Nýja dagblaðið - 05.09.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 05.09.1934, Blaðsíða 1
NYJA DAGBIAÐIÐ 2. ár. j§ Reykjavík, miðvikudaginn 5. sept. 1934. 209. blað Jakob Möller vikið frá bankaeftirlitinu Hann ev búinn að hirða 170 þúsund kr. af almannafé fyrir verra en ekki neitt 500 fulltrúar mættir á alheimsþingi samvinnumanna »EínkaverziUnin er eins og gamaldags seglskíp«, segir forseti Alþjóðasambandsins. Fjármálaráðherra, Eysteinn Jónsson, skrifaði Jakob Möller, þáverandi eftirlitsmanni banka og sparisjóða svohljóðandi bréf í gær: »4. september 1934. Hér mað er yður vikið úr stöðu yðar sem eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum vegna megnrar vanrækslu og brota á skyldum yðar í starf- inu. Eysteinn Jónsson (sif}n) ■ Torfi Jóhánnsson (sign) Til hr. alþm. Jakobs Möller Hólatorgi 2« Bréfið er ekki langt. Þess gerðist ekki þörf. AJþjóð manna er vel kunnugt, hversu megnan ódugnað og trassaskap Jakob hefir sýnt í starfinu. Mun óhætt að fullyrða, að þessari stjórnarráðstöfun verð- ur fagnað um allt land. Jafnvel nánustu pólitískir samherjar Jakobs Möllers hafa játað, að hann sýndi óverjandi van- rækslu og hirðuleysi í því trúnaðarstarfi, sem ríkið hafði falið honum. Fyrir óreiðuna og vanræksl- una í þessu starfi hefir Jakob hlotið jafnvel svo megnan ímugust sinna eigin flokks- manna, að þeir hafa hundruð- urrí saman strikað hann út af lista íhaldsins í bæjarstjómar- og Alþingiskosningum undan- farið. Blöð íhaldsins, Morgunblað- ið, Heimdallur og önnur slík, sem hafa tekið málstað manna eins og Einars fyrv. Barð- strendingasýslumanns, Helga Tómassonar, Oddgeirs Bárðar- sonar og Araljóts Jónssonar, hafa ekki treyst sér til að taka upp vörn fyrir Jakob Möller. Með þögninni hafa þau ját- að sekt hans, og viðurkennt hinar þungu, en réttmætu á- sakanir almennings. Það má vel vera, að Morg- unblaðið og önnur lík blöð reki nú upp einhverja kveinstafi, þegar búið er að framkvæma þann dóm, sem réttarmeðvit- und almennings hefir kveðið upp fyrir löngu, en íhaldið hingað til getað stöðvað, að yrði fullnægt. Jakob Möller verður nú að leggja niður það starf, á sjálf- sagðan, en þó miður skemmti- legan hátt, sem honum var falið að gegna fyrir réttum 10 árum síðan. Hann hafði verið einn af þeim, sem á þinginu áður hafði átt drjúgan þátt í að skapa þetta embætti. í nefnd, sem fjallaði um þetta mál, áttu þeir allir þrír sæti, Jón Auðunn, • Magnús Guðmundsson og Jakob Möller. I nefndarálitinu sögðu þeir m. a.: „Aðalstarf eftirlitsmanns á, að áliti nefndarinnar, að vera það, að rannsaka raunveru- legt fjárhagsástand banka og sparisjóða, gera tillögur til stjórna þessara stofnana, ef honum þykir þurfa, koma skipulagi á bókhald sparisjóða, gefa ríkisstjóminni skýrslur og upplýsingar og vera ráðu- nautur hennar í þessum1 mál- um“. (Alþt. 1923, A. 900). Þetta lagði Jakob Möller sjálfur til, að eftirlitsmaður- inn ætti að gera. Og hvað hefir nú eftirlits- maðurinn Jakob Möller gert af þessu ? Hefir hann kynnt sér „raun- verulegt fjárhagsástand banka og sparisjóða"? Svarið hljóð- ar þannig, að í stærstu stofn- unina, sem hann átti að endur- skoða, Landsbankann, hefir hann ekki komið í S ár, sam- kvæmt frásögn sjálfs banka- ráðsins. Hvað seinasta atriði snertir, að vera ráðunautur ríkis- Vilnmndar biðst lausnar Á seinasta bæjarstjóraar- fundi fór fram kosning á skólanefndarmönnum. Komu jafnaðarmenn að tveimur, Vil- mundi Jónssyni landlækni ög Sveinbirni Sigurjónssyni kenn- ara. En eitthvað m'un þessi kosn- ing hafa verið illa undirbúin af þeirra hálfu, og sennilega ósamkomulag um mennina, því daginn eftir kosninguna flutti Alþýðublaðið yfirlýsingu frá Vilmundi, þess efnis, að hann hefði verið kosinn, án sinnar vitundar og óvist hvort hann gegndi þessu starfi. Hefir