Nýja dagblaðið - 09.09.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 09.09.1934, Blaðsíða 1
Njáll sítur lastur í ásnum. Skipverjar hafd matarforða til 12 daga Blaðinu barst í gær »vo- hljóðandi fregn frá aendiherra Dana: Hinir ítölsku leiðangurs- menn, sem fóru frá Reykjavík til Grænlands eru taldir vera 1 mikilli hættu. Skipið, sem flutti þá til Grænlands, „Njáll", sitm- fast í ísnum og hafa skipverjar matarforða til aðeins 12 daga. Auðvelt mun þó að koma þeim til liðveizlu. Hinsvegar virðast ítalimir fimm vera mjög nauðulega staddir. 1 annari frétt frá sendiherra Dana, segir ennfremur: Grænlandsstjómin hefir fengið svohljóðandi skeyti: It- alarnir gengu á land 23. ágúst síðastl. og ætluðu í fimm daga fjallgöngu. Landgöngustaður- inn var á 70.08 gr. n. br., 28.05 gr. v. 1. Þeir höfðu með sér matarforða til 20 daga. „Njáll“ lagðist við festar í firði einum á 70.08 gr. n. br., 22.18 gr. v. 1. — og átti að vitja Italanna fimrn dögum síðar, en ísinn hefir síðan ver- ið það þéttur, að „Njáll“ hef- ir ekki getað hreyft sig. Ef „Njáll“ gæti ekki sótt Italina, ætluðu þeir að koma þangað, sem! hann lá, en em ekki komn- ir ennþá, eftir 12 daga fjar- vem. Það hafa verið rigningar, byljir og miklar þokur síðustu vikuna. Dr. Lauge Kock ætlar að freista, að konia Itölunum til hjálpar, án þess þó að vita, hvar þeirra er að leita, eða hvort þeir em á lífi. Blaðið snéri sér í gær til út- gerðarstjóra skipsins, Magnús- ai' Guðjónssonar í Hafnarfirði. Honum hafa ekki borizt fréttir síðan 1. sept. Þá lá Njáll sunnan við Scoresbysund og sögðu skipverjar, að þeim liði vel, að þeir hefðu haft með sér matarforða, sem á- ætlað var að entist þeim til tveggja mánaða. Héðan var farið 31. júlí síðastl. og þá ráðgert að ferðin tæki ekki lengri tíma en hálfan annan mánuð. Það var fyrverandi ríkis- stjóm, sem réði „Njál“ til fararinnar og mun til ætlazt, að rfkissjóður beri kostnað af ferðinni fram og aftur, en It- alamir kosti dvölina við Græn- land. NjáS mun hafa komírt a. m. k. einu sinni í mjög mikla hættu af ís, því fregnir komu af því, að skrúfa og stýri skipsins hefði laskast, en við- gerð á því fengu leiðangurs- mennirnir hjá frönsku rann- sóknarskipi. Á Njál em fimm skipverjar. Skipstjóri er Sigurjón Jónsson úr Hafnarfirði. Njáll er 37 tonn að stærð og er sagt vera traust skip. Magnús Guðmundsson ætlaði „Ægi“ í þetta ferðalag, en liætti við, sökum mótmæla hér í blaðinu. Síðustu fregnir Kalundborg 8/9. FÚ. I kvöld hafa komið nýjar fregnir af Njáli og Itölunum og ástandið hefir batnað að mun. Njáll hefir losnað úr Þegar kjötverðlagsnefnd um , síðustui mánaðamót ákvað kjöt- verðið, lækkaði heildsöluverðið hér í Reykjavík um 10 aura pr. kg. frá því sem verið hafði næstu dagana á undan eða úr kr. 1,60 niður í kr. 1,40. Það verð var ákveðið „fyrst um sinn“. I gær kom kjötverðlags- nefndin saman til að gera nýja ákvörðun. Er nú ákveðin ný verðlækkun, sem gengur í gildi á mánudagsmórgun. Er hið nýja verð auglýst hér í blaðinu í dag. Blaðið átti í gærkvöldi tal við formann