Tíminn Sunnudagsblað - 11.11.1962, Blaðsíða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 11.11.1962, Blaðsíða 9
SÉRA JÓN SKAGAN: NJÁLSBRENNA Á síðastliðnji sumri fór ég um sögustaði Njálu í Rangárþingi, ásamt ferðamannahópi, er taldi hátt á þriðja hundrað rnanns. í erindi, sem ég ftutti heima á Bergþórshvoli um staðinn og sögu hans, komst ég að vonum nokkuð inn á Njálsbrennu. Lysti ég meðal annars skoðun minni á því, hvers vegna Njáll bauð mönn- um sínum að ganga inn í húsin á Bergþórshvoli, þegar Flosi sefndi liði sinu heim að bænum. Vegna ákveð- inna tilmæla um að fá þessa skoðun birta fyrir almenningssjónum, kem- ur hún hér fram. Árið 1940 gerði ég að visu grein fyrir þessari skoðun minni í timarit- inu Dvöl. En með því að langt er um liðið og tímarit þetta í fárra manna höndum, sýnist ekki óviðeigandi að leyfa þessari skoðun ferlivist að nýju. Mun það, sem hér fer á eftir, verð að mestu endurtekning þess, sem fyrrgreint tímarit birti á sínum tíma. Hvers vegna lét Njáll brenna sig inni ásamt sonum sínum? þessi spurn- ing hljómaði mér oft í eyrum heima á Bergþórshvoli þau 20 ár, sem ég átti þar dvöl. Var hún borin fram af inn- lendum mönnum og erlendum, oft af mikilli einlægni og fróðleiksþrá. Nauðugur, viljugur varð ég einatt að leitast við að svara henni. Þessar á- stæður knúðu mig til þess að hugsa um Njálsbrennu öðru fremur. Ekkert sögulegt efni sótti jafnoft og fast á huga minn. sem hun og aðdragandi hennar. Eg trúi því örugglega, að Njáls- brenan hafi átt sér stað, vegna þess að hún er þungamiðja sögunnar, og henn ar jafnframt víðar getið. Eg trúi því einnig, að orðaskipti Njáls og Skarp- héðins fyrir brennuna hafi farið fram nokkurn veginn eins og frá er greint í sögunni. Allir þeir, sem komust lif- andi úr brennunni, voru þar til frá- sagnar. En höfundur Njálu vinnur verk sitt í ljósi kristinnar trúar, er ef til vill munkur eða annar þjónn krist- innar kirkju. Hann lætur því Njál mæta mesta og síðasta vandanum með algerri uppgjöf og í auðmjúkri trú. Svipað virðist og vaka fyrir dr. Einari Ólafi Sveinssyni í hinum ýtarlega inn- gangi hans að síðustu útgáfu Njálu. En þess er ekki að dyljast, að ég er hér mjög á annarri skoðun. Eg tel, að hvorki Höskuldur Hvítanessgoði né Njáll hafi verið slíkur dýrlingur eða trúmaður, sem sagan vill vera láta. Samkvæmt sögunni sjálfri var það ekki venja Njáls að falla saman eða „deyja ráðalaus11, þegar.þyngsta vand- ann bar að höndum. Og sem kristnum JÓN SKAGAN T j M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 849

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.