Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lesbók Morgunblašsins

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Morgunblašiš


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lesbók Morgunblašsins

						Schola cantorum hreppti

silfurverðlaun á Ítalíu

KAMMERKÓRINN Schola cantorum, undir

stjórn Harðar Áskelssonar, tók nýverið þátt í

virtri alþjóðlegri kórakeppni sem kennd er

við tónskáldið Seghizzi og var haldin í 41.

sinn í Gorizia á Norður-Ítalíu í byrjun síðasta

mánaðar. 

Kórinn keppti í tveimur keppnisflokkum

og voru 16 kórar skráðir til keppni víðsvegar

að úr heiminum, m.a. frá Svíþjóð, Litháen og

Filippseyjum. Í öðrum keppnisflokknum voru

verkefnin frá mismunandi tímabilum tónlist-

arsögunnar, en í hinum frá einu tímabili og

hafði Schola cantorum valið sér tónlist frá

seinni hluta 20. aldar.

Keppnin fór fram í tveimur tónleikasölum

að viðstöddum áheyrendum og alþjóðlegum

dómnefndum. Að kvöldi 6. júlí voru úrslit til-

kynnt og verðlaun afhent. Schola cantorum

varð í öðru sæti í flokki kórverka frá mismun-

andi stíltímabilum, en fyrstu verðlaun hlaut

kammerkórinn Brevis frá Litháen. Í flokki

kórverka frá einu stíltímabili varð Schola

cantorum í fimmta sæti, en þar var stigamun-

ur milli efstu kóra mjög lítill. Kórinn tók við

verðlaunaskjölum og verðlaunafé úr hendi

listræns stjórnanda keppninnar.

Að lokinni verðlaunaafhendingunni sungu

fimm efstu kórarnir nokkur lög og var Schola

cantorum ákaft fagnað að loknum söng sín-

um, einkum fyrir túlkun á mótettunni Warum

ist das Licht gegeben eftir Johannes Brahms. 

Það setti svip á lokaathöfnina að hópur Ís-

lendinga var á meðal áheyrenda, en þeir voru

að ljúka för um listaslóðir Norður-Ítalíu á

vegum Heimsklúbbs Ingólfs undir leiðsögn

Ingólfs Guðbrandssonar, sem sjálfur stjórn-

aði Pólýfónkórnum á söngferðum um helstu

borgir Ítalíu fyrr á árum.

Schola cantorum með stjórnanda sínum, Herði Áskelssyni, á Ítalíu.

LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

?

MENNING/LISTIR 10. ÁGÚST 2002 15

MYNDLIST

Árnastofnun: Handritasýning opin

mán. til lau. kl. 11?16. Til 25.8.

Galleri@hlemmur.is: Elin Wikstrom

gjörningalistamaður. Til 18.8.

Gallerí Skuggi: Tinna Kvaran, Magnús

Helgason, Þuríður Helga Kristjáns-

dóttir, Ditta (Arnþrúður Dagsdóttir) og

Steinþór Carl Karlsson. Til 18.8.

Gallerí Sævars Karls: Hulda Vilhjálms-

dóttir. Til 17.8.

Gerðarsafn: Gerður Helgadóttir, Jó-

hannes Jóhannesson og Valgerður Haf-

stað. Til 8.9.

Grafarvogskirkja: Björg Þorsteins-

dóttir. Til 18.8.

Hafnarborg: Sverrissalur: Samsýning

grafíklistamanna. Aðalsalur: Maria El-

isabeth Prigge. Til 12.8.

Hallgrímsk.: Húbert Nói. Til 29.8.

Hús málaranna, Eiðistorgi: Einar Há-

konarson. Til 1.9.

i8, Klapparstíg 33: Sabine Funke,

Ragna Róbertsdóttir og Beate Ter-

floth. Birta Guðjónsdóttir. Til 10.8.

Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn

G. Harðarson 14.8.- 5.10.

Listasafn Akureyrar: Nútímalist frá

arabaheiminum. Til 8.9.

