Nýja dagblaðið - 05.04.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 05.04.1934, Blaðsíða 1
í DAG NYJA DAGBIAÐIÐ 2. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 5. aprfl 1934. 79. blað Sólaruppkoma kl. 5.36. Sólarlag kl. 7.28. Hvapaiegi bílslys Maður fær lánaðan bíl og ekur á ivo drengi upp á gangsíéit. — Annar drengurinn bíður bana. Kl. 5 í gærdag voru tveir drengir að leika sér á gang- stéttinni við húsið á Laugaveg 138, er það aðeins innar en þar sem Hverfisgata og Laugaveg- ur komá saman. Kemur þá bif- reiðin RE 982 neðán úr bæn- um, og virðist svo, sem öku- maður liafi ekki haft stjórn á henni, hvorki um hraða né stefnu. Lendir hún á drengj- unum við húsið 138, síðan á þrepum næsta húss, en stöðv- aðist við húsið 144 og voru þá bæði framhjólin undan bif- reiðinni. Annar drengurinn, sem fyr- ir bifreiðinni varð, Þorlákur Arason, meiddist stórkostlega, en báðir voru þeir þegar fluttir á Landsspítalann. Maðurinn, sem stýrði bif- reiðinni, heitir Magnús Jó- hannesson, Tjarnargötu 49 hér í bænum, 25 ára gamall, fædd- ur i Reykjavík 5. jan. 1909, Er nú háseti á togaranum Kára. Hafði hann fengið bif- reiðina lánaða frá Bifreiðastöð íslands. Magnús hafði tekið bifreiðarstjórapróf 3. apríl í fyrra. Hefir játað að hafa neytt víns. Með honum í bif- reiðinni voru tveir sjómenn af sama skipi, algáðir. Mönnum ber ekki saman um ökuhraðann, en af verksum- merkjum sézt, að hann hefir hlotið að vera talsvert mikill. Áreksturinn verður hægra megin við götuna, en skilt er að halda sig á vinstra helm- ingi vegar, þegar ekið er, og virðist það benda til, að bíl- stjórinn hafi ekki náð beygj- unni af Hverfisgötunni á Laugaveginn, heldur látið bif- reiðina halda nokkurnveginn beint áfram. Þegar á Landsspítalann kom kl. liðlega 5, var Þorlákur litli enn með lífsmarki. Hafði hann fengið þrjú sár á höfuðið. Kl. 6.45 var hann látinn. Þorlákur var 10 ára gamall, sonur þeirra hjónanna Ara Eyjólfssonar verkstjóra og konu hans, Kristjönu Þorláks- dóttur. Var hann nýkominn út úr húsinU frá móður sinni, þeg- ar slysið vildi til. Hinn drengurinn, Sigurjón Sveinsson, 12 ára gamall, reyndist lítið meiddur. Rannsókn þessa máls er ekki lokið, en í gærkvöldi þegar yfirheyrslu lauk kl. lV/i, var Magnús Jóhannesson úrskurð- aður í gæzluvarðhald. Skeiðarárhlaupið Ishrönnin á sandinum er 24 km. á breidd. Simallnan hefír sópazt g'jörsamlega bnrtu. Flóð árdegis kl. 9.00. Flóð síðdegis kl.. 9.30. Veðurspá: Kyrrt og bjari veður. Söin, skriistofur o. fl.: Landsbókasaínið opið kl. 1-7 og 8-10 Alþýðubókasafnið .. ..opið 10-10 þjóðminjasafnið ....... opið 1-3 Náttúrugripasafnið ..... opið 2-3 Landsbankinn ........ opinn 10-3 Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3 Útvegsbanf inn opinn 10—12 og 1—4 Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-7 Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 5-7þá Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6 Bögglapóststofan ...... opin 10-5 Landssiminn ............ opinn 8-9 Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6 Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 14 Fiskifél.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5 Samb. ísl. samvinnufél. 