Nýja dagblaðið - 15.09.1934, Blaðsíða 1
Rhode Island í hernaðar-
ástandi vegna verkf allsins
Allir kommúnistar í ríkínu handíeknir
•v.*
Tvö japönsk hsrskip á leið til Manshcuriu
London kl. 16, 14./9. FÚ.
Ríkisstjórinn í Rhode Island
hefir símað Roosevelt forseta
og beðið um aðstoð ríkishers-
ins, til þess að hjálpa lögregl-
unni til þess að halda uppi
friði og reglu í ríkinu, þar
sem liðstyrkur sá, sem hann
hafi yfir að ráða sé að þrotum
kominn eftir óeirðirnar í Wonn-
socket í gær. En þá skaut lög-
reglan í 5000 manna hóp. Eng-
inn ríkisher hefir þó verið
sendur til Rhode Island ríkis,
en orð leikur á því í dag, að
forsetinn ætli sjálfur að fara
þangað til þess að kynnast
ástandinu af eigin sjón og raun.
Ríkisþingið í Rhode Island
hefir neitað að fallast á beiðni
ríkisstjórans um styrk alríkis-
hersins, en hefir veitt honum
vald til þess að láta loka verk-
smiðjum og auka lögregluliðið.
í Woonsocket hefir allt verið
með kyrrum kjörum í dag, en
menn óttast að sú kyrð sé ein-
ungis stilla á undan stórvirðr-
inu og deildir úr herliði ríkis-
ins eru viðbúnai’ þegar kallið
kemur.
í gærkvöldi var lokað öll-
um leikhúsum og öðrum
skemmtistöðum borgarinnar, og
fólki var bannað að fara út úr
húsi nema í brýnum erindum.
Ríkisstjórinn í Rhode Island
segist álíta, að Kommúnistar
hafi róið undir uppþotið í gær,
og sama megi segja um óeirð-
irnar í Saylesville undanfama
daga. Hann hefir skipað svo
fyrir, að handtaka skuli alla
kommúnista í ríkinu.
Japanar sendu seint í ágúst 30 herskip og 100 flugvélar til Mansjúríu. Á mynd-
inni sést 10 þús. tonna beitiskip og annað herskip minna úr japanska flotanum.
Bráðabirgðalög um með-
ferð og sölu mjólkur og
rjóma o. fl.
Kínverjar ákæra Japana
á fundi Þjöðabandalagsins
Hin nýju mjólkurlög, sem
landbúnaðarráðherrann, Her-
mann Jónasson, hefir gefið út
og staðfest voru af konungi 10.
þ. m., eru svohljóðandi:
1. gr.
Við sölu mjólkur og rjóma
skal landinu skipt í svæði, er
nefnist verðjöfnunarsvæði. Að
jafnaði markar sú aðstaða
verðjöfnunarsvæði, að hægt sé
þar að selja daglega góða og
óskemmda mjólk og rjóma frá
mjólkurbúum, einu eða fleir-
um, sem viðurkennd eru til
þess af landbúnaðarráðherra,
enda sé kaupstaður eða kaup-
tún innan þeirra takmarka.
Jafnframt skal mjólkursölu-
nefndinni skylt, er verðjöfnun-
arsvæðin eru ákveðin, að taka
tillit til þess, hvaða mjólkurbú
hafa notið markaðar í hlutað-
eigandi kaupstöðum eða kaup-
túnum.
Er öllum mjólkurframleið-
endum óheimilt að selja mjólk
eða mjólkurafurðir utan þess
verðjöfnunarsvæðis, sem þeir
eru á, sbr. þó 10. gr. Hér er
þó undanskilin sala á osti,
súru skyri, smjöri, niðursoð-
inni mjólk og þurrmjólk.
2. gr.
í öllum þeim kaupstöðum og
kauptúnum, þar sem fram
getur farið dagleg sala á
mjólk og rjóma frá mjólkur-
búum, sem viðurkennd verða
til þess af landbúnaðarráð-
herra, skal gjald, er nefnist
verðjöfnunargjald, lagt á alla
neyzlumjólk og rjóma sem selt
er, hvort heldur frá mjólkur-
búum, félögum eða einstökum
mönnum. Gjald þetta má nemá
allt að 5% af útsöluverði
mjólkur og rjóma, en heimilt
er þó að hækka gjaldið, ef sér-
stök þörf krefur, enda komi
samþykki landbúnaðarráðherra
til.
Undanþegin verðjöfnunar-
gjaldi er mjólk, sem framleidd
er á ræktuðu landi innan sama
Framih. á 8. síðu.
Kosningar í dag
í Astralíu
London kl. 16, 14./9. FÚ.
