FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTÓBER 17 E, nær Iftir að Óli Kr. Sigurðsson tók við valdataumunum í OLÍS riðlaðist óumbreytanleg samtrygging olíufélaganna þriggja á markaðin- um. Aður var nánast lögmál að ESSO var stærst með liðlega 40% hlutdeild, Shell næststærst með 33% og OLÍS með um 25%. Stærri olíufélögin brugðu á það ráð að reyna að þrengja að Óla og um tíma lá nærri að Lands- bankanum, með Sverri Her- mannsson í broddi fylkingar, tæk- ist að stöðva rekstur OLÍS. Á síðasta ári hafði Óla þrátt fyrir allt nær tek- ist að koma Shell aftur fyrir sig. Munurinn þarna á milli var aðeins 100 milljónir, en var þegar best lét hjá Shelí um 1.300 milljónir á sam- bærilegu verðlagi... A kukin harka hefur færst í próf- kjörsslaginn hjá Sjálfstæðisflokkn- um. Sumir kandídata fara reyndar hljóðlega, eins og Birgir ísleifur Gunnarsson og Davíð Oddsson borgarstjóri, en hvorugur þeirra hefur opnað skrifstofu. Hins vegar er sagður enginn kotbragur á kosn- ingabaráttu Bjöms Bjarnasonar, aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, en stuðningsmenn hans láta sér ekki nægja minna en heilan sýning- arsal í Hekluhúsinu ... a dag hefst tveggja daga haust- þing fóstra, þar sem mikið verður fjallað um kjara- og menntunarmál. Innan stéttarinnar er mikill viðbún- aður vegna væntanlegs frumvarps um leikskóla frá Jóhðnnu Sigurð- ardóttur félagsmálaráðherra, en L'ORÉAL Jóhanna hefur barist fyrir því að fá dagvistarmál undir félagsmálaráðu- neytið. Fóstrur vilja hins vegar ólm- ar vera áfram í menntamálaráðu- neytinu og ætla með oddi og egg að halda sér þar. Það sem er kannski skrítnast í stöðunni er að Fóstrufé- lag Islands hlaut nýverið inngðngu í WCTOP alþjóðasamtök kenn- ara... Árni var einmitt í framboði fyrir austan árið 1983, en náði ekki að brjóta múrinn frekar en aðrir al- þýðuflokksmenn sem reynt hafa síð- asta aldarfjórðung... Hiand E Ikki hefur enn verið ákveðið hver skipi fyrsta sæti á lista Alþýðu- flokksins í Áusturlandskjördæmi, en Guðmundur Einarsson, núver- andi aðstoðarmaður viðskiptaráð- herra, gefur ekki kost á sér aftur, þrátt fyrir að hann hafi aðeins vant- að sjö atkvæði upp á í síðustu kosn- ingum. Heyrst hefur að lagt hafi ver- ið að séra Gunnlaugi Stefánssyni, presti á Heydölum, að fara í slaginn, en Gunnlaugur sat á þingi árið 1978. Gunnlaugur er sem kunnugt er bróðir Guðmundar Árna, bæjar- stjóra í Hafnarfirði, sem hefur lýst því yfir formlega að hann gefi kost á sér í prófkjöri á Reykjanesi og stefni á fyrsta sæti. Guðmundur ndsbankinn hefur sem kunnugt er keypt Samvinnubank- ann, en fyrst um sinn verður um sjálfstæðar einingar að ræða. Þess- ar stundirnar er verið að vinna mikla tæknivinnu sem á að enda með bókhaldslegum samruna bank- anna um áramót. Sérstök útibúa- nefnd" starfar um leið að því að selja fasteignir, ekki síst útibú úti á landi, þar sem báðir bankarnir eru með afgreiðslu. Þau mál eru í bið- stöðu á meðan ekkert ákveðið til- boð hefur komið frá Búnaðar- banka eða íslandsbanka. Samein- ingarinnar sér þó stað á einu sviði; nú er búið að sameina starfsmanna- félðg bankanna tveggja í eitt... marka má málgagn þeirra Fá- skrúðsfirðinga, Búðatíðindi, sem gefið er út af sveitarstjórninni. Þar segir af samskiptum hreppsnefndar og sóknarnefndar, en hreppurinn fór þess á leit að minnisvarði um látna sjómenn yrði fluttur af kirkju- lóðinni á útivistarsvæði ofan við kirkjuna. Skemmst er frá að segja að sóknarnefnd hafnaði þessu erindi. Eiríkur Stefánsson, hreppsnefnd- armaður óháðra, mun hafa fundið megna framsóknarlykt af málinu, enda allir sóknarnefndarmennirnir úr Framsókn og presturinn fyrrver- andi varaþingmaður Framsóknar- flokksiris. Lars Gunnarsson, hreppsnefndarmaður Framsóknar, mun hins vegar hafa upplýst Eirík um að líklega væri Guð lííca fram- sóknarmaður, þannig að lítið væri við þessu að gera... ræða um laun á vegum bæjarins og var gerð óformleg könnun á tilhög- un mála í öðrum bæjarfélögum. í Ijós kom meðal annars að formenn bæjarráðs í Kópavogi, Hafnarfirði og Akureyri fá ríflega 100 þúsund krónur á mánuði fyrir þessi tilteknu störf, á meðan formenn bæjarráðs á Seyðisfirði, Egilsstöðum og í Nes- kaupstað fá 69 þúsund krónur. Forsetar bæjarstjórnar fá í stærstu bæjarfélögunum um 60 þúsund krónur á mánuði, en allt niður í þús- undkall á Seyðisfirði, í öllum tilfell- um er um aukastörf manna í fullu starfi að ræða sem hafa í raun svip- aðar vinnustundir að baki, tvo bæj- arstjórnarfundi á mánuði og fjóra bæjarráðsfundi. Skýringin er ekki fólgin í því að í stóru bæjarfélögun- um séu verkefnin erfiðari, því þar eru þvert á móti þeim mun fleiri embættismenn til að vinna skít- verkin"... u s 'veitarstjórnarmenn ræða fleira en veraldleg málefni, ef mræður um laun bæjarstjóra og bæjarfulltrúa hafa reglulega komið upp á yfirborðið og hefur Starfsmannafélag Kópavogs meðal annars mótmælt launahækkun bæj- arstjóra Kópavogs, Sigurðar Geir- dal. Á Selfossi kom nýverið upp um- 54 NYR LISTIMEÐ STORUM NUMERUM! t m^L^ * GULTIGBISENDEJANUAR1991 QuelSe Quelle kynnir nýjan sérlista fyrir konur sem þurfa stór númer í fatnaði. Stærð- ir upp í 54, einnig sérstakar K-stærðir fyrir þær sem eru undir 164 cm á hæð. Fallegur og góður fatnaður frá Þýskalandi. Listinn er ókeypis en greiða þarf burðargjald ef hann er póstsendur. Quelle ST/FRSTA PQSTVERSLUN EVRÓPU VERSLUN 0G AFGREIÐSLA, HJALLAHRAUN 8, HAFNARFJÖRÐUR SÍMI91-50200 m M Æ