9-12 og 1-6 Sölusamb. ísl. fiskfr&mleiðenda opið 10—12 og 1—6 Skipaútg. rikisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafélagið .......... opið 9-6 Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4 Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12og 1-4 Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 14 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 14 Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5 Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6 Rikisféhirðir ............... 10-3 Baðhús Reykjavíkur .... opið 8-8 Lögregluvarðst opin allan sólarhr. Heimsóknartími sjúkrahúsa: LandSspítalinn ........... kl. 34 Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5 Laugarnesspítali ...... kl. 12%-2 Vífilstaðahælið 12y2-iy2 og 3y2-4y2 Kleppur .................. kl. 1-5 Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9 Sólheimar...................kl. 3-5 Sjúkrahús Iívítabandsins .... 24 Elliheimilið ................. 14 Næturvörður í Laugavegs- og Ing- ólfs-apóteki. Næturlæknir: Hannes Guðmunds- son, Hverfisgötu 12. Sími 3105. Skemmtaxlr og samkomui: Nýja Bíó: Ég syng um þig, kl. 9. Gamla Bíó: I.ofsöngur, kl. 9. Iðnó: Meyjaskemman kl. 8. Dngskrá útvarpsins: Kl. Í0,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- clegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregn- ir. Lesin dagskrá næstu viku. — 19,25. Enskukennsla. 19,50 Tónleik- ar. — Auglýsingar. 20,00 Klukku- sláttur. Fréttir. 20,30 Erindi: Véla- veldi (teknókrati), I (Emil Jóns- son verkfr.). 21,00 Tónleikar (Út- varpshljómsveitin). 21,25 Umræð- nr um dagskrárstarfsemi útvarps- ins. Símar Nýja dagblaðsins: Ritstjóri: 4373. Fréttaritari: 2353. Afgr. og augl.: 2323. Gosid hótst á íöstn- daginn langa. í dag er sjöundi dagur síöan eldgosið í Vatnajökli brauzt út. Á Skírdag var Steindór Sigurðsson menntaskólakennari staddur uppi á Vindheimajökli. Var veður heiðskírt og hið bezta útsýni inn til landsins. Er Steindór manna kunnugast- ur á öræfum, því hann hefir undanfarið tekið þátt í land- mælingum á hálendinu ásamt mælingamönnum frá danska Generalstaben. Samkvæmt við- tali við Pálma rektor Hannes- son, sem líka er nákunnugur um hálendið við norðvestur- rönd Vatnajökuls, telur hann ekki vafa á því, að þennan dag hafi allt verið með kyrrum kjörum þar efra. Mun gosið ekki hafa byrjað fyrri en um miðjan dag á föstudaginn langa, en þá um kvöldið sást gosið víða frá. Öskutall á Suð austurlandi. I gær var dimmt af ösku- falli í Hornafirði og þar aust- urum, samkvæmt fregn, sem sem útvarpinu barst. 4/4. FÚ. Frá Hólum í Hornafirði sást í gær allþykkur öskumökkur yfir Vatnajökli. Um kl. 18 færðist öskuþykknið austur á bóginn og fylgdi fjallahringn- um. Um kl. 20.30 var himininn orðinn kafþykkur og gerði þá kolsvarta myrkur, sem helzt til kl. 21.30. Fór þá að rofa til og rigndi ösku, svo vel varð sporrækt í byggð, en snjór í fjöllum varð næstum dökkur. Logn var er askan féll, en um nóttina hvessti og fauk askan að miklu leyti. I dag var þar öskusorti í vestri, svo að ekki sást til fjalla. Á Núpstað var öskufall nokkuð í fyrrinótt og ösku- mistur í lofti í gær. Fréttir hafa ekki borizt úr Öræfum, en líklegt er talið, að þar hafi verið nokkuð öskufall í gær, vegna þess, að veðurstaða var vestlægari. Á Djúpavogi sást öskumökkur mikill í fyrradag. Lagði hann með fjöllum frá suðvestri til norðausturs, en 'ekki féll aska úti á Djúpavogi. Aftur féll nokkur aska á Fá- skrúðsfirði og gerði sporrækt. Askan var