Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla,
Intersportdeild, undanúrslit - oddaleikur:
Grindavík: Grindavík - Keflavík...........19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, neðri deild, B-riðill:
Reykjaneshöll: Reynir S. - Númi............. 21
SKÍÐI
FIS-mót í alpagreinum:
Hlíðarfjall: Stórsvig kvenna......................10
Hlíðarfjall: Stórsvig karla ....................10.30
Í KVÖLD
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflavík – ÍS 85:56
Íþróttahúsið í Keflavík, þriðji úrslitaleikur
Íslandsmóts kvenna, mánud. 29. mars 2004.
Gangur leiksins: 2:0, 4:5, 12:11, 12:16,
15:17, 24:17, 27:23, 33:30, 39:32, 42:37,
54:42, 59:44, 66:44, 81:50, 85:56.
Stig Keflavíkur: Svava Ó. Stefánsdóttir 19,
Erla Þorsteinsdóttir 16, Birna Valgarðs-
dóttir 14, Erla Reynisdóttir 11, Marín R.
Karlsdóttir 10, María Erlingsdóttir 6,
Rannveig Randversdóttir 5, Anna María
Sveinsdóttir 4.
Fráköst: 40 í vörn - 11 í sókn.
Stig ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 11, Casie
Lowman 11, Hafdís Helgadóttir 7, Lovís
Guðmundsdóttir 6, Guðríður Svana
Bjarnadóttir 5, Jófríður Halldórsdóttir 4,
Hrafnhildur Kristjánsdóttir 3, Stella Rún
Kristjánsdóttir 3, Guðrún Baldursdóttir 3,
Svandís Sigurðardóttir 3.
Fráköst: 26 í vörn - 12 í sókn.
Villur: Keflavík 10 - ÍS 16.
Dómarar: Erlingur Erlingsson og Georg
Andersen, náðu vart að vera þokkalegir.
Áhorfendur: Um 170.
Keflvíkingar Íslandsmeistarar, unnu 3:0.
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Milwaukee – Houston ...................... 107:111
Eftir framlengingu.
Indiana – Miami.................................... 87:80
Boston – Philadelphia .......................... 89:65
Sacramento – Washington ................ 100:92
Golden State – LA Clippers .............. 105:77
LA Lakers – Utah ................................ 91:84
HANDKNATTLEIKUR
Frakkland – Ísland 27:21
Le Mans, Frakklandi, vináttulandsleikur í
handknattleik karla, mánud. 29. mars 2004.
Mörk Frakklands: Bertrand Gille 5,
Franck Junillon 5, Joel Abati 4/2, Cedric,
Burdet 3, Nikola Karabatic 3, Guéric
Kervadec 2, Sébastien Mongin 2, Gregory
Anquetil 2/1, Oliver Girault 1.
Mörk Íslands: Guðjón V. Sigurðsson 5,
Snorri St. Guðjónsson 4, Ásgeir Ö. Hall-
grímsson 3, Dagur Sigurðsson 3, Einar
Hólmgeirsson 2, Einar Ö. Jónsson 1, Gylfi
Gylfason 1, Ragnar Óskarsson 1, Róbert
Gunnarsson 1. Aðrir sem léku; Arnór Atla-
son, Logi Geirsson, Róbert Sighvatsson,
Rúnar Sigtryggsson og Vignir Svavarsson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 14.
Björgvin Gústavsson kom ekkert við sögu.
KNATTSPYRNA
Canela-bikarinn
Æfingamót í Canela á Spáni:
FH – Valur.................................................1:4
Jónas Garðarssson 78. - Baldur Aðalsteins-
son 52., Hálfdán Gísalason 56., Jóhann
Hreiðarsson 69., Birkir Sævarsson 72.
Fylkir – Fram............................................0:1
Andri Fannar Ottósson 65.
