Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Vķsir Sunnudagsblaš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Vķsir


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Vķsir Sunnudagsblaš

						VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ

Francisco Franco.

Francisco FránCo, höfuðleiö-

tógi spænskra uppreistar-

inanna, er meðál þeirra, sem

mest er uni rætt á yfirstandandi

tíma. Það er sagt, að foreldrar

híins baf i gert sér vonir um það,

Francisco Franco.

er hann yxi upp, að hann yrði

listmálari — og að hann mundi

ílendast á æskustöðvum sínum.

En þessar vonir rættust ekki.

Franco gerðist hermaður. Og

það má í rauninni segja, að

hann hafi verið hermaður frá

14. aldursári. Þá var hann bú-

inn að ákveða með sjálfum sér

hvað hann ætlaði að verða.

Hann var þá þegar staðráðinn í

að verða hershöfðingi — fræg-

ur hershöfðingi, eins og Napóle-

on og slikir menn. Og frægð

hefir hann hlotið, sem dugandi

herforingi, bæði áður en styrj-

öldin iá Spáni hófst og síðar, en

enn er alt í óvissu um, hvort

hann nær þvi márki, er hann

hefir sett sér, að brjóta aUan

Spán og önnur lönd Spánverja

undir einræðisvald sitt. Fyrir-

myndir Frahco's eru þeir Hitler

og Mussolini og það er engum

vafa undirorpið að Franco

muni sníða stjórnarfyrirkomu-

lagið að talsvert miklu leyti eft-

ir því, sem nú tíðkast á ítalíu

og í Þýskalandi, en þó nokkuð

hreytt vegna ólíkrar skilyrða að

ýmsu leyti á Spáni.

Franco er fæddur 2. desem-

ber 1892 í Ferrol. Hann gerðist

nemandi i herskóla 14 ára að

aldri. Þegar hann var 24 ára

gamall var hann orðinn major

í spænska hernum og hershöfð-

ingi, er hann var 32 ára. Hafði

enginn maður þá hlotið herfor-

ingjatign jafn ungur í sögu

Spánar.

Franco varð fyrst frægur

sem herf oringi í Marokko. Kom

þar snemma i ljósj að hann var

öruggur í vörn, og jafnframt,

að hann var fljótur að læra af

bardagaaðf erðum Mára — og

notaði þær óspart i baráttunni

gegn þeim. Og hann sýndi and-

stæðingum sínum enga misk-

un, ef þvi var að skifta, frekar

en Márar sjálfir. Márarnir hafa

haft þau kynni af Franco að

þeir virða hann mest þeirra

herforingja frá Spiáni, sem þeir

hafa átt i höggi við. Hafa þeir

og margir snúist til fylgis við

hann og getur Franco þakkað

það stuðningi þeirra hve vel

honUm varð ágengt lengi vel, í

bardögunum við ]ið stjórnar-

innar.

Franco er svo lýst, að hann

sé maður f remur lágur vexti og

allgildvaxinn. Augu'hans virð-

ast bera draumlyndi vott og

bros hans er kvenlegt. En þetta

skyldi engan villa, því að Franco

á stálvilja og er maður harður

og óvæginn, þegar þvi er að

skifta. Hann hefir óbilandi trú

á sjálfum sér. Hann telur vist,

að öll sín áform muni hepnast.

Franco er maður, sem býr

yfir hvorttveggja, viðkvæmni

og góðvild á annatí bóginn, en

miskunarleysi og hörku á hinn.

Hann er sagður svo mikill dýra-

vinur, að hann taki það mjög

nærri sér, ef hann sér skepnu

sæta illri meðferð. En hann

vilar ekki fyrir sér, í hernaði, að

láta flugvélar sínar varpa

sprengikúlum yfir óvíggirta

borgarhluta. I styrjöldinni er

engin miskunn sýnd. Það er

ekki einstaklingurinn Franco

sem gefur fyrirskipanir um

sprengjuárásir, heldur hermað-

urinn.

Hár Franco er tekið mjög að

grána. Hann hefir lagt mikið á

sig i styrjöldinni, dvalist ým-

ist í aðalbækistöð uppreistar-

manha eða á vígstöðvunum

sjálfum. „Eg hætti ekki fyrr en

eg hefi náð öllum Spáni á mitt

yald og Marxistar hafa verið

sigraðir svo rækilega, að þeir

geta ekki brotist til valda af tur."

Franco var lengi vel — og er

kannske enn — konungssinnl.

Komist hann öl valda getur vel

verið að hann geri Spán að kon-

ungsríki — en Franco ætlar sér

að vera eins miklu raðandi á

Spáni og Mussolini á Itahu þar

fyrir.

Þegar lýðveldið var sett á

stofn vakti það mikla furðu, að

Manuel Azana, þáverandi her-

málaráðherra, lét ekki Franco

fara frá. Hann er hermaður en

ekki sljórnmiálamaður, sagði

Azana þá, en honum yfirsást

hrapallega. Franco er hka all-

slyngur stjórnmálamaður. Og

þegar hægri flokkarnir komust

til valda ef tir kosningarnar

1933 gerði Gií Robles hermála-

ráðherra Franco að yfirmanni

herráðsins. Margir ætla nú, að

meðan Franco þjónaði lýðveld-

inu, sem fylkisstjóri á Balear-

eyjum, yfir hershöfðingi í Mar-

okko og yfirmaður herráðsms,

hafi hann byrjað að undirbúa

byltinguna, sem hófst s. 1. sum-

ar og leiddi til yfirstandandi

styrjaldar. — I febrúar 1936

gerði samsteypustjórnin hann

að yfirhershöfðingja á Kanar-

isku eyjunum — hún treysti

honum ekki vel. En það var um

seinan, að flytja hann svo langt

á brott. Hann kom aftur heim

til Spánar — á hvern hátt og

með hvaða afleiðingum er öll-

um kunnugt.

Rússar og Japanir

kaupa llugvélap í stórum stíl

f Bandaríkjunum.

Búist   við   styrjöld   milli

Rússa annarsvegar og Jap-

ana og Þjóðverja hinsveg-

ar í náinni framtíð.

Amerísk blöð segja frá því,

að Rússar og Japanir kaupi nú

flugvélar í Bandarikjunum í

mjög stórum stíl. Rússar þó

enn meira, eða nálægt þvi 2

a móti hverri einni, sem Jap-

anir kaupa, eftir því, sem næst

verði komist. Auk þess, segja

blöðin, er unniðdag og nótt i

rússneskum flugvélaverksmiðj-

um, vegna þess, að alment er

búist við, að i náinni framtíð

brjótist út styrjöld milli Rússa

annars vegar og Japana og

Þjóðverja hinsvegar. Rússar

hafa þegar keypt flugvélar í

Bandaríkjunum fyrir eina mil-

jón dollara, en Japanir fyrir

um 600.000 dollara. Flugvélar

þessar eru ekki skrásettar sem

hernaðarflugvélar, en sérfræð-

Farþegaflugvél. Amerísk gerð.

Farþegaflugvél af rússneskri gerð.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8