kjötverðlags- nefndar, Jón ívarsson. Gerði hann ráð fyrir nýrri verðá- kvörðun áður en aðal-slátur- tíðin byrjar. Það er föst venja, eins og gefur að skilja, að kjötverðið sé talsvert mikið hærra fyrir „sláturtíð" en eftir að hún er byrjuð. Er það vegna þess, að dilkar em þá ekki búnir að ná fullri þyngd og kostnaður mik- ill fyrir bændur að koma þeim á markað um m'esta annatíma ársins. Eftir upplýsingum, sem blaðið heíir fengið víðsvegar ísnum og ítalimir hafa fund- ist og bjargast og segir loft- skeyti frá Dr. Lauge Koch, að þeir séu nú komnir um borð í Njál og líði vel. Menn vonast nú eftir því þar nyrðra, að ísa leysi svo, að Njáll geti komj|t út í haf og heimleiðis. Skrifstofustjóri Grænlands- stjórnar segir útvarpinu í kvöld, að allar horfur séu á því, að leiðangurinn sleppi heilu og höldnu og telur ekki ástæðu til þess að óttast um hann frekar. Italirnir, sem eru í þessum leiðangri, eru þeir: Leonardi Bonzi greifi, foringi þeirra, Signor Leopold Casporetto, Bemardo Picenardi markgreifi og Gigli Martinoni greifi. I skeyti frá skipstjóranum á Njáli er sagt, að ítalamir hafi gengið á fjöll á suðvesturodd- anum, sem myndar fjörðinn í Scoresbysund, og hafi þau fjöll ekki verið könnuð áður. Hann segir einnig að undan- farið hafi verið þar verstu veður, og þeirra vegna hafi It- alarnir tafizt. að, mun slátrun og kjötsala vera engu minni nú en venju- legt hefir verið undanfarin ár. I smærri kaupstöðum og kaup- tijnum heíir Kjtftsala alltaf verið mjög lítil fram að aðal sláturtíð, og er það vitanlega svipað nú. Sorglegt slys Það sorglega slys vildi til í Vestmannaeyjum í gær, að Helgi Scheving, stud. jur. féll út af eystri hafnargarðinum. Vildi það þannig til, að hann hjólaði fram garðinn ásamt öðrum manni, gekk þá sjór yf- ir garðinn og tók Helga með sér. Náðist hann eftir 10—15 mínútur. — Lífgunartilraunir standa enn yfir. Árangur óvís. Hinn maiminn sakaði ekki. — Þetta skeði umí þrjúleitið í gær. Nýja dagblaðið átti símtal við Ólaf Lárusson héraðslækni í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Sagði hann að ekkert lífsmark hefði verið með Helga er hann náðist og lífgunartilraunir reynst árangurslausar. Kvika var við hafnargarðinn og gekk yfir hann öðru hvoru. Ægilegur eldsvoði Stórskip me8 570 manns innanborðs brennur úti á hafi. Ovfst hve margir hafa bjargast London 8/9. FÚ. I morgun kom upp eldur í stóru gufuskipi, Norrow Cast- le, sem var á leið frá New York til Havana, og brennur | ^kipið ennþá. Menn vita ekki enn með vissu um örlög ýmsra farþega og skipverja, því að flestir þeirra voru í svefni í klefum sínum, þegar eldurinn gaus upp, og hafði hann læst sig víða um skipið, og var orðinn lítt viðráðanlegur þeg- ar menn urðu hans varir, svo að ekki var unnt að gera far- þegum viðvart. Þetta bar svo bráðan að, að skipverjar gátu ekki komizt inn í alla svefnklefa farrým- anna, til þess að vekja far- þegana, heldur hlupu háset- arnir eftir göngunum og brutu rúðurnar í gluggunum eða hurðunum til þess að vekja farþegana. Með skipinu voru 318 far- þegar