Listasafn ASÍ: Sigrún Ó. Einarsdóttir

og Søren S. Larsen glerverk en Ólöf

Einarsdóttir textíll. Til 25.8.

Listasafn Borgarness: Sigríður Valdís

Finnbogadóttir. Til 14.8.

Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla

daga kl. 14?18, nema mánudaga. 

Listasafn Rvíkur ? Ásmundarsafn:

Listin meðal fólksins. Til 31. des.

Listasafn Reykjavíkur ? Hafnarhús:

Íslensk samtímalist. Til 11.8.

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hin

hreinu form. Til 1.9.

Listhús Ófeigs: Verk Jóhannesar Jó-

hannessonar. Til 28.8.

Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Blaða-

ljósmyndir. Til 1.9.

Mokkakaffi: Marý. Til 14.8.

Norræna húsið: Siri Derkert. Til 11.8.

Norska húsið, Stykkishólmi: Dýrfinna

Torfadóttir skartgripahönnuður. Til

1.9.

Safnahús Borgarfj.: Skógasýning,

myndlist og handverk. Til 1.9.

Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Átta

sýningar á alþýðulist. Til 15.9.

Sjóminjasafn Íslands: Smíðisgripir ís-

lenskra handverksmanna. Til 12.8.

Skaftfell, Seyðisfirði: Peter Frie og

Georg Guðni. Til 10.8.

Skálholtsskóli: Benedikt Gunnarsson.

Til 1.9.

Slunkaríki, Ísafirði: Samsýning sjö

listamanna. Til 25.8.

Þjóðarbókhlaða: Yfirlitssýning á verk-

um Halldórs Laxness. Til 31. des.

Þjóðmenningarhúsið: Landafundir.

Ljósmyndir úr Fox-leiðangrinum.

Vestur-íslenskar bókmenntir. Skákein-

vígi aldarinnar. 

Upplýsingamiðstöð myndlistar:

www.umm.is undir Fréttir. 

TÓNLIST

Laugardagur

Árbæjarsafn: Hrafn Ásgeirsson saxa-

fón, Davíð Þór Jónsson, píanó og raf-

hljóð. Kl. 14. 

Borgarleikhúsið: Sumarópera Reykja-

víkur: Dido og Eneas eftir Purcell. lau.,

sun.,fim., fös.

Kirkjuhvolur: Kammertónleikar á

Kirkjubæjarklaustri. Kl. 17. 

Hallgrímskirkja: Susan Landale

oragnisti. Kl. 12. 

Reykjahlíðarkirkja, Mývatnssveit:

Klezmer-kvartett Hauks Gröndal. Kl.

21. 

Skálholtskirkja: Færeyski kórinn

Mpiri. Kl. 20. 

Sunnudagur

Kirkjuhvolur: Kammertónleikar á

Kirkjubæjarklaustri. Kl. 15. 

Hallgrímskirkja: Susan Landale

oragnisti. Kl. 20. 

LEIKLIST

Hafnarfjarðarleikhúsið: Sellófon, fim. 

Kaffileikhúsið: Ferðaleikhúsið Light

Nights. Flutt á ensku, lau., sun., mán.,

fös.

Smiðjan ? Nemendaleikhúsið: Ragna-

rök 2002, frums. þrið.

Upplýsingar um listviðburði verða að

hafa borist bréflega eða í tölvupósti fyr-

ir kl. 16 á miðvikudögum: Morgunblað-

ið, menning/listir, Kringlunni 1, 103

Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang:

menning@mbl.is. 

MENNING

LISTIR

NÆSTU VIKU

MÁLVERK af Sesselju Hreindísi Sigmunds-

dóttur á Sólheimum var afhjúpað á dögunum

en verkið er gjöf frá listamanninum Eiríki

Smith og eiginkonu hans Bryndísi Sigurðar-

dóttur og tilefnið er 100 ára ártíð Sesselju. 

Myndinni var valinn staður í hinu nýreista

Sesseljuhúsi og afhjúpuðu verkið þær Sigríður

Ruth Hjaltadóttir myndlistakona og íbúi á Sól-

heimum og Bryndís eiginkona listamannsins.

