Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ SUÐURNES Njarðvíkurnar verða skoðaðar í fylgd Áka Granz mánudaginn 28. júlí. Mæting er við Ytri-Njarðvík- urkirkju klukkan 20. Er þetta skoð- unarferð á vegum Upplýsinga- miðstöðvar Reykjaness. Þriðjudaginn 29. júlí verður gengið með Halldóri Ingvarssyni um Grindavík. Mæting er við verslunina Samkaup í Grindavík klukkan 20. Á NÆSTUNNI ÁFORMAÐ er að sleppa í dag 1000 urriðum í Seltjörn á Reykjanesi. Fiskurinn er af svonefndum ísald- arstofni, svipuðum og í Veiðivötn- um og gamla stofninum í Þingvalla- vatni. Fyrirtækið Reykjanes Adventure ehf. tók Seltjörn á leigu í vor af Reykjanesbæ. Vatnið er við Grinda- víkurveg, á landi Reykjanesbæjar. Hyggst fyrirtækið byggja upp stofninn í vatninu og endurvekja veiðiánægjuna en það tók vatnið á leigu til fimm ára. „Ég veiddi mikið í vatninu hér áður fyrr. Þetta er ákaflega fallegt og vel staðsett veiðivatn, stutt fyrir fólk að fara. Mig langaði því að bjarga vatninu,“ sagði Aðalsteinn Jóhannsson hjá Reykjanes advent- ure ehf. þegar blaðamaður leit við á dögunum. Þá var Aðalsteinn og samstarfsfólk hans að gera könnun á vatninu. Vitjaði um tvo litla net- stubba sem þau lögðu kvöldið áður. Komu fimmtán fiskar í netin. „Þetta kemur mér virkilega á óvart, þetta eru svo litlir net- stubbar. Hann segir að það sýni að enn sé töluvert af fiski í vatninu og hann sé feitur og pattaralegur. Leigutakar vatnsins ákvaðu strax að rækta upp ísaldarsilungs- stofn í vatninu en hafa ekki getað sleppt fiskinum fyrr en nú vegna hitans. Vatnið hefur nú kólnað og er áformað að sleppa 1000 fiskum, 2-4 punda að þyngd, í vatnið í dag. Við það ætti veiðin að glæðast en hún hefur verið frekar dræm í vor. Þó hafa veiðimenn sem þekkja vatnið vel fiskað ágætlega. Lögð er áhersla á fluguveiði í Seltjörn og að veiðimenn sleppi ósærðum fiski aftur í vatnið. Þó má hver maður taka með sér tvo fiska eftir daginn. Aðalsteinn segir að þetta sé liður í því að byggja upp stofninn. Hægt er að kaupa sér veiðileyfi fyrir dag í einu en einnig er boðið upp á sérstök sumarkort sem gilda allt sumarið. Ísaldarurriðinn í Veiðivötnum og Þingvallavatni er einstæður. Hann er stórvaxinn og feitur. Er talið að hann hafi einangrast ofan ófisk- gengra fossa fljótlega eftir að ísöld lauk og þaðan er nafnið fengið. Óvíða í heiminum er til hreinni stofn af þessari tegund urriða, að því er fram kemur á heimasíðu Veiðivatna. Urriðar af ísaldarstofni eru sérlega hraðvaxta og verða síð- ar kynþroska en urriðar af sjó- göngustofnum eða stofnum í lág- lendisvötnum. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Aðalsteinn Jóhannsson framkvæmdastjóri landar urriða úr Seltjörn. Þúsund ísaldarurrið- um sleppt um helgina Seltjörn „ÉG hef alla tíð unnið mikið, ekki síst við eldamennsku og ætla mér ekki að vera atvinnulaus á þessum aldri,“ segir Gréta Jónsdóttir, 64 ára, sem tekur við rekstri veitingastofunnar Varar 1. ágúst næstkomandi. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur á húsnæði og tæki veit- ingastaðarins og hefur leigt veitinga- mönnum. Reksturinn var auglýstur nýlega og var Gréta, með stuðningi fjölskyldu sinnar, í hópi þeirra fjög- urra aðila sem lögðu inn tilboð. Stjórn Sjómanna- og vélstjórafélags- ins samþykkti að taka tilboði hennar og segir Hermann Magnús Sigurðs- son formaður að vel viðunandi samn- ingar hafi náðst. Skammur fyrirvari Gréta segist hafa unnið í veitinga- stofunni í tólf ár við eldamennsku og fleira. Þegar núverandi