Morgunblaðið - 16.09.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 16.09.2003, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. NÚ er sá tími að margir Íslendingar leggja leið sína í skóginn í leit að sveppum til matar. Það gerði Magda Kulinska sem býr í Stykkishólmi. Hún þekkir þá venju í heimalandi sínu, Póllandi, að fara út í skóg og tína sveppi. Hún og maður hennar fóru upp í Sauraskóg í Helgafellssveit í þessum tilgangi á sunnudaginn. Í leit sinni gekk hún fram á risavaxinn kóngssvepp. Magda fór með sveppinn heim til nánari skoðunar. Hann reyndist vera 3,58 kíló að þyngd. Ummál hatts- ins er 110 cm og þvermál um 36 cm. Ummál stafsins var 36 cm svo að vart náðist með höndum utan um stafinn. Kóngssveppur vex víða í skógum á Vesturlandi. Hann er hattsveppur með brúnan, þykkan hatt. Í ís- lensku alfræðiorðabókinni segir að hattur kóngs- sveppsins sé oft 12–16 cm breiður. Kóngssveppur er einn besti ætisveppur landsins. Ekki ætlar Magda að borða sveppinn, en hann er til sýnis á veitingastaðnum Fimm fiskum þar sem hún vinnur. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Magda Kulinska heldur á risasveppnum. Hann vó 3,58 kíló. Það þyrfti átján 200 gramma sveppabakka til að rúma þennan svepp. Risasveppur finnst í Sauraskógi Stykkishólmi. Morgunblaðið. Kóngssveppur kennd- ur við Karl Jóhann GUÐRÍÐUR Gyða Eyjólfs- dóttir sveppafræðingur sagði að kóngssveppurinn sem Magda Kulinska fann í Saura- skógi væri með stærstu svepp- um af þessari gerð sem fundist hefðu hér á landi. Hún sagðist að vísu ekki halda saman upp- lýsingum um stærstu sveppi á Íslandi. Þetta væri mjög stór sveppur en hann hefði líka hæfileika til að verða mjög stór. Hún sagði að líklega hefði sveppurinn verið nokkuð blautur þegar hann var vigtaður. Kóngssveppur vex aðallega á Vesturlandi og Vest- fjörðum, en finnst þó víðar. Þetta er svepprótar- sveppur sem vex í skógum. Kóngssveppur er mat- sveppur og þykir mjög ljúffengur. Guðríður Gyða sagði að kóngssveppur væri kenndur við Karl Jó- hann sem var kóngur í Svíþjóð, en hann vildi kenna Svíum að njóta sveppsins. Í Svíþjóð heitir svepp- urinn einfaldlega Karl Jóhann. Fleiri íslenskir sveppir geta orðið stórir. Einn þeirra er jötungíma sem er belgsveppur og getur orðið mjög stór. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir ÖRTRÖÐ myndaðist í Pennanum- Eymundsson í gærkvöldi þegar hundrað manns mættu til að halda upp á að fyrsta bók stórstjörnunnar Madonnu er komin út. Bókin var kynnt með viðhöfn, og Páll Óskar söng Madonnusmelli, auk þess sem Silja Aðalsteinsdóttir las kafla úr bókinni, en hún er þýðandi hennar. Bókin, sem ber nafnið Ensku rós- irnar, hefur verið þýdd á 30 tungu- mál en hún var kynnt í verslunum í yfir 100 löndum á sama tíma, klukkan átta í gærkvöldi. Bókin seldist vel, að sögn Æsu Bjarna- dóttur hjá bókabúðinni, sem segir þetta létta og skemmtilega krakka- sögu og hæfilega „móralska“. Örtröð vegna bókar Madonnu Morgunblaðið/Árni Sæberg Aflaheimildir Dverga- steins á Seyðisfirði Geta keypt kvótann til baka SEYÐFIRÐINGUM stendur til boða að kaupa til baka þær aflaheim- ildir sem fiskvinnslan Dvergasteinn á Seyðisfirði hefur haft til umráða á undanförnum árum en hafa nú verið færðar á skip í eigu Skagstrendings. Þegar Dvergasteinn sameinaðist Skagstrendingi í ársbyrjun 1997 hafði Dvergasteinn til umráða ríf- lega 400 þorskígildistonna kvóta sem rann til Skagstrendings við samein- inguna. Kvótinn hefur engu að síður verið nýttur allur til vinnslu hjá Dvergasteini á Seyðisfirði. Heildarverðmæti kvótans og eigna Dvergasteins var þá metið á 147 milljónir króna sem var breytt í hlutabréf í Skagstrendingi á genginu 6,3. Við það eignuðust fyrrverandi eigendur Dvergasteins 8,2% hlut í Skagstrendingi. Framkvæmdastjóri Útgerðar- félags Akureyringa segir að búið sé að reyna til þrautar að halda rekstri Dvergasteins gangandi en segir að kvóti félagsins skipti ekki sköpum í rekstri ÚA og sé því falur.  