Vísir Sunnudagsblað - 03.01.1937, Blaðsíða 6

Vísir Sunnudagsblað - 03.01.1937, Blaðsíða 6
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ 6 Sumarkvöld við Kyrrahaf. Eftir Richard Beck. Himinsins rauðagull í vestri glitrar, geislar um turna skýjaborga leika; Ijósstraumum hyljast höfuð grænna eika; húmdökkur sær í logni kvöldsins titrar. Borgin, sem stjömuhaf, við hæðafætur, heillandi skín, í dalsins mjúkum örmum; deplar mót heiðu lofti ljósahvörmum; lágt herst að eyrum skóhljóð kyrrar nætur. Söngþrestir hvislast; sefur rós í skóg; svefnhöfgar bárur vaggast hægt að ströndum. Draumblíð í fjarlægð rísa risafjöll. Vegmóðum huga vekur týnda ró, * vondjarfa sýn að nýjum draumalöndum, svipmikil tign í sumarkvöldsins höll. sagt, en kvaðst líta svo á, að fregnir um auðlindir á norð- urhluta Karafuto, væri orðum auknar, og heppilegra væri fyrir Japani, að nýta sem best þann hluta Karafuto, sem þeir eiga, heldur en að reyna að eignast norðurhlutann. Einhver hin merkasta stofn- un á Karafuto, er rannsóknar- stofnun í þágu atvinnuveg- anna. Hún er í Toyohara, og eru byggingarnar miklar og í nútímastíl. Þarna er unnið að rannsóknum í þágu allra lielstu atvinnugreinanna, og starfa þar tiu sérfræðingar og um 20 aðstoðarmenn. Hús stofnunar- ínnar eru fyrir utan Toyohara og hefir hún allmikið land- svæði til umráða. Á því er m. a. fyrirmyndarbýli, og fara þar fram ýmiskonar athuganir við- víkjandi húsdýra- og jarðvegs- fræði o. m. fl. Stofnun þessi vinnur að úrlausn ýmissa við- fangsefna, sem öll eru innifal- in í 15 ára áætlun, sem lögð var 1933, til þess'að koma fram margskonar umbótum á Kara- futo. 1 fyrrnefndri stofnun hafa rannsóknir leitt í ljós, að á Karafuto er vel hægt að rækta harðgerðar hveititegundir, eins og ræktaðar eru i Kanada, og er hveitið ágætt til brauðgerðar Þá hefir stofnunin haft með höndum rannsóknir, að því er silfurrefarækt snertir, sém er orðin mikilvæg auka-landbún- aðargrein á Karafuto. Á Karafuto eru nú um 10.- 000 silfurrefir, og þrátt fyrir nokkuð óstöðugt verðlag á silfurrefaskinnum, hafa bænd- ur hagnast á silfurrefarækt. Eins og kunnugt er, kvarta Japanir mjög yfir því, að þröngt sé heima fyrir. Þeir segjast verða að fá ný lönd til umráða, vegna þess, hversu fólksfjölgunin er mikil. Þetta er án efa ein liöfuðorsök þess, að þeir hafa raunverulega lagt Mansjúríu undir sig (og áður Kóreu), en ekki hefir enn feng- ist nein úrlausn til frambúðar á þessum málum, og veldur þar um mikið, sem áður var gert að umtalsefni, að Japan- ir, sem flytja þangað, sem lofts- lag er kalt á vetrum, eins og i Mansjúríu og Karafuto, una þar fæstir eins vel liag sínum og heima, þótt að vísu margir komist þar vel áfram og ílend- ist þar. Á Karafulo er, að þvi er sér- fræðingar ætla, rúm fyrir 200 —300 þús. japanska landnema til viðbótar, ef þess er vel gætt, að skipuleggja landnájnið s'em Það var hlýr og fagur maí- dagur, logn og hlíða. Sjórinn var spegilsléttur, fuglarnir sungu og það var vor í lofti. Þormóður .Sveinsson guðfræði- nemi gekk í þungum hugsun- um eftir Vesturgötunni. Hann bjó vestur á Seli, hjá Sigmundi járnsmíðameistara og Þor- hjörgu konu hans. Sigmundur var rikur maður og átti liúsið, sem þau hjönin hjuggu í. Hann var hættur áð vinna, enda hníg- inn á efri aldur. Tvo syni áttu þau hjónin. Þeir höfðu lært járnsmíði hjá föður sinum og voru teknir við smiðjunni. Báð- ir voru þeir kvæntir. Þormóður fór beínt heim að Seli og þegar hann kom inn í herbergi sitt, fleygði hann sér niður á legubekkinn og stundi þungan. Honum fanst, að hann gæti ekkert um liugsað nema þetta eina, að Sólrún var horfin af lífsleið hans. Þau höfðu verið mikið saman þennan síðastliðna vetur. Hann hafði boðið henni á stúdenta- dansleikinn fyrsta desember, og margt fagurt mánakvöldið höfðu þau gengið suður í Öskju- hlíð eða vestur fyrir bæ. Sól- best, og velja þá menn til land- námsins, sem til þess eru falln- ir. Ennfremur er það nauðsyn- lega, að hagnýting náttúruauð- æfa landsins fari fram á skipu- lagsbundinn hátt, og er stöð- ugt stefnt í þá átt. Á Karafuto eru nú 336 þús. Japanxr. rún var ung og lagleg sveita- stúlka. Hafði hún alist upp í sveit og var búin að missa for- eldra sina. Fluttist hún þá til Reykjavíkur, til systur sinnar, sem var þar gift verslunar- manni, en Þormóður var vest- an af Snæfellsnesi. Þar átti hann foreldra.