Vísir - 06.12.1980, Blaðsíða 33
L'á'ug&Vtiáf'úi1*’ 6. ' déSéiWti’tír' "li»áo
33
Hluti tónlistarmannanna, sem koma fram á tónleikum Kammersveitar
Reykjavíkur i Bústaðakirkju á morgun.
Bachkonsert
- á tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur
Aðrir tónleikar Kammersveitar
Reykjavikur á þessu starfsári
verða i Bústaðakirkju á morgun,
sunnudag, klukkan 17 og verður
þar einvörðungu flutt barokk-
tónlist eins og venja er á desem-
bertónleikum Kammersveitar-
innar.
Að þessu sinni verður fluttur
konsert eftir J.S. Bach fyrir tvær
fiðlur og kammersveit. Þennan
sama konsert umskrifaði Bach
siðar fyrir tvo sembala og kamm-
ersveit. Óvanalegt er að tónskáld
umskrifi svona nótu fyrir nótu
einleiks-, eða i þessu tilviki tvi-
leikskorisert fyrir annað hljóðfæri
en það, sem upphaflega var haft i
huga.
Á tónleikum Kammersveitar-
innar gefst tónleikagestum tæki-
færi til að hlýða á báðar gerðir
konsertsins, þvi eftir flutning
hans fyrir tvær fiðlur og kamm-
ersveit verður hann leikinn i sið-
ari útgáfunni fyrir tvo sembala og
kammersveit. Fyrsta verkið á
tónleikunum verður konsert eftir
Telemann fyrir trompet, tvö óbó
og kammersveit, en tónleikunum
lýkúr með flutningi á Concerto
grosso eftir Corelli, en verkiö var
samið til flutnings á jólanótt og
þvi ævinlega nefnt „Jólakonsert-
inn”. Alls koma fram á tónleikum
Kammersveitarinnar að þessu
sinni 20 tónlistarmenn en einleik-
arar eru semballeikararnir Helga
Ineólfsdóttir oe Elin Guðmunds-
dóttir, fiöluleikararnir Laufey
Sigurðardóttir og Ruflngólfsdótt-
ir og Lárus Sveinsson trompetleik
ari.
Tónleikar Kammersveitar
Reykjavikur eru fyrir styrktarfé-
laga, en miðar á einstaka tónleika
eru seldir hverju sinni við inn-
ganginn á meðan húsrúm leyfir.
Aðsóknað tónleikum sveitarinnar
hefur aukist mjög mikið og var
Bústaðakirkja þéttsetin á fyrstu
tónleikum vetrarins.
íBókmennta-i
1 kynning í I
l Norræna i
húsinu á i
! morgun <
Bókmenntakynning verður i
Norræna húsinu á vegum Máls
og menningar á morgun,
sunnudag, klukkan 15.30. Les-
ið verður úr helstu útgáfubók-
um Máls og menningar á
þessu ári, m.a. úr nýjum
skáldsögum eftir Guðberg
Bergsson, Guðlaug Arason,
Lineyju Jóhannesdóttur og
Ólaf Hauk Simonarson. Þá
verður lesið úr bók þeirra Ein-
ars Olgeirssonar og Jóns
Guðnasonar og úr nýrri ljóða-
bók eftir Sigurð Pálsson.
Einnig verður lesið úr þýdd-
um verkum. M.a. mun Þor-
geir Þorgeirsson lesa úr þýð-
ingu sinni á hinu nýja smá-
sagnasafni William Heinesen,
sem um þetta leyti er að koma
út i fyrsta sinn á frummálinu.
Kynnir verður Hjalti Rögn-
valdsson, en höfundar munu
allflestir lesa sjálfir úr verk-
um sinum. Hlé verður gert á
dagskránni og verður kaffi-
stofa Norræna hússins opin
gestum þess.
Þá er einnig fyrirhugað að
hafa sérstaka kynningu á
barnabókum þeim sem Mál og
menning gefur út á þessu
hausti og verður hún einnig i
Norræna húsinu aö viku lið-
inni, þ.e. sunnudaginn 14. des.
og hefst klukkan 15. Nánar
verður sagt frá henni siðar.
Magnús Jóhannesson heldur sýningu á um 20 vatnslita- og acrylmynd
um á Hótel Borg um þessar mundir.
Kínversk mynfllist
á Kiarvalsstððum
Kinversk-islenska menningar-
félagið og sendiráð Kinverska al-
þýðulýðveldisins á lslandi efna til
sýningar á kinverskri myndlist i
hefðbundnumstil að Kjarvalsstöð-
um. Sýningin verður opnuð i dag,
laugardag, klukkan 14 og stendur
til 15. desember.
