Nýja dagblaðið - 05.08.1934, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 05.08.1934, Blaðsíða 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Ull * Ull I sumarkauptíðinni þurfa bændur að ráða við sig hveraig þeim verður ullin notadrýgst. Klæðaverksmiðjan Gefjun, Akureyri framleiðir beztu ullarvörur, sem fáanlegar eru hér á landi, af þvf hún notar eingöngu úrvalsull. Allskonar fata- dúkar, band og lopi alltaf fyrirliggjandi hjá verksmiðj- unni og flestum umboðsmönnum hennar út um land. r I Reykjavík er alltaf hægt að fá vörur verksmiðj- Við vígsiu Markarfljófsbrúar I. Júlí 1934 Við afreksverk hvert, þar sem orka og snilld í einingu taka að vinna snýst vonin með allan sinn flokk í fylgd, hitt ferst, sem hún vill ekki sinna. Og hátt sé vonanna haldið merki við hverja vígslu að loknu verki. í brattsækni þjóðar um batnandi kjör hver brú er sem hlekkur í festi. • Svo glæðist vor samvinna, greiðist för, og giftu ei stórhugann bresti! Hin djarfasta von fái dýrustu fylling! Vér dáum þá framtíð, sem vakir í hilling. Anna Vigfúsdóttir. unnar í Gefjunarútsölunni á Laugaveg 10. Tökum ull við háu verði uppi vinnulaun, og í skiftum fyrir vörur. Spyrjið um ullarverðið hjá umboðsmönnum. Klæðaverksm. Gefjun. Tnngnbnið við Reykjavík er til leigu eða sölu. — Verði búið leigt, verða þau skilyrði sett, að væntanlegur leigutaki hafi þar á hendi dýraverndunarstarfsemi fyrir Dýraverndunarfélagið, á sama hátt og hún hefir verið rekin þar undanfarin ár. Leigu- og kauptilboð sendist gjaldkera félagsins, Tóm- asi Tómassyni, framkvæmdastjóra, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, fyrir 10. þ. m., er veitir nánari nppl. Stjórn Dýraverndunarfélags Islands. Eötnm til Hverfisteina Hverfisteinaiákrn Samband ísi. samvínnufélaga 20s tk PAHKINN KOSTAR M 1-20 J/M a, s MAY BLOSSOM VIRGINA CIGARETTUR f%£sú i c&um vetý&Miun ATIIS. Kvæði þetta var prentað á skemmtiskrá brúarvígsltmn- m, en rangfært þannig, að síðara erindið var sett fram fyrir hið fyrra og er því birt hér til leiðréttingar. H ö f. Úryalslið ísl. knattspyrnumanna Efst (talið frá vinstri) : Jón Sigurðsson, Hans Kragh. Þor- steinn Einarsson, Gísli Guðmundsson. Miðröð: Hrólfur Benediktsson, Agnar Breiðfjörð, Björgvin Schram, Jóhannes Bergsteinsson. Neðst: Sigurjón Jónsson, Eiríkur Þorstiensson, Ólafur K. Þorvarðsson. Heimsókn H. I. K. getur orð- ið dálítill mælikvarði á það, hversu lapgt við erum komnir í knattspyrnu í samanburði við aðra. H. I. K. er nú 6. félagið í röðinni í „Mesterskabsrekken“ í Kaupmannahöfn, af átta fé- lögum, sem þar keppa. En til- lit er takandi til þess, að hér kemur það ekki fram með sínu rétta liði, heldur með 4 lánsmönnum, sem allir eru af- bragðs leikmenn og tveir þeirra eru í úrvalsliðinu danska. Þannig skipað var lið- ið miklu sterkara og má full- yrða, að með þessum mönnum, ásamt beztu leiknrunum úr sínu liði standi það jafnfætis beztu félögunum dönsku. Og þá má telja, að íslenzku knatt- spyrnumennirnir hafi staðið sig vel, miðað við miklu óhægri aðstöðu er þeir hafa við að búa. Seinasti leikurinn, sem H. T. K. keppti hér, verður án