Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Pressan

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Pressan

						10

FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTÓBER

RIKISSJÓÐIR OG RÍKISBANKI

Skuldir fyrirtækja

Einars Guðfinnssonar

lækkaðar um 600

milljónir króna. Þar af

um 290 milljónir

vegna útstrikunar

skulda og breytingar

skulda í hlutafé.

290 MILLJONIR

AFSKULDUM

EINARS GUÐFINNSSONAR

ARFTAKARNIR FA AÐ HALDA ÖLL-

UM VÖLDUM ÞRATT FYRIR

KROFU ATVINNUTRYGGINGA-

SJOÐS UM HIÐ GAGNSTÆÐA.

Einar Jónatansson, talsmaður fyrir-

tækja Einars Guöf innssonar, útilok-

ar ekki aö fyrirtækin veröi opnuö

fyrir nýjum hluthöfum „einhvem

tímann í framtíðinni".

Að tilstuðlan opinberra sjóða og banka verður með

einföldum pennastrikum þurrkað yfir hluta afskuld-

um fyrirtœkja Einars Guðfinnssonar og co. íBolungar-

vík. Alls verða skuldirnar lœkkaðar um 600 milíjónir

króna. Þar af vega þyngst skuldir sem losna vegna

sölu togarans Sólrúnar, en einnig kemur til hrein

skuldaniðurfelling af hálfu Byggðasjóðs og eftirgjöf

dráttarvaxta afhálfu Landsbankans ogjafnvel útstrik-

un skulda. Að auki þurfa nokkrir lánardrottnar að

breyta skuldum í hlutafé. Með pennastrikunum og

þessari breytingu í hlutafé er œtlunin að losa fyrirtœk-

ið við skuldir sem nema 290 milljónum. Til viðbótar

þessu þarf atvinnutryggingasjóður að veita lán að

upphœð 200 milljónir króna, en á síðasta ári lánaði

sjóðurinn fyrirtœkjunum 126 milljónir. Ekkert fyrir-

tœki hefur fengið jafnmikið lánað hjá sjóðnum.

í kjölfar aðgerðanna er ætlunin

að sameina fyrirtæki Einars Guð-

finnssonar í Bolungarvík, að versl-

unardeildinni undanskilinni, og

flest bendir til að eiginfjárstaða

verði jákvæð að sögn forsvars-

manna fyrirtækisins, en aðgerð-

irnar voru ákveðnar án þess að

uppgjör lægi fyrir um reksturinn

það sem af er þessu ári og án þess

að stjórnendur fyrirtækisins legðu

fram áætlanir um rekstur næstu

árin.

SALA SÓLRÚNAR LOSAR

340 MILLJÓNIR

Fyrirtæki sem tilheyra Einars

Guðfinnssonar-fjölskyldunni í

Bolungarvík (EG) eru fimm talsins,

auk þess sem fjölskyldan á 47,5%

í útgerðarfyrirtækinu Júpíter hf. á

móti hlut IIrólf8 Gunnarssonar^

útgerðarmanns og skipstjóra. I

kjölfar aðgerða lánardrottna nú er

ætlunin að sameina í eitt fyrirtæki

íshúsfélag Bolungarvíkur hf., sem

rekur frystihús og rækjuvinnslu,

Baldur hf., sem gerir út togarann

Dagrúnu, Völustein hf., sem gerir

út togarann Heiðrúnu, og loðnu-

verksmiðjuna og saltfiskverkun-

ina, sem heyra undir móðurfyrir-

tækið Einar Guðfinnsson hf. Hins

vegar verður stofnað sérstakt fyr-

irtæki um rekstur verslunardeild-

ar Einars Guðfinnssonar, en ekki

er ákveðið hve mikið af skuldum

það fyrirtæki yfirtekur. Forsvars-

menn EG stefna að formlegri sam-

einingu fyrirtækjanna um áramót.

Þá hefur verið gengið frá sam-

komulagi um sölu á frystitogaran-

um Sólrúnu til Frosta hf. í Súðavík

og útgerðarfélagsins Rastar hf.

Samkvæmt heimildum PRESS-

UNNAR er ætlunin að losa skuldir

að upphæð 340 milljónir króna

með þeim hætti. Samkomulag er

um að Frosti leggi 400 tonn af

botnfiski til vinnslunnar í Bolung-

arvík næstu fimm árin.

