Vísir Sunnudagsblað - 06.09.1942, Blaðsíða 1
1942
Sunnudaginn 6. september
29. blað
„Baslið og erfiðleikarnir
þroska mann....“
Fréttaritári vor á Siglufirði birtir hér viðtal við hinn
landskunna dugnaðar og atorkumann Óskar Halldórs-
son, útgerðarmann, í tilefni af 25 ára starfsafmæli hans
á Siglufirði. Þar sem þetta viðtal Óskars nær aðeins
til fgrsta starfsárs hans á Sigiufirði, vill blaðið bæta
því við, að það var Óskar Halldórsson, sem var frum-
kvöðull að byggingu Síldarverksmiðja Ríkisins, enda
skrifaði hann um það grein í Vísi fyrir um það bil 18
árum, byggði hafskipabryggjii í Keflavík, er orðið hef-
ir lyftistöng fyrir þorpið og hafði útgerð við Grænland
1936 á mb. „Snorra goða“, í sambandi við „Arctic“,
sem nú er eign Fiskimálanefndar. Byggði Öskar hús í
Færeyingahöfn í Grænlandi og var nær fluttur þangað.
Eins og öllum er kunnugt orðið, hefir Óskari nýlega
verið veitt leyfi til þess að byggja 5000 mála síldarverk-
smiðju á Siglufirði, og hefir hann keypt miklar lóðir
til þeirrar starfrækslu. Óskar blaðið þess, að honum
auðnist að framkvæma þessa miklu nauðsyn fyrir sjávar-
útueginn, land og þjóð.
— Viltu ekki segja okkur eitt-
hvað' frá því, er þú komst fyrst
hingað til Siglufjarðar?
— Á hverju vori, þegar eg kem
til Siglufjarðar og hitti Andrés
Hafliðason, hefir hann i hvert
skipti og við höfum, hitzt og
heilsazt látið fylgja söm,u setn-
inguna: „Eg gleymi því aldrei,
er þú komst fyrst til Sigluf jarð-
ar“, og svar mitt hefir alltaf
verið það sama, að því gleymi eg
heldur aldírei, þegar eg líitti
hann fyrst, því það er svo eftir-
minnilegur dagur í lífi mínu. Og
er eg kom liingað í sumar minnti
Andrés mig á, að nú væru liðin
25 ár síðan eg kom fyrst til
Siglufjarðar með lifrarbræðslu-
áhöldin, og að hann hafi þá ver-
ið innanbúðarmaður í Gránu.
— Þú hélzt á dögunum nokkr-
um gömlum Siglfirðingum og
eldri starfsmönnum þínum, frá
Siglufjarðarveru þinni hóf að
Hótel Hvanneyri?
— Svo á það víst að heita. Það
var þetta hlýja og góða viðmót
Andrésar, er örfaði mig til þess,
því að það var margs að minnast
frá þeim tímum.
— Ertu ekki búfræðingur og
gamall garðyrkjumaður?
— Jú, það er eg, þó aíS eg sé
ekki úr sveit. Eg er fæddur á
Akranesi 17. júni 1893. Fór það-
an 10 ára gamall til Reykjavik-
ur, 14 ára fór eg á Búnaðarskól-
ann á Hvanneyri. Að loknu námi
þar fór eg til Danmerkur og
stundaði garðrækt. Eftir heim-
komuna frá Danmörku hafði
eg garðrækt að Reykjum í Mos-
fellssveit árin 1913—1914 og
notaði hverina og jarðhitann til
framdiáttar garðræktinni á ein-
faldan og „praktiskan" hátt.
Árið 1915 sótti eg um plæg-
ingar-jarðabótastörf hjá Bún-
aðarsambandi Kjalarnesþings
og fékk þau. Voru þá húsbænd-
ur mínir þeir Björn í Grafar-
holti og Magnús heitinn á Blika-
stöðum. Og nú, er eg ek eftir
Hafnarfjarðarveginum eða Suð-
urlandsbrautinni upp í Mos-
Oskar
Halldórs*
son
útg:erdar-
I I
fellssveit, sé eg þar marga fall-
ega sáðsléttu og græna bletti,
sem til eru fyrir störf mín það
ár. M. a. kenndi eg þá Jóni heitn-
um Kristjánssyni, lagaprófessor,
að plægja. Eg held að það sé
einhver hinn viljasterkasti mað-
ur, sem eg liefi fyrir liitt. Þórð-
ur læknir á Kleppi sagði mér
það, að hann hefði fengið hjá
mér óvenju mörg ódýr dagsverk
í jarðabótavinnu minni á Kleppi
það ár. Eg veit, að Þórður er
góður læknir og búmaður i báða
enda. Frá þessum tíma hefir
Þórður haldið órjúfandi tryggð
við mig.
Þetta sama sumar var eg
einnig hrossakaupmaður, hélt
marga hrossamarkaði víðsvegar
á Suðurlandi og seldi nokkur
hundruð hross til útlanda.
— Hvernig féllu þér þessi
störf?
— Mér féllu þau eiginlega
ekki rétt vel. Komst sannast að
segja óvart inn í landbúnaðinn,
því að eg var sendur í sveit að
Hvanneyri um vorið, er eg
fermdist sem baldinn Reykja-
víkur-drengur. Svo var það
hreinasta tilviljun, að eg skipti
um atvinnuveg, sem líkast til
hefir orðið til þess, að flytja
mig til Siglufjarðar.
— Hvað var það?
— Eg liitti fyrir liluta vetrar
1916 geðveikan mann, sem bað
Mynd þessi er tekin af Óskari Halldórssyni á Bakkevigs-stöðinni
á Siglufirfri, sem er rétt sunnan viö Síldarverksmiöjurnar, þar
sem Óskar hefir ætlaö nýrri síldarverksmiðju stað.