lík þurrum jökul- leir. Mistur var þar í lofti í gær, en ekki öskufall. Af Hólflfjöllum 4/4 FÚ. Frá Grímsstöðum á Fjöllum sáust eldblossar öðru hvoru á mánudagskvöld og nóttina eftir í stefnu yfir Herðubreiðar- tögl. Frá Möðrudal sást gosið á Páskadagskvöld og voru fram eftir nóttu stöðugir bloss- ar, með stuttu millibili, í stefnu syðst yfir Herðubreið- artögl. Lítilsháttar öskufall var þar á Páskadag. I gær sáust frá Grímsstöðum öskumekkir öðru hvoru í sömu stefnu og áður, og fylgdu því allháar dunur og dynkir. Engir eldar sáust þar í gærkvöldi, enda var þykkt loft og hríð. Öskufallið minna í byggð en vænta mætti vegna þess hve veður eru hæg. Þar sem frétzt hefir af öskufallinu, er askan fremur lítil, smáger, grásvört á lit og fýkur hæglega til. Bendir þetta til þess, að það sé aðeins smæsta öskurykið, sem borizt hefir til byggða. öll hin gróf- ari og stórgerðari askan hefir fallið á jökulinn og öræfin í kring, sökum þess að veður hafa verið hæg. Haldi gosið á- fram, má búazt við meira ösku- falli, ef gerði hvöss veður. Rannsóknir á gos- inu og gosstöðvun- um. Það ræður af líkum', að nátt- úrufræðingum leikur hugur á að skoða þau verksummerki, sem orðin eru, þar sem gosið er. En á því eru meiri örðug- leikar en virðast kunna í fljótu bragði. Að vísu ætla menn, að gosstöðvamar, inn af Fljóts- hverfi, sé ekki nema um 40 km. frá jökulröndinni. En fróðir menn telja að fá jökulsvæði sé jafn örðug yfirferðar og Vatnajölsull. Veldur því mest, að veður eru þar svipleg mjög, af öllum áttum, stórúrfelli þeg- ar minnst varir og aftaka stormar. Þessu veldur nálægð hafsins. Er þetta ólíkt og á Grænlandsjöklum, þar sem staðviðri eru tíð. Sjálfur er jökullinn illur yfirferðar -— sprungur háskalegar í jökul- röndinni en yfirborðið uppi á jöklinum, stór-þýft, a. m. k. að sumarlagi. Til þess að Vatnajökulsför á þessum tíma bæri fullan árangur, þyrfti fullkominn ísferða útbúnað, sem tæplega er hér kostur, og Framh. á 4. síðu. í fyrradag var farið frá Skaftafelli niður á Skeiðarár- sand, til þess að athuga um skemmdir á símalínunni. Fær- ið var sæmilegt. Austasta út- fall hlaupsins er um 4 km. á breidd en 8 km. um þjóðveg- inn. íshrönnin nær til sjávar og er um 24 km. á lengd. Jök- ulstykki er um 2 km. frá jökl- inurri 16 m. hátt og 54 m. um- máls. Má af því marka hið geysilega vatnsmagn og sprengikraft hlaupsins. Um miðjan sandinn eru þrjú út- föll, samtals rúml. 2 km. á breidd, en um þjóðveginn 6 Framboð í Strandasýslu Hermann Jónasson lögreglu- stjóri verður í kjöri í Stranda- sýslu af hálfu Framsóknar- flokksins við næstu Alþingis- kosningar. km. Símalínan er fallin á sand- inum, en Sæluhúsið hefir var- izt. (Samkvæmt skeyti til Út- varpsins). Alrikis- rádstefnnr London kl. 17 4/4. FÚ. í dag, 4. apríl, eru 47 ár síðan haldin var hin fyrsta ný- lendumálaiáðstefna Bretlands og gekkst Bretastjórn fyrir því, að fulltrúar frá nýlendun- um kæmu saman á fund í London 4. apríl 1887. Ráðstefn- ur þessar voru nokkuð á reiki fyrst í stað, hin næsta var haldin 1897, og þá 1902, 1907 og 1911, allar í London. Á ráð- stefnunni 1911 var nokkuð breytt um skipulag þessara ráðstefna, og m. a. ákveðið að hér eftir skyldu þær nefnast alríkisstefnur, og skyldu þær eftir atvikum vera haldnar í því brezku landi, sem heppi- Framh. á 4. síðu.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.