Nýja dagblaðið - 19.09.1937, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 19.09.1937, Blaðsíða 4
REYKJAVlK, 19. SEPT. 1937. 5. ÁRGANGUR — 217. BLAÐ [Gamla Bióg ,Aðeíns eína nóttfi Listavel leikin amerísk talmynd, gerð eftii' leik- vitinu „ONLY YESTERDAY Aðalhlutverkin leika, hin fagra leikkona Margaret Sullavan og hlaut hún heimsfrægð fyrir leik sinn í þessu hlutverki, JOHN BOLES og drengurinn JIMMY BUTTLER. Sýnd í kvöld kl. 9 og á alpýðusýningu kl. 7. Barnasýning kl. 5: Uppnámið í óperunni ■■"--iniTn'r ■■■■i i i Saumastofu hafa undirritað- ar opnað í Þingholtsstræti 24. Saumum allskonar kven- og barnafatnað. María Einarsdóttir. Sigríðui- Bergmann. Góð stofa t.il leigu. Eldhúsað- gangur gæti komið til greina. — Upplýsingar í síam 2323. Áheit til Siysavarnafélags ís- iands. Frá p. B. Reykjavík kr. 10,50 D. kr. 20,00 M. A. Reykjavík, kr. 10,00. N. N. kr. 50,00. Elin Jóns- | úóttir, Hólmavík, kr. 5,00. E. K. ; kr. 50,00. H. F. J. Reykjavík kr. j 5,00. Ónafndur Reykjavík, kr. 10,00. Ónefndur Eyrarbakka, kr. I 2,00. S. S. Reykjavík, kr. 10,00. j M. Reykjavík, kr. 5,00. — Kærar j akkir. — J. E. B. NYJA DAGBLAÐIÐ Ánn&ll Næturlæknir er í nótt Ólafur Ilelgason, Baugsgðtu 22, sími 2128. Sunnudagslæknir er Páll Sig- v.rðsson, Hávallagötu 15, sírni 4959. Næturlæknir aðra nótt er Ólafur porsteinsson, D-götu 4, sími 2255. Næturvörður er í Reykjavíkur apóteki og lyfjabúðinni Iðunn. Veðurútlit fyrii' Reykjavík og nágrenni: Norðangola og bjart- iðri. Útvarpið í dag. Kl. 9.45 Morgun- tónleikar: a) Symlónía nr. 8, h- moll, eftir Schubert; b) Pianó-kon- sert, i a-moll, eftir Schumann (plötur). 10,40 Veðurfreknir. 11.00 Messa í Dómkirkjunni (Prest- vígsla). 12,30 Hádegisútvarp. 14,00 Messa í Frík. (sr. Árni Sigurðs- son). Miðdegistónleikar frá Hótel Jsland. 17.40 Útvarp tid útlanda i'24.52 m). 19.10 Veðurfregnir. 19.20 ílljómplötur: Danslög eftir Chopin. 19.55 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Leikrit: „Keyrt út af þjóð- veginum", eftir Ragnar Jóhannes- son (Friðfinnur Guðjónsson, Anna Guðmundsdóttir, Vilhelm Norð- fjörð). 20.55 Hljómplötur: Norður- ■ landasönglög. 21.20 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. 21.45 Danslög (lil kl. 24). Útvarpið á ínorgun: 10.00 Veður- fregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Hljómplötur: Lúðrasveitir. 19.55 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Um daginn og veginn. 20.55 Útvarpshljómsveitin leikur alþýðu- 'ög. 21.30 Hljómplötur: Stravinsky: ,.Saga hermannsins" (til kl. 22). Athygli loreldra skal vakin á auglýsingu um bólusetningu, sem l'irt er á öðrum stað í blaðinu. Prestsvígsla. í dómkirkjunni í úag kl. 11 f. h. vígir biskup dr. Jón Helgason, Gísla Brynjólfsson guðfræðikandidat, en hann hefir verið settur prestur í kirkjubæj- arklaustumprestakalli ii Vestur- Skaptafellssýslu. — Sr. Eiríkur Brynjólfsson að Útskálum, bróðir vígsluþega, lýsir vígslu. Leynivinsali einn, Hjálmtýr Guðvarðsson, var dæmdur í lög- leglurétti í gær. Hlaut hann 1000 kr. sekt og 30 daga einfalt fang- elsi við venjulegt fangaviðurværi. Fer „GranaÍÉ í dag? Skipstjórinn á „Grana“ sendi í gær fyrirspurn til útgerðaríélags- ins, hvort hann ætti að fara héðan án þess að hafa fengið fulla af- greiðslu. Svar var ókomið seint í yærkvðldi, en skipstjórinn gerði eins ráð fyrri, að skipið myndi iátið fara héðan í dag eða á morg- un ef ekki væri hægt að eiga við frekari affermingu þess fyrir þann tíma. Á ráðstefnu þoirri um ferða- mannamál á Norðurlöndum, sem staðið hefir yfir undanfarna daga í Kaupmannahöfn, hefir verið famþykkt ályktun, þar sem látin er í ljós gleði yfir því, að