Nýja dagblaðið - 18.09.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 18.09.1934, Blaðsíða 1
Millíþinganefnd í sjávarútvegsmálum gerir tillögur um lögbundið skipulag á brezka síidarútveginum -«C5V. r Verðlækkun á kjðti Kjötverðlagsnefnd hefir á- kveðið, að heildsöluverð á Bretar skipuðu s. L vetur að ríkið verja 50 þús. £ til að ^jöti hér í Reykjavík skuli milliþinganefnd í sjávarútvegs- i kaup gömul síldveiðiskip til og ,me^, deginum í dag málum. Fyrsti hluti nefndar- niðurrifs. i lækka niður í kr. 1,25 pr. kg. álitsins er nú kominn út, dags. 1 Þá er og gert ráð fyrir að 15. ágúst s. 1. og er um síld- í setja síldarverkunina undir ! vtóiðina við Bretland. j eftirlit og úthluta leyfum til Eftir þeim upplýsingum, í síldarverkunar. Er gert ráð sem nefndin hefir aflað sér, j fyrir, að leyfin verði veitt með hefir afkomu síldarútvegsins í : því skilyrði, að hin smærri Bretlandi hrakað stórlega síð- ' fyrirtæki verði sameinuð. an fyrir heimsstyrjöldina. Síldarútflutningur hefir minhk- að umj 55% og innanlandsneyzl- an um 45%. Síldveiðiskipum hefir þó ekki fækkað að sama skapi. Árið 1913 gengu til veiða 1470 reknetaskip og öfl- uðu samanlagt 11.763.000 cwts. Árið 1933 voru reknetaskipin 1088, en aflinn ekki nema 4.688.000 cwts. En á rekneta- skipinu fást um 80% af síldar- aflanum. Þessi hlutfallslega mikla rýmun framleiðslunnar samanborið við skipastólinn, hefir í för m;eð sér ákaflega há- an reksturskostnað fyrir út- gerðina í heild. Hafa því hlað- ist á hana skuldir, og telur nefndin að endumýjun skipa og útbúnaður veiðarfæra hafi af þeim orsökumj verið rækt til stórtjóns fyrir útgerðina. Ennfremur telur nefndin, að verkun brezkrar síldar sé í ólagi og sömuleiðis síldarverzl- unin. Aðaltillaga milliþinganefnd- arinnar er að stofnuð verði sér. stök skipulagsnefnd fyrir síld- arútveginn. Nefndin á að hafa aðsetur í Edinborg, með því að mlkill meirihluti síldveiðanna er rekinn frá Skotlandi. Nefnd- armenn séu allt að 8, þar af þrír, sem sérstaklega séu full- trúar ríkisstj ómarinnar, með almenna þekkingu á verzlun og atvinnurekstri, en hinir nefnd- armexm séu skipaðir úr hópi síldarútgerðarmanna og síldar- verkunarmaxma og síldarkaup- manna. Höfuðverkefni skipu- lagsnefndarinnar eiga að vera þau, að úthluta leyfum fyr- ir skip til síldveiða, og setja reglur um ástand þeirra, út- búnað o. s. frv.), setja tak- markanir um veiðisvæði og veiðitíma, ákveða möskvastærð síldamæta o g setja nánari reglur um veiðiaðferðir, ákveða friðunartínaa (í apríl og míaí?) og loks að veita fjárhagslegan styrk til útgerðarinnar, ef þurfa þykir. M. a. er lagt til, Allur síldarútflutningur frá Bretlandi á að vera í höndum nefndarixmar. Skipulagsnefndinni til að- stoðar eiga að vera 8 undir- nefndir í ýmsum landshlutum. Þessi fyrirhugaða skipulags- nefnd brezka síldarútvegsins er hliðstæð afurðasölunefndum landbúnaðarins (Agricultural Marketing Boards), sem nú eru starfandi í Bretlandi, og eru taldar hafa gerf brezka landbúftaðinum mikið gagn. Aðal sláturtíðin er nú í þann veginn að hefjast. Fiskafll »0 síldveiðar Samkv. skýrslu Fiskifélags- ins var fisksalan orðin fráára- mótum til 15. sept. 61.120 smál., reiknað í þurrum fiski. Á sama tíma í fyira var íiskaflinn orðixm 66.892 smál. Fiskifélagið hefir einnig gert yfirlit um síldveiðamar fram til 15. sept. Hafa verið saltað- ar í ár 214.686 tn. af síld og 686.726 hl. farið í bræðslu. I fyrra höfðu verið saltaðar 9. sept., en þá var lokaupp- gjörið gert, 219,046 tn. og 751,225 hl. farið í bræðslu. Rússar taka sæti í Þjóða- bandalagsráðínu á morgun London 17/9. FÚ. Á fundi Þjóðabandalagsráðs- ins í dag var inntaka Sovét- Rússlands í Þjóðabandalagið tekin á dagskrá fyrir næsta Stalin. þing. Sætti það engum mót- mælum. öll sambandsveldin brezku höfðu undirritað tilboð til Sovét-Rússlands nema frí- jjíkið Irland, og öll ríkin á meginlandi Evrópu, nema Belgía, Hollland, Portúgal, Luxemburg og Sviss. Er nú búist við, að fulltrúi Sovét- Rússlands taki sæti sitt í Þjóðabandalagsráðinu á mið- vikudaginn kemur. Rússneska blaðið Isvestia ræðir í dag um tilboðið til handa Rússlandi um að ganga í Þjóðabandalagið, og telur það sönnur þess, hve afstaða auðvaldslandaima hafi breyzt gagnvart Rússólandi, og viðux-- keningar- og friðarviðleitm þess. Þakkar