rekstraraðili hafi ekki getað sætt sig við hækkun á leigu fyrir reksturinn og sjómanna- félagið boðið hann út hafi hún staðið frammi fyrir því að missa vinnuna. Hún segir að enga vinnu sé að hafa í Grindavík fyrir fólk á hennar aldri og því hafi henni dottið í hug að reyna að fá reksturinn á leigu og fengið við það öflugan stuðning fjöl- skyldu sinnar. Það hafi gengið eftir. Gréta tekur við rekstrinum 1. ágúst svo fyrirvarinn er skammur. Hún segist taka við að morgni þess dags og reyna að halda opnu því eng- inn dagur megi falla úr í svona rekstri. Hún hefur því í nógu að snú- ast þessa dagana við að afla leyfa og undirbúa innkaup. Hún hyggst reka staðinn með svipuðu sniðu og núverandi rekstr- araðili en segist hafa ýmsar hug- myndir að breytingum sem vonandi verði hægt að hrinda í framkvæmd með tíð og tíma. „Ég horfi bjartsýn fram á veginn og er viss um að þetta tekst hjá okkur,“ segir Gréta Jóns- dóttir. Tekur við veitingum í Vör 1. ágúst Ætla mér ekki að vera atvinnulaus Grindavík BÆJARRÁÐ hefur samþykkt fundargerð stjórnsýslunefndar en nefndin samþykkti á fundi sínum um miðjan mánuðinn að auglýsa stöðu jafnréttisráðgjafa 10. ágúst nk. en um 100% stöðu er að ræða. Samkvæmt minnisblaði frá vinnu- hópi meirihlutaflokkanna um stöðu og verkefni jafnréttisráðgjafa bæj- arins, er m.a. lagt til að staðan verði stjórnandastaða á stjórn- sýslusviði og heyri beint undir sviðsstjóra/bæjarstjóra. Elín Antonsdóttir hefur verið í starfi jafnréttisfulltrúa Akureyrar- bæjar í liðlega fjögur ár. Hún sagði starfi sínu lausu 1. júní og hætti nú í byrjun júlí. Elín var í 100% starfi hjá bænum og sinnti jafnréttismálunum í 50% stöðu. „Það segir enginn upp góðu starfi nema einhver ástæða liggi þar að baki. Mér leið afar vel í þessu starfi og hafði komist í kynni við mikið af góðu fólki,“ sagði Elín en vildi að öðru leyti ekki ræða ástæðu uppsagnar sinnar. Hún sagðist taka því fagnandi að til stæði í ráða í 100% stöðu við þenn- an málaflokk. „Það er nú samt þannig að jafnréttismál eiga langt í land, ekki bara á Akureyri heldur á landinu öllu og það er víða pottur brotinn. Ýmislegt jákvætt hefur gerst og það er t.d. ánægjulegt að sjá hver þróunin í átt til kynjajafn- réttis hefur verið í bæjarstjórn Akureyrar og í nefndum bæjarins. En það breytir því þó ekki, að á meðan laun kynjanna eru ekki jöfn, vantar talsvert mikið á jafn- réttið. Með það getur engin ábyrg manneskja verið ánægð með.“ Það er óhætt að segja að mikið hafi gengið á í þessum málaflokki í bænum mörg undanfarin ár. Ak- ureyrarbær hefur á liðnum árum greitt milljónir króna til nokkurra kvenna, vegna brota á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Sum þessara mála hafa komið til kasta kærunefndar jafn- réttismála en einnig hafa héraðs- dómur Norðurlands eystra og Hæstiréttur komið við sögu. Þegar niðurstöður þessara mála eru skoðaðar kemur í ljós að þau eru frekar vandræðaleg fyrir bæinn, ekki síst þar sem bæjaryfirvöld hafa lagt áherslu á jafnréttismál og þar hefur jafnréttisfulltrúi starfað lengi. Elín sagði ekki hægt að breiða fjöður yfir það að á undanförnum árum hafa komið upp mál sem hafa verið vandræðaleg og leiðinleg fyr- ir bæinn. „Kannski verður þessum málum betur fyrir komið þegar bú- ið verður að ráða jafnréttisfulltrúa í fullt starf. Og ég á ekki þá ósk heitari en að svo verði.