Morgunblaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina 27. janúar til
Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí
þann 27. janúar og þú getur valið um eina eða tvær vikur í sólinni. Það er um 25
stiga hiti á Kanarí um miðjan janúar, og hér er auðvelt að njóta lífsins við frábærar
aðstæður. Þú bókar ferðina núna og
tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir
brottför, færðu að vita hvar þú gistir, og á
meðan á dvölinni stendur nýtur þú
þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan
tímann.
Síðustu sætin
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 49.950
Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, flug, gisting,
skattar. 27. janúar, 7 nætur. Ferðir til og frá
flugvelli kr. 1.800. Alm. verð kr. 52.450.
Bókunargjald kr. 2.000.
Stökktu til
Kanarí
27. janúar
frá 39.995
Verð kr. 39.995
Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2 börn,
2–11 ára, flug, gisting og skattar. 27. janúar,
7 nætur. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Alm. verð kr. 41.994. M.v. að bókað sé á
www.heimsferdir.is. Bókunargjald kr. 2.000.
VEGAGERÐIN hefur kynnt nýtt
skipurit, sem á að gera fyrirtækið
hæfara til þess að sinna hlutverki
sínu og takast á við breytta tíma og
ný verkefni.
Gert er ráð fyrir því að fjöldi
starfsmanna verði svipaður á næstu
árum, „en starfsmenn þurfa í vax-
andi mæli að vera við því búnir að
breyta til í starfi og jafnvel skipta al-
veg um starf,“ segir í greinargerð
Vegagerðarinnar.
„Ný verkefni, sem verið er að færa
til Vegagerðarinnar, koma þó til með
að hafa þau áhrif að fjölga þurfi
starfsfólki eitthvað.“
Breytingarnar eiga að taka gildi 1.
mars næst komandi.
Jón Rögnvaldsson, vegamála-
stjóri, segir að færa eigi saman verk-
efni og stækka einingar án þess að
fækka umdæmum. „Það verða alveg
jafn öflugar stöðvar alls staðar eftir
sem áður,“ segir hann og bætir við
að umdæmisstjórarnir verði áfram
þeir sömu og hingað til. Helstu
breytingarnar eru þær að í miðstöð
er stofnað þriggja deilda þróunar-
svið við hlið stjórnsýslusviðs og
tæknisviðs og verður Hreinn Har-
aldsson yfirmaður nýja sviðsins. Því
er fyrst og fremst ætlað að fjalla um
framtíðarmál eins og margs konar
áætlanir, rannsóknir og þróun og svo
umhverfis- og skipulagsmál.
Hönnun verður á tæknisviði
Áætlanadeild var áður undir
tæknisviði og tók þá auk áætlana til
hönnunar brúa og vega. Samkvæmt
greinargerð á vef Vegagerðarinnar
verður hönnun brúa og vega áfram á
tæknisviði en í tveimur deildum,
brúadeild og veghönnunardeild.
Jarðtækni tilheyrði áður rannsókn-
um og þróun en verður nú í veghönn-
unardeild.
Undir yfirstjórn falla innri endur-
skoðun og úrbætur í öryggismálum
umferðar. Sömuleiðis gæðamál,
ferjurekstur og staðlagerð, en fyrst
um sinn stýra vinnuhópar aðgerðum
á þessum sviðum. Sem fyrr heyra
allar deildir í umdæmum beint undir
umdæmisstjóra. „Markverðasta
breytingin þar er sú að verkefni
deildanna eru breytileg milli um-
dæma,“ segir í greinargerðinni. „Er
þetta gert til að mæta þeim breyti-
leika milli umdæma í aðstöðu, um-
fangi og umhverfi, sem þegar er fyr-
ir hendi. Jafnframt opnar þetta
möguleika fyrir frekari sérhæfingu
umdæma og verkefnaflutningi milli
þeirra í framtíðinni.
Nokkrar breytingar verða á verk-
efnum deilda í umdæmum, sem
stuðla eiga að skýrari hlutverkaskip-
an, sem áður var nefnd.
Jón Rögnvaldsson er vegamála-
stjóri, Gunnar Gunnarsson aðstoðar-
vegamálastjóri, Kristín H. Sigur-
björnsdóttir er yfirmaður stjórn-
sýslusviðs og Rögnvaldur Jónsson
yfirmaður tæknisviðs.
Breytingar gerðar á
skipuriti Vegagerðar
BORIST hefur viðvörun frá
Fjármálaeftirlitinu þar sem
vakin er athygli á því að fyr-
irtækin J.P. Turner & comp-
any, L.L.C. og Prosper Club
hafi ekki leyfi til að starfrækja
fjármálaþjónustu hér á landi.