Verkið er 1,5x4 metrar á stærð og heitir Bar-

áttukonan Sesselja. Sigríður Ruth Hjaltadóttir myndlistarkona, Bryndís Sigurðardóttir og Eiríkur Smith.

Sólheim-

um fært 

málverk

að gjöf

HLYNUR Hallsson opnaði sýninguna ?don? í gær í

Chinati-stofnuninni í Marf í Texas í sýningarsal

sem heitir ?Locker plant building? sem er hluti af

Chinati-byggingunni. Margir íslenskir listamenn

taka þátt í sýningunni má þar nefna Ásmund Ás-

mundsson, Margréti Blöndal, Önnu Sigríði Hróð-

marsdóttur, Ráðhildi Ingadóttur, Harald Karlsson,

Erling T.V. Klingenberg, Gunnar Kristinsson, Óm-

ar Smára Kristinsson, Tuma Magnússon, Öldu Sig-

urðardóttur, Steinunni Helgu Sigurðardóttur,

Magnús Sigurðarson og Þorvald Þorsteinsson. Auk

þeirra taka þátt í sýningunni listamenn m.a. frá

Bandaríkjunum, Danmörku, Finnlandi, Kanada, Tékklandi og Rúss-

landi.

?Don er sýningarverk sem ég setti saman með margvíslegum

verkum eftir 47 myndlistarmenn. Ég er hér í boði Chinati-stofn-

unarinnar í Marf í Texas í mánuð og byrja á þessari samsýningu og

set svo upp einkasýningu í lok ágúst,? segir Hlynur. ?Hluti af vinnu

minni sem myndlistarmanns er að setja upp sýningar með öðrum

listamönnum, eins og sýningarverkið ?Eitthvad-etwas-something? í

Kunstverein í Hannover árið 1999 eða ?A4? hjá gallerí Otto Plonk í

Bergen árið 1997. Svo hef ég rekið ?kunstraum wohnraum? á heim-

ili okkar í Hannover og á Akureyri frá árinu 1994 og ?Villa minimo?

á árunum 1997-99 í Hannover og sýninguna ?Sýnir og veruleiki? í

galleríi Gúlp 1997 og svo hef ég verið einn af fjórum listamönnum

sem reka sýningarstadina GUK+ í Danmörku, Þýskalandi og á Ís-

landi frá 1999.

Við uppsetningu þessara sýninga og ?don? lít ég ekki á mig sem

sýningarstjóra heldur myndlistarmann og þessar sýningar eru hluti

af verkunum mínum.?

Sýningin stendur fram til 20. ágúst.

Hlynur Hallsson 

stýrir sýningu í Marf 

Hlynur 

Hallsson

Í LISTHÚSI Ófeigs á

Skólavörðustíg verður í

dag, laugardag, kl. 16 opnuð

sýningin ?Úr fórum geng-

ins listamanns?. Um er að

ræða sýningu á verkum Jó-

hannesar Jóhannessonar

(1921?1998), vatnslita-

myndir, pastel og teikning-

ar. Jóhannes nam gull- og

silfursmíði hjá Guðlaugi

Magnússyni og lauk sveins-

prófi 1945. Í framhaldi af

því sótti hann nám í mynd-

list til Bandaríkjanna,

Frakklands, Rúmeníu og

seinna til Danmerkur og

Kína. Hann var einn af

stofnendum Septem-sýn-

ingarsamtakanna og gegndi

ýmsum trúnaðarstörfum

fyrir myndlistarmenn í

landinu og var á árunum

1965?1973 fulltrúi íslenskra

myndlistamanna í Safnráði

Listasafns Íslands.

Jóhannes var frumkvöðull að

nýsköpun í íslenskri gull- og silf-

ursmíði. Frá árinu 1973 helgaði

hann starf sitt eingöngu myndlist.

Sýningin stendur fram til 28.

ágúst.

Verk gengins lista-

manns hjá Ófeigi

Verk eftir Jóhannes Jóhannesson.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16