Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 30
LISTIR 30 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR ég hóf nám í myndlist um miðjan níunda áratug síðustu aldar, fyrir tæpum tuttugu árum, var myndlistin í ógurlegri kreppu. Það var búið að gera allt áður, hvernig átti að halda áfram? Þetta var tími efnishyggju, póstmódernisma sem í einföldu máli einkenndist af því að blanda saman ýmsum stílum, tími pólitískrar rétthugsunar sem fór út í öfgar, a.m.k. í Bandaríkjunum. Margt var í gangi en einhvern veg- inn voru allir sammála um að þetta væri hið versta mál. Ekki var mögu- legt að skapa listaverk án þess að taka listasöguna og ríkjandi ástand með í reikninginn og það gat reynst ansi snúið. Margir listamenn komu fram sem gerðu listina sjálfa og ekki síst framsetningu hennar að inntaki verka sinna. Á tíma framhaldsnáms míns í Hollandi og árin á eftir voru „representation“ og „context“, fram- setning listarinnar og samhengið sem hún var sett fram ofarlega á baugi í umræðunni og allnokkrir unnu verk sín út frá þeim forsend- um. Hugtök eins og sköpun, ein- lægni og fegurð áttu ekki upp á pall- borðið og voru álitin tilheyra liðinni tíð. Vitrænt skyldi það vera (ein- göngu) og í Hollandi voru litir eig- inlega líka bannaðir. Helst átti að nota svart, hvítt og grátt, annað var einum of glannalegt og skrautlegt. Þessi hugsunarháttur reyndist mörgum listamanninum erfiður. Sumum tókst þó að fella verk sín í þennan farveg og vera á sama tíma ljóðrænir, frjóir og skapandi í anda belgíska listamannsins heitna, Marc- el Broodthaers sem í verkum sínum deildi á stöðu listar, framsetningu hennar og listkerfið en var einnig nítjándu aldar maður í dularfullum og rómantískum ljóðum sínum. Aðr- ir áttu í hreinustu vandræðum og þótti listvegurinn vandrataður, reyndu sífellt að skapa verk sem tóku samtímann með í reikninginn en tókst misjafnlega upp, áttu erfitt með að fóta sig. Síðan voru þeir sem fóru sína eigin leiðir, fóru út í skóg og máluðu yndisfagra trjástofna, máluðu fígúratíf málverk af leikni, gleymdu sér við að rannsaka nýja möguleika steinþrykks, þeir sem reyndu ekki að skapa verk sem breyttu listasögunni. Hvort tveggja var auðvitað gott og gilt. Í listinni velur hver og einn sína leið. Í dag virðumst við að mestu laus við þessa krepputilfinningu og kaldhæðnin og fjarlægðin sem þóttu nauðsynleg á námsárum mínum eru ekki lengur keppikefli, en þó leyfileg eins og ann- að. Enn sem fyrr þarf hver og einn að fara sína eigin leið og hana er allt- af erfitt að finna, ekki síst þegar allar leiðir standa opnar og enginn einn straumur ræður för. Á slíkum tíma hlýtur að vera mikilvægara en nokkru sinni fyrr að finna hvar hjarta manns slær og halda sig í þeim takti, ekki síður sem áhorfandi en listamaður. Það er alltaf gleðilegt að skoða sýningar listamanna sem hafa augljóslega fundið sína leið. Gildir þá einu hver hún er, á meðan hún er fetuð af sannfæringu. Eins og listakonan Rúna segir í sýningar- skrá sinni er „ferðin löng, full eft- irvæntingar og henni lýkur aldrei“. Það er svo annað mál og lengra að ákjósanlegt væri að sérhæfing sýn- ingarsala á höfuðborgarsvæðinu væri greinilegri, enn sem komið er virðist einu gilda hvort um er að ræða skrautmuni, handverk, hönnun eða framsækna myndlist. Hjartsláttur Síberíu og Íslands Kjuregej Alexandra er upprunnin í Síberíu en fluttist hingað til lands árið 1966. Hún hefur verið nokkuð iðin við að sýna myndverk sín, list- rænar bútasaumsmyndir og mósaík- verk og nú sýndi hún síðast 20 slík verk í MÍR salnum við Vatnsstíg. Kjuregej vinnur á mörkum lista og handverks, skrautmuna og lista- verka en skemmtilegast er að nálg- ast verk hennar einfaldlega með þeirri gleði, sorg, tilfinningum og krafti sem svo greinilega kemur fram í þeim. Kjuregej er náttúru- barn og sækir jafnt til æskuslóða sinna sem íslenskrar nátturu, en auk þess verða hörmungar okkar daga, hryðjuverk, henni efniviður. Bestu verk hennar eru að mínu mati þau fígúratívu og ekki síst þar sem gætir áhrifa frá uppruna hennar. Verk hennar sýna svo