Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. DESEMBER 2001 F YRRI hluti liðinnar aldar var rit- unartími viðamikilla skáldsagna um íslenskt sveitalíf. Það hafði raunar verið viðfangsefni í ís- lenskri skáldsagnagerð allt frá því að Jón Thoroddsen sendi Pilt og stúlku frá sér árið 1850. Upp úr aldamótunum héldu skáldsögur með breiðum þjóðlífslýsingum inn- reið sína í íslenskar bókmenntir og viðfangs- efnið var lífið í sveitinni, ekki síst lífsbarátta fá- tækra leiguliða á heiðarkotum. Sá sem fyrstur tók þetta viðfangsefni fyrir var liðlega þrítug- ur prentari í Reykjavík, Guðmundur Magn- ússon að nafni. Áður hafði hann birt kvæði, leikrit, ferðaminningar og smásögur og oftast hlotið neikvæða dóma. Nú hóf hann að rita viðamikla skáldsögu og tók upp rithöfundar- nafnið Jón Trausti. Hann komst svo að orði að sagan ætti að verða einskonar ævisaga alþýðu- konu og fyrirmyndin var gömul kona sem hann þekkti á uppvaxtarárum sínum. Halla og Heiðarbýlið Bókin hlaut nafnið Halla og kom út 1906, en var rituð haustið 1905. Í ágústmánuði 1912 birti Bogvennen stutt viðtal við Guðmund Magnússon undir fyrirsögninni Min Livs- historie, þar sen hann segir stuttlega frá æsku sinni og óljósum minningum um flutning inn á Öxarfjarðarheiði. Þar lést faðir hans fyrsta veturinn sem fjölskylda Guðmundar bjó þar og móðir hans var ein í kotinu með fimm smábörn. Honum voru minnisstæðir herðabreiðir karl- menn sem drógu þau til byggða á sleða. Í þess- ar minningar segist hann sækja efniviðinn í Heiðarbýlissögurnar sem urðu framhald Höllu. Guðmundur Finnbogason var þá ritstjóri Skírnis og skrifaði ritdóm um bókina sem hófst á þessum orðum: Bók þessi er gleðileg nýjung. Höf., sem kall- ar sig „Jón Trausta“, hefir af sagnaskáldskap aðeins birt eina smásögu í „Eimreiðinni“, og nú kemur hann allt í einu fram með 224 bls. skáld- sögu er sýnir svo ótvíræðar gáfur að ekki verð- ur um villst. Og þótt gallar séu á bókinni eru þeir hverfandi í samanburði við kostina, ... Sálarlíf aðalpersónanna er rakið svo ljóst, eðlilega og hispurslaust, að víða er með snilld, og jafnvel þær persónur, sem lítið koma við söguna, verða furðu skýrar. Um efni sögunnar fór hann svofelldum orð- um: [...] hún er ástarsaga og lýsir átakanlega vel yndislegri íslenskri sveitastúlku, sem leggur allt í sölurnar fyrir þann sem hún elskar — líka það sem þyngst er [og] banvænast fyrir svo hreina og göfuga sál, en það er að ljúga um fað- erni barnsins síns og giftast til þess manni, sem hún í raun og veru hefir viðbjóð á. Efni sögunnar er í stuttu máli á þessa leið: Halla er vinnukona á prestssetri. Presturinn er látinn, en ekkja hans býr þar og Halla er hjú hennar. Henni er svo lýst: „Hún var ekki stór vexti, en þéttvaxin og hraustleg, kvik og skarpleg í öllu fasi sínu og eldfjörug og kát. Andlitið var smáf- rítt og svaraði sér allt vel, kinnarnar ávalar, jafnvel nokkuð bústnar, og skiptu vel litum, munnurinn nettur, nefið beint og formfagurt og yfirsvipurinn hreinn og bjartur – en glettn- islegur.