FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTÓBER Hamingja í stað hremminga Þorsteinn Högni Gunn- arsson er ekki af baki dott- inn þrátt fyrir fjárhagsleg- an skell upp á hálfa milljón vegna Pakkhúss postul- anna síðastliðið sumar. Sem kunnugt er varð þetta framtak fyrir ótrú- legum hremmingum. Einn bresku tónlistar- mannanna er landann sóttu heim á vegum Pakk- hússins líkti aðgerðum ís- lensku lögreglunnar við Stasi-aðferðir. Ég hef haft hægt um mig að undanförnu vegna þessa fjárhagslega áfalls, en ég hafði gefið út ábyrgðir fyrir ýmsum kostnaðarliðum. Eigendur skemmtistaðarins Tunglsins áttu að vísu að greiða þessi útgjöld en FRÁ PAKKHÚSI POSTULANNA. ÞORSTEfNN HÖGNI I HRINGNUM. svikust um það," segir Þorsteinn Högni. Þorsteinn starfar nú sem blaðamaður hjá tímaritinu Mannlífi, en í desember ætlar hann að aðstoða 26. maí-hópinn við útgáfuhátíð í tilefni út- gáfu tímaritsins Ham- ingju... UTBRIGDI LEIKKONU Steinunn Þorsteinsdóttir Steinunn Þorsteinsdóttir hefur nóg að gera. Hún er ný- útskrifuð frá Drama Center í London og er sjálfsagt yngsta leikkonan okkar með fullt nám að baki, því hún er ein- ungis tuttugu og eins árs. Hún leikur Sigrúnu Maríu í sjón- varpskvikmyndinni Litbrigð- um jarðar, sem Ágúst Guð- Maðurinn er aðdáanlega samkvæmur sjálfum sér, hann boðar orðið hreint og ómengað og þannig er hans líf. Það er lærdóms- ríkt að vera nálægt þessum einstaka manni, hann er nákvæmur, hreinn og sann- ur, þjónn sem gæti kennt okkur öllum heilmikið," segir Kristín Friðbjarn- ardóttir, fv. formaður sóknarnefndar Seltjarn- arneskirkju. Hann er óhræddur við að standa fast á því sem Biblían boð- ar, meðal annars með því að tala um djöfulinn, sem sumir vilja helst ekki heyra minnst á," segir Ásmundur Magnússon, læknir og forstöðumaður samtakanna Orðs lífsins Hann er auðsjáanlega mjög trúaður og það er af hinu góða, því það skortir mjög á trú í kirkjunni hún er of eftirgefanleg við þjóðfélagið," segir safn- aðarmeðlimur. Ég ber og mun alltaf bera virðingu fyrir mönnum sem þora að halda sannfæringu sinni fram og þora að standa við hana. Margir prestar hafa ekki þennan kjark til að bera," segir Sigurður Haukur Guojónsson prestur. DEBET KREDIT Guðmundur Örn Ragnarsson prestur Hann hefur sem sóknarprestur ekki leyfí til að boða þessa helvítístrú og segja að allir séu vondir sem sækja ekki kirkju," segir safnaðarmeðlimur. Hann sækir sitt í al- þjóðleg samtök bók- stafstrúarmanna, sem vinna ekki á grunni þjóð- kirkjunnar, samtök sem hafa valdið mðrgum tals- verðum vanda með áherslu á að aðeins trúin stuðli að lífshamingju," segir prestur. Ég get eng- an galla nefnt, en sumir vilja kannski ekki fylgja boðskap hans af því þeir teldu sig ekki sigla eins hratt upp í líf- inu fyrir vikið," segir Kristín Friðbjarnar- dóttir. Það er hætt við þvi að liann stuði eitthvað af fólki frá sér," segir Ás- mundur Magnússon. Eg hef ekki hlust- að á Guðmund sjálfan, en almennt f innst mér forkastanlegt að dæma fólk, sem er að leita, óhreint við það eitt að það leitar út fyrir þjóðkirkjuna. Það eru þá frekar prestarnir sjálfir sem ekki hafa staðið sig í stykkinu. Fólk sem leitar er Ufandi og það er hægt að komast í hús bakdyramegin jafnt sem um aðaldyrnar," segir séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Guömundur Örn Ragnarsson er prestur í af leysingum í Seltjarnarnessókn. Um hann hafa skapast deilur vegna harðrar afstööu hans í trúmálum. mundsson er að gera eftir bók Ólafs Jóhanns Sigurðs- sonar. Hún er byrjuð að æfa hlutverk Sólveigar í upp- færslu Þjóðleikhússins á Pétri Gaut og hún leikur í barna- leikriti þeirra systra Iðunnar og Kristínar Steinsdætra, Kela þó. Kannski finnst sumum þetta nóg en ekki Steinunni. Seinna í vetur mun hún leika Liesl, elstu dóttur Trapps höf- uðsmanns, í Sound of Music, sem heitir víst Söngvaseiður upp á íslensku. En Steinunn er alls ekki nýtt andlit á sviðinu, því