glögglega þá orku, ánægju og gleði sem í þau er lögð að þau hljóta að vera hverjum manni innblástur í daglega lífinu. Mæðgur í Hafnarborg Rúna er flestum kunn og hefur sýnt verk sín margoft í gegnum tíð- ina við góðar undirtektir. Hún sýnir nú fjölda mynda sem unnar eru á handunninn pappír sem og málaðar steinflísar. Myndirnar eru ekki sér- lega nútímalegar og stundum nær skrautmunum en frumlegum lista- verkum en það kemur ekki að sök, gildi þeirra liggur á öðru sviði. Papp- írsverkin vekja upp tilfinningu fyrir bláum nóttum, köldum dögum eða heitum sumarkvöldum, ekki laust við að manni finnist vera horft í gegnum glugga, sum minna líka á steinda glerglugga. Í þeim birtist tilfinning fyrir náttúrunni og birtunni innan borgarinnar sem og sýn til fjalla og jökla. Steinflísarnar eru að sama skapi fallegar og fígúrurnar búa yfir mýkt og ljóðrænu. Ragnheiður Gestsdóttir sýnir fjölda myndlýsinga frá þremur síð- ustu áratugum. Sterkur heildarsvip- ur er yfir verkum hennar og mynd- irnar undantekningarlaust fallegar, vel upp byggðar og unnar af hug- kvæmni og tilfinningu. Það er yfir þeim ævintýrablær og sami hugljúfi andinn sem ég finn einnig fyrir í fí- gúrum Rúnu á steinflísunum þó að ekki líkist verkin mjög á ytra borði. Myndmál Ragnheiðar er einfalt og áferðarfallegt, myndbygging skýr og hún er sýnilega vel að sér í listasög- unni. Henni tekst vel upp með litla fleti og endurtekningar sem og skrautlegar myndir eins og t.d. Undrið sem unnið var fyrir Náms- gagnastofnun. Þetta er skemmtileg sýning sem ber hæfileikraríkri lista- konu vitni. Skipsfarmur frá Danmörku Á efri hæð Hafnarborgar er sýn- ingin Skibet er ladet med… Þessi tit- ill er ekki mjög heppilegur, hann minnir mann á einokun danskra kaupmanna áður fyrr sem auðvitað kemur þessari sýningu ekkert við. Um er að ræða norrænt samstarf en sýningin kemur hingað frá Færeyj- um og fer síðan til Akureyrar. Lista- skipti eiga sér stað síðar þegar átta færeyskir listamenn sýna í dansk- þýska landamærahéraðinu Suður- Slésvík og síðan þrír íslenskir. Sam- starf hefur einnig verið milli fær- eyskra og íslenskra rithöfunda. Þetta er allt af hinu góða, samskipti efla menningartengsl, opna hugann og auka víðsýni. Listamennirnir átta sem nú sýna eru af báðum kynjum, tvær konur og sex karlmenn. Sjö þeirra eru í kringum fimmtugsaldur en ein nokkuð yngri, eða um þrítugt. Þetta eru sex málarar, einn mynd- höggvari og unga konan gerir inn- setningar. Það er lítið sem kemur á óvart eða vekur sérstaka athygli eða forvitni á þessari sýningu. Málarinn Jes Schröder sækir myndefni sitt í fegurð náttúrunnar og birta verka hans minnir á lýsandi birtu Skaga- málaranna, myndir Viggo Börhnsen- Jensen eru sérstakar hvað varðar litanotkun og minna á verk impress- ionistanna. Efnisnotkun Hans Lem- brecht Madsen tengist náttúrunni á fínlegan hátt. Ég gæti trúað því að hver um sig væru listamennirnir áhugaverðari en virðist af þessari sýningu, hér er heildin ekki sterkari en hinir mismunandi þættir hennar nema síður sé. Leyndardómar sköpunar- gleðinnar Mýkt og ljóðræna einkenna verk Rúnu. Listavel unnar myndskreytingar á sýningu Ragnheiðar í Hafnarborg. Kraftur í verkum Kjuregej Alexöndru í MÍR-salnum. MYNDLIST MÍR-salurinn KJUREGEJ ALEXANDRA ARGUNOVA Sýningunni lauk 21. mars. Hafnarborg RÚNA (SIGRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR), RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR SAMSÝNING ÁTTA LISTAMANNA FRÁ SUÐUR-JÓTLANDI OG SUÐUR-SLÉSVÍK Til 12. apríl. Hafnarborg er opin frá kl. 11–17 alla daga nema þriðjudaga. Ragna Sigurðardóttir Í farmi danska skipsins kennir ýmissa grasa. ÚR Uppstyttum Davíðs A. Stef- ánssonar spretta grös og lækninga- jurtir, og jörðin grænkar í dögginni meðan regnið safnar kröftum í nýj- ar skúrir. Þetta eru eins konar Whitman-ljóð fyrir nýaldar- sinnaða 21. aldar hippa (sem skera sig frá 20. aldar hippum þannig að þeir reykja ekki og baða sig reglulega). Hér er áherslan lögð á að benda les- endum á að grænt sé á völlunum – og þótt við höfum kannski allir vitað það fyrir