“ Hlátur hennar vakti vissulega berg- mál. Halla dró að sér athygli ógiftra karl- manna og hafði yndi af saklausum ástarsamdrætti, en hafði þá einungis fyrir leik- föng. Húsmóðir hennar varaði hana við að leika sér svona að logandi eldi. Þegar nýr prestur, séra Halldór, kemur á prestssetrið, er Höllu fengið það hlutverk að þjóna honum. Ekki líður á löngu þar til ástir takast með þeim. Í fyrstu vissi enginn að prest- urinn var kvæntur. Þegar Halla verður vanfær af hans völdum, blasir við hempumissir og hremmingar í einkalífi. Til að firra hann slíkri ógæfu bjargar Halla mannorði hans með því að ganga að eiga Ólaf sauðamann en hann pínir prestinn til að greiða sér álitlega fjárhæð fyrir. Til að dylja leyndarmálið enn betur og vera sem minnst í alfaraleið, flytja Ólafur og Halla í eyðibýlið Heiðar- hvamm. Guðmundur Finnbogason dáðist að innganginum að Heiðarbýlinu. Hann væri „ljóðþýður lof- söngur um heiða- löndin, og þó hljóm- mikill og tigulegur. Eflaust er hann einn hinn fegursti þáttur sem ritaður hefir verið um íslenska náttúru, í sundur- lausu máli“. Fyrsta sagan, Barnið, kom út 1908. Þar segir frá sambúð Höllu og Ólafs fyrsta hjúskaparárið. Hann er hamingju- samur öfugt við Höllu sem lifir í stöðugum ótta við að hið rétta faðerni verði uppvíst því að drengurinn var „ekkert líkur pabba sínum“. Þess vegna vildi hún ekki láta séra Halldór skíra drenginn. Á leiðinni upp í Heiðarhvamm hitti hún gömlu prestsekkjuna. Augnaráð hennar, varnaðar- og kveðjuorð snertu Höllu illa. Lýsing höfundar á aðkomunni að Heið- arhvammi er nöturleg. „Öll þekjan var eins og höggormadyngja. Þeir hlykkjuðu sig hver um annan, eins og þeir væru að búa sig undir að teygja sig inn og bíta.“ Drengurinn veikist við ferðavolkið. Við skírnina elnar sóttin og svo lýkur að hann and- ast. Halla verður úrvinda af harmi, en Ólafur sýnir henni litla samúð. Gamla prestsekkjan skrifar Höllu bréf, þar sem hún varpar sökinni á hana. Hún tekur vanskapaðan sveitarómaga – Sölku – á heimilið og hlúir að henni. Í Barninu bætast margar nýjar persónur við. Næstu nágrannar eru Finnur og Setta í heiðarbýlinu Bollagörðum. Þá koma mjög við sögu Egill hreppstjóri í Hvammi, Borghildur kona hans, Þorsteinn sonur þeirra og Þorbjörn ráðsmaður Egils, en bróðir Settu, Sigvaldi á Brekku og Margrét kona hans. Þorleifur H. Bjarnason skrifaði ritdóm um Barnið í Skírni 1908. Þar rakti hann söguþráð- inn og sagði síðan: Í náttúrulýsingum hans bregður allvíða fyrir næmum skilningi á íslenskri náttúru, meira að segja næmari og gleggri en vér eigum að venj- ast. Grenjaskyttan kom út 1909. Þar ber Þor- steinn, sonur Egils og Borghildar í Hvammi, söguna uppi. Sögusviðið er jöfnum höndum Hvammur og Heiðarhvammur. Þorsteinn og Jóhanna fella hugi saman án þess að foreldrar hans viti og hún verður vanfær. Jóhanna er vinnukona, alin upp í Hvammi, en Þorsteinn einungis átján ára unglingur, fáskiptinn og einrænn að eðlisfari. Jóhanna hefir hryggbrot- ið Þorbjörn, bróður Settu í Bollagörðum. Þegar Borghildur kemst að trúlofun Þor- steins og Jóhönnu ákveður hún að slíta henni og neyða Jó- hönnu til að heitast Þorbirni. Þorsteinn lá þá á greni, en hann kemur óvörum heim næstum í sömu andrá og Borghildur hefir lokið ætlunarverki sínu. Það slær í harða brýnu milli mæðginanna og svo lýkur að Borghildur rekur Jóhönnu af heimilinu. Að ráði Egils kemur Þor- steinn Jóhönnu fyr- ir