Vilmundur nú gert al- vöru úr þessu og sótt um lausn til bæjarstjórnarinnar. Nýja dagbl. fékk veður af þessari ráðabreytni í gær, og gerði þá strax tilraun til að fá að sjá bréfið. En borgarstjór- inn (Jón Þorláksson) neitáði, að sýna bréfið. í gærkvöldi náði blaðið í bréfið hjá Vilmundi sjálfum, og hljóðar það á þessa leið: „Rvík 25. ágúst 1934. Með því að mér er óljúft að taka sæti í skólanefnd, sem ág hefi verið kosinn i, og á ó- hægt með að starfa þar, meðal annars fyrir það, að ég geri ráð fyrir að vera fjarverandi fyrri hluta næsta skólaárs, leyfi ég mér að fara fram á við háttvirta bæjarstjóm, að hún sýni mér þá vinsemd og Alþýðuflokknum þá sanngimi að leysa mig úr nefndinni gegn því að Alþýðuflokksfull- trúar í bæjarstjórninni nefni mann í nefndina í minn stað. Vilmundur Jónsson.“ Kemur það nú í ljós á fimmtudaginn, hvort íhaldið vill sýna Vilmundi „vinsemd“ og Alþýðuflokknum „sann- gimi“! stjórnarinnar í þessum málum, þá er mönnum það margkunn- ugt, að einu sinni hefir lands- stjórnin leitað álits hans í þeim efnum. Það var þegar gjaldþrot Is- landsbanka vofði yfir og búið var að loka bankanum. Jakob Möller var spurður að því, hveraig hagur bankans Framh. á 2. síðu London 4/9. FÚ. Fjórtánda þing Alþjóðasam- bands samvinnumanna var sett í dag í London, og flutti þá Tanner, forseti sambands- ins, ræðu um ástand atvinnu- og viðskiptamála í heiminum, og sagði meðal annars: „Þjóðimar hafa nú flækst inn í viðskiptastyrjöld, sem hefir valdið þeim eins miklu tjóni og' styrjaldir, sem háð- ar eru með vopnum. Þessi við- skiptastyrjöld hefir eyðilagt öryggi verzlunarinnar og við- skiptalífsins eins og það var rekið á grundvelli einstakl- ings. og samkeppnisverzlunar- innar. Þess vegna hefir verið Nýja dagblaðið átti í gær tal við Guðlaug Rosinkranz hagfræðing, sem er nýkom- inn úr ferðalagi uni Norður- lönd. — Talið berst að sam- hinn ungi víðfrægi fiðlu- leikari heldur hljómleika í Iðnó kl. 8V2, í kvöld. Hann hélt hljómleika í Gamla Bíó í gærkvöldi, ogvarð þar að spila mörg aukalög. Hann er nú á förum héðan, svo það er hver síðastur að heyra hann spila. nauðsynlegt, að finna nýjar verzlunarleiðir, og þar hefir samvinnufélagsskapurinn unn- ið mikilvægt starf. Þegar bornar ei’U saman við- skiptamálastefnur saitívinnu- manna og einkaverzlunar- manna, má segja, að einka- verzlunin sé eins og gamál- dags seglskip, sem verður að stöðva ferð sína þegar byrinn vantar, og láta farþegana þola hungur og kulda. En samvinnu- stefnunni má aftur á móti líkja við skip með nýtízku vélum, sem skilar farþegunum hverjum fyrir sig, heilu og höldnu í áfangastað“. Alþjóðafundinn sitja fimm- hundruð fulltrúar. vinnumálunum meðal frænd- þjóðanna. — Eru nokkrar nýjungar á sviði samvinnuhreyfingarinnar, sem þér getið sagt okkur frá? — Já, það er alltaf eitthvað nýtt á sviði samvinnunnar, sér- staklega í Svíþjóð. Ég- skoðaði t. d. tvær verksmiðjur, sem sænska sambandið er nýbúið að byggja og tóku til starfa á þessu ári og því síðastliðna. önnur er brauðgerðarhús, sem framleiðir um 90 þús. kg. af hörðu brauði á viku. Fram- leiðsla brauðgerðarhússins hef- ir gert það að verkum, að verð harða brauðsins hefir lækkað og eftirspumin aukizt mjög mikið. Hitt er makkarónu- verksmiðja. Framleiðslumagn hennar man ég ekki hvað er mikið, en makkarónurnar eru góðar, og sambærilegar við beztu ítalskar makkarónur. — Báðar þessar verksmiðjur nota eingöngu raforku og eru að öllu leyti af fullkomtíustu gerð. Þriðja verksmiðjan er í smíð- um, en hún á að gera svokall- að komflakes úr inánnagrjón- um. Loks eru um 50 nýtízku íbúðir í smíðum hjá samband- inu. Það leigir síðan íbúðiraar Framh. á 2,- síðu. amvinnufélögin Svíþjóð og Danmörku Yiðtal Yið Uuðlaug Bósinkrauz

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.