Nýja dagblaðið - 13.12.1933, Blaðsíða 4
4
Bí Ý J A
DAGBLAÐIÐ
lilllllllllllllll
HJartans þakkir til allra, er auðsýndu samúS við andlát og
33
J kveSJuathöln Áma sonar okkar.
Ása og Jóhannes Norðfjörð.
fliillllliillll
Annall.
Skipafregnir. Gullioss er í Rvík.
GoÖaíoss fór írá Hull í gærkvöldi
á leið til Vestmannaeyja. Brúar-
ioss íór írá Vestm.eyjum 1 fyrra-
dag á leið til Leith. Lagaríoss er
á leið til Leith frá Austfjörðum.
Selfoss er í Reykjavík.
Alden, línuveiðarinn frá Stykk-
ishólmi, fer annaðhvort i dag eða
á morgun til Breiðafjarðar, með
vörui- og póst.
Fundur Framsóknaríélaganna í
gærkvöldi var mjög fjölmennur.
Jónas Jónsson alþm. flutti langt
og itarlegt erindi um starfsögu
Framsöguflokksins og lauk máli
sínu með því að gera grein fyrir
atburðum þeim, er urðu í flokkn-
um nú í þinglokin og hinu póli-
tíska viðhorfi eins og það nú er.
Var erindi hans tekið með dynj-
andi lófataki. — Að því loknu
hófust umræður og tóku margir
til máls. — Stjórnir félaganna
munu boða annan fund innan
skamms og sjá þá fyrir stærri
fundarsal.
Úr Keflavík. 4 bátar úr Keflavik
og 1 úr Njarðvíkum stunda nú
veiðar með línu. Afli hefir verið
með lakara móti, frá 1500 til 8000
kg. á bát.
Fisksalan. Kári seidi i Englandi
i fyrradag fyrir 316 sterlingspund,
Skallagrimur seldi fyrir 429 pund,
þórólfur fyrir 356, Leiknir fyrir
662, allir í Englandi í fyrradag.
í gær seldu, einnig í Englandi,
togaramir Haukanes fyrir 517
pund og Hannes ráðherra fyrir
616.
Ljóslaus reiðhjól. Lögreglan hef-
ir kært allmarga menn fyrir að
hjóla á ljóslausum reiðhjólum
eftir ljósatíma. Margir þessara
manna hafa verið látnir sæta að-
vörun. Ljósleysi veldur oft ökuó-
höppum og munu menn fram-
vegis verða látnir sæta sektum
fyrir þessi brot á lögreglusam-
þykktinni.
Gcstir í bænum: Helgi Jónasson
læknir á Stórólfshvoli, Björn Ein-
arsson bóndi á Neistastöðum og
Valdimar Jónsson Álfhólum.
Maður sá, sem brauzt inn í Á-
fengisverzlunina á dögunum hefir
nú játað, að hann hafi einnig
brotizt inil í Landsmiðjuna og
Kveldúlf. Einnig hefir hann sagt ■
írá þeim manni sem var með
honum að verki, og var hann
tekinn í gærkvöldi og settur í
gæzluvarðhald.
Frá Sigluiirði. Dettifoss fór það-
an kl. hálf ellefu í gærmorgun.
Haiði hann losað þar 200 smá-
lestir aí vörum, og var helming-
ur þeirra gjarðajárn til tunnu-
verksmiðjunnar. Rafmagnsofnar
til kirkjunnar þar komu einnig
með skipinu. — Sundmeyjarnar
Sigríður Hjartar, Nanna þormóðs,
og Guðný Lárusdóttir synda þar
daglega í höfninni hvernig sem
viðrar. — FÚ.
Jólasýningamar eru byrjaðar.
Var fyrsti jólasýningardagurinn á
sunnudaginn. það er orðinn siður
hér eins og annarsstaðar í heim-
inum að vanda mjög til sýninga
í gluggum fyrir jólin, um það
leyti, sem jólasaian byrjar.
Nokkuð orðum aukið var það
hjá Alþýðubiaðinu í fyrradag, að
60 sendisveinar hefðu verið teknir
um helgina íyrir að hjóla ljós-
laust. Ekki voru teknir nema 20
menn, eftir upplýsingum frá lög-
reglustöðinni, og voru það ekki
nærri allt sendisveinar. Lögreglan
segir það mjöghættulegtfyrirhjói-
reiðamenn að hjóla ljóslaust, og
eí eitthvað verður að, eru þeir
heldur ekki í rétti sínum.
