Morgunblaðið - 04.12.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.12.2003, Blaðsíða 30
LISTIR 30 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ STEFNT var til samsöngs sl. mánudagskvöld í Salnum, tónlistar- húsi Kópavogs, á vegum Tíbrár og sungið allt sönglagasafn Jóns Þórar- inssonar tónskálds. Jón var okkar fyrsta nútímatónskáld (módernisti) og flutti Íslendingum það sem efst var á baugi, en kennari hans í Bandaríkj- unum var Paul Hindemith, sem ásamt Schönberg, Stravinskí og Bartók fór fyrir öðrum í tilþrifamiklum tónskáld- skap á nýliðinni öld, sem var sann- arlega tími mikils umróts, þar sem margt var rifið upp með rótum og nýsáning unnin af kappi. Staðan í dag er sú að eftir að rómantíkin var leyst af hólmi með módernismanum og til- raunatímanum, sem fylgdi í kjölfarið, hefur staðan verið endurmetin og að- greiningin horfið og saman mynda þessir andstæðu straumar nú sam- virka undirstöðu, þar sem öllu ægir saman. Á mjög skemmtilegan máta sýnir tónsmíðaferli Jóns Þórarinssonar þessi átök um listgildin, því fyrstu lög Jóns, áður en hann fór til náms í Bandaríkjunum, eru Íslenskt vöggu- ljóð á hörpu og Fuglinn í fjörunni. Síðan má heyra allt annan tón og nú- tímalegri í tveimur lögum við kvæði eftir Andrés Björnsson, Gömul vísa og Vorvísa, og þá ekki síst í einhverju glæsilegasta söngverki Jóns, laga- flokkinum Of Love and Death, við kvæði Kristínar Rosetti. Afturhvarf til eldri gilda má svo heyra í lögunum við kvæði Kristmanns Guðmundsson- ar, Jeg fandt i morges, og Magdalenu Thoresen, Jeg elsker dig, sem hún trúlega yrkir til Gríms Thomsens, og í lokalagi tónleikanna, Hin fyrstu jól, við kvæði eftir Davíð Oddsson. Sem sérstakt millispil má svo heyra frá- bærar útsetningar Jóns á íslenskum þjóðlögum, þar sem fornum söngarfi okkar Íslendinga er ætluð verðug staða í tónumsvifum nútímans. Tónleikarnir hófust á þremur þjóð- lagaútsetningum, sem voru Blá- stjarnan (Bjarni Thorarensen), Sökn- uður (Jónas Hallgrímsson) og Úti er þú við eyjar blár (gömul viðlög) sem Ólafur Kjartan Sigurðarson söng ald- eilis vel, sérstaklega Söknuð. Næstu fjögur lög söng Auður Gunnarsdóttir og þar birtust sérkennilegar and- stæður tónmáls, því Morgunvísur og Nú legg ég augun aftur eru af allt annarri gerð en lögin við kvæðin eftir Andrés Björnsson, sem Auður söng mjög vel við glitrandi skýran undir- leik Jónasar. Gunnar Guðbjörnsson söng Dáið er allt án drauma (Halldór Laxness), Vorkvæði (Jónas Hall- grímsson) og Gróðurlaus fjöll (Davíð Stefánsson) af töluverðum myndug- leik, sérstaklega Dáið er allt án drauma. Ólafur Kjartan söng af glæsibrag lagaflokkinn Of Love and Death, sér- staklega fyrsta (Three Seasons) og þriðja lagið (My friend), en í þessu tónverki er ritháttur Jóns margslung- inn og áhrifamikill. Gunnar Guð- björnsson söng af þokka þrjú lög við kvæði eftir Stein Steinarr, Það vex eitt blóm fyrir vestan, Siesta og Hljóð streymir lindin í haga, þar sem píanó- leikur Jónasar var blómstrandi falleg- ur. Auður fékk svo að syngja fjögur af vinsælustu sönglögum Jóns, Jeg fandt i morges, Jeg elsker dig, Ís- lenskt vögguljóð á hörpu og Fuglinn í fjörunni, sem öll voru vel sungin, þótt Fuglinn í fjörunni hafi verið einum of órólega fluttur og t.d. millispilið allt of hratt leikið af Jónasi. Niðurlag tónleikanna var lagið Hin fyrstu jól (Davíð Oddsson), ágætt og látlaust jólalag, sem söngvararnir skiptust á að syngja en enduðu