Nýja dagblaðið - 04.04.1934, Blaðsíða 3
3
KÝJA DA.QBbAB lB
Spumingav
til borgavstjórans
verður haldið að Reykholti fra 10 —31. maí n.k.
— Einnig verða kenndar íþróttir, sund og
fimleikar.
Dvalarkostnaður yfir allan tíma,nn er kr. 50,00.
Stúlkur hafi með sér rúmföt.
Forstöðukona verður frú Theodóra Sveindóttir,
Þinghoitsstræti 24, Reykjavík.
Umsóknir sendist fyrir 1. maí til forstöðukon-
unnar eða undirritaðs.
Kristinn Stefánsson skólastjóri.
fæst leigð á Svaibarðseyri kprn-
andi sumar, ásamt bryggju, fólks*
íbúð og ef til viil geymsluhúsí.
Listhafendur snúi sér tii
- IvVV
| NÝJA DAGBLAÐIÐ |
| Útgofandi: „Blaðaútgáfan h.f.“ |
Ritstjóri:
| Dr. phil. porkell Jóhannesson. |
Ritstjórnarskrifstofur:
g Laugav. 10. Símar 4373 og 2353. g
| Afgr. og auglýsingaskrifstofa: |
g áusturstrœti 12. Sími 2323. |
Framkv.stjóri:
Vigfús Guðmundsson.
| Áskriftargj. kr. 2,00 á mánuði. g
í lausasölu 10 aura eint. j
| Prentsmiðjan Acta. |
„Eftir aldagimlum
veRjnm“
íhaldsblöðin eru heldur fá-
málug um þessar mundir. Það
er kominn í þau einhver óhug-
ur í sambandi við kosningam-
ar. Enda gengur nú margt
öðruvísi en ætlað var, kom-
múnistar sundraðir og komnir
í hár saman og „einkafyrirtæk-
ið“ fylgislaust í sveitunum.
Um leið og þau krosstré bregð-
ast, þverra meirahlutavonirn-
ar.
Við og við hrjóta þó rit-
stjórum Mbl. spakmæli af vör-
um eins og fyrri. Eitt af þeim
kom í vikunni fyrir pálma-
sunnudag, þar sem verið var
að lýsa stjórnaraðferðum í-
haldsins, segist Mbl. svo frá,
að íhaldið hafi stjórnað land-
inu — og muni gera svo eftir-
leiðis — „eftir aldagömlum
ven jum“. ^
Mbl.-mennirnir standa senni-
lega í þeirri méiningu, að nýju
kjósendurnir, sem fæddir eru á
20. öldinni og eru að fá kosn-
ingarréttinn, samkv. stjórnar-
sk-rárbreytingunni, séu ein-
staklega hrifnir af því, að láta
stjórná sér eftir „aldagömlum'
venjum“. Valtýr álítur þetta
sjálfsagt mjög girnilega kosn-
ingabeitu! En hvað sem því
líður, ratast Mbl. hér satt á
munri. Ihaldsflokkurinn er
verndari gamalla og úreltra
stjórnarhátta. Hann er vernd-
ari hins frumstæðasta og
menningarsnauðasta í þjóðfé-
laginu.
Það er í fullu samræmi við
hinar „aldagömlu venjur“,
þegar íhaldið’ nú dekrar við
hina erlendu ofbeldisstefnu,
og tekur hana upp á arma
sína. Nazisminn er spor aftur
á bak í þjóðfélagslegri menn-
ingu. Hitler og hans menn
eru að hamra inn í þýzku þjóð-
ina aftur hugsunarhátt, sem
var horfinn úr sögunni meðal
vestrænna þjóða: Kynþáttahat-
ur, hetjudýrkun, ófrelsi
kvenna, pyndingar varnar-
lausra fanga, bókabrennur, og
ofstækisfulla trú á menn, sem
eiga að vera alfullkomnir —
einskonar skurðgoðadýrkun.
Þetta er að stjórna eftir
,aldagömlum venjum“.
Það er hin öfuga þróun. ,
Og það er eftir því sem Mbl.
segir, stefna „Sjálfstæðis-
flokksins" á því herrans ári
1934.
Fyrir alllöngu síðan birtu
blöðin tilkynningar, þess efnis,
að þeir, sem ekki greiddu fast-
eignagjöld ársins 1934 fyrir til-
tekinn dag (sem er löngu lið-
inn), skyldu sæta sektum, þ. e.
gjalda dráttarvexti. Einn.veru-
legur liður fasteignagjaldsins
er vatnsskatturinn. En hann á
líka að gjalda fyrirfram um
heilt ár. Gegn því gjaldi myndi
og fátt sagt, stæði bærinn í
sæmilegum skilum með and-
virði þess. En í Skildinganesi
hefir því a. m. k. ekki verið
þannig varíð.