“ Mikill skaði að missa Valgerði úr starfi jafnréttisstýru Valgerður H. Bjarnadóttir bæj- arfulltrúi á Akureyri hefur látið af starfi framkvæmdastýru Jafnrétt- isstofu og stjórnarformennsku í leikhúsráði Leikfélags Akureyrar, eftir að Héraðsdómur Norðurlands eystra komst að þeirri niðurstöðu að LA hefði brotið jafnréttislög við ráðningu leikhússtjóra. Elín sagði það mikið áfall fyrir jafnréttismál í landinu að ekki skyldi borin gæfa til þess að leysa þetta mál á annan máta en raun ber vitni. „Ég tel það mikinn skaða að missa Valgerði úr starfi jafnréttisstýru, þekking hennar á jafnréttismálum er óum- deilanleg,“ sagði Elín. Fráfarandi jafnréttisfulltrúi Akureyrarbæjar Jafnréttismál eiga langt í land á landinu öllu Jafnréttisfulltrúi hættir en jafn- réttisráðgjafi ráðinn í staðinn „VIÐ vorum að reyna að veiða kött en hann slapp alltaf,“ sögðu þeir félagar Einar Oddur Páll, 5 ára, og Hilmir Gauti, 6 ára, þar sem þeir voru með net í eftirdragi í Síðuhverfinu. Þeir gáfu sér þó tíma fyrir stutt spjall og mynda- töku. „Þessi köttur var búinn að skíta í garðinn hjá vinkonu hennar mömmu,“ sagði Hilmir „og pissa líka,“ bætti Einar við. „Við reynd- um og reyndum að ná kettinum en hann hljóp svo hratt, við hlupum líka hratt en kötturinn hljóp hrað- ar.“ Sigmar, félagi þeirra Einars og Hilmis, var einnig með í elt- ingaleiknum en hann var farinn heim. „Hann var alltaf að stökkva í polla og var orðinn blautur í fæt- urna.“ Vorum að reyna að veiða kött Morgunblaðið/Kristján Fjórðu tónleikar Sumartónleika í Akureyrarkirkju verða haldnir sunnudaginn 27. júlí kl. 17. Flytjandi verður orgelleikarinn Björn Steinar Sólbergsson og mun hann leika öll orgelverk Páls Ísólfssonar, í tilefni þess að í október n.k. eru liðin 110 ár frá fæðingu hans. Björn Steinar mun leika þessi verk í Hallgríms- kirkju og Selfosskirkju í september og einnig hljóðrita þau fyrir geisla- disk á haustdögum. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Kvöldmessa verður haldin í kirkj- unni kl. 20.30 og mun sr. Anna S. Pálsdóttir, dóttir Páls Ísólfssonar, predika og við messuna mun einnig verða flutt tónlist eftir Pál. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir þjónar fyrir alt- ari og félagar úr Kór Akureyr- arkirkju syngja. Á MORGUN Í DAG, laugardaginn 26. júlí, verður opnað í félagsheimilinu Sólgarði í Eyjafjarðarsveit ein- stakt safn ýmiss konar muna sem Sverrir Hermannsson, húsasmíðameistari á Akureyri, og eiginkona hans Auður Jóns- dóttir, hafa afhent Eyjafjarðar- sveit til eignar og varðveislu. Safnið hefur hlotið nafnið „Smámunasafn Sverris Her- mannssonar“ og er eins og áður segir einstakt í sinni röð. Fjöldi muna er ótrúlegur og fjöl- breytileikinn ekki síður, en Sverrir sem er Akureyringur, fæddur árið 1928, hefur safnað margs konar smáhlutum í ára- tugi og oft hafa honum áskotn- ast fast að þúsund hlutir á ári. Smámunasafn Sverris Her- mannssonar opnað Safnið ein- stakt í sinni röð Ein af nýjungum sumarsins á Gás- um verður á morgunn, sunnudag- inn 27. júlí kl. 11:00 en þá verður farið í dagsgönguferð frá Gásum að Möðruvöllum með viðkomu á tveimur öðrum sögufrægum stöð- um þ.e. Skipalóni og Hlöðum. Farið verður af stað frá bílastæðinu við Gáseyri. Gengið verður fyrst um uppgraft- arsvæði kaupstaðarins undir leið- sögn Dagbjartar Ingólfsdóttur en eftir það tekur Bjarni Guðleifsson, náttúrufræðingur, við leiðsögninni. Gengið verður að Skipalóni og Hlöðum og endað á Möðruvöllum þar sem rúta bíður til að ferja göngufólk aftur að bílastæðinu. Fólk er hvatt til að vera vel skóað og hafa með sér nesti. Þátttöku- gjald 1000 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.