Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. OKTÓBER 2002 Í ÁR er þess minnst að 100 ár eru liðin frá fæðingu danska arkitektsins og hönnuð- arins Arne Jacobsen. Í seinasta mánuði var opnuð sýning í vestursal Kjarvals- staða á helstu verkum hans á sviði hús- ganga-, iðn- og textílhönnunar, en Jacob- sen er án efa þekktastur hér á landi fyrir verk sín á því sviði. Í heimalandi sínu er hann ekki síður kunnur sem frumherji nútíma- arkitektúrs á 4. áratugnum og einn þekktasti arkitekt Danmerkur á 20. öld. Í verkum hans fléttast saman áhrif frá fagurfræði alþjóðlegs módernisma og danskri hefð. Hann teiknaði m.a. húsgögn, vefnað, veggfóður og borðbúnað en mörg af frægustu húsgögnum hans voru upphaflega hönnuð sem hluti af einstökum byggingarverkefnum. Áhugavert er að bera byggingar Arne saman við húsgagnahönnun hans, þar sem tilfinning höfundarins fyrir létt- leika og ótrúlega næmt formskyn hans skín í gegn í hverjum hlut. Rætur í nýklassík Arne Jacobsen fæddist í Kaupmannahöfn ár- ið 1902. Hann ólst upp á yfirskreyttu heimili vel stæðra foreldra í Kaupmannahöfn og vakti snemma athygli fyrir góða teiknikunnáttu. Á unglingsárum komst hann í kynni við bræðurna Mogens og Flemming Lassen, sem báðir urðu þekkt nöfn í danskri byggingarlist. Þau kynni urðu til þess að Arne ákvað að hefja nám í arki- tektúr en hugur hans hafði fremur staðið til myndlistarnáms. Á námsárunum hlaut Arne sína fyrstu viðurkenningu fyrir hönnun stóls fyrir danska sýningarskálann á Heimssýning- unni í París árið 1925, sem kennari hans, Kay Fisker, teiknaði. Rætur Arne Jacobsens sem arkitekts lágu í þeim stranga, nýklassíska stíl sem kom fram á árum fyrri heimsstyrjaldar. Þessi hreyfing kom fram sem andsvar við rómantískum stílhreyf- ingum aldamótaáranna en var um leið undanfari þeirrar róttæku viðhorfsbreytingar sem varð með tilkomu módernismans í arkitektúr. Að þessu leyti stóð Arne Jacobsen í sömu sporum og Alvar Aalto í Finnlandi og Erik Gunnar Asplund í Svíþjóð en fyrstu verkefni allra þess- ara frumherja módernisma í norrænum arki- tektúr voru í klassískum anda. Íslenskur fulltrúi þessarar sömu stefnu var Sigurður Guðmunds- son arkitekt, sem kom heim frá námi í Kaup- mannahöfn árið 1925, höfundur barnaskóla Austurbæjar og íbúðarhúss Ólafs Thors við Garðastræti 41 í Reykjavík. Einbýlishús framtíðarinnar Upphaf sjálfstæðs ferils Arne Jacobsens sem arkitekts má rekja aftur til ársins 1928 er hann hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni um einbýlis- hús framtíðarinnar ásamt Flemming Lassen. Verðlaunahúsið var reist sem hluti heimilissýn- ingar í Kaupmannahöfn árið 1929 og vakti mikla athygli. Hringform hússins var afar nýstárlegt sem og sú mynd sem höfundarnir gáfu af tækni- væddu framtíðarheimili þar sem íbúarnir gátu valið um að aka inn í húsið á bíl, sigla inn á hrað- báti eða lenda á þaki þess í eins konar þyrlu. Sú bernska sýn á möguleika tækninnar og nýrrar byggingarlistar til að skapa nýjan og betri heim fyrir allan almenning var táknræn fyrir tíðar- andann á þessum bernskuárum módernismans, áður en skuggi heimskreppu og aðdragandi þótti borgarbúum Stelling-húsið vera í hrópandi andstöðu við umhverfið og í blaðagreinum var þess krafist að Arne Jacobsen yrði sviptur leyfi til að hanna byggingar. Um líkt leyti teiknaði hann rannsóknarhús fyrir Novo-lyfjafyrirtækið í Kaupmannahöfn þar sem framhliðin var sveigð í boga fyrir horn líkt og á Stelling-húsinu. Verk- efnið markaði upphafið að löngu og farsælu samstarfi en Novo var alla tíð meðal mikilvæg- ustu