Pressan - 16.06.1994, Blaðsíða 11

Pressan - 16.06.1994, Blaðsíða 11
2. Olafur Thors forsætisráð- 3. Bjarni Benediktsson forsæt- herra 21 isráðherra 20 5. Gylfi Þ. Gíslason ráðherra 15 6. Jóhannes Nordal seðla- Kanlractinri 1? 8.-10. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri 10 Steinn Steinarr skáld 10 4. Vigdís Finnbogadóttir forseti 16 7. Jóhannes Kjarval listmálari 11 Vilmundur Gyifason alþingis- maður 10 Chýðveldis- saga fyrír byrfendur 11. Einar Olgeirsson al- þingismaður 9 12.-14. Eysteinn Jónsson ráðherra 8 Lúðvík Jósefsson ráðherra 8 PálmiJónssoní Hagkaup 8 15. Sigurbjörn Einars- son biskup 7 16. -20. Hermann Jónasson forsætisráðherra 6 Jón Baldvin Hanni- balsson ráðherra 6 Jónas Jónsson frá Hriflu ráðherra 6 Jónas Kristjánsson ritstjóri 6 Kristján Eidjárn for- seti 6 Næstir komu: Ragn- ar Jónsson í Smára, Davíð Oddsson for- sætisráðherra, Hans G. Andersen sendi- herra, Sigurður Nor- dal prófessor og Steingrímur Her- mannsson seðla- bankastjóri, allir með fimm atkvæði hver; Guðbergur Bergsson rithöfund- ur, Hannibal Valdi- marsson ráðherra, Kristinn E. Andrés- son bókmennta- fræðingur og útgef- andi, Matthías Jo- hannessen ritstjóri og Páll ísólfsson tónskáld, allir með fjögur atkvæði hver. 1944 Allt byrjaði þetta auðvitað i roki og úr- heliisrigningu á Þingvöllum. 17. júní, klukkan tvö eftir hádegi, heyrðu nokkrir tugir þúsunda þegar hvass vindurinn sleit orðin út úr Gísla Sveinssyni, forseta Alþingis: „Samkvæmt því, sem nú hefur greint verið, lýsi ég yfir því, að stjórnar- skrá lýðveldisins Islands er gengin í gildi." Ferfalt húrrahróp þúsundanna yfir- gnæfði veðurguðina — ballið var byrjað. Næst var gengið til forsetakjörs. Sveinn Bjömsson ríkisstjóri sat holdvot- ur í rigningunni. Svipur hans var óræður meðan þingforseti las af atkvæðaseðl- unum fyrir þingheim: Sveinn Björnsson, Sveinn Björnsson, Jón Sigurðsson... (Flér varð nokkur kurr meðal þúsund- anna sem héldu að þingmenn væru að kjósa dauða frelsishetju upp á grín.) Sveinn Bjömsson hlaut ekki nema 30 atkvæði af 60. Jón Sigurðsson frá Kald- aðarnesi, skrifstofustjóri Alþingis, hlaut fimm atkvæði og fimmtán skiluðu auðu. Tíu þingmenn sósialista tóku þannig ekki afstöðu og nokkrir sjálfstæðismenn (Ólafur Thors og fleiri) greiddu Jóni at- kvæði vegna gamalgróinnar óánægju með Svein. En hvað um það: Sveinn Bjömsson var réttkjörinn forseti lýðveld- isins íslands. Ólafur Thors myndar Nýsköpunar- stjórnina frægu með sósíalistum og al- þýðuflokksmönnum. Þar með komust kommar i fyrsta sinn í stjómarráðið — en eina utanþingsstjórn íslandssögunn- ar pakkaði saman. Ríkisstjómin bretti upp ermarnar og byrjaði strax að eyða stórkostlegum stríðsgróða. Þetta mun hafa verið eftirlætis ríkisstjórn Ólafs Thors og myndaði hann þó einar fimm og sat í enn fleirum. Þýskur kafbátur sökkvir Goðafossi á Faxaflóa. 23 fórust. Marlene Dietrich kemur til (slands að skemmta amerískum hermönnum. Hún gerðist lika fyrsti íslandsvinur lýðveldis- tímans og lýsti því yfir að ísland og Grænland ættu að hafa nafnaskipti. 1945 Jóhannes Kjarval opnar sýningu i Listamannaskálanum og selur 33 myndir á tuttugu minútum. Þetta voru stríðsgróðatímar. Nonni deyr. Hann var einn vinsælasti rithöfundur íslandssögunnar. Nonna- bækurnar voru þýddar á rúmlega þrjátíu tungumál. Auk þess var hann jesúíti. Sthðinu lýkur I Evrópu og Danmörk losnar undan oki nasismans. Á frelsis- daginn taka nokkrir Danir sig til og drepa rithöfundinn Guðmund Kamban á veitingastað í Kaupmannahöfn. Hann var grunaður um samvinnu við nasista. Lokaorð hetjuskáldsins voru: „Saa skyd!" 1946 ísland gengur