Pressan - 27.03.1991, Blaðsíða 21
21
LISTAPÓSTURINN
Yoko Ono kemur til landsins 23. apríl
Sýning Yoko Ono
á Kjarvalsstöðum
nálgast óðum
,,Vid höfum mikinn áhuga
fyrir Fluxus hreyfingunni og
áhrifum hennar á íslenska
myndlist og þá sérstaklega
með Súm hópinn í huga á ár-
unum ’65—67,‘‘sagöiGunnar
B. Kvaran á Kjarvalsstöðum
er Listapósturinn forvitnaðist
um vœntanlega komu Yoko
Ono til landsins. Sýning Yoko
mun hefjast27. apríl og mun
hán vœntanleg þann 23. apr-
íl til að setja upp sýninguna.
Sýningin mun teygja arma
sína út fyrir Kjarvalsstaði og
verða þrjú útilistaverk stað-
sett á Lœkjartorgi, við tjörn-
ina og fyrir' utan Kjarvals-
stadi.
„Fluxus hreyfingin er lista-
hreyfing sem í mörgu tilliti er
mjög framandi fyrir fólk,"
sagöi Gunnar. „Yoko Ono er
auk þess að vera einn af
frumkvöðlum Fluxus hálf-
gerð goðsögn í lifanda lífi."
Yoko Ono segir um verk sín:
„Öll mín verk eru ákveðið
form óskhyggju. Haldið
áfram að óska meðan þið tak-
ið þátt í verkinu." Verk Yoko
hafa mikla skírskotun í
kvennabaráttu og kröfuna
um frið í heiminum en Yoko
Ono hefur látið mikið til sín
taka á þeim vettvangi ekki
síst ásamt manni sínum sál-
uga John Lennon eins og
frægt er.
Auk sýningar Yoko Ono
verður yfirlitssýning á verk-
um Fluxus listamanna í aust-
ursal Kjarvalsstaða, en safnið
hefur einnig hugsað sér að
sýna verk fleiri Fluxus lista-
manna á næstu árum.
l
S.ÞÓR
Islendingar eru
negrar norðursins
— segir Dóri í Vinum Dóra en hljómsveitin fagnar afmœli blúsvakningar á Islandi
,,Þessi tímamót marka
upphaf blúsvakningar á ís-
landi,“ segir Halldór Braga-
son gítarleikari en hann er
einmitt hinn frœgi Dóri sem
ásamt vinum sínum fagnar
afmceli hljómsveitarinnar
Vinir Dóra íPúlsinum í kvöld
og á fimmtudagskvöld.
,,A skírdag eru nákvœm-
lega tvö ár síðan við héldum
okkar fyrstu sjálfstœðu tón-
leika á Hótel Borg fyrir fullu
húsi. A þeim tíma var blús
spilaður svona tvisvar á ári.
Núna er hann spilaður dag-
lega í útvarpinu. Við œtlum
því að baka afmœlisköku og
halda afmœlisveislu í Púlsin-
um.
Þessir tónle'kar verða fyrst
og fremst til að skemmta okk-
ur og gestum okkar sem
verða margir. Nokkrir leyni-
gestir hyggjast spila með okk-
ur og Kristján Hreinsson
skáld mun fremja blúsgjörn-
ing og er þá fátt eitt talið.
Tónleikarnir eru síðan til-
einkaðir Leo Fender þeim
sem fann upp Fender gítarinn
en hann er nýlega látinn.
Hann smíðaði þessa gítara
1952—4 og enn eru þetta
bestu gítarar sem hægt er að
fá. Við ætlum því að taka
hattinn ofan fyrir Leo Fen-
der.“
VIÐ GETUM FENGIÐ
HVAÐA BLÚSLISTAMANN
SEM ER
Hvað er ykkur efst í huga á
þessum tímamótum?
