Pressan - 26.08.1993, Blaðsíða 28

Pressan - 26.08.1993, Blaðsíða 28
MODEL OG MYNDLIST 28 PRESSAN Fimmtudagurinn 26. ágúst 1993 MYNDLIST • Piers Browne, list- málarinn breski, opnar sýningu á verkum sín- um í Asmundarsal nk. mánudag. Auk æti- mynda verða til sýnis *“ nýlegar vatnslitamyndir sem listamaðurinn mál- aði á íslandi. • Kristbergur Ó. Pét- ursson opnar á laugar- dag tvær málverkasýn- ingar, í Hafnarborg og í kaffihúsinu Nönnukoti við Mjósund í Hafnar- firði. Hafnarborg er opin alla daga nema þriðju- daaa kl. 12-1Q. • Amgunnur Yr opnar sýningu á olíumálverkum sínum að Hulduhólum, Mosfellsbæ á laugardag. Opið daglega kl. 14 -18. • Louisa Matthíasdóttir, yfirlitssýning á verkum hennar á Kjarvalsstöðum. Opið daglega kl. 10-18. • Þorsteinn frá Hamri sýnir Ijóð á Kjarvalsstöð- um. Opið daglega kl. 10- 18. • Daníel Þorkell Magn- ússon heldur sýningu á Kjarvalsstöðum. Opið dag- lega kl. 10-18. • Janet Passehl sýnir verk sín í Ganginum. • Pétur Gautur Svavars- son sýnir olíumálverk í " Portinu. Opið alla daga nema þriðjudaga kl. 14-18. • Þorfinnur Sigurgeirs- son sýnir málverk og teikn- ingar í Listasafni ASI. Opið alla daga nema miðviku- dagakl. 14-19. • Inga S. Ragnarsdóttir heldur sýningu á skúlptúr- um unnum úrstúkkmarm- ara, blikki og stáli, í Gallerii 11. • Leszek Golinski og Macidej Deja, listamenn- imir pólsku, sýnagrafík- myndir í Galleríi Umbru. * • Gréta Ósk Sigurðar- dóttir sýnir ætingar í sínk og pappírsverk í Galleríi Sævars Karis. • Alvar Aalto Afmælis- sýning Norræna hússins á verkum Alvars Aalto. • Markús ívarsson. Sýn- ing á verkum ýmissa ís- lenskra listamanna úr safni Markúsa; ívarssonar, í Listasafni íslands. Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18. • Ásmundur Sveinsson. Yfirlitssýning í Ásmundar- safni við Sigtún í tilefni ald- arminningar hans. Verkin spanna allan feril hans, þau elstu frá 1913 og það yngsta frá 1975. Opið alla dagafrá 10-16. • Jóhannes Kjarval. Sumarsýning á verkum Jó- hannesar Kjarvals að Kjar- valsstöðum, þar sem meg- ináhersla er lögð á teikn- ingar og manneskjuna í list hans. • Ásgrímur Jónsson. Skólasýning stendur yfir í Ásgrímssafni þarsem sýndar eru myndir eftir Ás- grím Jónsson úr íslenskum « þjóðsögum. Opið um helg- arkl. 13.30-16. SÝNINGAR • Nútíð við fortíð nefnist viðamikil sýning í Þjóð- minjasafninu í tilefni 130 ára afmælis safnsins. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Kristína Haraldsdóttir prýðir grein um hreysti og megmnarkúra. Ykkur til fróðleiks stendur í þeirri grein að ekkert gagn sé af því að fækka við sig kal- oríunum, það sé minnkandi fituát sem blrvur. Snæfríður Baldvinsdóttir auglýsir hársnyrtivörur sem bera heitið V05 og sveiflar hárinu líkt og Anna Bjöms gerði þegar hún auglýsti Vidal Sassoon. Það er ekki á hverjum degi sem tvær ís- lenskar fyrirsætur prýða sama erlenda tímaritið. I septemberhefti breska tísku- tímarítsins Company eru bæði myndir af þeim Kristínu Haraldsdóttur og Snæfríði Baldvinsdóttur Hvorug myndin er afgerandi stór en báðar standa þær fyrir heilbrigði. Myndin af Kristínu er notuð til þess að prýða grein um heilsubyltinguna. Snæfríður er hins vegar að auglýsa sjampó og sveiflar hárinu líkt og Anna Björnsdóttir gerði þegar hún var að auglýsa hársnyrtivörurnar frá Vidal Sassoon. Við vitum mest lítið um hagi þessara fyrirsæta í dag en hvað sem því líð- ur er nokkuð Ijóst að þær líta enn vel út. Og einhver tekur eftir þeim. hvaö fréttaþulir Sjón- varpsins viröast eiga í mikl- um erfiöleikum meö aö horfa í rétta myndatökuvél þegar þeir lesa