*m*. FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTOBER 27 a __kosningabæklingi Guðmundar Magnússonar sagnfræðings fyrir prófkjör sjálfstæðismanna í Reykja- vík er meðal annars birtur útdráttur úr greinaskrifum hans í . blöð á undanförnum árum. Ein úrklippan er úr grein um út- gáfu- og blaðastyrki stjórnmálaflokkanna og hvernig almannafé er beint í flokksblöðin með þeim hætti. Það er svo sem allt gott um þetta að segja nema fyrir það að Guðmund- ur er starfsmaður Sjálfstæðisflokks- ins í Valhöll. Útgáfu- og blaðastyrk- ur sjálfstæðismanna hefur nefnilega farið í rekstur Valhallar og þar með í launaumslag Guðmundar... s _ "tarfsmenn Arnarflugs bíða nú spenntir eftir því hvort fyrirtækið fer í gjaldþrot eða ekki. Ofugt við það sem margur kynni að ætla hefðu starfsmennirnir hag af gjaldþroti. Sam- kvæmt lögum fá starfsmenn fyrir- tækja laun sín greidd frá félags- málaráðuneytinu þrjá mánuði fyrir gjaldþrot og einnig í þrjá mánuði eftir gjaldþrotið, eða samkvæmt lögbundnum uppsagnarfresti. Þeir ÓIi Tynes, Kristinn Sig tryggsson og fleiri verða því að þrauka þar til Arnarflug verður opinberlega lýst gjaldþrota ef þeir ætla að fá laun sín greidd úr ríkissjóði... LTorystuskipti hafa orðið í Bíl- greinasambandi Islands. Eftir tíu ára stjórnarsetu og fjögurra ára stjórnarformennsku í sambandinu gaf Gísli Guðmundsson í Bifreið- um og landbúnaðarvélum ekki kost á sér áfram á aðalfundi um mánaðamótin. Við stjórnarfor- mennskunni tók Sigfús Sigfússon, annar bræðranna í Heklu... ___inn þátttakenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Guðmundur H. Garðarsson al- þingismaður, hefur brugðiðáþaðráðað flagga EB-málum í baráttunni. Guð- mundur hélt nýver- ið fund í Húsi versl- unarinnar og munu um fimmtíu manns hafa mætt. Einn af þeim var Davíð Oddsson borgarstjóri, sem er sagð- ur hafa hlustað með athygli á um- ræður um þennan mikilvæga mála- flokk. Davíð mun hins vegar hafa vikið sér undan því að svara spurn- ingum sem beint var til hans, enda ekki viljað stela senunni af Guð- mundi... B 'æði Moskva og Washington bíða svara frá íslenskum stjórnvöld- um vegna klúðursins við undirbún- ing alþjóðlegu ráðstefnunnar VISI- ON 2000, sem stendur til að halda á Islandi og sagt var frá í síðustu PRESSU. Þáttur Júlíusar Hafstein, formanns undirbúningsnefndarinn- ar, hefur þótt með eindæmum, en sagt er að hann hafi ekki haldið fundi í nefndinni í heilt ár. Júlíus vill hverfa frá málinu og forsætisráðu- neytið og samgönguráðuneytið munu nú þrýsta á Heimi Hannes- son, fyrrum formann ferðamála- ráðs, að leysa hnútinn, en Heimir býr yfir alþjóðlegum tengslum vegna fyrri starfa. Hann mun hins vegar tregur að taka við for- mennsku af Júlíusi og sópa þar með gólfin eftir hann. Þó þykir líklegt að ferðamálaráð reyni að halda málinu áfram og Heimir verði því innan handar, því nú verður ekki aftur snúið... IÐNLANASJÓÐUR fyrir íslenskt atvinnulíf ÁRMÚLA 13A 155REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950 4 54- NÝR LISTIMEÐ STÓRUM NUMERUM! t {(M MODE BfS GRÖSSE 54 MANCHES SOGAR GRÖSSER ODERIN K-GRÖSSEN GULT?G BIS ENOE JANUAR1991 Slueiie Quelle kynnir nýjan sérlista fyrir konur sem þurfa stór númer í fatnaði. Stærð- ir upp í 54, einnig sérstakar K-stærðir fyrir þær sem eru undir 164 cm á hæð. Fallegur og góður fatnaður frá Þýskalandi. Listinn er ókeypis en greiða þarf burðargjald ef hann er póstsendur. ©uelle * STÆRSTA PQSTVERSLUN EVROPU VERSLUN 0G AFGREIÐSLA, HJALLAHRAUN 8, HAFNARFJÖRÐUR SIMI91-50200 é M J