Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Vķsir

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Vķsir

						Þriðjudagur 12. mai 1981

:yrir hann eru

¦:¦••¦¦;.',•.   ¦¦•;

upphaf leiðinda..

1. Keppendur i eldri Hokki, fremri röo frá vinstri:

Jóhannes Ágústsson, Reykjavfk, Halldór, G. Ein-

arsson, sigurvegari, Jóhann Ragnarsson, Garðabæ,

Sigurður Ass Grétarsson, Reykjavík. Aftari röö:

Ingimundur Sigurmundsson, Selfossi, Þorvaldur

Logason, Neskaupstað, Þórir Jónsson, Hofsósi,

Bjarni Sæmundsson, Borgarnesi., Björn Þ. Björns-

son, Húnavallaskóla og Pálmi Pálsson, Akureyri.

2. Keppendur i yngri flokki, fremri röð frá vinstri:

Þröstur Þórhallsson, Reykjavik, Tómas Björnsson,

sigurvegari, Páll Jónsson, Siglufirði, Aftari röð:

Sigursteinn Gislason, Akranesi, Reimar Helgason,

Akureyri, Kristján Halldórsson, Neskaupstað,

Ragnar Snæbjörnsson, Bolungarvík, Einar örn

Reynisson, Kópavogi og Ólafur I'áll Jónsson,

Kirkjubæjarklaustri. Eriing Jensson, Sauðárkróki

vantar á myndina.

Skölaskákin:

Halldór varð meistari

Landsmót Skólaskákar fór

fram að Varmahlið i Skagafirði

um helgina og varð fimmtán ára

gamall Bolvikingur, Halldór G.

Einarsson, meistari skólameist-

aranna.

Halldór, sem keppti i eldri

flokki, sigraði i yngri flokknum á

fyrsta Skólaskákmótinu fyrir

tveimurárum.Halldórfékk 7/1/2

vinning af tiu mögulegum, en i

öðru sæti varð Jóhannes

Agústsson, Reykjavfk með sjö

vinninga. I 3-4. sæti urðu Jóhann

Ragnarsson, Garðabæ, og Sigurð-

ur A. Grétarsson, Reykjavík með

6/1/2 vinning.

í yngri flokknum sigraði ellefu

ára gamallReykvikingur, Tómas

Björnsson, eftir tveggja skáka

einvigi við Þröst Þórhallsson,

einnig úr Reykjavik. Þeir höfðu

orðið efstir og jafnir eftir tiu

umferðir með 8 1/2 vinníng. t

þribja sæti varö Páll Jónsson,

Siglufirði, og ólafur Páll Jónsson,

Kirkjubæjarklaustri varð i fjórða

sæti.

Landsmót Skólaskákar var

lokaþátturinn i yfirgripsmiklum

skákmótum, sem fram hafa farið

i grunnskólum um allt land. Alls

voru þátttakendur á fimmta þús-

und, en til úrslita kepptu tiu

manns i yngri flokki, en keppend-

ur i eldri flokki voru niu.

Eftir mótið tefldi Jóhannes

Gisli Jónsson fjöltefli við

keppendur og Skagfirðinga. Hann

tefldi á 29 borðum, vann 23, gerði

fimm jafntefli en tapaði fyrir

Pálma Sighvatssyni.         —ATA.

m      Brovtiim bví!

Hversu mörg skyldu þau vera ungmenninidagsemsjá sjálf sigá þessu

veggspjaldi sem gefið er úl undir kjörorðinu: Atak gegn áfengi.

Þrjálíu félagasamtðk sam-

einast í baráttunni:

Átak gegn áíengi

Fjölmörg félagasamtök hér-

lendís hafa tekið höndum saman

um að vinna gegn vaxandi vanda

af neyslu áfengis og annarra

vimuefna. Þegar hafa um 30 að-

ilar stjórnmálasamtök, bindind-

isfélög og æskulýðsfélög, samein-

ast undir kjörorðinu Atak gegn

áfengi. Markmiðið er að hafa

áhrif til breytinga á viðhorfi til

áfengisneyslu svo að heildar-

neysla minnki og úr áfengistjóni

dragi. Samstarf þetta kemur til

vegna askorunar Alþjóðaheil-

brigðismálastofnunnarinnar     til

allra aðildarþjóba, að reyna með

öllum tiltækum ráðum að minnka

heildarneyslu áfengis, þar eð

tjónið, sem neyslunni fylgir, en i

ákveðnu hlutfalli  við hana.

