Nýja dagblaðið - 02.09.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 02.09.1934, Blaðsíða 1
Dómsmálaráðherra skipar Frá Albaniu setudómara í Gjábakkamálinu Hæstiréttur ömerkti dóm Arnljóts Jónssonar í máiínu. islenzkir hestar til Þýzkaiands Dómsmálaráðherra, Ilermann Jónasson hefir ákveðið að skipa Jónatan Hallvarðsson fulltrúa setudómara í hinu svonefnda Gjábakkamáli. Mál þetta var höfðað af hálfu valdstjórnarinnar gegn Snæbirni Guðmundssyni bónda á Gjábakka í Þingvallasveit fyrir brot á 6. gr. og 11. gr. áfengislaga nr. 64/ 1930. Magnús Guðmundsson, sem þá var dómsmálaráðherra, fól Arnljóti Jónssyni að rannsaka málið. En hinsvegar var þess hvergi getið í erindisbréfinu, að Arnljóti væri falið að kveða upp dóm í málinu. En flónska þessa vikapilts íhaldsins, sýndi sig þá sem oí'tar, því auk þess að fram- kvæma einhverja rannsókn, kvað hann upp dóm í málinu. Hæstiréttur ómerkti síðan dóm Arnljóts, þar sem hann hafði verið kveðinn upp í al- gerðu heimildarleysi. Segir í dómi hæstaréttar kveðnum upp 9. marz s. 1.: Hin klg. umboðsskrá, sem er dags. 29. marz 1933, hefir eigi verið lögð fram í lögreglu- réttinum, en hefir hinsvegar verið lögð fram af sækjanda hálfu í hæstarétti, er málið var þar flutt 7. þ. m. 1 umboðsskrá þessari er neíndum lögfræðingi falið að halda réttarrannsóknir í tilefni af brotum á áfengislöggjöfinni og öðrum brotum1, er í sam- bandi við fyrnefnt brot kunna að standa, og til framkvæmd- ar því starfi er honum veitt heimild til að setja rétt innan sérhvers lögsagnarumdæmis landsins og framkvæma þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar kynnif að vera vegna rann- sóknarinnar. I umboðssskránni er hinsvegar ekkert tekið fram um það, að commisarius hafi umboð til að fara með og dæma mál þau, er honum hefir verið falið að rannsaka, svo sem venjulega er tekið frarn í slíkum umboðsskrám. Það verð- ur því að líta svo á, að nefnd- an lögfræðing hafi brostið heimild til að fara með og dæma mál þetta eftir að rann- sókninni var lokið. Því dæmist rétt vera: Hinn áfrýjaði lögreglurétt- ardómur á að vera ómerkur. Allur áfrýjunarkostnaður máls- ins, þar með talin málflutn- ingslaun sækjanda og verjanda í hæstarétti, málflutningsmann- anna Guðmundar ólafssonar og Eggerts Claessen, 60 kr. til hvors, greiðist úr ríkissjóði. Fyrir þessar aðgerðir í mál- inu, sem hæstiréttur varð að ómerkja, hefir Arnljótur feng- ið ríflega greitt úr ríkissjóði. Hefir Magnúsi Guðmunds- syni farnast jafnilla í vali rannsóknardómara og þegar hann valdi Lauga landa til ut- anfarar fyrir ríkið. Því þeir menn, sem M. G. notaði eink- um til þessara verka, Arnljót- ur og Garðar Þorsteinsson hafa báðir fengið þá meðferð hjá hæstarétti, sem hlýtur að brennimérkja þá óhæfa til allra trúnaðarstarfa. Vatnsflóð i Indlandí London, 1./9. FÚ. í norðaustur Indlandi hefir gert mikil vatnsflóð, og er þús- undum manna hætta búin af völdum þeirra. Sumstaðar hefir innfæddum mönnum ekki skil- ist gildi flóðgarða, og hafa þeir rifið niður upphlaðna vegi, til þess að veita vatninu að akur- löndum sínum. Á einum stað varð lögreglan að skerast í leik, til þess að varna því að flóð- garður yrði rifinn niður, og veittu innfæddir menn lögregl- unni viðnám. Tveir menn særð- ; ust til ólífis, og einn annar j hættulega. ! London, 1./9. FÚ. Borgin Campana í Argentínu hefir í dag gjöreyðilagzt af eldi. Eldurinn kom upp í olíu- geymi, og er hann sprakk, kviknaði í hverjum geyminum af öðrum. Logandi olían kveikti svo í næstu húsum, og eldurinn breiddist svo fljótt út, að ekk- ert viðnám var veitt, og hafa nú borgarbúar flúið borgina. Samningan sfanda yfir um sölu á 200 hesíum Hingað komu til lands fyrir nokkru síðan, tveir sendimenn frá þýzku stjórninn, Jáger og Busch að nafni, í því skyni að athuga möguleika til að gera kaup á íslenzkum hestum. En það hefir komið í ljós, að í því umtali, sem orðið hef- ir við Þjóðverja