Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1973, Blaðsíða 3

Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1973, Blaðsíða 3
Torfi Þorsteinsson: Fyrsti hluti Minningamolar um Ey- mund Jónsson í Dilksnesi Eymundur Jónsson og Halldóra Stefánsdóttir i Dilksnesi. Á siðasta áratug 19. aldarinnar eru að verða merkileg straumhvörf i lifi og háttum tslendinga. Fram að þeim tima hefur á ýmsu oltið um afkomu kynstofnsins og stundum hefur barátt- an fyrir tilveru hans ætlað að verða þjóninni ofraun. I lok aldarinnar verður hér meira harðæri en um langt árabil á undan, svo að nærri mátti segja, að yfir land og þjóð gengi isald- artimabil. Upp úr þessu erfiða árferði er eins og þjóðin sé að vakna af alda- löngum svefni og sumir eru farnir að draga i efa, að i þessu harðbýla landi sé nokkurs að vænta af framtíðjnni, fyrir aldna og óborna. Aðrir vildu taka upp breytta búnaðarhætti og bjóða of- riki aldarinnar byrginn. Um þessar mundir eru stórir hópar fólks frá ýms- um löndum Evrópu að flykkjast vestur til Ameriku i leit að gulli og grænum skógum þvi að hart var i búi hjá fleiri þjóðum en Islendingum. Þessir þjóð- flutningar fóru ekki fram hjá fslandi, enda hófst hér sterkur áróður fyrir brottflutningi vestur um haf. Bréf frá þvi fólki, er vestur fór og áróður vest- urfaraagentanna örvuðu lika ævin- týraþrá i brjóstum þeirra, er eftir sátu heima. Þetta umrót fór ekki fram hjá Aust- ur-Skaftíellingum. Siðustu ár aldarinn ar var fólk þaðan öðru hverju að sog- ast með i útflutningsröstina og árið 1902 tók sig upp allstór hópur bænda- fólks, einkum úr Nesja- og Mýrahreppi i leit að lifshamingju fyrir vestan haf. 1 hópi þeirra, sem þetta ár yfirgáfu ættir og óööl, var rúmlega sextugur bóndi, Eymundur Jónsson frá Dilks- nesi i Hornafirði, ásamt konu sinni, HalldórsStefánsdóttur og fimm sonum þeirra, nærri fullorðnum mönnum. Til er ljóðabréf, sem Eymundur hefur ort i umróti þessa aldarfars, og lýsir það nokkuð viðhorfum hans til þessara mála og skulu hér tilfærðar nokkrar visur úr þessu ljóðabréfi: Ef svona gengur allt og eitt og ei má linna sliku héðan vil ég halda greitt og hitta Ameriku. Hér er dauði, hér er kif, hér er nauð á höndum. Þar er brauð og þar er lif, þar ótrauðir stöndum. Ég skal hvetja mey og mann og með þeim fara glaður i landið það, sem Leifur fann landnáms fyrsti maður. Hans er frægð að feta i spor flýja eld og klaka. Hvern, sem hefur þrek og þor, þann mun ekki saka. Eflaust eru viðhorf þau, sem fram koma i stökum þessum, hin sömu og sjónarmið flestra þeirra, sem héðan fluttu um þessar mundir og dvöl Eymundar i Ameriku i stórum drátt- um svipuð sögu annarra útflytjenda. Um vesturför Eymundar Jónssonar og fjölskyldu hans og dvöl hans fyrir vestan haf, hafa varðveitzt nokkrar heimildir i sendibréfum, sem Eymundur skrifaöi ættingjum heima á tslandi og svo i munnmælum niðja hans, sem muna sumt af þessum at- burðum. Verður hér freistast til að segja þá sögu i stórum dráttum. En áður en það verður gert skal hér gerð nokkur grein fyrir Eymundi Jónssyni og uppruna hans: - Eymundur Jónsson var var fæddur 22. desember árið 1840 að Hofskoti i öræfum. Skirnarnafn hans var Mey- vant, en honum mun hafa þótt nafnið óþjált i munni, þvi að árið 1878 fékk hann nafni sinu breytt með lögum og nefndist Eymundur upp frá þvi. Foreldrar Eymundar voru hjónin Jón Höskuldsson, er kallaður var Landeyingur og Sigriður Jónsdóttir, bónda i Keldudal, Nikulássonar. Jón Landeyingur fæddist 17. september árið 1790 að Voðmúlastaða- hjáleigu i Landeyjum. Smiður er hann talinn i Vestmannaeyjum i manntalinu 1816, en árið 1825 er hann talinn bóndi á Engigarði, siðar Görðum i Mýrdal. Hinn 24. mai, árið 1818 giftust þau Jón og Sigriður og var þá systrabrúð- kaup, þvi að samtimis gekk Ragnhild- ur systir Sigriðar að eiga Einar Jó- hannsson i Breiðuhlið i Mýrdal. Arið 1837 flytja þauJón og Sigriður að Hofskoti i öræfum og búa þar til ársins 1852, er þau slitu samvistir. Sunnudagsblað Tímans 27

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.