blaðið Frakklandi fyrir að hafa átt upptök þessa máls, og bætir síðan við: „Sovétríkið þekkir alla veik- leika Þjóðabandalagsins, og að undanfarin ár hefir það ekki verið fært um að gera al- varlegar ráðstafanir til trygg- ingar friðinum. Sovétríkið sér, að það eru þjóðir í bandalag- inu, sem óska að rjúfa friðinn, og telur það því skyldu sína, að þiggja þetta tilboð um inn- göngu í Þjóðabandalagið, til þess að stuðla að sigri friðar- stefnunnar". Það ræðir í grein- inni um viðskilnað Japana og Þjóðverja við Þjóðabandalag- ið, og segir í því sambandi, að það hafi reynst þröskuldur, sem ófriðarviljiim hefir dottið um til þessa. Hinum lausu sætum Þjóðabandalagsráðsins var úthlutað í dag, samkvæmt kosningu. Spánn og Tyrkland hlutu fulltrúa, en umsókn Kína um að mega endurskipa fulltrúa sinn, var hafnað. Kennaradeilan Nýju kennararnir verða settir i d&g Kennslumálaráðh. sagði blað- inu í gær, að í dag yrði af- greidd frá ráðuneytinu setning nýrra kennara við Reykjavík- urbarnaskólana í vetur. Eins og lesendum þessa blaðs er kuimugt, hefir það vakið samhuga andúð kenn- arastéttarinnar, að skólanefnd mælti með nokkrum mönnum, sem ekki hafa kennararétt- indi. Blaðið hefir frétt, að bæði fræðslumálastjóri og kennzlu- málaráðherra hafi tekið kröf- ur kénnarastéttarinnar til greina, enda væri annað ótrú- legt. Jafnframt hefir blaðið frétt, eftir áreiðanlegum heimildum, að þessir kennarar verði sett- ir: Valgerður Briem, Brynjólfur Þorláksson, Anna Konráðsdóttir, Skúli Þorsteinsson, Stefán Jónsson, Eiríkur Magnússon, Marteinn Magnússon, Guðrún Jóhannsdóttir. Walpole sekknr Skipverjar bjargast Togarinn Walpole frá Hafn- arfirði strandaði aðfaranótt sunnudagsins undan Gerpi, sem er norðan Reyðarfjarðar. Skipið hafði verið þar á veiðum, en var að hætta þeim og ætlaði til Eskifjarðar, til þess að taka þar bátafisk til útflutnings. Dimmviðri var og vissu skipverjar ekki fyr en skipið tók niðri. Var árekstur það mikill, að stórt gat kom á skipið og varð ekki við neitt ráðið. Skipið losnaði af skerinu skammri stundu síðar og gátu skipverjar með naumindum komist í bátana, áður en það sökk, en aðdýpi var þama mjög mikið. Liðu einar 20 mín. frá því skipið strandaði og þangað til það var sokkið. Skipverjar náðu landi við Karlsskála um birtingu um morguninn, en þaðan voru þeir fluttir á vélbáti til Eskifjarð- , ar og koma þeir suður með fyrstu ferð. Skipstjóri á Walpole var Ár- sæll Jóhannsson, frá Eyrar- bakka. Walpole var 20 ára gamall, byggður í Englandi. Hann var keyptur hingað 1920 og var nú eign H.f. Akurgerði í Hafn- arfirði. ,Gustav Holm‘ i Reykjvik Viötal við Dr. L&nge Koch Á sunnudagskvöldið kom Grænlandsleiðangursskipið Gustav Holm hingað til Rvík- ur. Hefir það verið við Græn- land í sumar, rneðan rannsókn- ir hafa verið gerðar þar á jarðlögum og jöklum. Hinn þekkti Grænlandsfari dr. Lauge Koch var foringi far- arinnar og voru með honum margir sænskir og danskir vísindamenn, þar á meðal Backlund prófessor í jarðfræði við háskólann í Uppsölum. Tíðindamaður blaðsins náði í gær tali af dr. Lauge Koch, sem skýrði blaðinu frá eftir- i'arandi: — Við fórum til Grænlands Framh. á 4. gíðu Eiski flugleiðang- urinn snúinn aftur London 16/9. Ft. Nú er hætt við Grænlands- flug það, sem tveir flugbátar úr enska flughernum lögðu upp í, á fimmtudag. Bátarnir komust til Færeyja og snúa við þar. Er horfið frá fluginu vegna ísa við Grænland. Hosningarnar i Astralíu London 17/9. FÚ. I áströlsku kosningunum, sem fram fóru á laugardag, töpuðu stjómarflokkamir þremur sætum' hvor, og óháðu flokkarnir báðum þeim, er þeir höfðu. Verkamannaflokkurinn vann 4 þessara sæta, og annar flokkur, sem stendur nærri verkamönnum, þrjú. En í hinu nýkjöma þingi verður einu þingsæti færra, en í hinu fyrra. Heimsmet í fþróttum London 17/9. FÚ. 1 fimleika- og aflrauna- keppni, sem fram fer í Tokio milli japanskra og amerískra í- þróttamanna, hafa nokkur ný heimsmet verið sett. Japansk- ur sundmaður setti í dag heimsmet í 100 og 200 m. bringusundi. Svam hann 100 m. á 1 mín. 13,8 sek., og 200 m. á 2 mín. 44 sek. Japani, Oshirna að nafni, setti nýtt heimsmet í þrístökki, stökk 51 fet enskt og 11 þml., sem er fjórum þuml. meira en fyrra met, sem einnig var sett af Japana.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.