svo þriðja erindið með rismiklum sam- söng. Það var fróðlegt að heyra öll sönglög Jóns, því eins og fyrr segir spanna þau listrænt umrót nýliðinnar aldar, en það ber þó einnig að hafa í huga, að Jón lagði fleira til með sér af góðri tónlist en sönglögin og mætti sem best gera kammertónlist hans sömu skil og sönglögunum að þessu sinni. Að marsera út með virðuleik Það er árlegur viðburður fyrir jól, að Blásarakvintett Reykjavíkur býð- ur til kvöldlokkuveislu á jólaföstu og að þessu sinni 2. desember í Fríkirkj- unni. Fyrsta viðfangsefnið var „áttleik- ur“ (oktett) eftir Johann Nepomuk Hummel (1778–1837), píanósnilling og tónskáld, er lærði hjá Mozart, Al- brechtsberger, Salieri og Haydn. Fyrir utan mikinn fjölda tónverka setti hann saman þriggja binda kennslubók, Ítarleg fyrirmæli í píanó- leik (Ausführlich Anweisung zum Piano-forte Spiel), sem var gefin út 1828. Þrátt fyrir að Hummel væri á sínum tíma skipað á bekk með Mozart hefur mjög fölnað frægð hans. Nýleg- ar uppfærslur á verkum hans hafa vakið verðskuldaða athygli og ber þessi áttleikur því glöggt merki, að Hummel var gott tónskáld, enda mátti glögglega heyra á leik félag- anna, sem var sérlega skemmtilega útfærður, að þeim leið vel með Hum- mel. Mozart átti næsta verk, stuttlegt en snoturt Divertimento í B-dúr, K.270 og er í það í flokki þeirra verka, sem leika átti utandyra, þ.e. verkið er ekki samið fyrir atvinnukammertón- listarmenn, sem af fullri virðingu var boðið til stofu og þakkað fyrir góðan leik, heldur götuspilara, sem urðu að leika tónlist sína undir gluggum hlustenda, verk sem oftar en ekki voru sérlega einföld en ekki ófögur. Þriðja viðfangsefnið var kvintett í Es-dúr eftir Johann Christian Bach (Lundúna-Bach). Líklega er hér um að ræða eitt af þremur verkum í Es- dúr, í safni sjö verka sem nefnast sín- fóníur og eru samdar fyrir tvö klarin- ett, tvö horn og fagott. Þessi verk voru ekki gefin út fyrr en 1957–58, hjá Stein í Leipzig, og eru þessar þriggja þátta kammersinfóníur vel gerð verk, sem voru í heild mjög vel leikin. Lokaviðfangsefnin voru umritanir á sjö atriðum úr Brúðkaupi Figarós eftir meistara Mozart. Það er svo með umritanir að venjulega standa þær að baki frumgerðinni og það var svo, þrátt fyrir frábæran leik félaganna, sem lyftu stemningunni upp undir lokin með því að gera það sem at- vinnukammermúsíkantar gerðu á tímum Mozarts, að marsera spilandi með virðuleik út að loknum leik. Þannig lauk þessum skemmtilegu og jólastemmdu tónleikum í Fríkirkj- unni sl. þriðjudagskvöld. Listrænt umrót nýliðinnar aldar Jón Ásgeirsson Morgunblaðið/Golli Jón Þórarinsson TÓNLIST Salurinn SÖNGTÓNLEIKAR Flutt voru sönglög eftir Jón Þórarinsson. Flytjendur voru; Auður Gunnarsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson, Ólafur Kjartan Sig- urðarson og Jónas Ingimundarson. Mánu- dagurinn 1. desember. Fríkirkjan KAMMERTÓNLEIKAR Blásarakvintett Reykjavíkur og félagar fluttu kammerverk eftir Hummel, Mozart og J.C. Bach. Þriðjudagurinn 2. desem- ber. „Það var fróðlegt að heyra öll sönglög Jóns Þórarinssonar.