úrkoma hefur verið víða á norðan-

og norðvestanverðu landinu það sem af er

sumri. Þurrkar eru farnir að segja til sín og

er jörð víða orðin skraufþurr. Í Vatnsfirði er

mikil þurrkatíð og hefur lítið sem ekkert

rignt í sumar auk þess sem veturinn var fá-

dæma snjóléttur.

Þetta veldur því

að grunnvatns-

staða lækkar og

lindir geta þornað

upp. Að sögn

Sævars Páls-

sonar, gestgjafa í

Hótel Flókalundi,

er þurrkatíðin

mikil. ?Jörðin er

orðin mjög þurr,

lækir eiginlega

allir horfnir og vatnsból sums staðar á 

þrotum.?

Ragnar Guðmundsson, bóndi á Brjáns-

læk, segir elstu menn ekki muna svona

langa þurrkatíð. ?Þetta er líka áframhald af

mjög úrkomulitlu vori og það þýðir að það

er allt orðið þurrt og skrælnað sem þornað

getur. Vissulega vantar rigningu hingað, en

þetta hefur þýtt að allir eru búnir að heyja.

Afleiðingarnar af svona snjólitlum vetri eru

auðvitað vatnsleysi um allt.?

Aðgát mikilvæg með eldunaráhöld

Þröstur Reynisson, landvörður í frið-

landinu í Vatnsfirði, segir mikla eldhættu

skapast þegar gróður þornar upp. ?Ferða-

menn sem taka með sér grill, eldfæri og

prímusa verða að gæta sín þar sem lítið þarf

til þess að mikill skaði verði af. Ég er á nál-

um öll kvöld því að fólk fer oft mjög ógæti-

lega með eld. Einnota grillin eru sér-

staklega varasöm og mikilvægt að gæta

þess að þau komist ekki í snertingu við

þurran gróður. Varðeldar upp á gamla góða

mátann eru vitaskuld alger fíflaskapur við

þessar aðstæður, þegar allt er skraufþurrt.?

Vatns-

skortur í

Vatnsfirði

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32