Pressan - 09.01.1992, Blaðsíða 44
44
______FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992_
LÍFIÐ EFTIR VINNU
UppÁhAlds
VÍNÍð
Páll Magnússon
sjónvarpsstjóri
„Vínid sem ég nefni er rautl
og ég hef adeins smakkaö
það einu sinni, en þaö uar í
apríl 1991. Ég uar í litlu þorpi
í Sudur-Frakklandi og á ueit-
ingastaö sem heitir Le Moul-
in de Mougins. Veitingamaö-
urinn þar er frœgur mat-
reidslumeistari, Roger
Vergés. Vínið sem ég drakk
heitir; Volnay „Clos des
Chéns" Comte de Mougher-
on og uar frá 1985. Ég skrif-
adi nidur nafniö á uíninu ef
ég rœkist á það á öðrum ueit-
ingastöðum, en það hefur
ekki orðið. Þetta er besta uín
sem ég hef smakkað."
Perlur gömlu
Reykjavíkurborg á óhemju-
mikið af verkum eftir ís-
lenska listamenn en ekkert
listasafn. Verkin eru því að
öllu jöfnu geymd víða á
veggjum opinberra stofnana,
og væri mikið erfiði fyrir
listaverkaunnendur að elta
þau uppi hvert um sig. For-
svarsmenn Listasafns Reykja-
víkurborgar á Kjarvalsstöð-
um hafa því tekið til ráðs að
safna saman perlunum í safni
eldri meistaranna og opna á
þeim sýningu næstkomandi
laugardag. Þetta verður
væntanlega vönduð sýning
þar sem frumherjar íslenskr-
ar myndlistar verða alfarið í
fyrirrúmi en áhersla lögð á
meistara Kjarval.
Þeir verða háðir fréttum og
því hversu landsfeður eru
skemmtilegir hverju sinni.
Þeir eru landskunnir fyrir
húmor og hefur verið saknað
nú um nokkurt skeið. Þeir
ætla að vera ferskir á nýju ári
°g hyggjast starfa áfram sem
fréttastofa. Ertu með?
Mikið rétt, það eru Spaug-
stofumenn sem eru að vakna
til lífsins eftir heillangt hlé og
heita því að verða fullir af
starfsorku. Sömu leikarar
verða á ferðinni, en hins veg-
ar er von á að nýjar týpur
skjóti upp koliinum og reynt
verður að sýna nýja fleti. Sem
sagt: Spaugstofan á hverjum
laugardegi.
meistaranna
„Þetta verður úrval verka
og það hefur lengi staðið til
að halda sýningu sem þessa,"
sagði Gunnar Kvaran, for-
stöðumaður Kjarvalsstaða, í
samtali við PRESSUNA. Það
hafa verið góðar fjárveitingar
til listaverkakaupa og safnið
elst mikið. Það er því kominn
tími á svona sýningu.
Myndir Kjarvals verða til
sýningar í austursal, nú í
fyrsta sinn, en gamlir meist-
arar aðrir í vestursalnum.
Nöfn eru mörg; Muggur,
Kristín Jónsdóttir, Jóhann
Briem, Finnur Jónsson, Ás-
grímur Jónsson og Jón Stef-
ánsson, og eru þá fáir einir
upptaldir.
SPAUGAÐÁNÝ
Simsvarinn
Þá má svo geta þess að
frændur þeirra, Gys-bræður,
hyggjast troða upp í Súlnasal
Hótels Sögu á næstunni. Hvíl-
ir mikil leynd yfir væntan-
legri dagskrá en einn bræðr-
anna, Karl Ágúst Úlfsson,
fékkst þó til að upplýsa að
nýjar leiðir yrðu farnar og
landsfeðurnir væru nú fyrir-
ferðarminni en oft áður.
Þetta er kvöldskelnmtun
fyrir matargesti, að sjálf-
sögðu á léttari nótunum, og
mun Egill Eðvarðsson sjá um
að leikstýra liðinu. Gysið
verður í höndum Þórhalls
Sigurðssonar (Ladda), Sigurð-
ar Sigurjónssonar, Arnar
Árnasonar og Karls Ágústs
Úlfssonar, en þeir bræðurnir
eru að sögn kunningja af-
skaplega nánir þrátt fyrir að
sameiginlegt faðerni sé á
villigötum.
JÓN PÉTUR
ÚLFUÓTSSON
danskennari
„Hœ, Jón Pétur héma.
Ég er ekki heima.
Skiljið eftir skilaboð
eða hringið í síma
36645, það er niðrí
skóla. Ég heyri í ykkur
bless. “
Halldór Pálsson, einn af betri
saxófónleikurum landsins,
heldur tónleika á Púlsinum.
Saxaður dpass
á Púlsinum
Halldór Pálsson er tenór-
saxófónleikari sem ætlar að
halda tónleika á Púlsinum í
kvöld. Hann hefur um all-
nokkurt skeið verið búsettur
í Svíþjóð og einbeitt sér að
djassinum lengst af.
„Ég segi helst að ég spili
það sem við á, en á fimmtu-
dag spilum við eingöngu
djass. Það er spennandi að
spila hér og við Árni Schev-
ing reynum að fá til liðs við
okkur unga hæfileikamenn.
Þannig blöndum við saman
týndu kynslóðinni og þeirri
nýju,“ sagði Halldór í samtali
við PRESSUNA.
Halldór hefur farið um allt
og spilað. „Sem performer
getur maður alls staðar verið.
Tónlistin er alþjóðleg svo það
þarf ekki að kunna tungumál
eins og til dæmis í leiklist-
inni.“
Ýmsar þekktar hljómsveitir
hafa fengið listamanninn til
liðs við sig og er sú frægasta
vafalaust ABBA. Aðrar eru
stórsveitir á borð við Gugge
Hedrenius og Leif Kronlund.
