Pressan - 17.05.1990, Blaðsíða 13

Pressan - 17.05.1990, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 17. maí 1990 13 Kvartanir streyma tilráðherra Ráöherraskipuöum forstödumanni borid á brýn aö gefa út ólögleg prófskírteini, aö hygla syni sínum, að ,,stela“ nemendum og fleira. Guöjón Andrésson neitar ásökununum harölega. Guöjón Andrésson tók við embættinu um áramót og komst fljótlega í fréttir vegna brottrekstrar þriggja kennara af sex, þeirra Olafs Guð- mundssonar, Eyjólfs Guð- mundssonar og Guðjóns Ein- arssonar. Þetta gerði Guðjón með skírskotun tilþess að um nýtt embætti væriað ræða og engir ráðningarsamningar fyrir hendi og réð hann aðra til starfans. I kjölfarið hætti vegna óánægju Baldvin Ottósson ognúí vikunni kom upp árekstur sem leiddi til þess að Karl Valdimarsson ákvað að hætta kennslunni eftir 26 ár. Síðustu daga hafa síðan kvartanir og kærur streymt til ráðuneytisins. Meðal ann- ars hafa prófnefndarmenn- irnir Guðni Karlsson og Bjarni Kristjánsson kært út- gáfu Guðjóns (sem er þriðji nefndarmaðurinn) á prófskír- teinum, án þess að þeir hafi komið þar nálægt eins og vera ber. Skírteini Guðjóns eru númerslaus, handskrifuð og á Ijósrituðum eyðublöð- um. Þá hafa ökukennararnir Gylfi Sigurðsson og Gylfi Guðjónsson kært til ráðu- neytisins ,,þjófnað" á nem- endum, en Guðjón er sagður hafa tekið nemendur í endur- tökuprófi frá Gylfa Sigurðs- syni og jafnvel fleirum og flutt þá og þar með tekjurnar yfir til sonar síns, Hilmars Guðjónssonar. Þeir áttu fund með ráðherra í gær um málið og sagði Gylfi að ráðherra hefði af málinu áhyggjur og væri sammála því að Guðjón ætti ekki að viðhafa slík af- skipti. Skráningu kennslu- bifreiðar breytt til hagræðis? Karl Valdimarsson ber einnig að kennsla sem hann hefur haft meö höndum í Keflavík hafi verið tekin af honum og færð undir Hilmar, son Guðjóns. Hilmar notaöi að sögn heimildamanna PRESSUNN- AR við þessa kennslu leigða vörubifreið og hefur sú notk- un verið kærð til lögreglunn- ar, á þeirri forsendu aö um ólöglegan bíl sé að ræða. Til slíkrar kennslu þarf bíl með sextán tonna heildarþunga sem ber meira en fimm tonna hlass. Kærendur halda því fram að bifreið þessi hafi réttilega verið skráð með fjórtán tonna heildarþunga og beri aðeins 4,7 tonn og sé því í raun minnaprófsbifreiö og því ólögleg. Hins vegar hafi skráningu bílsins nýlega verið breytt hjá Bifreiöaskoö- un íslands í Keflavík til aö bæta úr þessu — aö frum- kvæði Guðjóns og Hilmars. Lögreglan er komin í þaö mál, sem og mælaeftirlit, því vegna breytingarinnar á eig- andinn að greiða hærra mælagjald. Kærendur benda auk þess á, aö vegna þessarar breytingar sé eigandi bílsins réttindalaus, þ.e. án meira- prófs. Petta hafi Guöjón mátt vita þar sem eigandinn er einmitt þessar stundirnar aö ljúka námskeiði hjá embætt- inu. Þá er bent á að í Keflavik hafi námskeið verið stytt úr sex vikum í fjórar, en gjaldiö hafi samt hækkað um 2.000 krónur. Auk þess hafi kennsluefni veriö minnkað og mikilvægir kaflar felldir niður, svo sem um loft- bremsukerfið og um tenging- ar fyrir vagna. Þykir kærend- um vafasamt i meira lagi að gefa út réttindi eftir svo tak- markaða kennslu. Forstöðumaðurinn segir ásakanirnar tilhæfulausar í samtáli við PRESSUNA neitar Guðjón Andrésson for- stöðumaður/þessum ásökun- um