„Það er fyrst og fremst
hvað gæðin hafa rokið upp í
blúslífinu. Það er sífellt að
aukast að menn spili lifandi
tónlist og tölvutónlistin er að
hverfa af sjónarsviðinu. Fólk
skemmtir sér svo vel á blús-
tónleikum vegna þess að
blúsinn er einföld tónlist sem
getur höfðað til allra. Það er
að sjálfsögðu fólkið sem
stendur fyrir þessari vakn-
ingu með því að mæta á
þessa tónleika. Við erum sem
sagt staðráðin í því að lyfta
blúslífinu í æðri hæðir og
halda uppi öflugu samstarfi
við erlenda aðila.
Það hafa opnast alveg gíf-
urlegir möguleikar fyrir
hljómsveitina og eins og mál-
in eru í dag getum við fengið
næstum hvaða blúslistamann
úr heiminum sem er til að
spila með okkur, standardinn
er orðinn svo hár á bandinu."
TILFINNINGALÍF
FÓLKSINS
Hefur kráarmenningin orð-
ið til að lyfta undir blúsinn
hérna heima að þínu mati?
„Hún hefur vissulega spil-
að rullu en þó ekki stóra.
Blúslistamenn vinna á krám
og þeirra vettvangur er
klúbbar. Stærsti þátturinn er
tilfinningalíf fólksins og þetta
nauðsynlega mótvægi við
tölvuvæðingu og hávaða-
dýrkun. Islendingar hafa
geðslag sem gerir þeim kleift
Hollenskur maður setur upp íslenskt gallerí í Haag
,,Ég kom til íslands í janúar
í fyrra og kynntist íslenskri
myndlist. Ég varð svo hrifinn
að ég fór að velta fyrir mér
möguleikanum á því að
kynna hana betur í Hollandi,"
segir Olav Fekker en hann
opnar íslenskt gallerí í Haag
þann 20. apríl.
Fyrstu myndlistarmennirn-
ir sem sýna hjá Olav eru Guð-
björg Lind, Þorgerður Hauks-
dóttir, Ingólfur Jóhannsson
og Þór Guðmundsson.
Fyrir þá sem eiga leið um
Haag er heimilisfang gallerís- o
ins: u>
Iceland Galleri, Haag, Holland.
Edemtegrácht 9,
að skynja þá tilfinningu sem
blús er. Það er svo stutt síðan
við skriðum út úr moldarkof-
unurn."
NEGRAR NORÐURSINS
„Við urðum fyrst siðmennt- |
uð á mælikvarða vestrænna i
þjóða fyrir um fimmtíu árum. ]
Þetta erum við að breiða yfir
með því að taka fullskapaða
menningu annars staðar frá
og gera að okkar án þess að
bæta neinu við. Það kallar
síðan á það að við erum sífellt
að bera okkur saman við fyr-
irmyndirnar sem eiga sér
langa hefð. Hvernig kemur
þetta svo út? Jú, það er til
dæmis einn maður sem segist
eiga íslensku óperuna og því
verður ekki haggað. Við höf-
um mikla minnimáttarkennd
gagnvart öðrum Evrópuþjóð-
um og stöndumst ekki sam-
anburð við þeirra menningu.
Okkar menningarhefð er svo
ólík þeirra. Okkar geðslag er
ekki ólíkt bandarískum svert-
ingjum en samt heyrist sagt
að hvítir menn geti ekki spil-
að blús. Hvað er Yfir kaldan
eyðisand annað en blús? fs-
lendingar eru negrar norð-
ursins enda erum við komin
af þrælum."
ÞAÐ VARÐ EKKI
AFTUR SNÚIÐ
Hvenær byrjaðir þú að
spila blús?
„Það hefur verið fljótlega
upp úr 1970. Ég fékk gítar í
fermingargjöf og fór að
hlusta á Clapton og Hendrix.
Opinberlega sögðu þessir
menn að þeirra tónlist ætti
rætur í blús. Ég fór að hlusta
á blús og þegar ég uppgötv-
aði Muddy Waters varð ekki
aftur snúið," sagði Dóri að
lokum.