SKÍÐI
Alþjóðleg FIS-mót
Haldin í Hlíðarfjalli við Akureyri:
Svig karla, sunnudag:
Kristján Uni Óskarsson, Ólafsfirði .. 1.26,10
Björgvin Björgvinsson, Dalvík......... 1.27,12
Andreas Nilsen, Noregi .................... 1.27,40
Svig kvenna, sunnudag:
Emma Furuvik, Ármanni ................. 1.38,10
Ásta Björg Ingadóttir, Akureyri ..... 1.40,56
Helga Björk Árnadóttir, Ármanni... 1.40,80
Stórsvig karla, mánudag:
Kristján Uni Óskarsson, Ólafsfirði .. 1.51,92
Aksel Lund-Svindal, Noregi............. 1.52,05
Björgvin Björgvinsson, Dalvík......... 1.52,84
Stórsvig kvenna, mánudag:
Emma Furuvik, Ármanni ................. 1.59,56
Leah McLaughry, Bandaríkj ........... 2.01,42
Hrefna Dagbjartsdóttir, Akureyri .. 2.02,57
GOLF
Bandaríska mótaröðin
The Players Championship, Sawgrass
par 72:
Adam Scott, Ástr. ............................276 (-12)
65-72-69-70
Padraig Harrington, Írl. .................277 (-11)
68-70-73-66
Kenny Perry, Ban. ............................280 (-8)
69-71-69-71
Phil Mickelson, Ban...........................280 (-8)
70-69-70-71
FÓLK
BRYNJAR Geirsson, handknatt-
leiksmaður úr FH, hefur verið úr-
skurðaður í eins leiks bann vegna
rauðs spjalds. Hann leikur ekki með
FH gegn Þór í lokaumferð 1. deildar
um næstu helgi.
JIMMY Floyd Hasselbaink varð
12. leikmaðurinn til að skora 100
mörk í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á laugardaginn, en fyrsta
mark hans af þremur fyrir Chelsea
gegn Wolves var númer 100 í röðinni
hjá honum. Hasselbaink, sem hefur
gert 68 mörk fyrir Chelsea og 34 fyr-
ir Leeds í deildinni, er jafnframt að-
eins þriðji erlendi leikmaðurinn sem
nær þessum áfanga, hinir eru
Dwight Yorke og Thierry Henry.
DAVID O’Leary, knattspyrnu-
stjóri Aston Villa, sagðist vonast til
þess að Sven Göran Eriksson, lands-
liðsþjálfari, komi á sem flesta leiki
liðsins. „Darius Vassell spilar alltaf
vel þegar hann kemur,“ sagði
O’Leary en Eriksson valdi J. Lloyd
Samuel, bakvörð Villa, ásamt Vass-
ell í landsliðið eftir leikinn gegn
Charlton.
DAVID Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins í knattspyrnu, leikur
ekki með því í vináttulandsleiknum
gegn Svíum í Gautaborg á annað
kvöld. Beckham meiddist í kálfa í
leik Real Madrid gegn Sevilla í
fyrrakvöld og ákvað í dag að draga
sig út úr hópnum til að fá sig góðan
af meiðslunum í þessari viku.
ÞAÐ ríkti mikil gleði í íþróttahúsinu í
Vík í Mýrdal á sunnudaginn þegar
heimamenn í Drangi tryggðu sér sæti í
1. deild karla í körfuknattleik. Drang-
ur sendi lið til keppni í 2. deild í fyrsta
skipti í vetur, vann sinn riðil í und-
ankeppninni, og sigraði síðan í öllum
leikjum sínum í úrslitakeppninni sem
fram fór í Vík og á Kirkjubæj-
arklaustri um helgina.
Drangsmenn sigruðu lið Grund-
arfjarðar og Reynis frá Hellissandi,
95:80, í úrslitaleik um sæti í 1. deild, og
unnu síðan ÍA frá Akranesi, 79:68, í úr-
slitaleik deildarinnar en bæði liðin
leika í 1. deild að ári.
Á þriðja hundrað manns mætti á
leikina og stemmningin var mikil, bæði
hjá áhorfendum og leikmönnum.
