Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Pressan

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Pressan

						FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTÓBER

17

E,

nær

Iftir að Óli Kr. Sigurðsson tók

við valdataumunum í OLÍS riðlaðist

óumbreytanleg samtrygging

olíufélaganna

þriggja á markaðin-

um. Aður var nánast

lögmál að ESSO var

stærst með liðlega

40% hlutdeild, Shell

næststærst með

33% og OLÍS með

um 25%. Stærri olíufélögin brugðu

á það ráð að reyna að þrengja að

Óla og um tíma lá nærri að Lands-

bankanum, með Sverri Her-

mannsson í broddi fylkingar, tæk-

ist að stöðva rekstur OLÍS. Á síðasta

ári hafði Óla þrátt fyrir allt nær tek-

ist að koma Shell aftur fyrir sig.

Munurinn þarna á milli var aðeins

100 milljónir, en var þegar best lét

hjá Shelí um 1.300 milljónir á sam-

bærilegu verðlagi...


A

kukin harka hefur færst í próf-

kjörsslaginn hjá Sjálfstæðisflokkn-

um. Sumir kandídata fara reyndar

hljóðlega, eins og Birgir ísleifur

Gunnarsson og Davíð Oddsson

borgarstjóri, en hvorugur þeirra

hefur opnað skrifstofu. Hins vegar

er sagður enginn kotbragur á kosn-

ingabaráttu Bjöms Bjarnasonar,

aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins,

en stuðningsmenn hans láta sér

ekki nægja minna en heilan sýning-

arsal í Hekluhúsinu ...

a

dag hefst tveggja daga haust-

þing fóstra, þar sem mikið verður

fjallað um kjara- og menntunarmál.

Innan stéttarinnar er mikill viðbún-

aður vegna væntanlegs frumvarps

um leikskóla frá Jóhðnnu Sigurð-

ardóttur  félagsmálaráðherra,   en

L'ORÉAL

Jóhanna hefur barist fyrir því að fá

dagvistarmál undir félagsmálaráðu-

neytið. Fóstrur vilja hins vegar ólm-

ar vera áfram í menntamálaráðu-

neytinu og ætla með oddi og egg að

halda sér þar. Það sem er kannski

skrítnast í stöðunni er að Fóstrufé-

lag Islands hlaut nýverið inngðngu í

WCTOP — alþjóðasamtök kenn-

ara...

Árni var einmitt í framboði fyrir

austan árið 1983, en náði ekki að

brjóta múrinn frekar en aðrir al-

þýðuflokksmenn sem reynt hafa síð-

asta aldarfjórðung...

Hiand

E

Ikki hefur enn verið ákveðið

hver skipi fyrsta sæti á lista Alþýðu-

flokksins í Áusturlandskjördæmi, en

Guðmundur Einarsson, núver-

andi aðstoðarmaður viðskiptaráð-

herra, gefur ekki kost á sér aftur,

þrátt fyrir að hann hafi aðeins vant-

að sjö atkvæði upp á í síðustu kosn-

ingum. Heyrst hefur að lagt hafi ver-

ið að séra Gunnlaugi Stefánssyni,

presti á Heydölum, að fara í slaginn,

en Gunnlaugur sat á þingi árið 1978.

Gunnlaugur er sem kunnugt er

bróðir Guðmundar Árna, bæjar-

stjóra í Hafnarfirði, sem hefur lýst

því yfir formlega að hann gefi kost

á sér í prófkjöri á Reykjanesi og

stefni  á fyrsta sæti.  Guðmundur

ndsbankinn hefur sem

kunnugt er keypt Samvinnubank-

ann, en fyrst um sinn verður um

sjálfstæðar einingar að ræða. Þess-

ar stundirnar er verið að vinna

mikla tæknivinnu sem á að enda

með bókhaldslegum samruna bank-

anna um áramót. Sérstök „útibúa-

nefnd" starfar um leið að því að

selja fasteignir, ekki síst útibú úti á

landi, þar sem báðir bankarnir eru

með afgreiðslu. Þau mál eru í bið-

stöðu á meðan ekkert ákveðið til-

boð hefur komið frá Búnaðar-

banka eða íslandsbanka. Samein-

ingarinnar sér þó stað á einu sviði;

nú er búið að sameina starfsmanna-

félðg bankanna tveggja í eitt...

marka má málgagn þeirra Fá-

skrúðsfirðinga, Búðatíðindi, sem

gefið er út af sveitarstjórninni. Þar

segir af samskiptum hreppsnefndar

og sóknarnefndar, en hreppurinn

fór þess á leit að minnisvarði um

látna sjómenn yrði fluttur af kirkju-

lóðinni á útivistarsvæði ofan við

kirkjuna. Skemmst er frá að segja að

sóknarnefnd hafnaði þessu erindi.

Eiríkur Stefánsson, hreppsnefnd-

armaður óháðra, mun hafa fundið

megna framsóknarlykt af málinu,

enda allir sóknarnefndarmennirnir

úr Framsókn og presturinn fyrrver-

andi varaþingmaður Framsóknar-

flokksiris. Lars Gunnarsson,

hreppsnefndarmaður Framsóknar,

mun hins vegar hafa upplýst Eirík

um að líklega væri Guð lííca fram-

sóknarmaður, þannig að lítið væri

við þessu að gera...

ræða um laun á vegum bæjarins og

var gerð óformleg könnun á tilhög-

un mála í öðrum bæjarfélögum. í

Ijós kom meðal annars að formenn

bæjarráðs í Kópavogi, Hafnarfirði

og Akureyri fá ríflega 100 þúsund

krónur á mánuði fyrir þessi tilteknu

störf, á meðan formenn bæjarráðs á

Seyðisfirði, Egilsstöðum og í Nes-

kaupstað fá 6—9 þúsund krónur.

Forsetar bæjarstjórnar fá í stærstu

bæjarfélögunum um 60 þúsund

krónur á mánuði, en allt niður í þús-

undkall á Seyðisfirði, í öllum tilfell-

um er um aukastörf manna í fullu

starfi að ræða sem hafa í raun svip-

aðar vinnustundir að baki, tvo bæj-

arstjórnarfundi á mánuði og fjóra

bæjarráðsfundi. Skýringin er ekki

fólgin í því að í stóru bæjarfélögun-

um séu verkefnin erfiðari, því þar

eru þvert á móti þeim mun fleiri

embættismenn til að vinna „skít-

verkin"...

u

s

'veitarstjórnarmenn        ræða

fleira   en   veraldleg   málefni,   ef

mræður um laun bæjarstjóra

og bæjarfulltrúa hafa reglulega

komið upp á yfirborðið og hefur

Starfsmannafélag Kópavogs meðal

annars mótmælt launahækkun bæj-

arstjóra Kópavogs, Sigurðar Geir-

dal. Á Selfossi kom nýverið upp um-

54

NYR LISTIMEÐ STORUM NUMERUM!

t

m^L^

*

GULTIGBISENDEJANUAR1991

QuelSe


Quelle kynnir nýjan sérlista fyrir konur sem þurfa stór númer í fatnaði. Stærð-

ir upp í 54, einnig sérstakar K-stærðir fyrir þær sem eru undir 164 cm á

hæð. Fallegur og góður fatnaður frá Þýskalandi.

Listinn er ókeypis en greiða þarf burðargjald ef hann er póstsendur.

Quelle

ST/FRSTA PQSTVERSLUN EVRÓPU

VERSLUN 0G AFGREIÐSLA, HJALLAHRAUN 8, HAFNARFJÖRÐUR

SÍMI91-50200


m           M           Æ

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28