Tíminn Sunnudagsblað - 01.09.1963, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 01.09.1963, Blaðsíða 12
 MAGNÚS BJÖRNSSON á Syðra-Hóli fór svo l gröfina, að þeir, sem sérstaJdega eru til þess kjörnir að vega og meta hœfileika rit- höfunda l landinu til launa og viðurkenningar, settu hann aldrei á skrár sínar, og er það samtíð hans tvl litils sóma. Eigi að slður var Magnús meðal beztu rithöfunda landsins, og fór saman hjá hon- um styrkur og hagleikuj í máli, nœmur skilningur á mannlegu eðli og þekking á þeim tíma og þvl umhverfi, er hann helgaði rithöf- undarstörf sín. Það mun sammœli margra skynbærra manna, að bezta verk hans sé meðal þess, er af mestum glœsibrag er ritað á íslenzka tungu. — Þátturinn um Kornsár-Gróu, sem hér birtist, var siðasta verkið, sem Magnúsi au&naðist að Ijúka. Þau Kornsárhjón hafa orðið lang- lífari í landinu en flestir grannar þeirra í héraði um þær mundir og uppi samtíða þeim. Þeir hurfu flestir furðuskjótt í gleymsku, og vita fáir deili á þeim nú orð'ið, nema einstöku grúskarar cg ættfræðingar. Jón og Gróa hafa lifað í frásögnum í tvö hundruð ár og ekki af því, að hátt hafi borið mannkosti þeirra og vin- ans ól Gróa son og var sá skírður Jón, skráður sonur Jóns Þórarinsson- ar og hjónabandsbarn. Af óljósum sögnum og munnmæl- um er ag ráða, að Gróa hafi snemma getið sér illt orð og loddi það við hana alla ævi. Margt var henni fundið til foráttu en fátt var lagt út á betra veg. Sögðu menn hana komna af Sveini skotta, alræmdum misindis- MAGNÚS BJÖRNSSON Á SYÐRA-HÓLI: KORNSÁRGRÓA ... , Jón tiét maður Þórarinsson, bóndi í Vainsdal og Víðidal um og eftir miðja 18. öld; fæddur um 1720. Kona hans hét Gróa Jónsdóttir, talin tveim árum yngri, og áttu þau nokkur börn. Þau töldust bjargálna, enda var Jón af efnuðum kominn, sonur Þórarins ríka Ögmundssonar í Forsæludal. Illt var í ári fyrstu búskaparár Jóns, því að harðindi mikil gengu yfir landið um mið- bik aldarinnar, og síðan kom fjárkláðinn og drap niður fé manna. Jón bjó fyrst á Bakka í Vatnsdal, síðan á Hringhóli, hjá leigu frá L’ndirfelli, en komst á Kornsá, sem kölluð var vildis- jörð, 1757 og bjó þar tíu ár eða ; lengur. Fluttist þá að Kolugili í Víðidal og var þar síðan meðan hann lifðt. sældir og Gróu þó síður. Var svu lengi, að kulda og óhugnað lagði ai nafni hennar, þegar það var nef- t, hvar sem hún var kunnug. Um upp- runa hennar og ætt er flest á huldu, hefur þó að líkindum verig kynjuð úr Vatnsdal. Þar var Gróunafn algengt lengi. Það er víst, að á yngri árum hefur hún verið í kaupstaðnum við Spákonufellshöfða og þjónað þar dönskum verzlunarmönnum í kaup- tíðinni. Óvíst er, að kaupmenn hafi haft vetursetu í Höfðakaupstag á þeim árum. En hvort sem dvöl Gróu var þar lengri eða skemmri urðu afleiðingarnar illar og örlagaríkar. Manna á meðal gekk Gróa undir nafninu Kornsár-Gróa. Segir Espólín I Árbókum, að hún hafi verið „heldur kyndug". í Skagfirðingasögu er hún kölluð Höfða-Gróa, „kvenskratti mik- ill“. Loks kemur svo Gísli Konráðs- son meg vitnisburð sinn í Húnvetn- ingasögu. Hann segir, að Jón Þórarins son hafi fengið Gróu með ráði kaup- manns þess eða skipara, er oft kom í Höfðakaupstag og Bertel hét. Þá var Gróa þunguð og átti kaupmaður þungann með henni. í fyllingu tím- manni, sennilega ag tilhæfulausu og fundið upp Gróu til hnjóðs. Það þurfti heldur ekki að vekja undrun og fjas þó að hún stæðist illa freistingar holdsins, er hlut áttu ag máli danskir sjómenn og verzlunarmenn. Þær voru fleiri lausar fyrir, er útlendir menn voru annars vegar. Og þarna í Höfða var hún „þénustupía" hjá glæsilega búnum og kvensömum kaupmanni, er sigldi hafskipi um íslandshaf, stranga -'iói og stóra og kastaði akkerum tíiui iangt volk við Spákonufellshöfða. Þeim dönsku fylgdi meira aðdráttar- afl og öðruvísi angan en kotunga- sonum, er mokuðu flór og dömluðu á smábátum uppi á grunnmiðum, klæddir illa þefjandi skinnklæðum. Ekki er þess getið, að Jón Þórarins son felldi rýrg á Gróu vegna fyrir- málsburðar, og ekki getur annars, en að samfarir þeirra hafi verið snurðu- litlar. Virðist Jón hafa verið hvatvis og heldur grunnhygginn, en Gróa farið sér hægar og verig lævís og undirhyggukona. Þau áttu að minnsta kosti sjö börn, að Jóni hinum hálf- danska meðtöldum. Um þessar mundir var Bjami Hall- 708 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.