„Þetta er búinn að vera frábær vetur
og aðsóknin á úrslitaleikina er ótrúleg
miðað við hve sveitarfélagið er fá-
mennt. Liðið er nánast alfarið skipað
heimamönnum, við erum aðeins tveir
sem komum annars staðar frá, og
Drangur hefur sett stefnuna á að
standa sig vel í 1. deildinni næsta vet-
ur,“ sagði Björn Hjörleifsson, þjálfari
og leikmaður liðsins, við Morg-
unblaðið.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Meistaralið Drangs í 2. deild. Aftari röð frá vinstri: Ágúst Kristinsson, Sigurður Þór Þórhalls-
son, Magnús Orri Sæmundsson, Björn Ægir Hjörleifsson þjálfari, Óðinn Gíslason, Oddsteinn
Árnason, Björgvin Jóhannesson. Fremri röð frá vinstri: Lukkudýrið fýllinn, Steinar Orri Sig-
urðsson, Þorbergur Atli Sigurgeirsson, Steinar Þórhallsson, Pálmi Kristjánsson, Davíð Agn-
arsson, Jóhann Fannar Guðjónsson og liggjandi fyrir framan er Kjartan Kárason.
Mikill fögn-
uður í Vík
Fyrri hálfleikurinn var góður hjáokkur, jafnt í vörn sem sókn og
í raun má segja að sóknarleikurinn
hafi verið framúrskarandi góður.
Sömu sögu má segja af fyrstu fimm
mínútum síðari hálfleiks. Þá kom að
slæma kaflanum þar sem Frakkar
fengu nokkur hraðaupphlaup sem
þeir nýttu af öryggi og þar með
skildu leiðir þjóðanna að þessu
sinni,“ sagði Guðmundur sem taldi
úrslitin ekki alveg gefa rétta mynd
af því hvernig leikurinn hafi lengst-
um verið. Einni mínútu fyrir leiks-
lok var franska liðið fjórum mörkum
yfir, 25:21, og þá hafi íslenska lands-
liðið átt alla möguleika á að minnka
forskotið aðeins en ekki lánast.
Fimm sterka leikmenn vantaði í
íslenska liðið í leiknum, þá Ólaf Stef-
ánsson, Sigfús Sigurðsson, Patrek
Jóhannesson, Jaliseky Garcia og
Gunnar Berg Viktorsson. Svipaða
sögu má segja um franska liðið sem
var án þeirra Didier Dinard, Jack-
sons Richardson og Jerome Fern-
andez.
Guðmundur segir að íslenska liðið
hafi leikið sína 6/0 vörn nær allan
leikinn og Frakkar hafi haldið sig
fast við framliggjandi 3/2/1 vörn eins
og þeirra er síður. „Í fyrri hálfleik
tókst okkur að leika vörn Frakka
sundur og saman og einnig um tíma
í síðari hálfleik. Við vorum hinsveg-
ar að fara illa að ráði okkar í opnum
færum í síðari hálfleik,“ sagði Guð-
mundur sem tefldi fram fimmtán af
þeim sextán leikmönnum sem hann
hafði úr að spila, aðeins Björgvin
Páll Gústavsson markvörður kom
ekki við sögu.
„Hvað sem úrslitunum viðvíkur
þá eru þessir leikir við Frakka kær-
komið tækifæri fyrir yngri mennina
í hópnum. Þeir fengu allir að spreyta
sig að þessu sinni og sumir náðu sér
vel á strik,“ sagði Guðmundur. „Ás-
geir lék mjög stórt hlutverk í fjar-
veru Ólafs og þá átti Einar Hólm-
geirsson fína kafla í leiknum,“ sagði
Guðmundur og lauk sérstöku lofs-
orði á frammistöðu Snorra Steins.
Byrjunarliðið var skipað Guð-
mundi Hrafnkelssyni markverði,
Guðjóni Val Sigurðssyni, Degi Sig-
urðssyni, Snorra Steini Guðjóns-
syni, Ásgeiri Erni Hallgrímssyni,
Einari Erni Jónssyni og Róberti
Sighvatssyni.
Einar Hólmgeirsson og Róbert
Gunnarsson léku í um 20 mínútur,
Logi Geirsson og Arnór Atlason
spiluðu í um tíu mínútur.
„Í heildina litið er ég nokkuð sátt-
ur við leikinn þegar tekið er tillit til
þess að Frakkar tefldu fram mikið
eldra og reyndara liði en við. Það
var margt jákvætt í þessu og við för-
um alveg óhræddir í síðari leikinn,“
sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson,
landsliðþjálfari í handknattleik.