kvöldfrétt- imar. Það klikkar ekki eitt einasta kvöld að fréttamaö- urinn tali út í loftið og geri sig að fífli frammi fyrir al- þjóð. hrmglaga aðskotahlutir felldir inn í munstrið. Symmetría hef- ur skotið upp kollinum í verk- um ungra myndlistarmanna undanfarið og hún hefur verið gegnumgangandi einkenni á verkum Daníels. í hans tilviki eru ástæðurnar líklega tvær. Flestir manngerðir hlutir í kringum okkur eru samhverfir og samhverfur falla að rétt- hymdu lagi myndrammans án þess að draga athyglina óþarf- lega mikið að myndbyggingu. Þeir hlutir sem liggja til hliðar við myndrammann gefa enn frekar til kynna nálægð þeirra hluta sem eru innan seilingar á heimilinu, skæri, gardínu- strengir, renndir hnúðar, fjalir, o.s.frv. Það sem lyftir verkunum upp er sérstæður karakter sem leynist í þeim. Annars vegar skiptast á leikaraskapur og mámleg léttúð listamannsins, en hins vegar alvörugefhi iðn- aðarmannsins; annars vegar grófgerð efhi og hversdagslegir hlutir, en hins vegar nostur við smáatriði og snyrtileg uppröð- un. Verkin em samt alveg laus við tilgerðarlega hvunn- dagsvæmni þótt þau búi yfir heimilislegum brag. Daníel virðist hafa orðið fyrir nokkmm áhrifum frá verkum MYNDLIST Myndveðrun GUNNAR ÁRNASON Hreins Friðfinnssonar á þessari sýningu. Báðir aðhyllast þá es- tetík þar sem mikið er lagt upp úr efnisáferð og þeirri tilfinn- ingu sem býr í fingurgómun- um, samruna forms og efhis. En að leita fyrirmynda og glíma við þær er bara eitt stig í frekari „hugsanaveðmn“ listamanns- ins. Daníel vinnur af alvöm og einlægni og bætir sig í hverju skrefi. DANÍEL ÞORKELL MAGNÚSSON KJARVALSSTÖÐUM Allir ættu að kannast við þá tilfinningu þegar maður fer niður í kjallara, gramsar í gömlu dóti og dettur niður á ómerkilegan hlut sem kveikir í einhveijum taugahnútum sem maður vissi ekki að maður ætti til. Það getur verið gömul mynd, leikföng, fatnaður, hús- gögn. Hluturinn virkar eins og efhahvati sem leysir úr læðingi löngu gleymd efnasambönd. Þetta getur jafnvel gerst við að koma inn í herbergi og finna lykt sem er svo kunnugleg að hún virðist tilheyra heimi minninganna. Þannig skil ég „hugsanaveðmn“ Daníels Þor- kels Magnússonar, nema að hjá honum gerist hún í öfuga átt. Daníel byijar með umhverfið í öllum sínum margbreytileika og lætur það veðrast, jafnt og þétt, þangað til ekkert verður eftir nema brot af ósamstæðri heild. Brotin eru hvorki eftir- myndir né myndlíkingar, þau „Þettageturjafnvelgerstvið að koma inn í herbergi ogfinna lyktsem ersvo kunnuglegað hún virðist tilheyra heimi minn- inganno. Þannigskil ég„hugsanaveðrun“Daníels Þorkels Magnússonar, nema að hjú honum gerist hún í öfuga átt. “ sýna okkur ekkert og líkjast ekld neinu sérstöku, en þeim er ætl- að að kveikja í réttu taugaend- unum og koma okkur í sam- band við týndar minnisffumur. Við getum auðvitað aldrei fundið sjálf það sem gerist í hugskoti Daníels. En þess vegna höfum við listamenn sem er ædað að gera hið ómögulega, að gefa okkur hlutdeild í per- sónulegustu upplifunum og horfhum heimum. Myndlist Daníels er ekki há- vær. Myndirnar sex á sýning- unni eru eins og þættir í kammerverki, lágstemmdar og grátóna. Þær eru hver um sig ólíkar en mynda samt samfellda seríu sem bendir til vandvirkni og allt að því ögunar í framsem- inga Hvert verk er sett saman úr ólíklegustu hlutum (assem- blage), en þó er kjölfestan blý- antsteikning á gráum karton- pappa innrömmuð á bak við gler. Línur, sveipir og hringir mynda samhverft, eða speglað, munstur og stundum eru

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.