Vísir Sunnudagsblað - 19.11.1944, Blaðsíða 1

Vísir Sunnudagsblað - 19.11.1944, Blaðsíða 1
1944 Sunnudaginn 19. nóvember 32. blað I»órdnr Kristleifsson: HARALDUR SIGURÐSSON PÍANÓLEIKARI ,,Vort land er í dögun af annarri öld. Nú rís elding þess tíma, sem fáliðann virðir.“ Þegar liinn mikli þýzld tón- meistari Friðrik Hándel, tutt- ugu og fimm ára að aldri, hafði öðlazt fullkomnustu tónlistar- menntun bæði í Þýzkalandi og á Italiu, varð hlutskipti hans að setjast að í framandi borg —, Lundúnum, og átti hann þar heima jafnan síðan. Er alþekkt fyndni meðal Þjóðverja að spyrja: „Vitið þér hvert var mesta tónskáld Englendinga?“ Spyrjandinn svarar sér svo sjálfur: „Það var Þjóðverjinn Friðrik Hándel.“ Þetta virðist hvorttveggja í senn spaug og öfugmæli. Sannleikurinn er þó sá, að listamanns sigur sinn átti Hándel elcki siður Englending- um að þakka en Þjóðverjum, og af Englendingum hefir minn- ingu hans verið sýnd meiri ræktarsemi en titt er, að tón- listarmönnum sé í té látin í föð- urlandi sínu. Má i þvi sambandi m. a. minna á hinar miklu tón- listarhátíðir, er Englendingar haldá fjórða hvert ár til minn- ingar um Hándel og flytja þá Messías eða önnur stórtónverlc meistarans. En þótt Þjóðverjar hafi þarna orðið eftirbátar Eng- lendinga í ræktarsemi, gleymdu þeir ekki Hándel og þeim er mjög á móti slcapi að láta Eng- lendinga eigna sér hann. Er líkt á lcomið með sumum menntuð- ustu og snjöllustu tónlistar- mönnum okkar. Nám sitt hafa þeir orðið að stunda erlendis, og þar hafa þeir starfað að námi loknu, sumir við frábær- an orðstír. Þannig var þessu háttað um Sveinbjörn Svein- björnsson, Harald Sigurðsson og fleiri. Þótt þær þjóðir, sem þessir listamenn hafa einkum dvalizt með, hafi tekið þeim opnum örmum, haft list þeirra í há- vegum og eflt þá til dáða, ætti þó eigi að siður að vera metn- aðarmál okkar að halda nafni þeirra á lofti og fagna þvi af al- hug, að við eigum sanna lista- menn, sem ekki hafa aðeins með afrekum sínum getið sér góðan orðstir, heldur og aukið mikillega hróður þjóðar sinnar. Láta mun nærri, að Haraldur Sigurðsson frá Kaldaðarnesi eigi um þessar mundir tuttugu og fimm ára starfsafmæli sem tónlistarmaður, og þó er hann ekki nema rúmlega fimmtugur að aldri. Er því eigi úr vegi á þessum merku tímamótum í ævi hans að rifja upp örfáa þætti úr námsferli hans og at- höfnum á sviði tónlistarinnar. Haraldur Sigurðsson fæddist í Hjálmholti í Flóa 5. mai árið 1892. Hann er sonur Sigurðar Ólafssonar, er var sýslum. Ár- nesinga, og konu hans, Sigriðar Jónsdóttur, systur hins nafn- kennda sæmdarmanns Halldórs í Vik. Haraldur var á fyrsta ári, er foreldrar hans fluttust á höfuðbólið, Kaldaðarnes í Flóa. Þar ólst Haraldur upp. Hann var mjög ungur, er það vakti alveg sérstaka athygli á óvenju- legum tónlistarhæfileikum hans, hversu heyrn hans var skörp að greina nákvæmlega hæð tóna. Þótt hann heyrði t. d. fimm til sex tóna í senn, mismunandi að hæð, gat hann sagt nieð vissu, hvaða tónar á hljóðfærinu það