efa lengi í minnum hafður. Fræk- leiki íslenzka úrvalsliðisins var svo frábær, að þeim, sem voru áhorfendur á íþróttavellinum það kvöld, verður hann lengi minnistæður. íslenzka úrvalsliðið, sem keppti við H. I. K. skipuðu þessir menn: Eiríkur Þorsteinsson (K. R.) markvörður. Hann er 21 árs gamall og er iðnaðarmaður. Kom í K. R. 1925 og var orð- inn markmaður í 1. fl. liðinu 14 ára gamall. Hann kom inn sem markmaður í kappleiknum við Skotana 1928, þegar Sigur- jón Pétursson fótbrotnaði og er yngsti íslenzki knatt- spyrnumaðurinn, sem keppt hefir við erlendan knattspyrnu- flokk. Sigurjón Jónsson (K. R) hægri bakvörður. Hann er 25 ■ ára gamall og stundar járn- smíði. Kom í K. R. 1923 og i hefir verið í úrvalsliðinu síðan !: 1930. Var með í Færeyjaför ísl. knattspyrnumanna 1930. Ólafur K. Þorvarðsson (Fram). Hann er 23 ára gam- all og er kaupmaður. Hann byrjaði að æfa knattspyrnu 11 ára gamall og tók fyrst þátt i kappleik 12 ára gamáll. Síðan hefir hann stöðugt tekið þátt i knattspymu. Jóhannes Bergsteinsson (Val- ur) hægri framvörður. Hann er 22 ára gamall og steinsmið- ur að iðn. Hefir keppt í Val í 13 ár og verið í öllum flokk- um. Hann tók þátt í utanferð Vals 1931. I 1. fl. liði Vals er hann miðframvörður. Björgvin Schram (K. R.) miðframvörður. Hann er 21 árs gamall og er verzlunarmað- ur. Hann hefir æft knatt- spyrnu og keppt í K. R. síðast- liðin 11 ár. Hann hefir verið í úrvalsliðinu síðan 1930, og var með í Færeyjaför sama ár. Hrólf ur Benediktsson (Valur) vinstri framvörður. Hann er prentari, 24 ára gamall. Hann hefir tekið þátt í knattspymu- ltappmótum í 12 ár, í III., II. og I. flokki. Var með í Fær- eyjaför ísl. knattspyrnumann- anna 1930. Hann var einnig með í Danmerkurför Vals 1931. .Tón Sigurðsson (Fram). hægri útframherji. Hann er 21 árs gamall og stundar rakara iðn. Hann hefir æft í Fram síðan 1928 og verið í 1. fl. síð- an 1931. Hans Kr. Kragh (K. R.) hægri innframherji. Ilann er 25 ára gamall og er símavið- gerðarmaður. Gekk í K. R. 1922 og byrjaði að æfa sama ár. Hann hefir verið í úrvals- liðinu síðan 1928. Hann var í Færeyjaför 1930. Þorsteinn Einarsson (K. R.) miðframherji. Hann er 27 ára gamall og er verkamaður. Hann hefir keppt í knatt- spyrnu hjá K. R. í 15 ár og mun vera sá maður í úrvals- liðinu, sem lengst hefir stund- að knattspyrnu. í úrvalsliðinu hefir hann verið síðan 1926. Hann var í Færeyjaförinni 1930. Gísli Guðmundsson (K. R.) vinstri innframherji. Hann er 23 ára gamall og er málari. Hann hefir æft knattspyrnu í K. R. í 12 ár. I úrvalsliðinu hefir hann verið síðan 1928. Hann var í Færeyjaförinni 1930. Agnai* Breiðfjörð (Valur) vinstri útframherji. Hann er 24 ára gamall og er blikksmið- ur. Hefir tekið þátt í knatt- spyrnu í 12 ár. Hann var í Færeyjaförinni 1930 og Dan- merkurferð Vals 1931. Guðmundur Ólafsson knatt- spymukennari æfði liðið fyrir kappleikina við H. I. K. Hann ■á áreiðanlega góðan þátt í þeim úrslitum, sem urðu á viðskipt- um úrvalsliðsins og Dananna. Verzlið við þá að öðru jöfnu, sem auglýsa í Nýja dagblaðinn

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.