Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Pressan

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Pressan

						Fimmtudagur 1. desember 1988

lítilræði

Af þumalputta

Eg hafði þá þumalputtareglu að kaupa áfengi fyrir það sem

ég fékk I laun sem handhafi forsetavalds hverju sinni.

(Fyrrverandi forseti hæstaréttar)

í Lúkasarguóspjalli er það kallaö að

ávaxta sitt pund að fjárfesta skynsamlega

og slík umsvif talin til mannkosta.

Þessvegna má ganga út frá því sem vísu

að allir opinberir starfsmenn sem birgja sig

upp af brennivíni kaupa það fyrirslikk eðafá

það gratís í krafti síns embættis, fari fyrir

vikið ekki til helvítis, heldur beint til himna-

ríkis.

Guði sé lof.

Og þar verður ekki grátur og gnístran

tanna einsog í neðra, heldur mun gleðin

ríkja ofar hverri kröfu, gleði hinna útvöldu,

gleði hinna réttlátu, gleði þeirra sem breytt

hafa einsog samviskan bauð þeim hverju

sinni og með þumalputtaregluna að leiðar-

Ijósi.

Ég hef alltaf haft tröllatrú á þumalputta-

reglunni, enda er ég orðinn auðugur maður

og guði þóknanlegur. Og það skyldu menn

hafa hugfast, að þó dómskerfið sé uppeftir

öllu að bögglast með stjórnarskrá, landslög

og reglugerðirþámá, ef aðlíkum lætur, gera

ráð fyrir því að þegar menn koma fyrir „hinn

æðsta dóm" verði það þumalputti dómar-

ans sem skiptir sköpum.

Og þó tuttugu séu á hverri mannskepnu

tær og fingur, einsog segir í kviðlingnum,

þáeru nú hæstaréttardómararbarafimm —

jafnmargir fingrum annarrar handar —.

Og þarsem þumalfingurinnerallrafingra

verðmætastur er vel við hæfi að forseti

hæstaréttar sé handhafi hans og forseta-

valdsins í leiðinni.

Og má ég nú koma þeirri frómu ósk á

framfæri við æðstu fulltrúa réttlætisins í

landinu að næst þegar ég svík, stel eða af-

lífa einhvern, og verð látinn svara til saka

fyrir hinum æðsta dómstóli, að þá verði ég

dæmdur eftir þumalputtareglunni, þegar

vel liggur á mildum dómurum af því Vigdís

er að heiman.

Ég held að velmeinandi fólk botni hvorki

upp né niður í öllu því moldviðri sem þyrlað

hefurverið upp útaf brennivínskaupum for-

seta hæstaréttar.

Ég meina það.

Ég held meira að segja að þeir séu til,

sem álíta að fræðilegur möguleiki sé á því

að vera handhafi forsetavalds brennivíns-

laus.

Er það ekki ótrúlegt hvað fólk getur verið

skyni skroppið?

, Sem betur fer hefur íslenska þjóðin að

undanförnu — fyrir atbeina fjölmiðla —

verið leidd í allan sannleikann um það hvert

er verksvið .handhafa forsetavaldsins.

Eða, einsog sagði í einu dagblaðanna á

dögunum:

Ekkert annað en að fara með Vigdísi útá

völl, bíða svo eftir að hún komi aftur og

sækja hana þá útá völl.

Það gefuraugaleið að þessum umsvifum

sinnir enginn brennivínslaus og svo notuð

sé „þumalputtaregla" hæstaréttardómar-

ans má Ijóst vera að ekki er hægt að komast

af meðminnaen 180flöskuraf sterku íhvert

skipti sem forseti landsins hleypir heim-

draganum.

Einhvern tímann í sumar gerðist það að

handhafar forsetavalds gleymdu að sækja

forseta vorn útá völl þegar hún var að koma

frá utlöndum.

Ég veit um engan mann sem lætur sér

detta í hug að þessi gleymska hafi stafað af

öðru en því að þeir ha.fi gleymt að birgja sig

upp af brennivíni daginn sem forsetinn

hvarf af landi brott.

Brennivínslaus handhafi er nefnilega

einsog þumalfingurlaus píanisti.

Ef einhver hefur unnið til saka í þessu

máli,.þá er það tvímælalaust innanbúðar-

maðurinn í Ríkinu.

Það var hann sem lét þessi örlagaríku orð

falla:

—   Var það nokkuð fleira?

Hvernig átti háyfirdómari íslensku rétt-

vísinnar og handhafi forsetavalds að skilja

orð innanbúðarmannsins:

—  Var það nokkuð fleira?

Réttur aðili hafði látið sérfræðilegt álit í

Ijós.

Áannaðhundraðkassaraf brennivíni fyrir

slikk, versgú.

Hér þurfti hvorki stjórnarskrá, lög, reglu-

gerðir nédómgreind. Ekki einusinni þumal-

puttaregluna.

Búðarmaðurinn hafði lagt blessun sínaá

kaupin og boðið meira.

Svokaupandinn svaraði,soberasajudge

og grandalaus:

—   Nei, það var ekki fleira — og skilaði

afgangnum.

Þess vegna er það búðariokan sem ber

sökina ef einhver er.

Og svona í forbífarten má geta þess að

lengi hefur þjóðin saknað þess sárlega að

hafa ekki framsóknarmann í Hæstarétti.

möguleiki á Stór-Reykjavíkursvœðinu

f »t>.   I. deseraber

m

^.iæ~*mc




^s^S^iiáijLúJgfeiaaSá

HLJOÐBYLGJAN FM 95,7

í loftid í dag

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32