í Sameinuðu þjóðirnar. Jónas Jónsson frá Hriflu flytur tillögu á Alþingi um að lögreglunni verði útveg- aðar kvikmyndavélar til þess að taka myndir af fyllibyttum og óeirðamönnum — sem fengju síðar að sjá myndimar „i betrunarskyni". Sjálfstætt fólk eftir Laxness kemur út í Bandaríkjunum og fær fína dóma. íslendingar leika fyrsta landsleik sinn í knattspymu; gegn Dönum á Mellavellin- um. Snemma beygðist krókurinn: Við töpuðum, 3-0. Alitsgjafar: Anna Ólafsdóttir Bjömsson alþingismaður, Auð- ur Eir Vilhjálmsdóttir prestur, Ámi Bjömsson þjóð- háttafræðingur, Bogi Ágústsson íréttastjóri, Gísli Sig- urðsson starfsmaður á Ámastofnun, Guðjón Frið- riksson sagnfræðingur, Hannes Hólmsteinn Gissur- arson stjómmálafræðingur, Kristján Þorvaldsson ritstjóri, Ólína Þorvarðardóttir, Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir mannfræðingur, Valgerður Bjama- dóttir viðskiptaffæðingur, Davíð Scheving Thor- steinsson iðnrekandi, Einar Karl Haraldsson ffam- kvæmdastjóri, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Ólafur Harðarson stjómmálaffæðingur, Ingi Bjöm Albertsson alþingismaður, Jón Kristjánsson ritstjóri, Bjami Guðmarsson sagnffæðingur, Matthías Bjamason alþingismaður, Broddi Broddason ffétta- maður, Margrét Indriðadóttir fv. fféttastjóri, Magn- ús Skarphéðinsson nemi, Gísli J. Ástþórsson blaða- maður, Gísli Gunnarsson sagnffæðingur, Óli Bjöm Kárason ritstjóri, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir al- þingismaður, Kristín Halldórsdóttir fv. alþingis- maður, Magnús Guðmundsson kvilunyndagerðar- maður, Helgi Hjörvar nemi, Elísabet Kristín Jökuls- dóttir rithöfúndur, Sæmundur Guðvinsson blaða- maður, Ingvi Hrafh Jónsson sjónvarpsmaður, Eirík- ur Hreinn Finnbogason bókmenntaffæðingur, Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntaffæðingur, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður, Ellert B. ScJiram rit- stjóri, Ingibjörg Haraldsdóttir rithöfúndur, Vil- hjálmur Hjálmarsson fv. ráðherra, Kristófer Svavars- son blaðamaður, Þorgrímur Þráinsson rithöfúndur, Lára Halla Maack geðlæknir, Viðar Eggertsson leik- hússtjóri, Einar Kárason rithöfúndur. Bein Jónasar Hallgrímssonar flutt heim frá Danmörku og lenda á undar- legu ferðalagi um landið. Eru að lokum flutt með lögregluvaldi frá Norðurlandi og jarðsett i „þjóðargrafreitnum" á Þing- völlum við hlið Einars Ben. Þar eru þeir félagar enn í dag einu íbúamir. 1947 Hekla gýs i fyrsta sinn í 102 ár. Fyrsti nýsköpunartogarinn, Ingólfur Amarson, kemurtil íslands. 25 manns farast með Douglas-Dakota- flugvél Flugfélags (slands á leið frá Reykjavík til Akureyrar. Nýsköpunarstjómin fellur og „Stefan- ía“ tekur við: Samstjóm krata, sjálf- stæðismanna og Framsóknar, undir for- sæti Stefáns Jóhanns Stefánssonar krataforingja. 1948 Þórunn Jóhannsdóttir, 8 ára, leikur einleik á píanó á tónleikum í Lpndon með sjálfri Sinfóníuhljómsveit Lundúna. Baldur Möller verður skákmeistari Norðurlanda. íslendingar gerast aðilar að Marshall- samningnum. Það tryggir okkur hag- stæð lán og efnahagssamvinnu. Vel að verki staðið hjá eina ríki Evrópu sem stórgræddi á stríðinu. 1949 Allt fer í bál og brand á Austurvelli þeg- ar Alþingi samþykkir aðild (slands að NATO. Grjótkastið dynur á þinghúsinu þar sem flestar rúður brotna. Lögreglu- sveitir beita kylfum og táragasi. Fyrsta íslenska talmyndin frumsýnd, Milli fjalls og fjöm, eftir Loft Guðmunds- son. Ríkisstjómin „Stefanfa" lognast út af og Ólafur Thors myndar minnihluta- stjóm Sjálfstæðisfiokksins. V J FIMMTUDAGURINN 16. JÚNÍ1994 PRESSAN 11

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.