m',d. Jónas Guðlaugsson: Pétur Nikulásson Hólabiskup Saga fyrri alda er eins og kunn- ugt er fyrst og fremst saga stjórn- valda og höfðingja, andlegrar stétt- ar og veraldlegrar, þótt undirstaða allrar sögu sé þá, og jafnan síðan, sauðsvartur almúginn. í íslend- ingasögum gætir alþýðumanna nokkuð, og kemur þar við sögu margt manna, húskarlar, griðkon- ur, þrælar, smábændur, stafkarlar og göngukonur, og ráða gangi mála ekki síður en aðrir. Þannig var það út alla þjóðveldisöld, að margt manna kemur við sögu úr öllum stéttum. Á Sturiungaöld sést þetta glöggt, þar sem góðar samtíða heimildir eru tiltækar. . Á hinum eiginlegu miðöldum landssögunnar 12641550, kem- ur mun færra alþýðumanna við sögu. Höfðingjar og háklerkar gnæfa yfir leiksviði sögunnar og er gefið þar mest rúm. Ýmsar heimildir eru þrátt fyrir hið fyrr talda til um vinnufólk og alþýðu manna á þessum tímum, og sumt lítið rannsakað svo kunnugt sé. Má þar á meðal nefna ráðsmanns- reikning" frá Hólum í Hjaltadal frá árinu 1388, og þar um bil, þar 408 t t M I N N SUNNUDAGSBLAB