Eins og ég og fleiri gátu um
fyrr í vetur, var hér vatns-
laust mest allt síðastliðið ár —
nema um nætur. En eftir að
nokkuð hafði verið um það mál
skrifað m. a., fengum við nægi-
legt neytzluvatn frá því um
jól og allt til bæjarstjómar-
kosninganna í jan. s. 1. Er það
okkur ókenndur eiginleiki
vatns, að breyta háttum og
magni eftir því, hvort pólitískar
kosningar standa fyrir dyrum
eða ekki. Því ekki voru nema
örfáir dagar liðnir frá kosning-
um, er það tók aftur að þrjóta
og er nú fyrir löngu komið í
sama horf og þegar verst var
í fyrra, þ. e. vatnslaust hvern
dag frá því fyrír hádegi og
fram undir kl. 10 að kveldi, m.
ö. o. allan daginn.
Borgarstjóranum er full-
kunnugt um vatnsþurðina hér
s. 1. ár. Honuni hlýtur einnig að
vera kunnugt, að við höfum
líka verið vatnslaus mikinn
hluta þess tíma, sem af þessu
ári er liðinn. Enn má honum
vera það ljóst —- eins og okk-
ur — eftir undangenginnl
reynslu, að allt þetta hverfi á
og mun sæta sömu meðferð
næsta vor og sumar og ef til
vill miklu lengur.
Samt lætur borgarstjórl
gangast fyrir lögtakshótun fyr_
ir þessum skatti, m. a. verði
hann eigi greiddur innan 8
daga frá birtingu tilkynningar-
innar.
Nú vil ég spyrja: Ætlar
borgarstjóri sér að láta fram-
kvæma lögtak fyrir ógreiddum
vatnsskatti, hjá þeim:, sem
ekkert neyzluvatn fá — nema
um nætur? Heldur hann ekki
1
að þvílík framkoma væri eins-
dæmi, þar sem svo á að heita,
að siðaðir menn fari með mál-
efni almennings?
Ár eftir ár greiðamenn hér
fullt ljósgjald fyrir hálft ljós-
magn, samanborið við straum-
orku inni í bænum, full, lóða-
gjöld fyrir nær því engar göt-
ur, fullkomin gjöld (í útsvör-
um) til reksturs barnaskól-
anna, án þess að fá nándar
nærri sæmilegt húsnæði til
kennslu sinna eigin barna o. s.
frv.
Finnst borgarstjóranum mis-
ræmi í því, ef ekki væri heimt-
aður af okkur vatnsskattur
með samskonar óbilgirni eða
meiri og önnur gjöld?
En hvað myndi hann sjálfur
segja, t. d. um símastjórnina,
ef hún léki það, ár eftir ár, að
loka talsímatækjum Jóns Þor-
lákssonar flesta daga frá
morgni til kvölds, en heimta
samt fullt afnotagjald af síma-
tækjunum og það fyrirfram
um heilt ár og í einu lagi?
Og hvað myridi hann og hans
fólk segja um útvai-psstjórnina,
ef hún hagaði sér gagnvart
þeim þannig, að engin not væri
útvarpsins nema á nóttum, en,
krefði inn full afnotagjöld
með lögtökum ef. svo sýndist?
Meðan við, sem búmn í
„þurru“ hverfunum, sjáum t.
d. fjölda verzlana -' ræsta gang-
stéttir og götúr óspa'rt með
'neyzluvatni bæjarbúa’’ fírinum
.við vel, hvernig eftirlit og.
stjorn ér á þessari nauðsyn-
legu, dýru, en torfengnu yöru.
Og þegar við vitum, hve geysi-,
miklu af vatni úr aðalhverfum
bæjarms er eytt á fiskiverkun-
arstöðvunum — þar ;sem auð-
velt .virðist að nota hreinsaðan
sjó- — þó skiljum- vi'ð ljóst, á
hvort murii lagt ineira kápp:
að seilast til fjár okkar eðá láta
í té einhverjar þær frumstæð-
ustu lífsnauðsynjar, sem við
eigum þörf og kröfur til.
Ef Reýkjávík kemst ekki hjá
vatnsskorti, er ég , elcki að
mæla mig undan þeim skorti,
fneinur öðrum. En eins vil' ég
að lokum spyrja borgarstjór-
ann: Álítur hann sér sæmandi
að láta kúga af fólki háan
fjárskatt fyrir nauðsynjavöru,
sem bærinn bregzt um að veita
því, ár eftir ár?
30. marz l934.
Hallgr. Jónasson.