væru, án þess að sjá þá. Hann mundi svo ör- ugglega utan að hæð hvers tóns, að hann gat eftir vild byrjað hann nákvæmlega í réttri hæð. Þessa Mst lék hann þráfaldlega og sannaði saman- burður á hljóðfærinu, hversu óskeikull hann var. Það hefir jafnan þótt djarft að eggja Islendinga til þess að leggja leiðir sínar út á lúna þyrnum stráðu listamanns- braut, enda þótt hæfileikar væru alveg ótvíræðir. Fyrir nálega fjórum áratug- um var ekki um auðugan garð að gresja i islenzkum tónhstar- heimi. Voru þá ólíkt minni möguleikar en nú til að afla sér undirbúningsmenntunar hér heima, er byggðist á fræðum sanm’ar listar. Var því óumflýj- anlegt að leita til framandi landa til náms, og varð Kaup- mannahöfn venjulega aðalað- setursstaður — menntasetur — Islendinga, er námu erlendis á þessu tímabili. Tónlistargáfur Haralds Sig- urðssonar vöktu aðdáun mjög margra. Foreldrum Haralds mun því snemma hafa leikið hugur á að veita honum æðri tónlistarmenntun en völ var á hér á landi, og munu þar einnig hafa komið til áeggjanir ýmissa manna, er til hans heyrðu og gott skynbragð báru á tónhst. Sextán ára að aldri, eða árið 1908, fór Haraldur því utan til tónlistarnáms og settist í hljóm- listarskólann í Kaupmannahöfn um haustið. Hjá föður sínum hafði hann lært litilsháttar að leika á stofuorgel, annan undir- búning hlaut hann ekki í þess- ari grein. Árið 1912 lauk Haraldur Sig- urðsson prófi í píanóleik við hljómlistarskólann í Kaup- mannahöfn. Kennari hans í pí- anóleik hafði verið Mary Schou. Jafnframt lauk hann prófi í organleik hjá prófessor Otto Malling. Síðan lagði Haraldur Sigurðsson leið sína til Dres- denar, hinnar undurfögru höf- uðborgar Saxlands, á bökkum Saxelfar. — Settist hann þar í hljómlistarskólann. Aðalkenn- ari hans var frú Roppoldi- Kahrer. En hún hafði numið HARALDUR SIGURÐSSON píanóleik hjá sjálfmn meistara píanósins, Franz Liszt, og hafði hún á sér mikið orð sem aðsóps- mikill, skörulegur og hámennt- aður kennari 1 píanóleik. Enda tók hún eigi aðra til náms 'en þá, sem af báru og áttu sigur- inn visan sem listamenn. I þessum seinni áfanga náms- ferils sins dvaldist Haraldur frá 1912—1918. Á þessu tímabih var hann þó eitt ár heima (1914 :—15) sökum styrjaldarinnan 1 Á námsárum sinum keppti Haraldur Sigurðsson í Berlín um Mendelssohnsverðlaunin, og bar hann þar glæsilegan sigur úr býtum. Er óþarft að geta þess, að slík viðurkenning hlotnazt þeim einum, sem haf- inn er langt yfir aha meðal- mennsku í list sinni, þeim, sem er ekki aðeins listamaður í orði, heldur og á borði. Haraldur kom oft til Islands í sumarleyfum sínum, meðan hann var við nám, og hélt hann iðulega opinbera hljómleilca í Reykjavík og víðar, en dvaldist aðallega í Kaldaðarnesi þess á milli. Unnendur hljómlistar fögnuðu í hvert skipti einlæg- lega komu hans til ættlands- ins, og var tónflutningur hans jafnan stórmerkur viðburður í tónlistarlífi okkar. Eignaðist Haraldur marga aðdáendur, og

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.