viðskiptamanna teiknistofu Arne Jacobsen. Sá frægi stóll Maurinn var í upphafi hannaður fyrir kaffistofu Novo-fyrirtækisins árið 1952. SAS-hótelið Á árum seinni heimsstyrjaldar varð stöðnun í danskri byggingarlist í kjölfar hernáms nasista. Árið 1943 flúði Arne Jacobsen til Svíþjóðar og dvaldi þar uns styrjöldinni lauk. Eftir stríðið komst Evrópa aftur í tengsl við Ameríku, en þangað höfðu margir frumherjar nútímaarki- tektúrs flúið. Í þeim hópi voru nokkrir helstu kennarar þýska Bauhaus-skólans, m.a. arki- tektarnir Walter Gropius og Ludwig Mies van der Rohe. Á námsárunum hafði Arne séð sýn- ingu á verkum Mies í Berlín sem hafði sterk áhrif á hann. Eftir seinni heimstyrjöld var Mies van der Rohe á ný mikill áhrifavaldur á fram- vindu módernisma í arkitektúr, með byggingum og skipulagi í anda strangrar naumhyggju fyrir IIT-tækniháskólann í Chicago og hugmynd sinni um léttan útvegg háhýsa úr gleri og málmi, sem átti eftir að setja mikinn svip á vest- rænar borgir eftirstríðsáranna. Í þeim anda er kunnasta verk Arne Jacobsen, SAS-hótelið í miðborg Kaupmannahafnar, hannað og byggt á árunum 1955–60. Áform flugfélagsins um að reisa nútímalegt háhýsi í miðborg Kaupmanna- hafnar að amerískri fyrirmynd voru umdeild frá upphafi. Margir óttuðust að tuttugu hæða kassalaga glerbyggingin myndi eyðileggja hina sérstæðu ásýnd borgarinnar með sínum skraut- legu, koparklæddu turnspírum. Þó var talið bót í máli að arkitektinn var danskur. Enda þótt SAS-hótelið beri öll útlitseinkenni hins alþjóð- lega módernisma eftirstríðsáranna, sem fengið hefur harðan dóm í ljósi sögunnar, eru það, líkt og í öðrum verkum Arne Jacobsen, fínleg út- færsluatriði og sterkt formskyn höfundarins sem lyfta þessari byggingu skör ofar. Sjálfur hótelturninn er skilinn að frá tvílyftri sökkul- byggingu með inndreginni hæð. Augljós fyr- irmynd að þessari uppbyggingu er Lever- einni súlu. Lífrænt formið minnir mjög á bak „Maursins“, stólsins fræga sem Arne átti síðar eftir að hanna úr formbeygðri viðarplötu. Ýmis vandkvæði voru á því að innleiða hugmyndir módernismans í Danmörku þar sem þau efni sem formhugsun stefnunnar byggðist á, stein- steypa og stál, voru lítt notuð í dönskum bygg- ingariðnaði. Þar var múrsteinninn allsráðandi og önnur efni ekki samkeppnishæf. Líkt og fleiri danskir arkitektar valdi Arne þann kost að laga nútímalega hönnun sína að múrsteinshefð- inni og vinna með hana á skapandi hátt. Var sú þróun í takt við breyttar áherslur í arkitektúr módernismans víða um heim á seinni hluta 4. áratugarins, þar sem áhrifa fór að gæta frá staðbundnum byggingaraðferðum og hefðum í notkun efnis. Umdeildur Árið 1937 hlaut tillaga Arne Jacobsens og Er- iks Møllers fyrstu verðlaun í samkeppni um hönnun ráðhúss í Árósum. Í umsögn dómnefnd- ar var tilagan lofuð fyrir hófstillt en jafnframt virðulegt yfirbragð þar sem ytra útlit er lýsandi fyrir þá starfsemi sem fram fer innan dyra. Áhrif frá verkum Asplunds eru auðsæ í tillög- unni, en hann hafði þá nýlega lokið við umdeilda stækkun dómhússins í Gautaborg. Ekki voru þó allir sáttir við ásýnd hins nýja ráðhúss, þar eð enginn var turninn. Á endanum var arkitekt- unum stillt upp við vegg og þeim gert að hanna turn á ráðhúsið eða öðrum kosti segja sig frá verkefninu. Tóku þeir fyrri kostinn, þótt ekki væru þeir sáttir við niðurstöðuna, enda þykir turninn nú vera lýti á annars ágætri byggingu. Innviðir ráðhússins eru listilega útfærðir og nánast hvert atriði í búnaði þess sérhannað af höfundunum. Af öðrum kunnum verkum Arne Jacobsens frá 4. áratugnum