Hljómsveit Reykjavíkur. Fyrstu
hljómleikar Hljómsveitar Reykja-
víkur voru á sunnudaginn í Iðnó.
Hljómsveitin er að þessu sinni
stærri en hún hefir verið áður eða
um 30 manns. Viðfangsefnin voru
að þessu sinni meðal annars An-
dante Junedre eftir Karl Runólfs-
son, aria úr óperunni Don Juan
eftir Mozart og Symfonia eftir
Schubert, sem var það síðasta á
skránni og langstærsta verkið.
Einsöngshlutverkin úr óperunum
sungu þau frú Guðrún Ágústs-
dóttir og Sigurður Markan. —
Hljómleikarnir voru vel sóttir og
létu áheyrendurnir ánægju sína
óspart í ljósi.
Frá Vestmannaeæjum. 25 ára af-
mæli kvenfélagsins Líkn var hald-
ið á laugard. og hófst með borð-
haldi sem 180 manns sátu. For-
stöðukona, frú Ingibjörg Thedórs-
dóttir bauð gesti velkomna. En auk
þess töiuðu undir borðum síra
Jes Gislason og Ólafur Lárusson
héraðslæknir. Siðan var sýnd
kvikmynd og þar á eftir hélt Páll
Koika sjúki’ahúslæknir ræðu um
starí félagsins á liðnum árrnn, og
minntist stofnanda þess Halldórs
heitins Gunnlaugssonar héraðs-
iæknis. Félagið hefir gefið til ai-
menningsþarfa 65 þús. kr. par ai
til liknarstarfsemi 35.000. það hefir
styrkt ýms þarfafyrirtæki, t d.
gefið til sjúkrahúss bæjarins 23
þús. og nú á afmælinu gaf kven-
félagið 500 krónur til sundlaugar
Vestmannaeyja, sem nú er unnið
af kappi við, ennfremur gaf það
200 kr. til skreytingar Landa-
kirkju. Að ræðu Kolka lokinni
söng drengjaflokkur afmæiis-
kvæði eftir Hallfreð, sem félaginu
var sent, síðan var dansað til
morguns. — Fisktökuskipið Lyng-
stað tók á laugardaginn fisk frá
fisksölusamlagi Vestmannaeyja.
— Veðrátta er góð og blóm
springa út i görðum. — Bátar
hafa róið undanfarna daga, afli
er tregur. þó fengu bátar á laug-
ardag frá 200 til 800 kg. — FÚ.
Krónuvelta á Hvammstanga.
Kvenfélagið „Tilraun" hér á staðn-
um, hefir eftir ósk ungfnl Mar-
grétar Halldórsdóttur hjúkrunar-
konu sett á stað „krónuveltu" og
rennur allur ágóði hennar í
„Styrktarsjóð sjúkiinga" á sjúkra-
skýlinu hér, þann er stofnaður
var á síðastiiðnum vetri með
hinni rausnarlegu gjöf Margrétar.
Krónuveltar fer vel af stað, og er
útlit fyrir, að þátttaka verði all-
mikil, má því ætla, að styrktar-
sjóði þessum áskotnist við þetta
allrífleg upphæð. — FÚ.
Refarækt. Vaxandi áhugi er i
Húnavatnssýslu fyrir refarækt, og
eru þar starfandi fimm refabú.
Stærst þeirra er refabúið á
Hvammstanga, en í því eru 20
silfurrefir; 3 karldýr og 12 kven-
dýr. Norskur refaræktarmaður
hefir verið fenginn til þess að
hirða um dýrin í vetur. Auk þessa
eru í sýslunni nokkur minni refa-
bú, að Búrfélli í Miðfirði, Tanna-
stöðum og Hrútatungu í Hrúta-
firði, og Syðri-þverá í Vesturhópi.
Tvö hin síðasttölu hafa eingöngu
islenzka refi. — FÚ.
Félag bænda í JJverárhreppl í
Húnaþingi keypti á síðastliðnu
hausti karakúlhrút. Var verð hans
i-úmlega 1800 kr. — FÚ.
Tíðarfar hefir verið verið mjög
stillt í Húnavatnssýslu undan-
farið, stöðugt sunnanátt og hlý-
indi, enda er jörð marauð og
frostlaus með öllu. Vegir mega
heita fremur þurrir og því vel bíl-
færir, sem er óvanalegt á þess-
um tíma árs. — FÚ.