í Heiðarhvammi og biður Höllu að annast hana, því að Þorbjörn eða Borghildur muni ganga eftir því að Jóhanna haldi heit sitt. Borghildur sætir færi og fer ásamt vinnu- manni sínum upp að Heiðarhvammi að sækja Jóhönnu þegar hún og Halla voru einar heima. Eftir ófögur orðaskipti snýr hún heim við svo búið, en sneypir Þorbjörn fyrir að láta kven- mannsvæflu halda Jóhönnu fyrir sér. Hann sætir færi þegar Ólafur er í kaupstaðarferð. Halla varnar honum að ná fundi Jóhönnu svo að stefnir í handalögmál. Þá ræðst Salka á Þor- björn með óskaplegum óhljóðum og hrekur hann á brott. Jóhönnu verður svo mikið um að hún fær krampa og liggur blá og froðufellandi þegar Halla kemur að henni. „Lækur af blóði rann undan fötum hennar.“ Í sömu mund ber gest að garði. Það er séra Halldór. Þau horfast fyrst í augu án þess að segja orð. Hún kemst í uppnám við að sjá hann aftur og atyrðir hann, en felur honum að gæta Jóhönnu meðan hún sækir Þorstein. Jóhanna tekur léttasótt og elur ófullburða barn sem deyr skömmu eftir fæðingu. Sömu örlög bíða Jóhönnu. Þorsteinn og Halla sitja við dánarbeð hennar. Hann tekur lát Jóhönnu svo nærri sér að Halla óttast að hann muni sturlast. Hann grætur sig í svefn í fangi henn- ar. Halla finnur eitthvað læsast um allar æðar sínar, sem hún hvorki gerði sér grein fyrir né gat ráðið við. Þegar Þorsteinn vaknaði daginn eftir sat Halla við rúmið og hélt barni sínu að beru brjóstinu. Beint á móti lá líkið, sveipað hreinni rekkjuvoð. Allt hið velkta og blóðflekkaða er horfið. Nálægð Höllu veitir Þorsteini hugarfró. Hann finnur augu hennar hvíla á sér, ástúðleg og hluttekningarrík. Mynd Jóhönnu máist og fölnar, en Halla verður honum að sama skapi hugstæðari. Hann hafði fundið hjartaslög hennar undir vanga sínum og mjúkir hand- leggir höfðu vafist að höfði hans. „Þessi kona var ekki móðir hans og gat ekki verið það. Hún var kornung, – lítið eldri en hann sjálfur, ljós og litfögur, gift öðrum manni og hafði ungbarn við brjóstið.“ Setta í Bollagörðum fylgist með ferðum Þorsteins. Halla fer nærri um hverju hún muni hvísla í eyru fólks, en fær sig ekki til að vara Þorstein við. Egill tjáir Þorsteini hvað skrafað er. Hann setur dreyrrauðan við tíðindin og hlítir ráði föður síns að fara að heiman. Áður en hann fer skrifar hann Höllu þakklætisbréf og gefur henni ljóðabók til minningar um sig: „Þegar hugur minn reikar heim til átthaganna, mun hann hvergi koma við oftar en hjá þér,“ voru lokaorð bréfsins. Síðar fær hún annað bréf frá Þorsteini. Þar sagði hann að hún væri eina manneskjan í átt- högunum sem hann hugsaði til. „Á kvöldin þegar ég er að sofna, finnst mér stundum hjarta slá undir vanga mínum“, og lokaorðin voru: „ég vildi, að þú værir komin til mín. Mér finnst ég ekki geta lifað án þín.