um- kaup á íslenzkum hestum á árinu sem leið og í þeim upplýsingum, sem gefnar hafa verið ‘ héðan, hefir verið gert ráð fyrir hestum ca. 56 þuml. á hæð að band- máli, en það er meiri hæð en hægt er að gera ráð fyrir yfir- leitt á íslenzkum hestum. Þjóðverjarnir tveir hafa verið á ferð um sýslumar austan fjalls og einnig norður í Húnavatnssýslu og skoðað hesta. Eru þeir sæmilega ánægðir og í gær var gengið frá aðalatriðum í samningi um kaup á 200 hestum 4—8 vetra til reynslu, þó að því tilskildu, að samkomulag verði um hæð- ina, en hún er minni en gert hafði verið ráð fyrir. — Selj- andi hestanna er Samband ís- lenzkra samvinnufélaga og ef samningurinn verður sam- þykktur, verða þeir sendir út seint í þessum mánuði. — Verðið mun vera fremur gott, en kaupin eru því skilyrði bund. ið að andverðið verði notað til kaupa á þýzkum vörum. — Það eru þýzkir smábændur, sem eiga að fá hestana. Síðast er fréttist voru nokkrir af embættismönnum borgarinn- ar ófamir þaðan, en voru að reyna að bjarga skjölum og öðrum verðmætum. En járn- bi'autarlest beið skammt fyrir utan borgina, til þess að flytja þá þaðan, er þeir gætu ekki lengur hafzt þar við. 1 Camp- ana voru um 15.000 íbúar. Hún er um 96 kílómetra vega- lengd frá Buenos Ayres. Hell borg eyðíst í eldi 15 þúsundir manna flýja heímili sín. Stjórnin í Albaníu hefir boðið dönskum fiskimönnum, að taka að sér yfirstjórn fisrveiðanna á þeim stöðum, sem ríkið hefir veiðiréttindi. Bendir þetta til, að Albaníubúar séu ekki miklir fiskimenn. — Myndin er frá höfninni í Du- rosso, sem er hafnarbær höfuðborgarinnar, Firana. Yeikfall vefnaðarmanna í Bandaríkiunum nær iil London, 1./9. FÚ. í dag var verkamönnum í sllki. og gerfisilkiverksmiðjum í Bandaríkjunum boðið að vera viðbúnir að leggja niður vinnu þegar þess yrði krafizt, en í gær var verkafólki í ullarverk- smiðjum sendur sami boðskap- ur. Mun þá verkfallið, sem hefst klukkan 11,30 í nótt eft- ír New York tíma, ná til allra greina vefnaðariðnaðarins. Leið togar verkamanna áætla, að verkfallið muni ná til 725 þús- meip en miljón manna. manna, en blaðið New York Timés telur, að það muni ná til meira en einnar miljónar manna, þegar til greina séu teknir þeir, sem verða sviftir vinnu vegna verkfallsins. Sátta nefnd stjórnarinnar hefir und- anfarinn sólarhring gert órangurslausa tilraun til að koma í veg fyrir verkfallið. Þetta yfirvofandi verkfall hef- ir haft mikil áhrif á viðskiptin á kauphöllinni í New York undanfarna daga. Yeðráttan í ágúst. Yiðtal við Jón Eyþórs- son veðurfræðing. Nýja dagblaðið átti tal við Jón Eyþórsson veðurfræðing í gær, um veðurfar síðastl. á- gústmánuð. — Því miður er ekki hægt að gefa nákvæmt yfirlit um veðurfarið í ágústmánuði, seg- ir Jón, því eftir er að vinna úr ýmsum gögnum1 og sum ó- fengin. En eins og nú er bezt vitað, hefir veðráttan skift sér eftir landshlutum. Norðanlands og austan má kalla að verið hafi stöðugir óþurkar allan mán- uðinn. Hér sunnanlands hefir veðráttan verið miklu betri, þó ekki sé hægt að segja, að hafi verið góð þurkatíð. Góðar þurkflæsur hafa verið nægi- lega margar til þess að hey- nýting hefir mátt kalla góða fram til 20. mánaðarins. Fyrra hluta mánaðarins voru nokkrir regnlausir dagar á Norður- og Norðvesturlandi, sem tæpast hafa þó komið að notum við heyskapinn, því loft hefir þá verið þungskýjað og sennilega sólskinslaust. Síðara hluta mánaðarins hafa oft gengið stórrigningar. Eftir þeim fréttum, sem ég hefi haft af Norðurlandi munu nú víðast hafa náðst inn töð- ur, en mikið hraktar. Þó hefi ég frétt, að í Blönduhlíð í Skagafirði sé enn óhirt taða. Yfirleitt mun vera mikið úti af heyjum fyrir norðan. Á Austfjörfðum virðist veð- urfarið hafa verið sízt betra og fyrri hluta mánaðarins hafa verið þar færri rigning- arlausir dagar. Síðara hluta mánaðarins hafa gengið þar Framh. á 4. síðu

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.