harðlega og telur aö við- komandi einstaklingar ættu að líta sér nær. ,,Ég kom í þetta starf með því hugarfari að lagfæra ým- islegt í kennsiunni og skipu- laginu og ég vissi hvar skór- inn kreppti. Margt hefur nú lagast verulega, ég nefni t.d. að fyrir hendi var 25 daga bið eftir skriflegu prófi, en nú er biðtíminn enginn. Þessar ásakanir sem þú nefnir eru allar með ólíkindum." Guöjón segir að umrædd prófskírteini hafi farið í gegn- um prófnefndarmennina og að ekkert sé fyrir hendi sem bannað geti útgáfu þeirra — þau séu lögleg, á löglegum pappírum og þurfi engin númer. Guðjón segir kvartan- ir Gylfa Sigurðssonar til ráð- herra tilhæfulausar, því vegria þess hvernig Gylfi gekk frá sínum reikningum hafi ekki verið unnt að sjá að viðkomandi hafi veriö nem- endur hans frekar en ein- hverra annarra. Guðjón segir að engin kennsla hafi verið tekin frá Karli í Keflavik, því vegna anna hjá Karli hafi þurft að leysa málin til bráða- birgða og Karl sjálfur bent á Hilmar. Þá segir Guðjón ekki rétt að umrædd vörubifreið hafi ver- ið endurskráð að tilefnis- lausu. Þegar hann fékk bif- reiðina leigða hafi hann kraf- ist skoðunar á henni og þá hafi komið í Ijós að hún var í raun stærri en skráningin- sagði til um og að það hafi þá verið leiðrétt. Þetta hafi eig- andinn ekki getaö vitað. Loks segir Guðjón það rangt að námskeiö í Keflavík hafi ver- ið stytt í raun, því sama kennslumagn var yrir hendi, og að gjaldið hafi ekki hækk- aö. Hins vegar hefur kennslu- gögnum verið breytt til að færa kennsluna til nútíma- legri vegar. Þannig standa orð gegn oröum í deilum sem enn sér ekki fyrir endann á. Þær hóf- ust í raun meö því að Oli Þ. Guöbjartsson réð Guðjón flokksbróður sinn í embættið og Guðjón tók upp á því aö skipta út kennurum. Nú eru deiluaöilar nær daglegir gest- ir hjá ráðherra, þar sem ásak- anir og kærur ganga á víxl. UTANGARÐSMENN Á GÖTUNNI í REYKJAVÍK RGI HÖFDI AÐ HALLA Gestirnir í Þingholtsstræti 25 eru ekki kröfuharöir menn. Þeir sem við hittum sváfu á mjóum svefnbekkjum í sex manna herbergi. Klukk- an tíu á morgnana þurfa þeir að fara út og þá er húsinu lok- að þangað til um kvöldiö. Þetta er samt betra en að sofa undir bátunum, í hitaveitu- stokkum eða einhvers staðar í undirgöngum eða húsa- sundum. ,,Þaö er verst á veturna að geta ekki veriö hérna á dag- inn eins og áöur," segir einn þeirra. „Þegar við verðum að vera á götunni lendum við frekar aftur í ruglinu." Dag- vist fyrir mennina var lögð niður í vetur. Við spuröum hann ekki aö nafni, ,,ég vil ekki koma í blöðin", segir hann. Mennirnirsem við hitt- um eru ekkert að berjast fyrir málstað sínum. Þeir taka hlutskipti sínu og eru auð- mjúkir. Þeir hrósa samskipt- um sínum við vaktmennina sem vinna í gistiskýlinu og segja að góður andi ríki í gamla húsinu. Einn gestanna, Jón Helgi Bjarnason, er þó hress meö að sýna okkur húsnæðið og vera sjálfur með á myndum. Hann gistir sex manna her- bergið og er bæði atvinnu- laus og húsnæðislaus í bili. Jón er allt annað en ánægður með aðstöðuna og trúir ekki á breytingar nema ef um mikla hugarfarsbreytingu yrði aö ræða hjá borgaryfir- völdum. Hann er þess végna orðinn hálfgildings frambjóð- andi síns hóps í kosningabar- áttunni hjá Nýjum vettvangi. Þeir sem gefa sig í kosninga- slaginn hafa þá einhverja von um