Guðmundur Hrafnkelsson stóð í
markinu allan leikinn og varði 14
skot, 32% þeirra skota sem á markið
kom sem er sama hlutfall og var hjá
honum í leikjunum þremur á Evóp-
umeistaramótinu í Slóveníu í bryjun
ársins.
Guðmundur sagði undirbúning
leiksins hafa verið þokkalegan mið-
að við aðstæður. „Ég var að fá leik-
menn alveg fram undir það síðasta.
Guðjón [Valur Sigurðsson] kom síð-
astur til móts við hópinn í dag [í
gær] vegna þess að hann lék með fé-
lagsliði sínu í Þýskalandi á sunnu-
dagskvöldið. Stærsti hluti hópsins
var hins vegar saman frá því á laug-
ardaginn og við fengum kærkominn
tíma saman sem var yngri og
óreyndari leikmönnunum mikilvæg-
ur,“ sagði Guðmundur.
Tíu mínútna kafli
varð Íslandi að falli
„EFTIR um fimm mínútur í síðari hálfleik kom slæmur kafli hjá okk-
ur þar sem Frakkar náðu fjögurra marka forskoti sem okkur tókst
aldrei að vinna upp,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik, eftir að íslenska landsliðið tapaði
fyrir Frökkum, 27:21, í vináttulandsleik í Le Mans í Frakklandi í
gærkvöldi. Staðan í hálfleik var jöfn, 12:12. Þetta var fyrri vin-
áttulandsleikur þjóðanna að þessu sinni, þær eigast við á ný í
Lorient annað kvöld.
EMMA Furuvik úr Ármanni og Kristján
Uni Óskarsson frá Ólafsfirði sigruðu í
stórsvigi á alþjóðlega FIS-mótinu í Hlíð-
arfjalli við Akureyri í gær. Þau fylgdu
þar með bæði eftir sigrum á sunnudag-
inn en þá unnu þau bæði í svigi.
Aksel Lund-Svindal frá Noregi, sem
er framarlega á heimslistanum, var
fyrstur eftir fyrri ferð stórsvigsins en
Kristján Uni skákaði honum í þeirri síð-
ari og náði efsta sætinu af honum.
Björgvin Björgvinsson frá Dalvík varð
þriðji.
Emma bar sigurorð af Leah
McLaughry frá Bandaríkjunum í
kvennaflokki og fékk besta tímann í báð-
um ferðum. Hrefna Dagbjartsdóttir frá
Akureyri hafnaði í þriðja sæti.
Þriðji og síðasti keppnisdagurinn í
Hlíðarfjalli er í dag en þá er á ný keppt í
stórsvigi kvenna og karla.
Tvöfalt hjá Emmu og Kristjáni
Ljósmynd/Guðmundur Jakobsson
Emma Furuvik á fleygiferð í
stórsviginu í gær.
JACKIE Rogers verður með í leiknum í kvöld en ég veit
ekki hvernig ástandið verður á honum þar sem hann á við
meiðsli að stríða í mjöðm,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson
þjálfari körfuknattleiksliðs Grindavíkur í gær en í kvöld
mætir liðið Keflvíkingum í oddaleik um sæti í úrslitum Ís-
landsmóts karla í úrvalsdeild.
Rogers er bandarískur miðherji og hefur skorað 16,3
stig að meðaltali í úrslitakeppninni en hann meiddist í
fjórða leiknum gegn Keflavík og hefur verið í meðferð hjá
sjúkraþjálfara frá því að leiknum lauk.
„Hinsvegar eru meiðslin þess eðlis að það er ekki auð-
velt að meðhöndla slíkt á stuttum tíma. Við vonum auðvit-
að það besta en ég á ekki von á því að Rogers verði heill
heilsu í leiknum – en hann ætlar sér að spila,“ sagði Frið-
rik Ingi.
Viðureign liðanna í Grindavík í kvöld verður sú fimmta í
rimmu þeirra um sæti í allt að fimm leikja glímu við Snæ-
fell um Íslandsmeistaratitilinn sem hefst á fimmtudag.
Rogers er enn
meiddur á mjöðm