Hvað varðar Júpíter er gert ráð

fyrir 20 milljóna króna aukningu

hlutafjár, sem verður að líkindum

fjármögnuð með láni frá atvinnu-

tryggingasjóði. Ennfremur er gert

ráð fyrir 14 milljóna króna skulda-

lækkun Júpíters hjá Landsbankan-

um, en nokkuð er á reiki hvort það

verður gert með niðurfellingu

dráttarvaxta eða beinlínis útstrik-

un skulda. í viðræðum milli lánar-

drottna hefur m.a. komið til tals að

Landsbankinn taki á sig allt að 80

milljónum króna af skuldum

EG-fyrirtækjanna hjá bankanum,

en bankinn á líka þann möguleika

að breyta þeim í hlutafé. Fyrir-

greiðsla til íshúsfélags Bolungar-

víkur, Baldurs og Völusteins og

loðnuverksmiðju er talin nema

um 225 milljónum af heildarpakk-

anum. Auk skuldalækkunar hjá

Landsbankanum er reiknað með

hlutafé frá Skeljungi og Trygginga-

miðstöðinni, að upphæð um 35

milljónir samkvæmt heimildum

PRESSUNNAR, en hér yrði líka

um að ræða breytingu á skuldum

í hlutafé. EG-fyrirtækin eru í mikl-

um viðskiptum við bæði þessi fyr-

irtæki, kaupa t.d. olíu af Skeljungi

fyrir allt að 12 milljónum króna á

mánuði.

BYGGINGASTOFNUN

STRIKAR YFIR 52 MILLJÓNIR

Pennastrik Byggðastofnunar

nema 52 milljónum króna. Þar af

eru 23 milljónir hrein niðurfelling

skulda, en 29 milljónum verður

breytt í víkjandi lán, sem engin

vissa er fyrir að greiðist nokkurn

tímann.        Framkvæmdasjóður

strikar 10 milljónir út, samkvæmt

heimildum PRESSUNNAR, og

ákveðið er að eigendur leggi til 30

milljónir. Einar Jónatansson segir

ekki ákveðið hvar lán verði tekið

vegna þessa og segir ekki hafa

komið til umræðu hvort núver-

andi eigendur leggi fram persónu-

leg veð til að fjármagna aukningu

hlutafjár.

Eins og áður sagði nemur,

skuldalækkun samtals 600 millj-

ónum króna. Að auki kemur til

lánveiting atvinnutryggingasjóðs

upp á 200 milljónir og er áætlað

að 140 milljónir fari til EG-fyrir-

tækja en 60 milljónir til Júpíters,

þar af 20 milljónir vegna hlutafjár-

aukningar.

Landsbankinn hefur haft forystu

um aðgerðir til hjálpar fyrirtæk-

inu. Ólíkt því sem oft hefur verið í

samskiptum Landsbankans og at-

vinnutryggingasjóðs var það ekki

bankinn sem gekk harðar fram

um skilyrði. Landsbankinn naut

fulltingis Byggðastofnunar, sem

tók af skarið um útstrikun skulda

og hjó ásamt Landsbankanum á

Byggðastofnun kýs

frekar að gefa eftir 52

milljónir króna af

skuldum fyrirtækj-

anna en breyta þeim í

hlutafé. Samkvæmt

heimildum PRESS-

UNNAR hafa Lands-

bankinn og Byggða-

stofnun leynt og Ijóst

stefnt að þvi að

try99Ja völd núver-

andi eigenda, þrátt

fyrir kröfu atvinnu-

tryggingas/óðs um

aukna þátttöku ann-

arra aðila.

öaoíf1*5**

þann hnút sem málið var komið í

vegna skilyrða atvinnutrygginga-

sjóðs.

ATVTNNUTRYGGINGASJÓÐI

STILLT UPP VIÐ VEGG

Atvinnutryggingasjóði ber ein-

ungis að lána til útflutningsfyrir-

tækja og því þurfti m.a. að skoða

öll fyrirtækin í Bolungarvík sem

heild, til að uppfylla að sem mestu

leyti skilyrði reglugerða. Slíkt hef-

ur reyndar líka verið gert vegna

lána til KEA og Kaupfélags Aust-

ur-Skaftfellinga á Höfn, þar sem

uni blandaðan rekstur er að ræða.