Islan sé nú orðið þátttakandi í hinni norrænu samvinnu um ferða- mannamál, með því að gerast meðlimur í hinni svonefndu ,.Nordisk-turist traffik komité", en ferðaskrifstofa íslands hefir nú gerst þátttakandi í störfum þess- arar nefndar. — FÚ. Norræn garðyrkjusýning. Á íimmtudaginn kemur verður nor- ræna garðyrkjusýningin opnuð í Kaupmannahöfn. Sjálfri athöfn- inni verður útvarpað og flytja ræður fulltrúar þeirra landa, nem taka þátt í sýningunni. ÚL varpið frá garðyrkjusýningunni hefst kl. 1 e. m., eftir íslenzkum tima. — FÚ. Stauning á batavegi. Danska þingið hefir verið kvatt saman 5. október næstkomandi, það er tilkynnt að Stauning forsætisráð- lierra tmuni sjálfur halda ísetn- mgarræðu þingsins, enda er hann nú á hröðum batavegi eftir áfall það er hann fékk í sumar. — Stjórnin boðar ýms ný lagafrum- vörp. þar á meðal ný gjaldeyris- lög. — FÚ. Sendinefnd er nýfarin til Bret- 'ands lrá Noregi til að semja um ‘vukinn fiskútflutning. Formaður nefjndarinnar er verzluharmáJlar i áðherra Norðmanna og auk hans margir þingmenn og útgerðar- :nenn. — FÚ. Erlendar bmdmdisfrétlir Stúdentar við háskólann í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum liafa með atkvæðagreiðslu sam- þykkt, að ekki skuli áfengis- sala leyfð á nokkurn hátt í sambandi við skólann eða í um- hverfi hans. Ríkið Georgía í Bandaríkjun- um hefir ákveðið á ný að halda bannlögunum, sem nú eru 26 ára gömul. Atkvæðagreiðsla, sem fram fór fyrir skömmu um þetta, fór þannig, að 93.762 greiddu atkvæði móti bannlög- unum, en 103.108 með þeim. Hin votu ríkin hafa auðsjáan- lega ekki orðið freistandi fyrir Georgia. Kennari í fótboltaleik við Colgate háskólann í Bandaríkj- unum, Andrew Kerr að nafni, hefir sagt: „Okkar fyrsta boð- ; orð er; neyttu aldrei áfengis,“ Hann segist heldur vilja vita j íþróttamann brjóta allar aðrar | reglur íþróttamannsins, heldur en þessa, sem banni áfengis- neyzluna. Dryggjureikningur Finnlands árið 1936 var þrjár milljónir, sex hundruð tuttugu og sjö þúsund sterlingspunda, og er það meira en ríkið veitir til landvarna, barnaskóla og vega- gerða. Pétur Sigurðsson. Skipafréttir. Gullfoss kom til Kaupmannahafnar í gærmorgun. Goðafoss kom að vestan og norð- an í gærmorgun. Brúarfoss fór vestur og norður í gærkvöldi. Dettifoss fór írá Hull í gærkvöldi áieiðis til Vestmannaeyja. Lagar- foss fór frá Kaupmannahöfn ■ í gær áleiðis til Leith. Selfoss fór frá London í gærkvöldi. Nýja Bló Hi Glæpur og reísíng Stórfengleg ameríek kvikmynd frá Columb. film. samkvæmt sam- nefndri sögu eftir rúss- neska stórskáldið Fedor Dostojefskí. Aðalhlutverkin leika: Peter Lovre, Marian Marsh, Edward Arnold o.fl. Börn fá ekki aðgang. Sýnd í kvöld kl. 5, 7 og 9. Lækkað verð kl. 5. Á barnasýnfngu kl. 3 verður sýnd hin bráð- skemmtilega mynd Ærsladrósin leikin af Jane Wíthers. Leon Blum um hjónabandíð Framh. af 2. síðu. hefi hugsað með góðum ásetn- ingi um efni þessarar bókar og hún er skrifuð af einlægri sannfæringu. En samt er hann þó ekki sannfærðari um kenningar sín- ar en það, að hann segir á ein-' um stað: Ef ég ætti dóttur, myndi ég þá ala hana upp samkvæmt þessum kenningum? Fáar spurningar hafa legið mér þyngra á hjarta en þessi, og ég veit enn ekki hvernig ég myndi svara henni! ÖRLAGAFJÖTRAR 45 að kaupa vinfengi fólksins, svaraði Luke. — Ég get ekki séð að það sé neitt athugavert við hann, sagði Margaret. Mér líkar ágætlega við hann. Hann er svo karlmannlegur og áreiðanlegur. Mér þykir verst að hann skuli vera svona fíkinn í fjár- hættuspil. Cyril hló góðlátlega og sagði: — Því fer fjarri að svo sé. Hann gefur bara pen- ingana í burtu. En hafið þið veitt því