Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1965, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1965, Blaðsíða 12
VIII. Þórshöfn er bær á stærð við Akur- eyri, en þó tæplega jafnfjölmennur enn. En fólki fjölgar þar hratt — þúsund íbúar bætast þar við sum árin, og nú eru þar hundrað íbúðarhús i smíðum. Þangað er mikið aðstreymi, einkum úr smábyggðunum. Þar að auki hefur mannfjölgun verið allör í Færeyjum eins og sjá má af því að íbúunum hefur fjölgað úr fimmtán þúsund í þrjátíu og sex tii þrjátíu og sjö þúsund frá síðustu aldamót- um. Samt er þetta miklu minni mann- fjölgun en mátt hefði ætla af við- komu færeysku þjóðarinnar framan af þessari öld. Ef svo hefði haldið fram sem þá horfði, væri nú úm sex- tiu þúsund manns í Færeyjum. Það er tvennt, sem þessu veldur: Hjónabönd eru nú ekki jafnbammörg og áður, en hitt þó ekki síður, hve margt Færeyinga hefur flutzt úr landi til Danmerkur. Er það einkum geigvæn- legt, hversu margt ungra stúlkna veröur innlyksa erlendis. Þær fara til annarra landa, aðallega Danmerkur, bæði til náms og í atvinnuleit, því að vinna við hæfi kvenna hefur verið ÞklÐJ/ < kE IN af skornum skammti heima fyrir. Gizkað er á, að ekki komi aftur nema tvær af hverjum þremur. Þetta er gífurlegt áfali. Uppeldi hvers ein- staklings kostar hundruð þúsunda króna, og það er þungur skattur að að ala upp fólk, sem aðrar þjóðir hremma á blómaskeiði. En háskalegast er, þegar ungu stúlkum- ar hverfa úr landi hundruðum sam- an, því að það heftir viðkomuna og lamar vöxt þjóðarinnar. Eðlileg mannfjölgun hlýtur að raskast, þeg ar stórlega skerðist tala kvenna á barneignaraldri. En að þessu eru svo mikil brögð, að það 'hlýtur að vekja Óhug. En Þórshöfn mun vafalaust 'aalda áfram að stækka, og þess verður ekki langt að biða, að íbúar komizt upp fyrir tíu þúsund. Enginn bær í Fær- eyjum getur haldið til jafns við Þórs- höfn. Klakksvík á Borðey er næst- stærsti bærinn með fjögur púsund íbúa eða rösklega það. Og nú er Þórs- höfn að þokast i þá átt að verða háskólabær. Þar var í ár stofnað svo- nefnt fróðskaparsetur, sem kallast myndi vísindastofnun á okkar mali. Þetta er vísir að háskóla, þar sem leggja á stund á færeyska tungu og færeysk fræði. Prófessorinn er að sönnu ekki nema einn. Christian Matras, kunnur lærdómsmaður og skáld, sem áður var háskólake.mari í Kaupmannahöfn, hefur flutzt heim til þess að stýra þessari nýju mennta- stofnun og móta hana. Þetta framtak Færeyinga ber vitni um mikinn stór- hug svo fámennrar þjóðar sem þeir eru og sterkan vilja til þess að varð- veita þjóðernið og ávaxta þá menn,- ingu, sem þeir hafa þegið í arf. Værl óskandi, að þessi nýi háskóli, sem enn hefur einungis einum prófessor á að skipa, megi vaxa og dafna og verða landi og þjóð til gagns og sóma. Eins og gefur að skilja eru stór hverfi í Þórshöfn, þar sem einvörð- ungu eru ný hús. Ein nýja gatan er kennd við Jónas Bronck, prests- son, sem átti þar bernskuspor sín. En nafn þessa pilts er víða í heiðri FÖR haft: Hluti New York-borgar, Bronx, ber einnig nafn hans. Sú var sem sé sa#u Jónasar Broncks, að hann komst ungur í kynni við hollenzka kaug- menn og barst síðan vestux um haí, þar sem Hollendingar áttu þá ný- lendu. Keypti hann land á Manhatts- aney og gerðist einn af frumbyggþ um heimsborgarinnar. Svo segir í færeysku kvæði: Oyggin í Hudsonánni lá har berlig og grá. Har rak runa á vágni ikki að líta á. Slak hingu segl undir ránni, Jónas hugdi og sá, keypti so oyna í ánni — so siga sögur frá. Gata sú í Þórshöfn, sem kennt hef- ur verið við Jónas Bronck, er hin snotrasta. Samt eru þeir, sem vío hana búa ekki alls kostar ánægðir, Því veldur, að bæjarstjórnin hefur ákveðið að reisa þar fangahús. U^ af þessu hafa sprottið miklar deilur, því að enginn fögnuður þykír að slíkri stofnun í nágrenninu. IX Þórshöfn er austan á suðurkjálka Straumeyjar. Handan við um það bij. fimm kílómetra breilt sund rís Nólá- ey, sem varnar því, að úthafsaldari æði upp að ströndinni í austanveðf- um. Ef Nólseyjar nyti ekki við, hefðj Þórshöfn aldrei orðið höfuðsf iðuí Færeyja. 876 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.