má nefna Stelling-húsið, versl- unar- og skrifstofubyggingu á hornlóð við Gamlatorg í miðborg Kaupmannahafnar. Húsið er tvískipt í uppbyggingu líkt og hefðbundið borgarhús við Strikið: neðri hlutinn gegnsær með samfelldum glerflötum en sá efri klæddur grænum flísum er mynda samfelldan yfirborðs- flöt með ferningslaga gluggunum. Á báðum hlutum hússins sveigir framhliðin í mjúkum boga fyrir hornið. Þó að stíll hússins væri nú- tímalegur voru hæðarhlutföll framhliðarinnar nákvæmlega ákvörðuð út frá veggbrúnum að- liggjandi húss í klassískum stíl. Þrátt fyrir þetta seinni heimstyrjaldar féllu yfir Evrópu. Í lok 6. áratugarins teiknaði Arne Jacobsen hringlaga einbýlishús á strandlóð við ysta odda Sjálands sem um margt var líkt framtíðarhúsi hans frá árinu 1929. Árið 1931 hlaut Arne Jacobsen verðlaun í lok- aðri samkeppni um hönnun baðstrandar við Bellevue strandhótelið við Strandvejen í Gen- tofte. Var ströndin opnuð ári síðar með búnings- klefahúsum og sölubásum sem Arne teiknaði. Áhersla á böð og heilsurækt var veigamikill þáttur í nútímalegri lífsstíl almennings sem þá var í mótun og ímynd hinnar nýju bygging- arlistar var hluti af, ásamt nýjustu samgöngu- og heimilistækjum, óformlegri fata- og hártísku og jazztónlist frá Ameríku. Fínleiki Í framhaldi af hönnun baðstrandarinnar var Arne Jacobsen falið að teikna fleiri byggingar í næsta nágrenni baðstrandarinnar: fjölbýlishús- ið „Bellavista“ á lóð handan götunnar, yfir- byggða reiðhöll og Bellevue-leikhúsið með opn- anlegu þaki og veitingahúsi í samtengdri álmu. Léttleiki hins nýja stíls einkenndi allar þessar byggingar, hvít hreinskorin form með stórum gluggaflötum. Þær eru nú á lista yfir merkustu byggingar á Norðurlöndum frá upphafsárum módernismans, enda fágætt að varðveist hafi svo samstæð heild bygginga eftir sama höfund frá þessu tímabili. „Bellavista“ fjölbýlishúsið var hannað undir sterkum áhrifum frá Bau- haus-skólanum og verkum arkitektsins Ernst May í Frankfurt, eins helsta frumkvöðuls að hönnun íbúða í anda notagildisstefnu. Fjölbýlis- húsið er byggt í skeifu umhverfis sameiginlegan garð sem opnast út á móti Eyrarsundi. Flest- allar íbúðirnar eru með svölum og hornglugga á stofu þaðan sem njóta má suðursólar og útsýnis út á hafið. Til að gera þetta mögulegt og jafn- framt tryggja friðhelgi hverrar íbúðar er lang- hlið hússins byggð í stöllum. Stöllunin skapar líflegt samspil teningslaga forma sem er veiga- mikill þáttur í byggingarlist hússins. Það, ásamt fínleikanum sem einkennir allar útfærslur í hönnun, skipar Bellavista í hóp með merkustu íbúðarbyggingum frá frumárum módernismans í Evrópu. Lítil bensínstöð við Strandvejen milli Kaup- mannahafnar og Gentofte sem Arne teiknaði ár- ið 1937 er óvenjuleg vegna léttbyggðs skyggnis úr járnbentri steinsteypu sem borið er uppi af ARKITEKTINN ARNE JACO Bensínstöð við Strandvejen (1937). Fjölbýlishúsið Bellavi E F T I R P É T U R H . Á R M A N N S S O N Húsgögn Arne Jacobsen hafa borið hróður hans víða um heim en í heimalandi sínu er hann kunnastur fyrir fjölmargar byggingar, sem sumar voru umdeildar á sínum tíma. Hér er fjallað um byggingar hans en rætur hans sem arkitekts lágu í þeim stranga, nýklassíska stíl sem kom fram á árum fyrri heimsstyrjaldar. Hérlendis má greina bein og óbein áhrif frá byggingarlist Arne Jacobsen í verkum margra þeirra arkitekta sjötta og sjöunda áratugarins sem kusu að vinna í anda hins alþjóðlega módernisma eftirstríðsáranna. Einbýlishús framtíðarinnar (1928–29).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.