Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.2002, Page 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. MARS 2002 13
LISTASAFN Reykjavíkur – Hafn-
arhús opnar sýningu á úrvali nýrra
aðfanga frá árunum 1998-2001 í
dag, laugardag, kl. 16.
Á undanförnum fjórum árum
hafa rúmlega fjögurhundruð lista-
verk bæst í eigu Reykvíkinga og
eru þau varðveitt í Listasafni
Reykjavíkur. Aðföngunum má
skipta í tvo hluta, gjafir sem eru 251
og innkaup sem eru 173. Verkin
spanna breitt tímabil í listasögunni
en þau eru unnin allt frá árinu 1826
til ársins 2001.
Í tengslum við opnun sýning-
arinnar verður gefin út sýning-
arskrá sem m.a. inniheldur yfirlit
yfir öll aðföng Listasafnsins á síð-
ustu fjórum árum.
„Allt frá tilkomu Kjarvalsstaða
árið 1973 hefur Reykjavíkurborg
safnað listaverkum eftir íslenska
listamenn með markvissum hætti.
Árlega hefur verið keyptur nokkur
fjöldi listaverka til Listasafns
Reykjavíkur – rúmlega fjörutíu
verk að meðaltali undanfarin ár –
en auk þess hefur safnið hlotið
margar höfðinglegar listaverkagjaf-
ir frá velunnurum, innlendum og er-
lendum. Allir landsmenn vita að
stórar gjafir frá listamönnunum Jó-
hannesi S. Kjarval, Ásmundi Sveins-
syni og Erró eru grunnurinn að
Listasafni Reykjavíkur, en einnig er
rétt að minna á að fjölmargir ein-
staklingar, listunnendur og lista-
menn hafa í gegnum árin ánafnað
safninu listaverk, og þannig átt stór-
an þátt í uppbyggingu þess til lengri
tíma,“ segir Eiríkur Þorláksson
safnstjóri.
„Við innkaup listaverka á þessu
tímabili hefur sem fyrr verið haft að
leiðarljósi að Listasafn Reykjavíkur
skuli eftir því sem kostur er eignast
framúrskarandi listaverk eftir helsta
núlifandi listafólk þjóðarinnar. Jafn-
framt hefur verið leitast við að nýta
tækifæri til að fá til safnsins verk lát-
inna listamanna sem bæta enn frek-
ar þá heildarmynd, sem safneignin
getur gefið af þróun myndlistar á Ís-
landi á síðustu öld.“
Úrval nýrra aðfanga
í Hafnarhúsinu
Verk, sem verður á sýningunni, eftir Guðmundu Andrésdóttur.
ÓLAFUR Ragnar Grímsson for-
seti Íslands opnar árlega samsýn-
ingu Ljósmyndarafélags Íslands
og Blaðaljósmyndarafélags Íslands
í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni,
í dag, laugardag kl. 14.04. Þá verð-
ur einnig opnuð gestasýning Sig-
urðar Jökuls „Leitin að enska
sjentilmanninum“ og mun sendi-
herra Breta flytja stutt ávarp af
tilefninu.
Þetta er fjórða samsýning félag-
anna, en á sýningunni er á þriðja
hundrað mynda. Á sýningu LÍ eru
24 sýnendur með um 55 myndir frá
ýmsum sjónarhornum samfélags-
ins, auk hefðbundinna ljósmynda-
stofumynda. Á sýningu BLÍ, sem
er hluti af árlegri samkeppni fé-
lagsins, eru um 172 myndir. Í und-
angengnu forvali valdi dómnefnd
myndirnar á sýninguna, en alls
bárust 512 myndir í keppnina.
Samkeppnin skiptist í fjóra að-
alflokka, fréttir, íþróttir, manna-
myndir og opinn flokk. Undir opna
flokkinn falla landslagsmyndir,
tískuljósmyndir, skoplegar myndir,
myndraðir og myndir úr daglega
lífinu. Alls tóku 28 ljósmyndarar
þátt í samkeppninni.
Veitt verða verðlaun og viður-
kenningar fyrir þrjár myndir ljós-
myndara í LÍ og sjö myndir BLÍ
fá átta verðlaun og viðurkenning-
ar.
Á gestasýningu Sigurðar Jökuls
gefur að líta 17 myndir af enskum
heiðursmönnum og lávörðum.
Sýningin stendur til og með 30.
mars og er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 11-17.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, og Ásdís Arnar-
dóttir vinna að uppsetningu ljósmyndasýningarinnar.
Á ÞRIÐJA HUNDR-
AÐ LJÓSMYNDA
Í GERÐARSAFNI
GRISFO-tríóið heldur djass-
tónleika í Norræna húsinu á morg-
un, sunnudag, kl. 17. Þar með lýkur
tónleikaferð tríósins sem hófst í
Þórshöfn 3. mars, þaðan var farið til
Nuuk og haldnir tónleikar 6. og 7.
mars.