er það afskaplega fallega gert af Davíð að minna okkur á það. Angan náttúrunnar stígur upp á móti lesandanum strax og bókin er opnuð, lyktin af blautu grasi og barnsrössum, og maður fær það á tilfinninguna að þessi hugsunarhátt- ur, þetta sakleysi, sé í raun löngu horfið. Að lesa Uppstyttur árið 2004 er dálítið eins og að rekast á Adam og Evu (í laufinu einu saman) á rölti niður Laugaveginn í leit að eplum. Fagurfræði bókarinnar er nefnilega dálítið gamaldags, og það er að mörgu leyti hennar stærsti kostur. Hún tilbiður hið rólega, yfirvegaða, átakalausa – bendir á að meira að segja átökin eru ekkert til að stressa sig yfir, þau koma í árstíð- um: Með vorinu hverfur kvíðinn […] Með haustinu haustar á ný (Upphaf og endir ljóðsins Leitin fer fram á leiðinni bls. 65.) Bjartsýni Uppstytta er allt að því skefjalaus, og jarðlífið upphafið næstum takmarkalaust. „Því við vit- um betur en svo/ að taka púkann al- varlega // hann leikur sér eins og barn // spark hans er ekki illa meint.“ (Bls. 32.) Þessa heimspeki tengi ég fyrst og síðast við Walt Whitman, og kannski að einhverju leyti Jack Kerouac. Þó vantar svo- lítið upp á þyngdina hjá Davíð. (Er dónaskapur af mér að bera hann saman við Kerouac og Whitman? Ég get ekki annað, þekki ekki aðra ættingja …) Davíð elskar ljóð, svo mikið er víst. Hann nálgast þau af varfærni og virðingu. En það vantar skepn- una í Davíð. Hann er hreinlega of indæll, of saklaus. Whitman og Kerouac sóttu báðir sinn tilfinn- ingaþunga í sama brunn: Kynhvöt- ina. Nú er ég ekki endilega að segja að Davíð þurfi að fara að skrifa um kynlíf. Ég held að Norman Mailer hafi sagt það best (við lítinn fögnuð (eða skilning) femínista) þegar hann sagði að til að skrifa góðar bækur þyrfti maður að hafa stórar hreðjar. Það vantar undirdjúpin í Upp- styttur, vantar tilfinningu fyrir því að heimurinn sé ekki einsleitur, ekki bara jákvæður, að það sé ekki bara hægt að taka Pollýönnu-rökin á öll vandamál og brosa þau á brott, eða sitja þau af sér. Þessi nátt- úruangan bókarinnar, þessi einfalda og fallega viska tiplar bara á tánum á yfirborði vatnsins, gárar í það fal- lega hringi en það er eins og hún þori ekki niður í undirdjúpin, þori ekki að kanna, ögra, litast um í eig- in innviðum og koma verunum í kringum sig á hreyfingu. Og hug- leysið verður pirrandi, þyngdar- skorturinn sligar mann, sérstaklega í ljósi þess hversu fær Davíð er í að fleyta kellingar – en þessi færni í yfirborðslistum fær mann bara til að vilja enn frekar að skáldið skutli einu og einu ljóði beinustu leið í skoðunarferð niður á hafsbotn, leyfi því að sökkva. Það vantar að Davíð taki meiri áhættu, hætti sér út fyrir þetta örugga form „ljóðsins“. Annað sem Davíð hefði nefnilega mátt læra af Kerouac og Whitman er að skrifa ekki inn í hið staðlaða form. Form ljóðanna í Uppstyttum er þetta klassíska íslenska (sem er að verða strangara staðalform en fjórtaktur í popptónlist), þessi knappa (smágerða) hugsun, stuttu línur og lokandi niðurlög (næstum því punchline). Þetta er einhver þægð sem fer skáldum illa, skáld eiga ekki að virða feður sína og mæður, og þeim er best að taka blessaða hefðina, skera hana niður í beitu, halda til veiða og koma ekki aftur til lands öðruvísi en með ferskan afla. Það þýðir ekki að pækla ljóð eða súrsa þau. Þau skemmast bara. Ég væri þó ekki sanngjarn ef ég segði ekki frá því að í bókinni er eitt ljóð sem fer út fyrir þennan bjarta heim, eitt ljóð sem hreyfði við mér (en hreif mig ekki bara, þau voru vissulega mörg sem hrifu mig, enda ljóðin mörg afskaplega falleg). Mér satt að segja dauðbrá að rekast á svona andskota, í jafn kurteisri bók. Er ekki ágætt að enda dóminn á upptakti frá skáldinu sjálfu? Ljóðið heitir Áhrif: Þessi hríðskotabyssa er hlaðin fingraförum ég drita hríðinni úr henni á allt og alla sem ég hitti í von um að borin verði kennsl á mig. Lífsýni úr döggvotum Fagraskógi BÆKUR Ljóð eftir Davíð A. Stefánsson. Bókin er 72 bls. Útg. 2003. UPPSTYTTUR Eiríkur Örn Norðdahl Davíð A. Stefánsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.