í fyrra hafði sjóðurinn lánað 126

milljónir til Ishúsfélagsins, með

Bolungarvík

verður áfram í

greipum

fyrirtækja Einars

Guðfinnssonar

samkvæmt vilja

lánardrottna.

því skilyrði að rekstri þess yrði

haldið aðskildum frá Einari Guð-

finnssyni og co., sem er að mestu

verslunarfyrirtæki. Samkvæmt

heimildum PRESSUNNAR komust

stjórnarmenn sjóðsins hins vegar

að því á fundi í Bolungarvík í sum-

ar að þetta hafði lítt eða ekki kom-

ið til framkvæmda. Nú hafa þeir

hins vegar tekið ákvörðun um allt

að 200 milljóna króna lán til við-

bótar án þess að geta fylgst með

að sameining fyrirtækjanna gangi

eftir, sem er forsenda þess að ekki

sé verið að brjóta gegn reglugerð

um starfsemi sjóðsins. Hlutverki

atvinnutryggingasjóðs    lýkur    í

haust og eftir það verður ekki á

færi stjórnarmanna að fylgjast

með framvindunni.

Samkvæmt heimildum PRESS-

UNNAR komu Byggðastofnun og

Landsbankinn í veg fyrír að krafa

atvinnutryggingasjóðs, um nýtt

hlutafé frá aðilum í Bolungarvík,

næði fram að ganga sem skýlaust

skilyrði. Hingað til hefur atvinnu-

tryggingasjóður lagt áherslu á til-

komu nýs hlutafjár við endur-

skipulagningu svipaðra fyrir-

tækja. Einar Jónatansson, tals-

maður EG og sonarsonur Einars

Guðfinnssonar, stofnanda fyrir-

tækjanna, segist þó ekki vilja úti-

loka þann möguleika einhvern

tímann í framtíðinni og bendir á

að með sameiningu fyrirtækjanna

fjölgi í rauninni hluthöfum sem

standi að heildarrekstrinum, þar

sem fjölmargir utan fjölskyldunn-

ar séu einnig eignaraðilar að Is-

húsfélaginu.

MILLJARÐUR SITUR EFTIR

Matthías Bjarnason, formað-

lir stjórnar Byggðastofnunar og

þingmaður Vestfirðinga, mun

hafa þrýst á um að Byggðastofnun

breytti hluta af skuldum í hlutafé.

Matthías vildi ekki staðfesta þetta

í samtali við PRESSUNA, en sagði

að ekki hefði náðst samkomulag

innan stjórnar, menn hefðu talið

að ef það kæmi til fylgdi á eftir hol-

skefla frá ððrum sjávarútvegsfyr-

irtækjum. Þrátt fyrir þetta benda

nokkrir viðmælenda PRESSUNN-

AR á að Byggðastofnun og hluta-

fjársjóður hafi t.d. breytt hluta af

skuldum Freyju á Suðureyri í

hlutafé á sínum tíma. Því virðist

sem Byggðastofnun hafi mun

minni trú á fyrirtækjunum í Bol-

ungarvík en Freyju á Suðureyri

eða stofnunin hafi beinlínis viljað

tryggja óbreytta eignaraðild að

fyrirtækinu. Nokkrir viðmælenda

PRESSUNNAR segja að í rauninni

hafi leynt og ljóst verið unnið að

því að halda fyrirtækinu í höndum

núverandi eigenda.

Nettóskuldir EG-fyrirtækjanna

allra um síðustu áramót námu um

2 milljörðum króna, voru um 2,4

milljarðar brúttó, samkvæmt

heimildum PRESSUNNAR. Einar

Jónatansson segir hins vegar að

raunskuldir nemi um 1500 millj-

ónum. Eftir aðgerðir nú segir Ein-

ar að skuldir sameinaða fyrirtæk-

isins muni nema ríflega 900 millj-

ónum króna. Hann segir að í góðu

árferði eigi fyrirtækið eftir sam-

einingu að geta velt um 1400 millj-

ónum. Nettótekjur í hlutfalli við

skuldir verði því þokkalegar mið-

að við stöðu sjávarútvegsfyrir-

tækja almennt.

Kristján Þorvaldsson

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28