“ Halla gerði nokkrar tilraunir að svara fyrra bréfi Þor- steins, en hætti við þegar síðara bréfið barst henni í hendur. Guðmundur Finnbogason skrifaði ritdóm um næstu bók – Fylgsnið – í Skírni 1910. Hann endaði á þessum orðum: Allir sveitamenn kannast við þjófnaðargrun- inn sem stundum fellur á heiðarbúana. Og ekk- ert þjófsheiti lætur eins illa í íslenskum eyrum og „sauðaþjófur“. Jón Trausti hefir nú tekið þetta atriði til meðferðar í „Fylgsninu“. Það snýst mest um þjófnaðargrun, þjófaleit og uppljóstrun sauðaþjófnaðar í Bollagörðum. Undir sögulok Grenjaskyttunnar segir frá ferðum fólksins í Heiðarhvammi fram hjá Bollagörðum að hausti til. Þar rekast þau á Þorbjörn þar sem hann er að handsama sauð sem Egill í Hvammi á. Fleira óvænt ber þar fyrir augu, t.a.m. talar Salka um ljós niðri í jörðinni. Þessi atburður staðfestir grun Höllu um að Bollagarðar séu þjófabæli. Fylgsnið er látið gerast þremur árum síðar. Í upphafi er sagt frá nýrri fjallskilareglugerð um eyðingu refa. Hreppsnefndinni er fengið í hendur refaeitur, sem oddviti sveitarinnar, Pétur á Kroppi og bróðir Borghildar í Hvammi, hefir undir höndum. Honum er svo lýst að hann sé stór vexti, mikilleitur og svip- mikill, augun fremur lítil, grá og hvöss, andlitið magurt, með þunglyndislegum dráttum og hæðnisglott leikur á vörum. Meðfætt lista- mannseðli fékk útrás í fiðluleik hans. Litlir kærleikar eru með systkinunum. Pétur hafði löngum verið í uppreisn gagnvart fjölskyldu sinni, t.a.m. vegna óvígðrar sambúðar með bláfátækri stúlku sem dó frá ungum börnum. Fylgsnið hefst í brúðkaupsveislu á Brekku þar sem Egill hreppstjóri kallar hreppsnefnd- ina á fund til að ræða þjófaleit á heiðarbýl- unum. Pétur er meðal veislugesta. Egill kynnir fyrirætlun sína. Þögn slær á viðstadda, nema snöggur, bitur hlátur heyrist frá Pétri sem dregur dár að fyrirætlaninni. Á eftir drekkur hann ósleitilega og er bersýnilega órótt. Í veislunni leikur hann polkann Þjófaleit fyrir dansi. Þjófaleitin hefst í Bollagörðum en reynist árangurslaus í upphafi. Pétur er meðal leit- armanna og hefir allt að háði og spotti sem fyrr. Af tilviljun finnst fylgsnið með þýfinu. Pétur er þar nærstaddur og reynir að fá við- stadda til að þegja um fundinn, þegar það tekst ekki, hlær hann hrollvekjandi kuldahlátri. Síð- an eru Finnur og Setta færð til yfirheyrslu, þar sem Finnur upplýsir þjófnaðinn, þar á meðal hlutdeild Péturs. Borghildur gerir þjófaleit í Heiðarhvammi upp á eigin spýtur og hefur vinnumann og Pét- ur bróður sinn sér til fulltingis. Á gólfinu í bað- stofunni sér Borghildur hvítleita bletti líkt og eitthvað hafi þornað þar upp. Halla segir henni að það sé uppþornaður blóðpollur sem hafi beðið eftir henni því að þarna hafi manneskju blætt út af hennar völdum. Til að fylgja orðum sínum eftir dregur Halla fram rekkjuvoð með hálfþvegnum blóðflekkjum og steypir yfir höf- uð Borghildar sem verður hamstola af reiði. Þegar heim kemur tjáir Egill henni að Pétur sé meðsekur og verði tekinn fastur næsta morg- un. Um nóttina heimsækir hún Pétur. Á leið- Í FÓTSPOR JÓNS TRAUSTA Var Jón Trausti einn helsti áhrifavaldur Ólafs Jóhanns Sigurðssonar? Engar heimildir eru um að Ólafur Jóhann hafi hrifist af bókum Jóns Trausta í æsku en engu að síður virðist sú örlagasaga sem Jón Trausti skrifaði um lífsbaráttu og örlög þeirra sem byggðu heiðarbýlin hafa brennst inn í vitund hans á æsku- og unglingsárum og komið óboðin upp á yfirborðið þegar hann valdi sér það viðfangsefni að skrifa um áþekkt söguefni. Jón Trausti Ólafur Jóhann Sigurðsson E F T I R A Ð A L G E I R K R I S T J Á N S S O N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.