Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 41 Pantaðu Fríþjónustu Morgunblaðsins í síma 569 1122, askrift@mbl.is eða á Þjónustan gildir fyrir fjóra daga að lágmarki og hana þarf að panta fyrir kl.16 daginn áður. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M O R 2 10 21 05 /2 00 3 Fáðu Morgunblaðið sent Við sendum blaðið innpakkað og merkt á sumardvalarstaði innanlands. Morgunblaðið bíður þín Við söfnum blaðinu fyrir þig á meðan þú ert í fríi og sendum til þín þegar þú kemur heim aftur. Fríþjónusta Ertu að fa ra í frí? Viltu vinna flugmiða? Á mbl.is geta áskrifendur Morgunblaðsins tekið þátt í léttum spurningaleik um Fríþjónustuna. Heppnir þátttakendur eiga möguleika á að vinna flug fyrir tvo til Prag eða Budapest með Heimsferðum. Taktu þátt! LEIKMENN Chelsea leika gegn sigurvegaranum í viðureign SK Zilina frá Slóvakíu ogr Maccabi Tel Aviv frá Ísrael í þriðju umferð for- keppni Meistaradeildar Evrópu. Ef Chelsea mæta Maccabi fá leikmenn- irnir tilvalið tækifæri til að hefna ófaranna frá UEFA-keppninni fyrir tveimur árum, þegar Chelsea var slegið út af ísraelska liðinu Hapoel Tel Aviv, samanlagt 3:1. Þá óskuðu nokkrir leikmenn að sleppa við að fara til Ísraels og leika þar, sem varð Chelsea dýrkeypt. Nýr eigandi Chelsea, Rússinn Roman Abramovich, mun ekki koma leikmönnum upp á að vera heima á nýjan leik þar sem hann leggur áherslu á að Chelsea komist í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Til þess að það takist verða leik- menn liðsins að fagna sigri í viður- eigninni í þriðju umferð forkeppn- innar. Chelsea leikur útileik sinn 12. eða 13. ágúst en heimaleikinn á Stamford Bridge tveimur vikum síðar. Mikil spenna var í leikmönnum ogdómarinn þurfti að hlusta á tuðið en getur sjálfum sér um kennt því hann lét menn komast upp með óþarfa brot sem voru til komin vegna óánægju með eigin frammistöðu. Þegar menn sáu að hann ætlaði sér ekki að hemja leikmenn gengu þeir á lagið og lögðu mikið í að garga á dómarann, aðstoðardómara og fleiri. Gestirnir úr Víkinni voru mjög ákafir fyrstu mínúturnar en heima- menn í Hafnarfirði vörðust fimlega til að byrja með. Mesta púðrið fór í að berjast um miðjusvæðið og þar höfðu Víkingar yfirleitt betur en ekki betur en svo að Haukar fengu fleiri umtals- verð færi. Fjögur sæmileg færi voru skráð á Víkinga fyrir hlé og fimm á Hauka en Ögmundur Rúnarsson í marki Víkinga sýndi tvisvar glæsileg tilþrif í markinu. Dæmið snerist við eftir hlé, þá náðu Víkingar völdum á miðjunni og þegar vörnin hafði sóknarmenn Hauka í hendi sér fengu þeir ekki færi fyrr en undir lok leiksins. Strax í upphafi síð- ari hálfleiks varði Jörundur Kristins- son markvörður Hauka vel á línu, Daníel Hjaltason prjónaði sig laglega í gegnum vörn Hauka á 53. mínútu en skaut framhjá og á 75. mínútu átti Stefán Örn Arnarson gott skot en það fór í varnarmann og horn. Þegar leið að lokum fóru Haukar að færa sig upp á skaftið en gekk illa að komast framhjá Sölva Geir Ottóssyni og Þorra Ólafssyni en Goran Lukic tókst samt að sleppa í gegn á 86. mínútu en skot hans fór rétt framhjá stönginni. Haukar stóðu vörnina af prýði en tókst ekki að halda miðjusvæðinu og sóknarmenn þeirra voru ofurliði bornir eftir hlé. „Þetta var hörkubar- átta og slagur milli tveggja liða, sem spila af hörku og nota líkamann,“ sagði Guðmundur Magnússon varn- armaður Hauka eftir leikinn. „Við ætluðum að nota sömu taktík og Vík- ingar hafa sjálfir notað – að liggja aft- arlega í vörninni og sækja síðan hratt. Við þéttum því miðjuna og það gekk upp að vissu leyti en við náðum ekki að pota boltanum inn. Eftir hlé hugs- uðu bæði lið meira um að fá ekki á sig mark en það vill oft verða svo,“ bætti Guðmundur við. „Ég tel að Víkingar muni blanda sér í toppbaráttuna og við ætluðum að gera það líka með sigri í dag en ætli við höldum bara ekki áfram í miðjumoðinu um stund.“ Jörundur markvörður átti góðan leik og Darri Johansen með Guðmundi í vörninni en Goran Lukic og Magnús Ólafsson áttu góða spretti. Víkingar gengu ekki sáttir af velli og ekki hýrnaði yfir þeim við fréttir af sigri Þórs. „Við ætluðum að taka þrjú stig og þurftum á því að halda til að halda öðru sæti deildarinnar,“ sagði Þorri Ólafsson fyrirliði Víkinga, sem átti góðan leik í vörninni ásamt Sölva Geir. „Þetta var ekki nógu gott hjá okkur í fyrri hálfleik því við eyddum fjörutíu og fimm mínútum í vitleysu, röfl og tuð í stað þess að einbeita okk- ur að leiknum. Við ætluðum að snúa við blaðinu eftir hlé og sköpuðum okk- ur færi en Haukar áttu ekki eitt í fjörutíu og fimm mínútur. Það vantaði hins vegar alveg að skora mörkin, við höfum gert fimm jafntefli og það gengur ekki upp, við verðum að vinna fleiri leiki.“ Fyrir utan varnarmenn- ina tvo áttu Steinþór Gíslason og Ög- mundur góðan leik. Daníel Hjaltason var í fremstu víglínu en tókst ekki vel upp þar, hinsvegar var hann góður við að aðstoða á miðjunni. Morgunblaðið/Kristinn Egill Atlason úr Víkingi og Haukamaðurinn Jón Gunnar Gunnarsson voru einbeittir á svip. Meira um tuð en mörk á Ásvöllum EITT stig á hvort lið var alveg nóg umbun þegar Víkingar sóttu Hauka heim í Hafnarfjörðinn í gærkvöldi. Meira var um tuð og röfl í stað góðrar knattspyrnu enda lauk leiknum með markalausu jafn- tefli. Haukum tókst með sigri að færa sig upp í fjórða sæti deild- arinnar en þar sem Þór vann HK í Kópavoginum misstu Víkingar annað sæti deildarinnar til Þórsara. Stefán Stefánsson skrifar Chelsea aftur til Ísrael?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.