eftirtekt, hvemig hann horfir á Blanche? Ég er viss um, að hann er að verða skotinn. Blanche leit reiðilega á bróður sinn. — Þetta á víst að vera fyndni? — Þetta er satt, hvort sem þér mislíkar það eða ekki. Hefir þú ekki tekið eftir því, frænka? — Ég held að hann sé aðeins að virða hana fyrir sér, svona hinsvegin. — Hvernig vogar þú þér að segja svona hluti! Margaret kom mjög á óvart reiði bróðurdóttur sinnar. Hún færði nefklemmurnar betur upp á nefiö, og leit upp á Blanche með nokkrum þótta. — Hvað er því til fyrirstöðu, að ungur maður verði hrífinn af fallegri stúlku? — Það, að ég vil ekki, — að ég kæri mig ekki um að herra Springville dáist að mér. Luke gerði tilraun til þess að leiða talið að öðru. Skap hans var mjög farið að batna upp á síðkastið, og hann var til með að miðla fólki s,nu af þeirri á- nægjulegu vissu, er kalla mátti að fest hefði rætur í hugskoti hans. Það var að vísu satt, að Tyson var horfinn, en það hafði ekki sakað hann neitt. Árlega töpuðust fleiri þúsundir manna í London, og Tyson gat verið einn þeirra. Auk þess vissi enginn, að hann, Luke, hefði staðið bak við hvarf Kits, svo þó svo færi að hann slyppi út, þá var ekki hægt að sanna neitt á Luke, og erfðaskráin var sjálfsagt horfin, jafn örugglega og athugasemdalaust og herra Tyson. Samt sem áður þótti Luke vissara, að koma öllum verðbréfum eignarinnar í peninga, og það var hann að undirbúa. Eftir það yrði ekki auð- velt fyrir neinn að sækja sök á hendur honum. Cyril veitti því fljótt eftirtekt, að skapgæði bróð- ur hans voru í afturbata, og hafði hann notao fyrsta tækifæri er gafst til að knýja dyr náðarinnar á nýj- an leik. En það bar lítinn árangur. Luke gaf honum að vísu hundrað punda ávísun, sem Cyril reif í tætl- ur fyrir augum hans. — Þetta verður í síðasta sinn, sem ég bið þig um peninga, hafði hann sagt. Ég skal fá þá upphæð, sern mig skortir annarstaðar. — Ég hélt að víxlararnir væru orðnir þreyttir á þér, sagði Luke stríðnislega, en ef svo er ekki þá er það skynsamlega athugað að nota sér það, og biðja þá um hjálp. Það mun Cyril hafa gert, því hann fór til London degi síðar, en kom til baka aftur, eftir tvo daga, föl- ur og ergilegur. Hann mwtti Blanehe og Rose úti fyrir húsinu, og Blanche hafði hertekið hann og lát- ið hann fylgja Rose heim til sín. Sú heimfylgd varð á þann hátt, að hvorugt þeirra fýsti að endurtaka hana. Morguninn eftir að þetta skeði, hafði komið kvöld- veizluboð frá Hiram Springville. Luke gretti sig er hann opnaði bréfið, yfir morgunverði, og rétti svo hið skrautprentaða spjald til systur sinnar. — Er það þessi maður aftur, sagði Blanvhe önug- lega. Ætlar þú að fara? — Það geri ég ráð fyrir. Það verða allir þar. — Hvað er á seyði? spurði Margaret. — Boð í kvöldveizlu til Barton Manor. Ég fer, sagði Margaret. Ég hef aldrei komið til hans, en mér er sagt, að það sé vel þess virði. Blanche fitlaði við boðskortið og reyndi að taka ákvörðun. Hiram Springville hafði dálítið einkenni- leg áhrif á hana, og hún gat ekki gert sér giögga grein fyrir, á hverju þau byggðust. Hann var svo óhefðaður í háttum og tali að það mátti kalla full- kominn skort á mannasiðum, en hún var satt að segja orðin þreytt á sífelldu smjaðri. Henni fannst að hún eiga að hata hann fyrir það, hve hann var algjörlega tillitslaus gagnvart fegurð hennar og framkomu, en í stað þess virti hún það við hann, í aðra röndina. En þrátt fyrir það, hefði hún heldur viljað láta pína sig til dauða, en að viðurkenna að það var kveneðlið, hið gamla og sínýja, er þessum þróttmikla, glæsilega, en fremur ruddalöga og frum-

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.