“ Landfræðissaga Íslands eftir Þorvald Thoroddsen er fyrsta bindi af fjórum, en nú er liðin rúm öld frá því það var gefið út síðast. Landfræðissagan fjallar um hug- myndir manna um Ísland, nátt- úruskoðun og rannsóknir fyrr og síðar. Hún er undirstöðurit um könnun landsins og fjallar jafnframt um ýmsa aðra þætti íslenskrar menning- arsögu. Þetta bindi hefst með frá- sögnum af siglingum Forn-Grikkja í norðurhöfum og nær fram yfir alda- mótin 1600. Þetta stórvirki Þorvalds Thoroddsens kemur nú út í nýrri og myndskreyttri útgáfu. Virtir fræði- menn koma að verkinu og rita sér- staka skýringarkafla í lokabindinu. Þorvaldur Thoroddsen (1855– 1921) fæddist í Flatey á Breiðafirði. Hann gekk í Lærða skólann og lauk þaðan stúdentsprófi 1875, stundaði síðan nám í náttúrufræðum í Kaup- mannahöfn 1875–1880. Þorvaldur hætti námi til þess að tryggja sér starf heima á Íslandi þar sem hann stundaði kennslu framan af, fyrst á Möðruvöllum og síðan í Reykjavík. Jafnframt kennslustörfum fór hann könnunarferðir um landið flest sumur allt til ársins 1898 og lagði með því starfi ómetanlegan skerf til nátt- úrurannsókna á Íslandi. Þorvaldur fluttist með fjölskyldu sinni til Kaup- mannahafnar 1895. Þar gaf hann sig mest að ritstörfum og er Land- fræðissaga Íslands hið fyrsta í röð stórverka hans. Útgefandi er bókaútgáfan Orms- tunga. Bókin er 208 bls. Verð: 6.840 kr. Fræði Sigrún Klara Hannesdóttir lands- bókavörður og Gísli Már Gíslason út- gefandi með fyrsta eintak 1. bindis Landfræðissögu Íslands Þorvaldar Thoroddsen. 1 2 3  345              360 373108 5 3#   39  3!   0 3" :5  !"#  303; 0 3  $%&'"'()*"" 3; 3 0 3 5 + ,%+-." "  31<  32  0 36="35  / 01" 2 3>  3# 0 36="35  3 "# ,   3? 39 0 05 3!  41%4 ," 3= 36 0 39 3  @ 5 5 05  ," 3>  3  35   30  5 6" ,7, '" % 3!536 0 3053  36="30  5 $   30 3 !"# $%&'(( $)!(*"+$           39  3!   0 3" :5  43  3$ 37 0 3A 3053  5 03  3 5  35 0 3A 3053  5 8  -) 3;  3B 0 36="35  9 : 3? 3# 08 3#  ;')*  B   39  32 0 0 3A 3053  5 &"7) " " , 395  3C  3  0 5 <*3 ,-=# 3A <355 3C 3  0 5 &".)"#  3! 39  3A 3053  5 > "- 0# 3"53B  36="35   !"# $,+%&'((,+-,+#,.%&/#&!0#&,-1$/+              360 373108 5 3#  ?3"@A+B"   3$0 3C0 36="35  C. 3105 3 5   36="35  4 ,   37  35 3B  3A 3053  5 D* E* . 1 ,B) 3) 3? 3= < 36="35  / " ."  3A 0 3A 3053  5 * )"# &*03 3;  3B 3B  50 3A 3053  5 41"F 3>0 5  3>  0 39 3  1)3')G 3# 5 35  30535   3# 3"  36="35  .) 3! 5 3D 3#  5 0 3053$  3E 3#  3A 3053  5 ,!2"##3"4#0%&5,#(-1$/+            $%&'"'()*"" 3; 3 0 3 5 3 "# ,   3? 39 0 05 3!  6" ,7, '" A 3!536 0 3053  36="30  5 6" "7, 3D 35 0 3053! 5  5 3# 0 30  5 97 3>0 3  50 3F  :  <  5 D ' B)" *  36 3G 3==30  5 4B , 3)' B) 36 3G 3==30  5 3"017 3AH 3A00  30  5 >=" ,03 - "# 3? 3#   36="35  .7*- 3 3B<3B    36="35  -  6   78 9 1*0 :&/+%&"#(/+20##0#&,+           !"#  303; 0 3  + ,%+-." "  31<  32  0 36="35  / 01" 2 3>  3# 0 36="35  41A4 ," 3= 36 0 39 3  @ 5 5 05  ," 3>  3  35   30  5 B D7  3I 36="35  B ) *  ,HI190-'3"4*' "" 3B3= 0 3A 3053  5 / " 2 3 J) 3$ 3=   3" :5  / B) 4 .*"7KA , 3 053  0 3>   5 ,. 3 33B 0 39 3  @ 5  !"# $%&'((!;<=    C. 3 36 3 37 3A 3053  5 '13' 3 3" :5  +-.)731 35  3= 0 36="35         !"#$%!&!' ()*+ !"#$%!&&)'    3@ 5  0  3 33  J35 3'33&**'3K  3<  3A0 5  @ 53  33  5  3053@ 53  :3053  5   37    3 3     J @             5 =  :#  37   J37  J # J3L  J3#0 5 J3  J39  <  053$5 J3#   36  32 : 0 J3  J3 5 MJ39  < J3LJ 9 30539  < J3=  :#  J3   :  J39  < J3=  :$< 0 J B 0 5J39  < J3  MJ3L  305 $5 J3 NJ3  J34  J35 ;  J3?  3053   39  <  #  3A 3053  5 J3F 5 5J3A 305   J3#   3  3   5 J # J30 5 J3  J37  5 J37  5 A0 J3 0 53053   J3$< 0 J 7  5 3053  J3B J3  J3 5 MJ $ 0 5J37  5 J3  J3  3053M 5 LJ3A 30537M 05J3=  J3   305 7  5 J3=  :$< 0 J39  305    J3  MJ3  
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.