betri kjör. En hvað sem öllum kosn- ingum líður þá er sjón sögu ríkari í Þingholtsstræti 25. í þröngum stiganum á leiðinni upp í svefnálmuna slær fyrir Hérna hefur ókunnugur ut- angarösmaður hreiöraö um sig í gömlum báti úti í Örfiris- ey. Þó aö vistarveran minni helst á sorptunnu er hér nokk- urn veginn skjól fyrir veðri og vindum. Baðaðstaöan er kannski það versta. En þaö stendur til að gera nýjar sturtur í sumar og það er veriö að gera alla efri hæöina upp," segir Júlíus Snorrason, afgreiðslufulltrúi áfengisdeildar Félagsmála- stofnunar. Efri hæöin, sem áður var dagvist, veröur nú móttaka og skriístofuhús- næöi fyrir áfengisfulltrúa. Júlíus og Gunnar Guðmunds- son vaktmaður vita ekki til þess aö áform séu uppi um að koma aftur á dagvist fyrir úti- gangsmennina. Þeir eru sam- mála um að á veturna sé þörf fyrir hana en að hún hafi lítiö veriö notuð á sumrin. „Ætli þaö séu ekki um hundraö ein- staklingar sem leita til okkar yfir árið. Sumir koma oft, aðr- ir eru lengi í einu. Þeir kom- ast ekki inn ef þeir eru fullir, hinir sem eru hér fyrir vilja vit manni sterkri lykt, blöndu af fúkka, rakspíra, reyking- um, þvagi og sjálfsagt ýmsu fleiru. Blettótt teppin í lítilli setustofu líta ekki út fyrir aö hafa nokkurn tímann verið hrein. Sama er að segja um gamalt veggfóður sem sum- staðar hefur losnað upp. Ein sturta þjónar fimmtán manns. Gamlir fatalarfar sem einhverjir gestanna hafa skil- ið eftir hanga á snögum hér og þar. Að utan er húsið eitt af fallegri húsum í bænum. En innviðirnir eru rotnir. „Húsið er auðvitað gamalt. Sex manna herbergiö i gistiskýlinu. Fatadruslur sem fyrri gestir hafa skilið eftir sig hanga á veggj- unum. þaö heldur ekki. Þaö yröu bara vandræöi og vitleysa úr því fyrir þá sem eru að reyna að halda sér þurrum," segir Júlíus. Það er gott aö koma aftur út í sólina eftir heimsóknina í gistiskýlið. Það finnst fleirum en okkur, því gestirnir eru líka farnir út. Við sjáum suma þeirra aftur niðri i miðbæ. Þeir skera sig flestir úr íjöld- anum, illa útlítandi, vanhirtir og þreytulegir af drykkju og harðræði. Meðan þeir eru þurrir fá þeir sér oft kaffisopa í bönkunum eða sitja í reiði- leysi uppi á Hlemmi, en oft verður freistingin öðru yfir- sterkari ogsíðustu krónurnar notaðar í pela eða flösku. Stundum veröur rauðsprittiö aö duga, eða jafnvel kardi- mommudropar. Lögreglu- stöðin getur þá orðið næsti gististaður fyrir þá sem eru , nógu fullir. Hinir gista hér og þar í gömlum bátum, stýris- húsum og allskyns skúma- skotum. Gamlir svefnpokar og bældar yfirhafnir, dagblöð og matarleifar eru verksum- merkin þar sem utangarðs- mennirnir hafa hreiðrað um sig. í einu slíku hreiðri úti i Örfirisey finnum við snyrti- legan plastpoka fullan af franskbrauði, — gamlir, þvældir nestispakkar og dag- blöð liggja á botninum í bátn- um. Eftir aö Jón Helgi Bjarna- son hefur sýnt okkur nokkra staði þar sem utangarðs- menn Reykjavíkur halda til þegar þeim er alls staðar út- hýst ætlar hann niður í bæ. „Setjið þið naig út við kosn- ingaskrifstofuna," segir hann. Hvort hinir liafa trú á því að pólitíkin leysi vandann er ekki gott að segja. Þeir halda áfram á sínu róli og enginn getur sagt að þeir ætl- ist til mikils, hvorki af um- hverfinu né sjálfum sér.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.