Fjármálaeftirlitið gefur út
þessa viðvörun vegna fyrir-
spurna og athugasemda sem
því hafa borist. Á síðasta ári
sendi eftirlitið út sams konar
viðvaranir vegna sjö erlendra
fyrirtækja og er hægt að skoða
þann lista á heimasíðu Fjár-
málaeftirlitsins, www.fme.is.
Fyrirtæki sem ekki hafa leyfi
Fjármálaeftirlitsins hafa sam-
kvæmt fréttatilkynningu eftir-
litsins ekki heimildir til að taka
á móti innlánum frá almenn-
ingi, útgáfu og umsýslu
greiðslukorta eða viðskipta og
þjónustu með fjármálagern-
inga.
Fjármálaeftirlitið
Varað við
tveimur
fyrir-
tækjum
EKKI hefur verið tekin ákvörðun
um hvort Burðarás, fjárfestingar-
armur Eimskipafélag Íslands, eigi
áfram hlutabréf sín í ýmsum fyrir-
tækjum eins og SH eða selji þau, að
sögn Magnúsar Gunnarssonar,
stjórnarformanns Eimskip.
Magnús segir að eftir eigi að meta
hvað verði gert við hlutabréfaeign
Burðaráss, en félagið á til dæmis
27,1% í SH. „Við höfum ekkert sér-
staklega verið að hugsa um sölu á
þessari eign.“ Hann segir að öll þau
fyrirtæki, sem Burðarás eigi hluta-
bréf í, séu mjög áhugaverð og hug-
myndafræðin á bak við Burðarás sé
að vera hluthafi í öflugum fyrirtækj-
um, sem hafi vaxtarmöguleika.
Engin ákvörð-
un um sölu
bréfa í SH
STÖÐUGUR straumur fólks hefur
verið á sýningu Ólafs Elíassonar,
Frostvirkni, sem opnuð var í Lista-
safni Reykjavíkur-Hafnarhúsi á
laugardaginn. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Listasafninu, komu um
3.000 gestir á sýninguna fyrstu tvo
dagana sem hún var opin. Frost-
virkni er stærsta sýning lista-
mannsins á Íslandi til þessa.
Í stærsta salnum gengur fólk um
gólf lagt flísum úr íslenskum
steinategundum og skoðar sig og
aðra gesti í speglum í loftinu. Þessi
faðir vildi láta soninn sjá sig betur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Mikil aðsókn að Frostvirkni
FLUGLEIÐIR ætla að ráða nokkra tugi flug-
freyja eða flugþjóna til starfa fyrir sumarið, en ný-
lega var einnig auglýst eftir flugmönnum til starfa
hjá fyrirtækinu.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flug-
leiða, segir að um sé að ræða stærstu ráðningu frá
11. september 2001, en í kjölfar hryðjuverkaárás-
anna dró verulega saman í farþegaflugi í heim-
inum.
Guðjón segir félagið þurfa á flugfreyjum, flug-
þjónum og flugmönnum að halda vegna aukningar
í sumaráætluninni. Flogið verður til sjö nýrra
áfangastaða í sumar, sem er um 20% aukning frá
því sem var á síðasta sumri.
Síðast þegar auglýst var sóttu tífalt fleiri
um störfin en Flugleiðir gátu ráðið
„Okkur vantar fleira fólk. Það er gríðarlegur
áhugi þannig að við gerum ráð fyrir að það sæki
margfalt fleiri um en geta fengið. Síðast þegar
auglýst var eftir flugfreyjum og flugþjónum sóttu
meira en tífalt fleiri en fengu,“ segir Guðjón.
Þónokkrum hluta starfsmanna var sagt upp eft-
ir samdráttinn í kjölfar 11. september. Segir Guð-
jón að síðan hafi verið eðlileg endurnýjun í stétt-
inni og fólk sem missti vinnuna hafi verið að tínast
inn aftur. Því ætti að vera svigrúm til að ráða fólk
sem aldrei hefur áður unnið hjá fyrirtækinu.
Segir í auglýsingu Flugleiða, sem birtist í Morg-
unblaðinu í gær, að umsækjendur verði að vera til-
búnir til að sækja 6–8 vikna námskeið og taka próf
að því loknu. Segir Guðjón gert ráð fyrir að fólk
hefji störf með vorinu.
Flugleiðir ætla að bæta við
tugum starfsmanna í sumar