FraffibióSendisr
Alþýðuflokksins
við Alþinglskosning-
arnar í Beykjavík
Eftir því sem blaðinu ■ er
hermt, mun listi Alþýðuflokks-
ins nú vera fullbúinn og þessir
menn í sex efstu sætunum á
listanum:
Héðinn Valdimarsson forstj.,
Sigurjón Á. Ólafsson afgr.m.
Stefán Jóh. Stefánsson Hrm.,.
Pétur Ilalldórsson bókari,
Einar Magnússon kennari,
Kristínus Arndal framkv.stj.
Saumum drengjafflt
or telpukápur
vel og ódýrt, einnig döfnukáp-
ur eftir nýjustu tízku.
Höfum fjölbreytt úrval af
unglingafötum og káputauum.
GEFJUN
Laugaveg 10. Sími 2838.
Anná.11
Skólahlaupið fór fram á anrian
í páskum. Úrslit ur8u þau, a8
Iðnskólinn vann, átti 1,, 2. og 3.
mann að marki. Aðeins tveir skól-
ar tóku þátt í hlaupinu að þessu
siririi,’ Iðnskólinn og Réykholts-
•skólinn. 1 "
Veflna anna Hljómsveitar Rvík-
ur verður Meyjaskemman aðeins
sýnd nokkrum sinnum enn. Á
þær sýningar, sem eftir eru, verða
um 60 sæti seld á 2 kr. og stæði
öll á kr. 1,50. Er þetta gert vegna
fjölda áskorana, einkum frá
námsfólki.
Af veiðum. komu í gær Arinbjöm
hersir'með 90 föt lifrar, Ver með
-léO-og Karlsefni með 85.
Gríska skipið Myotis kom til
Istambul 28. f. m., en það er
skip það er Insull strauk með-frá
Aþenu. þegar vitnaðist, að Insull
væri með skipinu, kyrsettu yfir-
yöjdin i Istambul það, og var bú-
_,izt við að þau myndu láta taka
Insull i'astan. þess er getið til, að
Insull hafi ætlað sér að komazt
armaðkvort ti) Sövét-Rússlands
pða Rúmeníu, þ.ví hvorugt þessara
landa, hefir samning við Bandarík-
in um að láta af hendi sakborn-
inga hins. Nyotis korii til Istam-
' bul til að taka vatn. ;— Banda-
i'íkjastjórn hefir símað stjóm
Tyrklands, og beðið hana um að
tnka Insull fastan, ög hefir Tyrk-
neska stjórnin lofað að verða við:
þeirv.i, beiðni. Við fyrirspum •frá'"
Bandaríkjunum hefir stjómin i'
Moskva sent það svar, að Insull
muni ekki fá innfararleyfi til
Rússlands. — FÚ.
Líkskoðun hefir nú aftur farið
fram á líkr Staviski, og hefir lík-
Skoðunarnefndin ' gefið þann úr-
skurð, áð Staviski haíi ráðið ,sór
sjálfur bana, og að engin sár sóu
á líkinu önnur en skotsár á gagn-
auganu. — FÚ. -
Einstein er meðal þeirra, sem
þýzka stjórnin hefir nú svift
borgararéttindum í þýzkalandi,
en 29. f. m. birti stjórnin Skrá yfir
þá, sem hún hefir svift borgara-
réttindum, og hefir hún um leið
tekið eignarnámi allar eignir
þeirra í þýzkalandi. Á listanum
eru 35 nöfn, meðal annars nafn
forseta Jafnaðarmannaflokksins í
þýzkalandi, og þingmanna Jafn-
aðarmanna, þeirra, er sæti áttu á
þingi er Hitler komst til valda. FÚ.
Stálverksmiðja ein í Sheffield
tUkynnir, að henni hafi tekizt' að
framleiða nýja tegund af skeyt-
um fyrir stórbyssur og géti þau
gengið í gegnum nýjustu tegund
brynplatna, jafnþykka og byssu-
hlaupiri, sem skeytunum er hieýpt
úr. — FÚ.
Á fundi íyrvcrandi hermanna úr
lieimsstyrjöldinni, er haldinn var
í Paris, voru sámþykkt eindregin
mótmæli gegn fyrirætlun stjórnar-
innar um að lækka eftirlaun upp-
gjafahermanna, og var nefnd
manna send á fund Doumergue
forsætisráðherra nýskeð með mót-
* mæli þessi. Doumergue svaraði því
tií', að ítrustu sparnaðárráðstafan-
ir væru naúðsynlegar til þess að
' jafna hallann á ríkisbúskapnum,
og niundu' nokkrar þeirra korna
niður á uppgjafahermönnum, engu
slður en öðrum, og ef sparnaðar-
ráðstafanirnar næðu ekki fram að
ganga, kvaðst hann mundu sagja
af sér. — FTJ.