hún lék í Landi míns föður, stríðs- árasöngleik Kjartans Ragn- arssonar, áður en hún fór ut- an til náms. Og fyrir mörgum árum lék hún í Ovitum Guð- rúnar Helgadóttur. Ekki lítil afrek fyrir unga konu. Hvenær hefur hún tíma til að vera hún sjálf? kann einhver að spyrja. Loks fær ættfræðideildin eitthvað við sitt hæfi því Steinunn er dóttir Bríetar Héðinsdóttur leikkonu og kemur fræðingunum þá lík- lega ekkert á óvart að stúlkan skuli hafa hæfileika. KYNLÍF Sexý" draumar JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR Sæl og blessuð. Ég er utan af landi og þar sem ég bý yrði bara hlegið að mér ef ég svo mikið sem ímpraði á því sem ég nú vil spyrja að. Ég er fullorðiiin maður, kominn hátt á sextugsaldurinn. MúTið er það að mig dreymir kyn- ferðislega drauma, um hinar og þessar konur sem ég þekki. Er þetta eittbvað óeðlilegt?" Nei, slíkar draumfarir eru ekkert óeðlilegar. Þagnar- múrinn í kringum kynlífsum- ræðu gerir okkur erfitt fyrir á margan hátt. Ein afleiðingin er sú að hver situr í sínu horni og nagar á sér neglurnar yfir ímynduðu óeðli sínu. Það er nú einu sinni þannig að með því að tala saman fær fólk samanburð og getur sam- hæft reynslu sína en þarf ekki að sitja uppi með óþarfa áhyggjur yfir hugsunum sín- um, tilfinningum eða atferli. Umræða um kynlíf er þyrnir í augum margra, sumpart vegna þess að fólk er hrætt við að vankunnátta þess um kynlíf verði ljós. Þegar al- mennt verður litið á kyn- fræðslu sem jafneðlilegan undirbúning fyrir lífið og aðra menntun tekst okkur fyrst að brjóta skarð í þennan berlínarmúr tjáskiptanna. Kynsvörun (kynferðisleg viðbrögð líkama og hugar) í svefni þekkist frá ómunatíð. í trúarritum kristinna manna er til dæmis sagt frá gyðing- um til forna sem voru skikk- aðir til að ganga í gegnum hreinsunarritúal vegna full- nægingar og sáðláts í svefni. Þá var það álitið spilla" manninum. Einu sinni var það líka trú manna að þeir sem lifðu engu samlífi í vöku fengju þá bara útrás í svefni, en engar kannanir hafa stutt það. Ef eitthvað er virðist tíðni ósjálfráðrar fullnæging- ar í svefni aukast hjá konum á sama tíma og fullnæging er sjaldgæfari í vöku. Draumar sem eru á einhvern hátt kynferðislega æsandi snúast oft um eitthvað sem er forboðið eða má ekki svo sem ættingja, hópkyn- líf, flössun" eða kynlíf með besta vini makans ... Það er ekki langt síðan menn héldu að það væri bara karlkynið sem upplifði sexý" drauma. Líklega vegna þess að komur skilja ekki eftir sig eins greinileg merki um kynferðislega útrás í svefni og þeir, og þá ég ég við sáðlát. Það er atgengara að karlmenn fái fullnægingu í svefni en konur þó það sé líka vel þekkt meðal kvenna. Full- næging í svefni en ekki í vöku hjá sömu konunni er einmitt eitt greiningaratriðið sem úti- lokar líkamlega orsök fyrir fullnægingarleysi í vöku. Það bendir til að líkaminn starfi eðlilega og konan ætti að geta fengið fullnægingu jafnt í vöku sem svefni. Draumar sem eru á ein- hvern hátt kynferðislega æs- andi snúast oft um eitthvað sem er forboðið eða má ekki svo sem ættingja, hópkynlíf, flössun (opinbera kynfærin óbeðinn) eða kynlíf með besta vini makans. í þínu til- viki dreymir þig um samlíf með konum sem þú myndir líklega ekki nálgast j vöku með samræði í huga. I svefni eru hömlur ekki eins ráðandi og í vöku og sumir halda því fram að meðvitaðar eða ómeðvitaðar langanir fái útrás á skaðlausan hátt í draumförum. Að í vöku höf- um við meiri stjórn á hugsun- um okkar og atferli en í svefni. Hjá strákum á kynþroska- aldri eru fullnæging og sáðlát í svefni stundum nefnd blautir draumar". Ef strákur- inn hefur ekki reynslu af sjálfsfróun er þetta kannski fyrsta reynsla hans af full- nægingu og sáðláti. í stuttu máli sagt eru kyn- ferðislegir draumar, með eða án kynferðislegrar útrásar, fullkomlega eðliiegt fyribæri hjá báðum kynjum. Kúnstin er bara að njóta þeirra áhyggjulaust og vakna með bros á vör!