Hann segir að það hafi þó
ekki fylgt því nein sérstök
upphefð að spila með svo
frægum númerum... en ef til
vill lítil fjöður í hattinn. Auk
þessa hefur hann komið fram
í leikhúsum og sjónvarpi,
bæði hérlendis og ytra, en í
kvöld kemur hann fram með
kvartett víbrafónleikarans
Árna Scheving. Andrea Gylfa
lætur sjá sig og annar kvar-
tett, með píanóleikarann
Kristján Magnússon í broddi
fylkingar, kemur fram eftir
nokkurt hlé.
Greinilega viðburður á
ferðinni, sem djassunnendur
mega ekki fyrir nokkurn
mun missa af.
^hsLCMUttCL
Helgi Pétursson
markaðsstjóri
PRESSAN bað Helga að
stilla upp ímynduðu
kvöldverðarboði þessa
vikuna. Gestir hans eru:
Tengdapabbi
hann tryggir að nóg verði
á borðum.
Erró
hann hlýtur að tryggja
liflegar samræður og er
auk þess sælkeri.
Halidór Ásgrímsson
vegna þess að hann er
„kómiker" inn við beinið.
Linda Pétursdóttir
því fleiri framsóknarmenn,
því betra.
Tage Ammendrup
vegna þess að hann hefur
vit a mat.
Gunnlaugur Stefánsson
Ingi Björn Albertsson
Össur Skarphéðinsson
til þess að stríða þeim
með vondu stjórnina.
Guðmundur Thorsson
Vigdís Grímsdóttir
vegna þess að þau eru
með svo Ijúfan kúltúr.
Frú Birnu
til að koma í veg fyrir að
ég verði með kjaft og
ullerí.
Ég kanti best við mig
íjamiar. Það er eins
og eyðslan um jólin
færi fólk nær mér,
-bæði fjárhagslega
og svo leggst yfir það
einhvers konar
þunglyndi sem ég
kannast svo vel við.
Hótels Sögu á laugardagskvöld
og leikur þar hijómsveitin Eins-
dæmi fyrir gesti. Á Mímisbar
eru Þau tviL bæði tvö, í formi
bæði föstudag og laugardag.
Að austan kemur hljómsveitin
ítrekun og trallar sig inn í nýja
árið Á öndinni.
Franskt popp verður á Borginni
á föstudagskvöld og hitar Org-
ill upp. Stíll Fransmannanna í
fríataa
MARY BLACK
BABES IN THE
WOODS
Mary Black er at-
hyglisverð írsk söng-
kona sem hefur átt
góðu fylgi að fagna
meöal þjóðlagafíkla.
Babes er nokkru
poppaðri en áður en
tónlistin á henni
minnir á Joni Mitchell,
Lindu Thompson og
Idie Brichell, svo ein-
hverjar séu nefndar.
Þetta er ein af betri
plötum ársins og kem-
ur skemmtilega á
óvart. Við gefum
henni 8 af 10 mögu-
legum.
Dimitri er i ætt við tónlistar-
smekk þeirra í REM, en það er
jú létt og þægilegt á aö hlýöa.
Og hver var svo að tala um að
árið færi rólega af stað?
VEITINGAHÚSIN_____________
Þar sem Hafmeyjan sáluga var
á Laugaveginum er nú búiö að
opna Steikhús Pottsins og
pönnunnar. PRESSAN tekurof-
an fyrir bjartsýni þeirra manna
sem að því standa. Það þarf
bjartsýni til og kjark að auki að
opna veitingastað þar sem líkið
af Hafmeyjunni rotnaði um
nokkurra mánaða skeið eftir að
Jónas Kristjánsson aflífaði
hana í veitingahúsakrítík sinni í
DV. En það þarf sjálfsagt meira
til en bjartsýni og kjark til að
það takist. Því miður virðast
aðstandendur Steikhússins
ekki hafa ýkja mikið af því. Mat-
urinn er þó betri en á Hafmeyj-
unni. En umhverfið er kaldrana-
legt, þjónustan fumkennd og
svo sem fátt nýtt sem kemur úr
eldhúsinu.
MYNDLISTIN_______________
Oft er rólegt eftir annasama
jólatið og þykir mörgum þessi
tími óhentugurtil opnunarsýn-
inga. Það er þó ekki allra álit og
verða tvær sýningar opnaðar
um helgina; á Kjarvalsstöðum
annars vegar og í Hafnarborg
hins vegar. Sýningarnar eru
mjög ólíkar og er önnur þeirra
rammíslensk, með Kjarval og
gömlu meistarana í fyrirrúmi,
en hin á ættir að rekja til Ve-
nesúela. Suður-amerísku
ÞIINGA GÁTAN
LÁRÉTT: 1 brjóst 6 bögumæli 11 snemma 12 band 13 þvingun 15
hár 17 þreyta 18 flótti 20 þjóti 21 gerlegt 23 gagn 24 kæk 25 trjónur
27 hindra 28 gafflana 29 fugl 32 gramar 36 hvíld 37 mann 39 reiða
40 fugl 41 draugar 43 tré 44 slenið 46 klæðlausri 48 ruddi 49 ögn
50 illir 51 skakkan LÓÐRÉTT: 1 mýs 2 krikinn 3 dygg 4 vargs 5 yndi
6 kjass 7 kássa 8 sonur 9 deila 10 þátta 14 gripinn 16 eirir 19 harð-
fiskruður 22 spjald 24 blaðrari 26 vindur 27 álpast 29 djarfur 30
hreini 31 útöndun 33 hrekkur 34 fæðir 35 bleytan 37 starir 38 mann-
eskju 41 eggi 42 blés 45 smáfiskur 47 knæpa.