Kvótinn/25 BORGARVERKFRÆÐINGUR hef- ur varpað fram þeirri hugmynd að framhaldsskólanemendur fái frítt í strætó tvisvar á dag gegn framvísun skólaskírteinis í þeirri von að það dragi úr umferð- arþunga einkabíla. Við setningu evrópskrar sam- gönguviku í Ráðhúsinu í gær sagði Björn Ingi Sveinsson borg- arverkfræðingur að bifreiðaeign væri jafnvel orðin hlutfallslega meiri hér á landi en í Bandaríkj- unum. Notkun einkabílsins héldi áfram að aukast og áfram þyrfti að leggja götur og mislæg gatna- mót. „Kannski væri rétt að skoða þetta og gefa öllum nemendum frítt í strætó tvisvar á dag gegn framvísun skólaskírteinis, t.d. á milli 7 og 9 á morgnana og aftur á milli 15 og 17 síðdegis. Kannski gæti svo einföld aðgerð frestað því að gera þyrfti t.d. mislæg gatnamót á mótum Kringlumýr- arbrautar og Miklubrautar næstu árin, án þess að tilkostnaður borgarinnar væri of mikill. Á sama tíma myndi unga fólkið venjast því að ferðast með þessum hætti og þetta gæti orðið upphaf- ið að nauðsynlegri viðhorfsbreyt- ingu,“ sagði borgarverkfræð- ingur. Morgunblaðið/Kristinn Frítt í strætó fyrir nem- endur á álagstímum?  Framhaldsskóla- nemendur fái/11 EINUNGIS rúma þrjá milljarða króna vantar upp á að útgáfa húsbréfa fyrstu átta mánuði þessa árs sé jafnmikil og hún varð á öllu árinu í fyrra, sem þó var metár í útgáfu húsbréfa. Raun- ar er húsbréfaútgáfan í ár þegar orðin meiri en hún hefur orðið á öðru heilu ári ef síðasta ár er undanskilið. Endurskoðuð áætlun Íbúðalánasjóðs í júlí í sumar um útgáfu húsbréfa í ár er sprung- in, samkvæmt upplýsingum í ágústskýrslu sjóðs- ins, en þá var gert ráð fyrir að samþykkt skulda- bréfaskipti á árinu yrðu 47 milljarðar króna. Það er rúmum 12 milljörðum kr. hærra en áætlað var í upphafi ársins. Nýrrar áætlunar um húsbréfa- útgáfuna í ár er ekki að vænta fyrr en í næsta mánuði. Samkvæmt upplýsingum Íbúðalánasjóðs eru engin merki um að tekið sé að draga úr eftir- spurninni í þessum efnum það sem af er sept- embermánuði. Samþykkt skuldabréfaskipti Íbúðalánasjóðs námu tæpum 32,2 milljörðum kr. í lok ágústmán- aðar. Á sama tíma í fyrra höfðu verið samþykkt skuldabréfaskipti fyrir 22,5 milljarða króna, sem er tæpum tíu milljörðum króna minna en í ár. Á öllu síðasta ári voru samþykkt skuldabréfaskipti fyrir 35,3 milljarða króna og á árunum þremur á undan námu samþykkt skuldabréfaskipti árlega 28-31 milljarði króna. Mun minni húsbréfaútgáfa var hins vegar árin þar á undan eða 21 milljarður króna á árinu 1998 og 16,5 milljarðar króna á árinu 1997. Heildarútgáfa húsbréfa frá upptöku húsbréfakerfisins árið 1989 er nú orðin um 240 milljarðar króna. Þar af má rekja yfir 150 millj- arða króna til útgáfunnar á síðustu fimm árum. Umsóknum um húsbréfalán hefur fjölgað mik- ið. Þær voru orðnar tæpar átta þúsund fyrstu átta mánuði ársins. Í fimm af þessum átta mán- uðum voru umsóknirnar fleiri en eitt þúsund, en það hefur einungis gerst fjórum sinnum áður að umsóknir í hverjum mánuði hafi orðið fleiri en eitt þúsund talsins. Nú er því spáð að umsókn- irnar í ár verði yfir 12 þúsund, en þær hafa flest- ar orðið rúmar 10 þúsund á öllu síðasta ári. Metútgáfa húsbréfa hjá Íbúðalánasjóði fyrstu átta mánuði ársins Aðeins þremur milljörðum minni en allt árið í fyrra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.