Kosningar fara fram í Ástr-
alíu á morgun. Aðalflokkamir
eru hinn sameinaði ástralski
ílokkur, sem1 nú fer með stjóm_
ina með forsæti Lyons, og hinn
sameinaði verkamannaflokkur,
en foringi hans er Mr. Schullin,
sem áður var forsætisráðherra.
Báðir flokkar hafa góðar vonir
um sigur.
í Ástralíu eru kjósendur
kosningaskyldir, en kosningar
eru hlutfallskosningar, og má
kjósandi ráða frambjóðendum
á kjörseðli eftir vild sinni.
Leyndarmál
vopnasalanna
Bannsöknin heldur
átram
London kl. 16, 14./9. FÚ.
Vegna uppljóstrana þeirra,
sem orðið hafa í sambandi við
rannsóknir Senatsnefndarinnar
í U. S. A. um vopnaframleiðslu
hefir stjórnin í Chile lýst því
yfir, að hún muni ekki verða
við tilboðum Bandaríkjanna um
f ] ugsamningana.
Stjómin í Argentínu hefir
fyrirskipað rannsókn vegna
ákæranna, sem fram' hafa kom-
ið um sviksamlegt framferði og
aðra spillingu í her og flota.
í dag var lagt fyrir rann-
sóknarnefndina bréf til amer-
isks firma frá brezka Imperial
Chemical Ltd., þar sem vikið
er að samvinnu um sölu sprengi-
efna um allan heim.
Sannanir voru einnig lagðar
fram1 fyrir því, að Kínverjar
hefðu notað lán, sem þeim var
veitt til hveitikaupa, til þess
að kaupa skotfæri.
Brezku flugmenn-
irnlr komu til Far-
eyja i gar.
London kl. 19,40, 14./9. FÚ.
Flugbátarnir tveir úr brezka
lofthernum, sem ætla í rann-
sóknarför til Grænlands, komú
til Færeyja í kvöld og fljúga
áfram til íslands undir eins og
veður leyfir.
London kl. 16, 14./9. FÚ.
Fulltrúi Kínverja kvaddi sér
hljóðs á fundi Þjóðabandalags-
ins í dag og gerði kröftuglegar
athugasemdir um stöðu og
ástand Mansjúríu. Hann sagði,
að það breytti engu um her-
nám Japana í norðaustur hér-
uðum Kína, þótt útlendingar
hefðu sett til málamynda ein-
hverja brúðu í Mansjúríu og
kallað hana keisara. Hann
sagði, að þetta framferði Jap-
ana væri algert brot á ákvæð-
um Þjóðabandalagsins. „Kín-
verjar munu einungis þola
undirbúin á Spáni
Berlín kl. 8, 14./9. FÚ.
Á Spáni hefir orðið uppvíst
um fyrirhugaða býltingu kom-
múnista. Spönsku blöðin ræða
mikið um byltingaráform
þetta, en geta litlar nákvæm-
ar upplýsingar gefið um það,
því að innanríkisráðherra hefir
lýst því yfir, að blöðunum
muni fyrst um sinn engar upp-
lýsingar verða gefnar um
málið, til þess, að þau tefji
ekki fyrir rannsókn þess. Það
hefir þó vitnast, að byltingar-
mennirnir hafi smyglað inn
mjög rniklu af vopnum, aðal-
lega vélbyssum, og hafi miklar
vopnabirgðir þegar verið gerð-
ar upptækar.
þetta meðan þeir eru neyddir
til þess“, sagði hann. Og enn-
fremur sagði hann, að jap-
anskur her héldi nú með vopn-
uðu liði mörgum borgum og
jámbrautum og væri að reyna
að kúga fólkið til hlýðni.
„Kyrrahafið er nú orðið
mesta veðravíti veraldarinnar í
opinberum málum“, sagði hann,
„og í hemámi Mansjúríu er
fólgin alvarlegasta ófriðarhætt-
an, sem nú vofir yfir heimin-
um, hættan á nýrri eyðileggj-
andi styrjöld. Mansjúríumálin
eru órjúfandi tengd friðarhorf-
unum í heiminum“.
Umferðaslys
i Englandi
98.919 særðir — 2858
drepnir á 21 viku.
Slysfarir af umferð í ýms-
um' löndum Evrópu, eru eitt
megin áhyggjuefni sérfræð-
inga í þeim málum.
Og slysin fara hraðvaxandi.
Það eitt er talið víst, að ein-
hverjar mdklar breytingar
verði að gerast í umferð og
umferðareglum.
Hvað gera skuli er aftur á
móti óvíst. í fjölbyggðum
löndum með hinu þétta vega-
kerfi og stórborgalífi farast
fieiri tugir fólks daglega á
Framh. á 4. alðu