Málverk þau, sem eru á sýn-
ingu þessari, eru máluð sam-
kvæmt fornum hefðum, sem tiðk-
ast hafa i Kina frá örófi alda. Hér
er um að ræða fjölbreytileg dæmi
þessarar listar, þar sem túlkuð
eru hin margvislegustu efni úr
kinversku þjóðlifi.
Kinversk myndlist hefur verið
samofin ljóðlist um langt skeiö,
og kfnverskir málarar hafa löng-
um tjáð ýmsar þjóðfélagshrær-
ingar í verkum sinum. Hefðbund-
in, kinversk myndlist hefur þvi
gegnt og gegnir enn afar mikil-
vægu hlutverki i kinversku þjóð-
lifi. Þennan sérstæða listviðburð
ætti enginn listunnandi að láta sér
úr greipum ganga.
Risakolkrabbinn
(Tentacles)
Islenskur texti
Afar spennandi, vel gerð
amerisk kvikmynd i litum,
um óhuggulegan risakol-
krabba með ástriðu i manna-
kjöt. Getur þaö i raun gerst
að slik skrimsli leynist við
sólglaðar strendurs
Aöalhlutverk: John Huston,
Shelly Winters, Henry
Fonda, Bo Hopkins.
Sýnd kl.3 — 5 og 9
Bönnuð innan 12 ára
Varnirnar rofna
I litum um einn helsta þátt
innrásarinnar i Frakklandi
1944. Aöalhlutverk: Richard
Burton, Rod Steiger, Robert
Mitchum o.fl.
Endursýnd kl.7 og 11
Bönnuð börnum
TÓNABÍÓ
Simi 31182
Bleiki Pardusinn legg-
ur til atlögu
(The Pink Panther strikes
again)
miKblJUH. Olclivc uuvvaiuo
.Aðalhlutverk: Peter Sellers,
Herbert Lom
Endursýnd kl.5, 7.10 og 9.15
THEIMEWEST.
PIIXIKEST PAIMTHER
OFALL!
Hin æsispennandi litmynd,
eftir samnefndri sögu sem
komið hefur i isl. þýðingu.
Leikstjóri: Mark Robson.
Robert Shaw — Lee Marvin
Islenskur texti
Bönnuð innan 14 ára
Sýndkl. 5,7,9 og 11.
Simi50249
Faldi f jársjóðurinn
Spennandi og skemmtileg ný
kvikmynd frá Disneyfélag-
inu.
Aöalhlutverk: Peter Ustin-
ov, Joan Hackett.
Sýnd kl.5 og 9
laugardag og sunnudag.
Piranha
Spennandi mynd um mann-
ætufiska.
Sýnd kl.7 sunnudag.
Hugvitsmaðurinn
Bráðskemmtileg frönsk
gamanmynd fyrir alla fjöl-
skylduna.
Sýnd sunnudag kl.3
ÍONBOGSÍ
19 OOÓ
-§@)DtU)ff A*
Trylltir tónar
VILLAGE PEOPLE
VALERIE PERRINE
BRUCE JENNER
Vlöfræg ný ensk-bandarisk
músik og gamanmynd, gerð
af Allan Carr, sem gerði
„Grease”. — Litrik, fjörug
og skemmtileg með frábær-
um skemmtikröftum.
Islenskur texti.
Leikstjóri: Nancy Walker
Sýnd kl. 3-6, 9 og 11.15
Hækkað verð.
iSysturnar
What the
Devil hath
joined together
let no man
cut asunder!
Sérlega spennandi og sér-
stæö og vel gerð bandarisk
litmynd, gerð af Brian dc
Palnia,með Margot Kidder
— Jennifer Salt
tslenskur texti —
Bönnuð innan 16 ára
Endursýnd kl. 3,05, 5.05,
7.05,9.05 og 11.05
■§©0(U)ff .,C'
Hjónaband
Maríu Braun
Spennandi — hispurslaus, ný
þýsk litmynd gerö af Rainer
Werner Fassbinder.
Hanna Schygulla — Klaus
Lowitsch
Bönnuð innan 12 ára
Islenskur texti
Sýnd kl. 3, 6, 9 og 11,15
' ‘ 1
--------rSíglOtW 5---------:
Valkyrjurnar
Hressilegaspennandi banda-
risk litmynd, um stúlkur
sem vita hvað þær vilja —
Islenskur texti
Bönnuð innan 14 ára.
Endursýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15,
9.15 og 11.15.
Ríkisútvarpið
auglýsir starf varadagskrárstjóra laust til
umsóknar. Háskólamenntun æskileg. Viðkom-
andi þarf aðgeta hafiðstörf 1. janúar n.k.
Umsóknum sé skilað til Rikisútvarpsins/
Skúlagötu4, á eyðublöðum sem þar fást, fyrir
12. desember.