011 félög og samtök, sem vilja

leggja hönd á plóginn, eru boðin

velkomin til samstarfs. Upplýs-

ingar eru veittar i sima 19944.

Samstarfsaðilar um Atak gegn

áfengi munu með ýmsum hætti

vekja athygli á vanda vimuefna-

neyslu og nauðsyn þess að allir

taki þátt i baráttunni.

—AS.

***********************************************

Þorsteinn Már Baldviusson, tæknilegur verkefnisstjóri, Jafet Ólafsson, seri er í verkefnisstjórn fyrir

hönd Iðnaðarráðuneytisins, Þórleifur Jónsson, frá Félagi dráttarbrauta og skipasmiða — formaður

verkefnisstjórnar, Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherru, og Magnús ölafsson, deildarstjóri f sjá-

varútvegsráðuneytinu.                                                                                                   Vlsismynd: EÞS.

RaDsmíði fiskiskipa býður

upp á mikla hagkvæmni

- samstarfsverkefnið um raösmíði fiskiskipa komið á framkvæmdaslig

„Nu er svo komið i samstarfs-

verkefninu um raðsmiði físki-

skipa, að komið er að frám-

kvæmd verkefnisins og stefnu-

mörkun um framhald þess",

sagði Þórleifur Jónsson,

formaður verkefnisstjórnarinn-

ar.

Þórleifur sagði, að i fyrstu hafi

starf á vegum samstarfsverk-

efnisins að miklu leyti falist i þvi

að kynna sér hugmyndir útvegs-

manna um allt land varðandi

æskilegar skipsgerðir og hvernig

þær gerðir skyldu vera búnar. 1

ljós hefði komið að mikill áhugi

væri fyrir þremur stærðarflokk-

um fiskiskipa, 23 metra skipum,

26metra og 35 metra skipum. Nú

er frumhönnun slikra skipa lokið

og þátttakendur i samstarfsverk-

efninu eru reibubúnir að taka að

sér smiði slikra skipa.

Hugmyndin um raðsmiði

Islenskra fiskiskipa býður upp á

samvinnu milli skipasmiðjanna i

landinu og mikla hagkvæmni, þar

sem ekki þarf að „klæðskera-

sauma" hvert einstakt fiskiskip,

ef svo má að orði komast.

Félag dráttarbrauta og skipa-

smiðja hefur um alllangt skeið

beint þvi til stjórnvalda, að

islenskum skipasmiðastöðvum

verði gert kleift að hefja smiði

skipa án þess að kaupsamningur

liggi fyrir, sem samþykktir hafa

verið af sjóðakerfinu og jafnvel

að smiði skuli heimil, þótt enginn

kaupandi sé þá þegar fenginn.

Segja forráðamenn skipasmiðj-

anna, að þannig verðlagsreglur

séu aðalforsenda hagkvæmrar

raðsmiði.

Ef þessar reglur giltu væriunnt

að stytta afgreiðslutima og þar

meb stórlækka f jármagnskostnað

vegna smlðinnar, skipuleggja

starfsemi. stöðvanna betur, ná

fram hagstæðara verði á efni,

tækjum og vélum og siðast en

ekki slst auka llkur á verkaskipt-

ingu   stöðvanna   i   formi   hluta-

smiði.

Hjörleifur Guttormsson,

ibnaðarráðherra, sagði að rikis-

stjórnin hefbi ákvebib sérstakan

stuðning við raðsmiði fiskibáta og

gengið frá reglum um 5%

vibbótarlán vegna nýsmiði bdta

innanlands, er falla undir þessa

raðsmiði.

¦¥

t

I

*

l

•¥

!

¦¥

¥•

•¥

t

•¥

¦¥

¥¦

¥¦

¥¦

¥¦

*

•¥

•¥

-¥

•¥

¥•

¥

Karlmannaskor

Teg: 8404

i

\

STJORNUSKOBUDIN {

Laugavegi 96 (við hliöina á Stjörnubiói).           $

Litir millibrúnt

og svart leður

Stæröir: 40-45

Verð kr: 364.-

PÓSTSENDUM

Simi 23795.

********************************* *************

SÆLKERA e

líNAN


Þessi nýja lína er gerð fyrir fólk, sem hefur ánægju

af mat og kryddi. í henni eru krúsir fyrir kaffi, te,

sykur og', auk 20—30 tegunda krúsa

fyrir krydd, sultur og marmelaði. Þá eru í línunni

ofnföst föt af mörgum stærðum og gerðum.

HÖFDABAKKA    9.

SlMI 85411.

REYKJAVlK.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24