Skúli Guðmundsson endursk.
hjá Samb. ísl. samvinnufél., hefir
Þúsundir
uppreisnarmanna
handteknir á Spáni
Berlín kl. 11,45 12/12. FÚ.
Fréttastofan Havas segir þá
fregn frá Madrid, að þeir, sem
hafi verið teknir fastir út af
óeirðunum undanfarna daga,
skifti nú þúsundum. — Hafa
sérstakir dómarar verið skip-
aðir víðsvegar um landið til
þess að taka mál þessara
manna til meðferðar. — í húsi
einu í Madrid fundust í gær
48 sprengjur og vógu sumar
þeirra fimm kílógTÖmm.
London kl. 17 12/12. FÚ.
V egna uppreisnarhættunnar
á Spáni hefir stjórnin nú her-
vörð og lögregluvörð víðast-
hvar um landið, einnig þar sem
engra óeirða hefir orðið vart.
í gærkvöldi réðust uppreisn-
armenn í Saragossa á ráðhús
borgarinnar, en voru hraktir
burtu þegar brynvögnum var
beitt gegn þeim.
Fimm menn hafa verið hand-
teknir, í sambandi við járn-
brautarslysið sem nýlega varð
á brautinni milli Madrid og Se-
ville, nálægt Valencia.
Nobelsverðlaun'
um útbýtt,
London kl. 19.50 10/12. FÚ.
Svíakonungur afhenti í dag
í Stokkhólmi Nobelsverðlaunin
fyrir 1982, þeim Bunin, fyrir
bókmenntir, Thomas Hunt
Morgan, fyrir lífeðlisfræði og
læknisfræði, Heidenberg fyrir
eðlisfræði, og þeim P. A. M.
Dirak, Englendingi og Alvin
Schrödinger, Austurríkismanni,
vérðlaunin fyrir efnafræði.
verið ráðinn framkvæmdarstjóri
Kaupfélags Vestur-Húnvetninga
frá næstu áramótum að telja.
í Vestur-Húnavatnssýslu eru 100
útvarpsnotendur. Miðað við býla-
fjölda eru þeir hlutfallslega flestir
í Ytri-Torfustaðahreppi, en fæstir
í þverárhreppi. — FÚ.
Frá Sauðárkróki. Almennur
borgarfundur var haldinn hér síð-
astliðið föstudagskvöld og var þar
til umræðu, -hvort þorpið skyldi
kaupa jörðina Veðramót í Göngu-
skörðum, en þorpið á nú kost á
því. Nefnd var kosin til þess að
Varanleg jólagjöf er stækk-
uð ljósmynd. Ljósmyndastofa
Alfreðs, Klapparstíg 37, sími
4539.______________________
SALTFISKSBÚÐIN
er vel birg af
nýjum fiski.
Sími 2098.
Hillupappír, mislitan og
hvítan selur Kaupfélag Reykja-
víkur. Sími 1245.
Ef yður vantar góð og ódýr
húsgögn, þá munið Trésmiðj-
una á Frakkastíg 10, sími
4378.
Tryggið yður bökunaregg í
tíma.
Kjötbúð Reykjavíkur,
Vesturgötu 16. Sími 4769.
KJARNABRAUÐIN
Hafið þið reynt hið holla og
ljúffenga kjarnabrauð frá
Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík-
ur?
II Tilkynningar ]
Munið gullsmíðavinnustofi Þingholtsstræti 3. Guðl. Ma ússon. ma gn-
Munið að sími Herðubreiðar Fríkirkjuveg 7 er 4565. Þar fæst allt í matinn.
|| Atvinna II
Vanti fyrirtæki yðar m£ til skrifta eða annara starf jólaannríkinu eða lengur, hringið í síma 2323. mn a í þá
|| Húsnæði ||
Sólríkt herbergi til leigu Bergstaðastræti 82. á
Bílskúr til leigu. Uppl. síma 1895. í
Karlmaður óskar eftir her- bergi nú þegar. Einn eða með öðrum. Uppl. í síma 4928 eða 1999.
athuga þetta mál. — Kommúníst-
ar hér hafa byrjað að gefa út
blað. — Blaðið heitir Kotungur. —
í fyrradag veiddust hér 25 tunnur
af smásíld í einum drætti. Fiskur
er hér mikill. — FÚ.