og 250 mana skipshöfn. Þegar eldsins varð vart var skipið um 20 mílur suður af vitaskipinu Scotland. Warms stýrimaður skipsins hafði aðalstjóm þess á hendi, því að skipstjórinn hafði rétt áður andazt af hjartaslagi. Eldurinn geysaði stafna á milli á skammri stundu. Skipið stóð í björtu báli á skammri stundu. Neyðarmerki voru þegar send út, og ýms skip hröðuðu sér undireins til bjargar. Björgunarbátar og strandvamarbátar voru tafar- laust sendir út frá ýmsum höfnum á ströndinni, áleiðis til hins brennandi skips. Veðrið hefir verið vont í dag, stórsjór á norðaustan og rigning. Skyggni hefir því ver- ið afarslæmt og hefir þetta hamlað björgunarstarfinu. Það var ekki hægt að koma út björgunarbátum skipsins nema upp í vindinn, af því að stormurinn bar eldinn yfir hléborð með neistaflugi, reykjarsvælu og ofsahita, svo að það varð engu björgunar- starfi við komíð og ekki hægt að athafna sig neitt. Farþegar köstuðu sér í sjóinn. — Hjón syntu í 6 klst. til lands. Margir farþegar hentu sér fyrir borð og í sjóinn, og vita menn ekki enn um afdrif þeirra allra. Þó er vitað um 2 þeirra, það eru hjón, sem tókst að synda með björgunar- beltum, sem þau höfðu náð í, | alla leið til strandai-, og voru á sundinu í 6 klst. En svo voru þau þrekuð, þegar þau komu á land, og þeim var bjargað, að þeim var vart nugað líf. Skip þau, sem komu til að hjálpa, úr ýmsum áttum, er ; þau heyrðu neyðarmerki hins brennandi skips, gátu bjargað ýmsu af fólkinu, er það hrakt- ist um í brimrótinu, eða beið enn í báli skipsins, þar sem hlé var helzt að fá. Segja þeir og aðrir áhorfendur, að þá hafi verið illlifandi í námunda við skipið fyrir hitanum og reykn- um. Það hafi verið eins og í logandi deiglu. Skipið var þá alelda stafna á milli og ógn og skelfing fólksins óskapleg, er það hraktist milli báls og brims. Ókunnugt um, hve marg- ir komust lífs af. Skipið Monarch of Bermuna hafði, þegar síðast fréttist, bjargað 65 mönnum, og skipið Luchenbach hafði bjargað 22. Alls er nú talið vitað um 190 manns, sem bjargazt hafa á ýmsan hátt, og vona menn að ennþá fleiri hafi bjargast, þótt ekki séu enn komnar fréttir um það. Ekki er kunnugt með fullri vissu um upptök eldsins. Marg- ir farþegar, sem hafa komist af, segja, að eldingu hafi lostið niður í skipið og kveikt í því, en skipverjamir, semi af hafa komist, segjast álíta, að eldurinn hafi komið upp í straustofu skipsins. Síðast þegar fréttir bárust af þessu í kvöld, var ennþá uppi eldur í skipinu, en þó tal- ið líklegt, að upp úr þessu mætti fara að draga flakið til lands. Morrow Castle er 11500 smálesta skip. Stýrimaðurinn, sem hafði skipstjómina með höndum og tveir aðrir yfirmenn skipsins, voru enn um borð fyrir skömmu, en annars var skipið mannlaust. Hugsanafrelsi London 8/9. FÚ. í lok áttunda alþjóðafundar heimspekinga var samþykkt svohljóðandi tillaga: Fundur- inn lýsir yfir trú sinni á frelsi hugsunarinnar og á rétti allra manna til að láta óhikað í ljósi þær skoðanir sem þeir álíta réttar.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.