Nýja dagblaðið - 25.09.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 25.09.1934, Blaðsíða 1
NYJA DAGBIAÐIÐ 2. ár. | Reykjavík, þriðjudaginn 25. sept. 1934. 226. blað m íí 10 miljónir fyrv. hermanna mótmæla ófriði. - Þeir telja það skyldu sína við látna félaga Þeir ætla að láta byggja nýbýli á friðuðu landi þrátt fyrir mótmæli umsjónarmannsins á Þingvöllum, hreppstjóra og odd- vita sveitarinnar og gegn atkvæði þriðja nefndarmannsins. Nýja dagblaðið hafði heyrt, að Þingvallanefndin hefði leyft bóndanum 1 Skógarkoti að flytja bæ sinn niður að Vellan- kötlu. Skógarkot er í hinu friðaða Þingvallalandi, en bóndanum þar er óheimil fjárbeit innan hins friðaða lands. Hafa hon- um verið greiddar um 9000 kr. sem skaðabætur fyrir það, að verða af þeim hlunnindum. Nýlega sótti hann um leyfi til Þingvallanefndar, að mega flytja bæ sinn niður að Vellan- kötlu og stofna þar nýtt býli. En stofnun nýbýlis þar mundi þýða stórkostlega eyðingu á skógi, og er slíkt vitanlega í fyllstu andstöðu við anda frið- unarinnar. Til þess að fá staðfestingu á því, hvort það myndi rétt að Þingvallanefnd hefði þannig brotið Þingvallafriðunina, spurð ist Nýja dagblaðið fyrir uid það hjá ritara nefndarinnar, Magnúsi Guðmundssyni, fyrv. ráðherra, hvort þetta væri rétt. Magnús sagði, að meirihluti nefndarinnar hefði leyft að byggt yrði nýtt býli við Vellan- kötlu. Aðrir nefndarmenn eru{ Jón- as Jónsson og Jakob Möller. Fékk blaðið þær upplýsingar hjá Jónasi Jónssyni, að hann hefði lagt ákveðið gegn þessari ráðstöfun, og þegar útséð var að Jakob og Magnús ætluðu að beita meirahlutavaldi, óskaði haim eftirfarandi bókunar: „Út af beiðni Jóhanns Krist- jánssonar í Skógarkoti um að flytja bæ sinn niður að Vellan- kötlu, vil ég taka þetta fram: Ég er algerlega mótfallinn, að byggt verði á þessumj stað, vegna friðunarinnar. Liggja fyr ir mótmæli umsjónarmannsins á Þingvöllum, oddvita og hrepp stjóra sveitarinnar og frá bónd anum í Hrauntúni. Jón Bald- vinsson, formaður Alþýðu- flokksins, hefir leyft mer að geta þess, að hann sé algerlega mótfallinn þessari ráðabreytni og má því búast við, að meiri hluti núverandi þings sé and- vígur því, að þetta leyfi sé veitt. En þar af leiðir, að það er ábyrgðarhluti fyrir meira- hluta nefndarinnar að taka á- kvörðun, sem er andstæð vilja meirahluta Alþingis. Ég álít að komið geti til mála að bygging á þessum stað sé að öðru leyti í ósamræmi við landslög og áskil mér rétt til að láta fara fram athugun á því efni“. öll þessi mótmæli, sem hér eru tilgi’eind, eru byggð á því, að eyðing skógarins, sem1 af þessu myndi hljótast, séu brot á friðunarlögunum'. Það eru mennirnir, sem bezt ’ þekkja til friðunarinnar og fyr. ir hana hafa unnið, sem gefa slíkar yfirlýsingar. Tvímælalaust er þessi ráð- stöfun í ósamræmi við vilja meirahluta Alþingis. Það eru fulltrúar minnihlutaflokks, sem í umboði Alþingis ætla að spilla Þingvallafriðuninni. Vemdun sögufrægasta og náttúrufegursta staðar lands- ins er menningarmál, sem ekki má sýna tómlæti. Það verður að fyrirbyggja, að misyndis- menn, sem trúað hefir verið fyrir þessu máli, verði því ekki að tjóni. Fellibylurinn í Japan varð yfir 2000 rnönn* um að bana. — 258 horfnir. London kl. 17, 24./9. FÚ. Innanríkisráðuneytið jap- anska hefir gefið út skýrslu um manndauða og slysfarir af völdum fellibylsins á föstu- dagsmorguninn. 2064 hafa far- izt, 258 eru horfnir, yfir 13 þús. hafa særst og orðið fyrir meiðslum. Það er hér um bil víst, að slysfarir hafa orðið meiri en þetta, þar sem! rústir eru víða ókannaðar eimþá. Skip, sem voru á sjó á óveðursvæðinu, komust mörg í hann afar krappan, og enn er ekki vitað með neinni vissu, hve mikið tjón hefir orðið á sjó. Flugferð misheppnast London kL 19,40, 22./9. FÚ. Sir Alan Cabham, sem í gær- aag lagði af stað í langflug til Indlands ásamt Hellmore liðs- foringja, hefir þurft að hætta við flugið. London kl. 16, 24./9. FÚ. 1 dag hófst í London sam- bandsþing fyrverandi her- manna í löndum þeim, sem saman börðust á hlið Breta og Frakka í . ófriðnum mikla Mættu þama fulltrúar fyrir 10 milj. fyrv. hermanna úr 10 löndum, sem öll stóðu samán í ófriðnum. Forseti þingsins er