-Presturinn þar í sveitinni var föðurbróðir hans og hafði kent honum undir skóla. Hann var nú orðinn gam- all maður og vildi nú fara að hætta prestskapnum, en var að bíða eftir því, að Þormóður lyki námi, og þá ætlaði hann að fá hann fyrir aðstoðarprest. Svo átti hann auðvitað að fá brauð- ið, þegar hann segði af sér em- bættinu. Alt þetta hafði Þor- móður sagt Sólrúnui og margar myndir hafði hann dregið upp fyrir henni, þegar hann var að lýsa náttúrufegurðinni á Snæ- fellsnesi. Hún hafði hlýtt hug- fangin á það alt og Þormóði fanst alt leika sér í lyndi. Hann átti nú ekki nema einn vetur efitr, þegar þessi væri liðinn. Svona leið tíminn, þar til rétt fyrir páskana. Þá héldu verslun- armenn dansleik. SystirSólrúnar og maður liennar fóru þangað og buðu henni með sér. Þá var það, að Bjarni Finnsson, ungur maður, sem var á slajifstofu hjá föður sínum, Finni kaup- manni, varð á vegi Sólrúnar. Nokkurum dögum síðar hafði Bjarni boðið henni á bió Þetta hafði Þormóður frétt, og ekki nóg með það. Sólrún var hætt að vilja fara út með honum og ekki hafði hún viljað fara með honum á sumardansleik stú- denta, svo hann hafði þá farið einn. En það kvöld hafði hún farið í leikhúsið með Bjarna. Þorhjörg húsfreyja hafði sagt honum það. Þau höfðu farið þangað, gömlu hjónin með son- um sínum og tengdadætrum og höfðu setið ú nsesta bekk við þau. Oft hafði Sólrún komið að Seh til Þormóðar og Þor- hjörg alt af tekiö vel á móti henni, því hún taldi engan efa á því, að hún væri konuefni hans. Það var komið kvöld og enn lá Þormóður á legubekknum úrvinda af sorg. Þá kom Þor- björg inn til hans og sagði: „Mig langar til að tala við þig nokkur orð, Þormóður minn.“ Hann bauð henni sæti. Hún settist niður og sagði: „Mér þykir það leitt hvað illa liggur á þér og aldrei hefði eg trúað þvi, ef eg hefði ekki séð það sjálf, að Sólrún tæki Bjarna fram yfir þig, já, það má oft sananst, að alt er í heiminum hverfult. Reyndu að gleyma. „Eg býst ekki við, að mér gangi það vel“, sagði Þormóður. „Þú verður að láta skynsem- ina hjálpa þér til þess, góði minn. Og svo er nú annað. Þau eru ekki orðin hjón, Sólrún og Bjarni. Hann hefir lengi stein- inn klappað hann Bjarni þó hann sé ekki nema 22 ára, þvi það get eg sagt þér að hann er ekki við eina fjöl feldur og best gæti eg trúað því, að hann hætti bráðum að vera með Sólrúnu og tæki sér aðra.“ „Hvað um það, allar mínar fegurstu og bestu vonir eru horfnar með Sólrúnu,“ sagði Þormóður. „Láttu mig ekki lieyra þetta,“ sagi Þorbjörg. „Þú, ungur mað- urinn, gáfaður, mentaður og laglegur eða með öðrum orðum sagt öllum þeim kostum búinn, sem einn mann mega mest prýða. Það vantaði bara, að þú færir að eyðileggja þig út af þessu, þú ert ekki sá eini sem getur sagt eins og Jón Thor- oddsen: „Kvennageð verður kannað seint.“ Eg er viss um það að liamingjan sleppir ekki af þér hendinni og svo skulum við ekki tala meira um þetta í kvöld,“ sagði Þorbjörg og stóð upp og fór fram í eldliús. Þormóði fanst dálítll léttir að Idusta á það sem Þorjörg sagði, en vænst þótti honum þó um þessi orð hennar: „þau eru ekki orðin hjón, Sólrún og Bjarni.“ Hann háttaði snemma og las Ferðalok Jónosar hvað *

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.