Tríóið skipa kontrabassaleikarinn
Edvard Nyholm Debess (Fær-
eyjar), altsaxófónleikarinn Sigurður
Flosason og píanóleikarinn Jim
Milne (Bandaríkin/Grænland). Tríó-
ið dregur nafn sitt af Vestur-
Norðurlöndunum þremur, Græn-
landi, Íslandi og Færeyjum, en það-
an eru tónlistarmennirnir.
Edvard Nyholm, Sigurður og Jim
náðu saman í NAPA Big Band 2001
þar sem tónlistarmenn frá Íslandi,
Færeyjum og Grænlandi komu
saman í stórhljómsveit undir stjórn
Mariu Schneider. En þetta er í
fyrsta sinn sem tónlistarsamvinna
þessara þriggja landa fæðir af sér
djasstríó. Í þetta sinn semur hver
tónlistarmaður sérstaklega fyrir
tríóið og eru það djasshljómar sem
hver þátttakandi setur sinn stíl á,
en norrænn blær er sameiginlegt
einkenni tónlistarinnar.
Síðar á árinu mun tríóið koma
fram í Dublin, St. John’s á Ný-
fundnalandi, Leirvík á Hjaltlands-
eyjum, Akureyri og víðar.
Samstarfssjóðurinn Nuuk –
Reykjavík – Tórshavn og Norræna
tónlistarnefndin (NOMUS) hafa
veitt styrk til tónleikanna sem eru
haldnir í samvinnu við Katuaq og
Norðurlandahúsið í Færeyjum.
Norrænn blær í djassi
Grisfo-tríósins
Edvard Nyholm Debess Sigurður Flosason Jim Milne
SÝNINGARGESTUM í Histor-
ische-safninu í Bern í Sviss,
býðst þessa dagana að virða
fyrir sér brot af því ríkidæmi
sem einkenndi hirð hertoganna
af Búrgund á 15. öld. Fag-
urlega ofin veggteppi og önn-
ur textílverk í eigu safnsins
þykja hafa varðveist betur en
flest önnur textílverk frá þess-
um tíma. Þrjú Búrgundartepp-
anna eru hluti af ránsfeng
Svisslendinga eftir Grandson-
og Murten-orusturnar 1476.
Ríkulegasta veggteppið féll
hins vegar í hendur Svisslend-
inga eftir fall Búrgundar 1536.
Teppin, sem eru ýmist ofin
úr ull, silki og gullþráðum, eru
jafnan geymd í hálfrökkruðum
herbergjum til að varðveita lit-
brigði þeirra sem best. Í tilefni
sýningarinnar eru þau hins
vegar nú í vel lýstum sölum
safnsins, sem að mati þýska
dagblaðsins Frankfurter Allge-
meine veitir handbragði hönn-
uða þeirra nýjar víddir. Ekki
þykir þá spilla fyrir að á
tveimur veggteppanna í safn-
inu má sjá nákvæma eftirlík-
ingu af veggmyndum Rogier
van der Weyden sem prýddu
dómsalinn í Brussel fyrir brun-
ann 1695.
Astrid Lindgren-verðlaunin
BÓKMENNTAVERÐLAUN,
sem nefnd hafa verið í höfuðið
á barnabókahöfundinum Astrid
Lindgren, hafa verið sett á fót
í Svíþjóð. Verðlaunin verða
veitt fyrir barna- og unglinga-
bækur og nemur verðlaunaféð
5 milljónum sænskra króna,
eða um 48,5 milljónum ís-
lenskra króna.
„Við erum stolt og ánægð yf-
ir að stjórnvöld hafi komið
þessum verðlaunum á. Það er
okkar trú að Astrid sjálf hefði
kunnað að meta að þessi verð-
laun yrðu veitt í minningu
hennar,“ sagði Carl Olof Nym-
an, tengdasonur Lindgren, er
tilkynnt var um verðlaunin.
„Við teljum líka að á himnum
gleðjist hún meira yfir þessum
verðlaunum, heldur en ef
henni hefðu verið veitt Nób-
elsverðlaunin í bókmenntum.“
Lindgren var jarðsett í gær
og fylgdu þúsundir henni til
grafar.
Kínversk bronsaldar-
menning
METROPOLITAN-listasafnið í
New York hýsir þessa dagana
sýningu á bronsaldarmunum
frá Kína.
Fagurlega útskornir gripir
með dýrslegum verum vekja
sérstaka athygli bandaríska
dagblaðsins New York Times.
En munir frá Shang (1600–
1046) og Zhou (1046–221)
tímabilunum, sem nefna má
blómaskeið kínverskrar brons-
menningar, þykja góð dæmi
um slíka gripi. Sú sjónræna
fágun sem einkennir verk frá
þessum tímabilum byggist á
langri hefð, þar sem kynslóð
eftir kynslóð átti sinn þátt í
þróuninni.
Hirðin
í Búrgund
ERLENT