Kadara, sendiherra Rúmena í Varsjá. í fundarsetningarræðu sinni London kL 16,50 23./0. FÚ. I alla nótt og fram! eftir deg- inum í dag var haldið áfram björgunartilraunum við nám- una í Wrexham. En síðdegis í aag tilkynnti námumálaráð- herra, að aðaleftirlitsmáður náma hefði tjáð sér, að með tilliti til hinnar miklu og vax- andi áhættu við björgunar- starfið, og vegna þess að gera mætti ráð fyrir því sem vísu, að allir væru dánir senf niðri í námunni væri, og því engin von um að geta bjargað manns- lífum héðan af, þá hefði yfir- stjórn námanna og verkamánna komið sér saman um, að hætta við björgunartilraunimar úr því sem nú væri komið. Menn óttast að ennþá fleiri menn hafi farizt en gert var ráð fyrir í gær. Amy Johnsen, ,hin fræga, enska flugkona, sem gat sér m. a. svo mikinn hróður með flugi sínu til Ástralíu fyrir fá- um árum síðan, er nú ráðin til að stýra áætlunarvél, sem heldur uppi ferðum milli Lond- on og París. Hún hafði kvai-t- að undan því, að fá ekki — þrátt fyrir flugafrek sín — neina fasta atvinnu í þessari starfsgrein. sagði hann, að þetta her- mannasamband hafnaði ófriði sem réttmætri aðferð til þess að gera út um deilumál milli ríkja og fordæmdi árásarand- ann. Minningin um dána félaga legði þeim1 þá heilögu> skyldu á herðar að skipuleggja friðar- starfið og varðveita friðinn. Ennfremur sagði Dr. Kadara, að á þessu ári hefði verið leit- að samvinnu í þessu efni við fyrv. hermenn fjandmanna- þjóðanna. Tala þeirra, sem farizt hafa í námunni við Wrexham, er nú talin 264. En það varð spreng- ing í námunni snemma á laug- ardag og síðan brauzt þar út ægilegur eldur. Námuopið var innsiglað í dag af yfirvöldun- um'. Eftir að líkskoðun hafði farið á líkum þeim, sem náðust upp úr námunni var rannsókn þessa máls frestað. Yfirborgarstjóri Lundúna- borgar hefir hafizt handa um fjársöfnun til styrktar skyldu- liðs þeirra, sem farizt hafa. Voru konungur Englands og drottning hin fyrstu, sem fé lögðu í þann sjóð. Konungurinn hefir einnig sent Japanskeisara samúðar- skeyti í tilefni af hinu ógur- lega eig-natjóni og manntjóni, sem ofviðrið á föstudaginn var olli í Japan. Þetta varð til þess, að Hil- manns Airwaysfélagið bauð henni starf sem flugmanni á umgetinni loftleið. Amy John- son þáði boðið og er byrjuð flug sitt fyrir skömlnu. Hún er gift frægum Atlantshafs- flugmanni, Jim Mollison. Það er ihjög sjaldgæft enn, að konur annist áætlunarflug- ferðir. - Eiga giftir menn að hafa 2 atkvæðf London kl. 17, 24./9. FÚ. Franskt blað flytur í dag grein um nýjar uppástungur viðvíkjandi framkvæmd kosn- inga. Leggur blaðið til, að gift- ir menn skuli hafa 2 atkv. til móts við ógifta, og eitt atkv. að auki fyrir hvert barn, sem þeir eiga. Röksemdaleiðsla er sú, að giftir menn hafi méiri ábyrgðartilfinningu en ógiftir, sem oft hafi tilhneigingui, til allskonar b.yltingarstarfseml. Mundi það því gefa méiri kjöl- festu í stjómmálin, að réttur giftra manna yrði aukinn. Kvartanir foreldra i Skildinganesi Allmargir foreldrar í Skild- inganesi hafa sent áskorun til skólanefndar, um betra hús- næði til skólahalds, en verið hefir þar undanfarið. I áskoruninni segir m. a.: „Foreldrum er það kunn- •ugt, að skólanefnd átti þess kost, að fá margfalt betra hús- næði til skólahalds n. k .vet- ur, en áður hefir verið og það fyrir ekki hærri leigu, en verið hefir. En þar sem kunnugt er, að fyrv. skólanefnd hafnaði þessum kostum — án fram- bærilegra ástæðna að okkar hyggju — skorum við hérmeð á núverandi skólanefnd, að fá hið áður umbeðna húsnæði til skólahalds á n. k. vetri. En sé þess ekki kostur, krefjumst við hins, að þrifnaður og aðbúnað- ur í hinum gömlu húsakynn- um sé bættui-frá því, sem ver- ið hefir. En þar mun t. d. hafa verið — sökum rúmleysis — geymd inni á salemi mjólk og lýsi, er bömin áttu að neyta, á- samt kolum til geymslu. Leik svæði er ekkert á öðr- uml þeim stað, sem kennt hefir verið, nema forareðja ein, drykkjarvatn ekkert, nema inni í eldhúsi íbúðarinnar og híbýl- in á öðrum staðnum mjög illa hirt“. 264 námamenn hafa faríst Björgunartílraununum hætt Loudon kl. 16, 24./9. FÚ. Kona stýrir áætlunarflugvól

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.