8 Fimmtudagur 29. desember 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjóri Fréttastjóri Auglýsingastjóri Blað hf. Hákon Hákonanson Jónína Leósdóttir Ómar Friðriksson Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Armúla 38, slmi: 6818 66. Auglýsingasími: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sími 6818 66. Setning og umbrot: Filmur og prent. Prentun: Blaðaprent hf. Áskriftargjald: 400 kr. á mánuöi. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu- blaðiö: 800 kr. á mánuði. Verð (lausasölu: 100 kr. eintakið. Lotterí og spádómar Lífið er svo sannarlega lotterí. Það finnur maður sjaldan betur en einmitt um áramót. Á slaginu tólf, þegar allir faðmast og kyssást. Þá metur maður árið, sem var að líða. Veltir því kannski fyrir sér andartak hvort það sé eftirsjá að þessu ári, sem aldrei kemur til baka, eða hvort þakka beri Guði fyrir að það sé liðið. Var þetta skemmtilegur tími og yfirfullur af gleði- gjöfum? Eða voru það áhyggjur og sorgir, sem ein- kenndu síðustu tólf mánuði? Á sama hátt og maður metur á áramótum þá tólf mánuði, sem á undan eru gengnir, leiða flestir eflaust hugann einnig að nýja árinu og því óskrifaða blaði, sem það óneitanlega er. Verður nýja árið betra eða verra en það gamla? Geymir það óvæntar sorgir eða mikla gleði? Taka allir ástvinirnir okkar líka þátt í fagnaðinum með okkur næsta gamlárskvöld, eða mun þá vanta einhvern í hópinn? Verður það kannski sætið mitt, sem verður autt um næstu áramót? Slíkar spurningar skjóta upp kollinum, hver af annarri, en færra er um svör, þó okkur þyrsti í þau. . Auðvitað hlýtur þorsti fólks eftir fregnum af fram- tíðinni að vera æði mismikill. Að einhverju leyti blundar hann þó örugglega í okkur öllum. Flestir stelast t.d. einhvern tímann til að kíkja í stjörnuspádóma í blöðum eða bókum, þegar lítið ber á, þó svo þeir fussi yfirleitt og sveii og kalli allt slíkt kjaftæði". Öðrum nægir ekki að forvitnast um framtíðina hér á jörðinni, heldur neyta m.a.s. hvers tækifæris til að rannsaka næsta (eða næstu) tilverustig. Sú hefð hefur skapast, bæði hér á landi og víða er- lendis, að ýmsir fjölmiðlar birta um áramót spá fyrir komandi ár. Er þá leitað til fólks4 sem veit lengra en nef þess nær, og það fengið til að tjá sig um þjóðþekktar persónur og annað, sem forvitnilegt þykir. Oftast er okkur þó ekki sagt hvaða spákona eða spámaður þetta er og stundum hefur maður jafnvel rökstuddan grun um að spáin" verði til á ritstjórnum fjölmiðlanna sjálfra. í desemberbyrjun leitaði PRESSAN til Amy Engil- berts og kannaði hvort hún hefði um áramótin tök á því að segja lesendum blaðsins eitthvað um framtíðina með hjálp stjörnuspekinnar. Við vildum, að fólk vissi hver stæði á bakvið spána og gæti treyst því að hún væri samviskusamlega unnin. Ekki bara einhver dularfull upptalning ónafngreindrar völvu" úti í bæ. Amy tók málaleitan okkar vel og í þessu tölublaði má líta árang- urinn. Þarna fSá sjá ýmislegt, sem kannski kemur ekki svo mjög á óvart, en þar er líka margt að finna, sem engan hefði órað fyrir og sumir eiga eflaust erfitt með að trúa. Á maður t.d. virkilega að þora að vona verð- mætir málmar og olía finnist hér á landi eða við strendur íslands innan fárra ára? Þessu heldur Amy m.a. fram í spánni og þegar þar að kemur skaltu muna að þú fréttir það fyrst í PRESSUNNI! Nýársgleði í ríkisstjórninni Steingrímur: Þarna sérðu Óli! Það borgar sig fyrir okkur strákana að fara að ráðum Bryndísar. Ekkert jafnast á við fyllerí með Jóni Baldvini. . . hin presscm Umgjörðin vill snúast upp i töluvert kapphlaup um veraldar- gæði og iburð." Pétur Sigurgeirsson biskup um jólahátiðina i Timaviðtali. Við héldum að það væri búið að lóga öllum dýrum sem voru i safninu og vorum ánægð með það." Jórunn Sörensen, formaöur Sam- bands dýraverndunarfélaga, í samtali við Tímann um tannlausar kengúrur f gjaldþrota Sædýrasafni. Það vekur athygli þegar hlýtt er á þessa plötu að i laginu Litlir, sætir strákar, sem Megas flytur, syngur hann um kosti þess að gamna sér við litla sæta stráka." Úr einstæðri Tímafrétt á Þorláks- messu. Textinn fylgdi. Atburðir jólaföstunnar eru sönnunargagn þess, að enn gildir hið gamalkunna, að stjórnmál snúast ekki um málefni, heldur um menn, völd þeirra og pen- inga." Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, í leiðara. íbú-ir á veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur notuðu tæp tvö þús- und tonn af hitaveituvatni i jóla- baðið á timabilinu frá klukkan þrjú til sex siðdegis á aðfangadag." Morgunblaðsfrétt. Eitt hið fyrsta sem vekur athygli fólks er kemur hingaö frá útlöndum er hve fréttir fjölmiðla snúast i rikurn mæli um peninga og fjármál." Víkverji Morgunblaðsins. Sérkenni- legir ferðalangar sem sá góði maöur hittirfyrir. Bubbi má alveg segja það sem honum sýnist og hann hcfur nú sagt margt um ævina, en ef hann ætlar að f ara að klykkja út með því að segja að Bláir draumar séu ekki spilaðir hérna sýnir það bara að maðurinn er orðinn endanlega ruglaður og það máttu hafa eftir mér." EirlkurJónsson.fréttastjóriStjörn- unnar, i Þjóöviljanum um hvort plata BubbaogMegasarværiábannlistahjá stöðinni. Á þessari stundu get ég ekki svarao spurningu þinni um hvort ég er á leið ur Borgara- flokknum." Ingi Björn Albertsson, þingmaður Borgaraflokksins, I DV eftir aó huldu- menn úr flokknum höfðu bjargað llfi rlkisstjórnarinnar. Þetta verður sumsé klúður. Afar vel gert og mjög vandað klúður." Mörður ritstjóri Þjóðviljans Árna- son í dómi um Djákna Egils Eðvarðs- sonar. Eg man að við afi vorum ekki hrifnir þegar við heyrðum í Guð- mundi jaka. Einhvern veginn fékk ég það á tilfinninguna að hann væri einn af höfuðandstæðingum Framsöknarflokksins." Jóhann Pétur Sveinsson hdl., for- maður Sjálfsbjargar, í helgarviðtali Dags. Þeir hjá ESSO lemja alltaf höfðinu við steininn. Það er ansi hart að félagsleg hreyfing sem kennir sig við samvinnu skuli ekki fyrir löngu vera búin að taka i lurg- inn á sjálfi sér..." Jónas Hallgrímsson, forseti bæjar- stjórnar Seyðisfjaröar, um oliufélag samvinnumanna i Alþýðublaðinu vegna svartolíuvandræóa á Austur- landi.