Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Pressan

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Pressan

						Iramótaskaupið í ár er sagt

harla mislukkað frá upphafi til

enda. Samkvæmt heimildum okkar

var yfirstjórn dagskrármála sjón-

varpsins nauðbeygð til að skera

stórlega niður atriði í skaupinu,

sem þóttu annaðhvort óhæf til sýn-

ingar eða ónothæf. Þegar niður-

skurði var lokið, skömmu fyrir jól-

in, var sýnt að það vantaði um tíu

mínútur af efni til að skaupið næði

þeirri lengd sem auglýst er í dag-

skrá. Varð víst að grípa til björgun-

araðgerða á síðustu stundu og taka

upp ný atriði til að fylla í skarðið,

svo áhorfendur fái þó alltént sama

magn af skaupi og áður, þó svo

gæðin verði víst öllu minni...

d

lægurtónlistarmenn komu

misvel brosandi út úr jólaflóðinu.

Salan tók óvenju seint við sér af ein-

hverjum ástæðum og sumar plötur

náðu vart að hreyfast úr hillum

verslana. Að sögn þeirra sem til

þekkja fór Jóhann G, Jóhannssun

einna verst út úr jólavertíðinni að

þessu sinni. Til plötu hans var vand-

að í hvívetna og eytt í hana löngum

tima. Eigi að síður virtist hún ekki

ná eyrum plötukaupenda. Af öðr-

um plötum sem illa seldust má

nefna þá er Kamarorghestar sendu

frá sér. Magnús Ólaf sson slapp hins

vegar fyrir horn með því að selja

drjúgum af sinni skífu sjálfur í

Kringlunni auk þess sem eitthvað

fór af henni í verslunum ...

MLai:

aupmenn i gamla mið-

bænum eru ekki óhressir með jóla-

uppskeruna, þótt vitað sé að versl-

un flyst meir og meir í Kringluna og

aðra stórmarkaði. Hitt er annað

mál að margir kaupmenn og aðrir i

Miðbæjarsamtökunum eru afar

óánægðir með hvað borgarstjórn

hefur lítið viljað gera til að hleypa

meiri lífi í gamla miðbæinn en allt

viljað gera fyrir aðra borgarhluta.

Miðbæjarsamtökin héldu aðalfund

fyrir mánuði og heyrum við að einn

fundarmanna hafi gengið svo Iangt

að krefjast þess að samtökin efndu

til sérstaks framboðs til borgar-

stjórnar 1990 ef ekki yrði komið til

móts við kröfur samtakanna, en eitt

af því sem samtökin vilja er að

„rúnturinn" gamli verði endurnýj-

aður þannig að Austurstræti verði

opnað fyrir einstefnuumferð líkt og

Laugavegurinn í dag. Samtökin

vilja aukna íbúðarbyggð á svæðinu

og almennt færa líf í miðbæinn,

sem sumir vilja meina að sé hrein-

lega að deyja. Einn viðmælenda

okkar sagði að ef ekkert gerðist í

málinu gæti hæglega komið til

framboðs. Ómögulegt er að full-

yrða nokkuð um hverjir tækju sæti

á slíkum Iista, en á hinn bóginn má

án ábyrgðar nefna nokkur þekkt

nöfn í aðalstjórn samtakanna:

Guðlaugur Bergmann í Karnabæ,

Gunnar Hauksson í Rammagerð-

inni, Guðmundur Blöndal í PÓ,

Jón Hjaltason veitingamaður, Þór-

ir Óskarsson Ijósmyndari og Ásgeir

Hannes Eiríksson, pylsusali með

meiru...

J^ að eru ekki allir jafnvissir

um að rífandi velgengni sé ríkjandi

í Kringlunni, þótt umferð manna sé

þar mikil. Fullyrt er að sumum

gangi vel en öðrum illa og að 7 fyrir-

tæki hafi skipt um eigendur. Það

sem helst er hins vegar tínt til um að

ekki sé allt sem sýnist er sú stað-

reynd að Þorvaldur Guðmundsson

í Síld og fisk hefur dregið sig út úr

Kringlunni, en sem kunnugt er

hefur ostaverslun tekið við af AIi.

Rökstuðningur:  Þorvaldur leggur

aðeins út í verslun sem skilar hagn-

aði...

H upptalningu Pressunnar á sölu-

hæstu hljómplötunum fyrir jól

gleymdist ein sú söluhæsta, Jóla-

ballið, sem þeir Birgir Gunnlaugs-

son og Guðmundur Haukur stóðu

að ásamt fleirum. Sú plata kom út

snemma í desember hjá auglýsinga-

stofunni Góðum punktum og seld-

ist í um 5.400 eintökum, þrátt fyrir

að  „stóru"  útgefendurnir  kæmu

ekki nálægt dreifingu hennar ...

f

járhagsstaða Handknattleiks-

sambands íslands er mjög slæm

eftir árið. Fjáröflunarleiðir hafa

brugðist, en þær miðuðust allar við

að ólympíulandsliðið næði einu af

6 efstu sætunum á Ólympíuleikun-

um. Kurr hefur verið í landsliðs-

mönnum undanfarið og þeir jafn-

vel sagðir hafa hótað stjórn HSÍ

„verkfalli" ef þeir fengju ekki um-

samdar bónusgreiðslur frá sl.

sumri. HSÍ greiddi landsliðs-

mönnunum aðeins helming vinnu-

taps vegna æfinga í sumar um

miðjan október en staðið hefur á

lokagreiðslu. Þá voru handbolta-

strákarnir óánægðir með álagið

vegna landsleikjanna nú í desember

og vildu a.m.k. fá gott frí yfir jólin.

Þessi mál voru þó leyst á fundi með

stjórn HSÍ í fyrrakvöld, þar sem

HSÍ lofaði lokagreiðslu í janúar...

HUGSAÐU UM MESIU

VINNINGSUKURNAR

- og gerðu þínar raðstafanir

Happdrætti SÍBS er eina happdrættíö sem býöur möguleikana einn á móli þremur áríö 1989.

Útdregnir vinningar eru 25000 og útgefnir miðar 75000. Þetta eru langmestu vinningslíkur hér á landi,

Engirvinningareru undir6500 krónum og hæsti vinningurinn, sérstakurafmælisvinningur

í tilefni 40 ára afmælis happdrættisins er hvorki meira né minna en 10 milljónir- langhæsti,

vinningur á einfaldan miða hérlendis. Þessi risavinningur er aðeins dreginn

úr seldum miðum, þannig að það verður örugglega einhver heppinn 5. október.

Möguleikinn er þinn, ef þú átt miða, hann kostar 400 kr. og fæst hjá umboðsmönnum

um allt land. Upplýsingar um næsta umboðsmann í síma (91) 22150.                   ^BT)

Vertu með þar sem möguleikamir eru mestir.    m

_i

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28