RAUÐA HUSIÐ.
— O, það verður áreiðanlega nógu spennandi
hvað sem þessu líður, sagði Antony rólega og stakk
pípunni og tóbaksílátinu í vasa sinn. Jæja, nú skul-
um við fara niður. Ég er tilbúinn.
Cayley beið þeirra niðri í forstofunni. Hann kom
með kurteisisspurningar um það hvernig nýi gest-
urinn kynni við sig, og hófst nú samræða með þeim
öllum þremur um hús yfirleitt og Rauða húsið sér
í lagi.
— Þér höfðuð alveg rétt fyrir yður í þessu með
lyklana, sagði Bill, er hlé varð á viðræðunni. Hann
var ekki eins fimur eins og þeir hinir (ef til vill
sökum þess, að hann var yngri en þeir), þegar um
það var að gera að forðast að tala um efni sem
öllum var efst í hug.
— Lyklana, sagði C-ayley og lét sem hann vissi
ekki hvaðan veðrið stóð á hann.
— Við vorum í vafa hvort þeir stæðu í að utan-
verðu eða innanverðu.
— Já, það er rétt! Hann litaðist hægt um í for-
salnum, á hverja hurðina eftir aðra og leit svo bros-
andi á Antony og mælti vingjarnlega. Það lítur út
fyrir, að við höfum báðir haft á réttu að standa mr
Gillingham, svo ekkert hjálpar þetta okkur.
— Nei. Gillingham ypti öxlum. Ég hafði ekki at-
hugað þetta. En mér þótti vert að benda á það.
— Auðvitað. En ekki fyrir það, að þér hefðuð
ekki getað fengið mig á yðar mál. Rétt eins og
framburður Elsie gat ekki sannfært mig.
— Elsie? sagði Bill áfjáður.
Antony leit spyrjandi á hann, eins og hann vissi
ekkert hver Elsie væri.
— Ein þjónustustúlkan, skýrði Cayley frá. Heyrð-
uð þér ekki það sem hún sagði fulltrúanum. Eins
og ég sagði Birch, þá heíir þessháttar kvenfólk það
til að segja hvað sem vera skal, en hann virtist
þeirrar skoðunar, að henni væri alvara.
— Hvað var það þá eiginlega? sagði Bill.
Cayley skýrði frá því, sem Elsie hefði heyrt um
daginn.
— Þá voruð þér inni í bókaherberginu, sagði
Antony, fremur við sjálfan sig en við hinn. Hún
hefði getað gengið um forsalinn án þess þér yrðuð
varir við.
— Já, ég eíast ekki um, að hún hafi verið þarna
og heyrt eitthvert samtal. Ef til vill einmitt þessi
orð. En ... Hann þagnaði og bætti svo við óþolin-
móðlega: Þetta var hreint slys. Ég veit að það var
slys. Hversvegna ætti maður að þurfa að slá því
föstu að óreyndu að Mark sé morðingi.
í þessu var tilkynnt að maturinn væri til og í því
þeir gengu inn í borðsalinn bætti hann við: Hvað
gagnar það annart að tala umi þetta, þegar öllu er
á botninn hvolft?
— Það segi ég líka! svaraði Antony, og til mestu
vonbrigða fyrir Bill, ræddu þeir um bókmenntir og
stjórnmál meðan á máltíðinni stóð.
Jafnskjótt og þeir höfðu kveikt í vindlunum, bað
Cayley að afsaka það, að hann yrði að fara frá
þeim. Hann ætti annríkt, sem vonlegt var. En Bill
myndi hugsa um vin sinn. Og það var Bill líka til
með að gjöi*a. Hann bauð Antony í ballskák, eða
piquet, hvort sem hann vildi, sýna honum trjágarð-
inn og yfirleitt gjöra hvað eina, sem hann óskaði
eftir.
— Guði sé lof að þú ert hérna. Ég hefði ekki
getað haldizt við hérna einn míns liðs.
— Við skulum ganga út, sagði Antony. Það er
hlýtt úti. Við skulum ganga eitthvert þangað, sem
við getum setið um stund, spölkorn frá húsinu. Ég
vildi gjarnan spjalla dálítið við þig.
— Það er ágætt, hvað segir þú um að ganga út
á leikvöllinn?
— Ja, þú lofaðir að sýna mér hann einhverntíma.
i