Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1973, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1973, Blaðsíða 16
Útskálaklerkur og fram faraleiðtogi í hálfa öld Einn þeirra manna, sem við nútima- merin stöndum i hvað mestri þakkar- skuld við, er séra Sigurður Brynjólfs- son Sivertsen prestur á Útskálum i 50 ár. Frásögn þessi sem hér fer á eftir varðveitist i handriti Jóns Rektors Þorkelssonar i Landsbókasafni (nr. 1060,4to!. Grunar mig að eftir handrit- inu hafi verið prentuð útfararminning séra Sigurðar er út kom i Reykjavik 1887. En hvað um það þó þetta hafi áð- ur komið fram, ég vona að menn finni einhvern fróðleik i þessari grein sem hér verður birt. Minning þessa mæta klerks og fræðsluþuls er vel þess virði að henni sé á lofti haldið. „Æviágrip.Séra Sigurður Brynjólfs- son Sivertsen er fæddur á Seli við Reykjavik 2. nóvember 1808. Faöir hans var Brynjólfur Sigurðsson (Sivertsen), lögþingsskrifara Sigurðs- sonar, dómkirkjuprestur i Reykjavik 1797—1813, siðar prestur að Útskálum (1826—1837), dáinn 13. júli 1837. Móðir hans var Steinunn Helgadóttir, fædd á ökrum i Mýrasýslu 18. april 1770, dáin 27. mai 1857. Hann var hálfbróöir Helga biskups Thordersens. Hann kom i Bessastaðaskóla 1822 og útskrifaðist þaðan 1829, var næstu tvö ár að Út- skálum hjá foreldrumsinum og kenndi þar piltum undir skóla. Vigðist 18. september 1831, á 23. aldursári, með konunglegu aldursleyfi, til að vera að- stoðarprestur föður sins, og tók þá að sér til prestlegrar þjónustu Kirkju- vogs- og Hvalsnessókn. Vorið 1833 byrjaði hann búskap á konungsjörö- inni Gufuskálum (I Leiru), kvongaðist 5. júni s.á. jómfrú Helgu Helgadóttur conrekstors Sigurðssonar frá Mó- eiðarhvoli, systur sr. borsteins Helga- sonar I Reykholti. A Gufuskálum bjó hann i fjögur ár og reri þá til sjávar um vertið. A þeim árum gerði hann mikinn kostnað á þessari ábýlisjörð sinni i jarðabótum, einkum með þvi að grafa upp grjót og sprengja klettabelti i túninu, græða út móa og slétta þýfi. Faðir séra Sigurðar sagði af sér prestembættinu 1837, sótti hann þá um Útskálaprestakall, og var honum veitt þaö 1. marz sama ár, fluttist hann þá að Útskálum. Jafnskjótt og hann var þangaö kominn, tók hann með alefli og 376 fylgi að láta vinna að túnasléttun og hélt þvi starfi fram á hverju ári, um- skapaði hann þar með túnið algjör- lega. Hann kostaði og miklu til að byggja upp jarðarhúsin, sem öll voru byggð af torfi og grjóti, og halda þeim við. Arið 1837, þá er Húss-og bústjórnar- félagið hófst, varð hann meðlimur þess. Frá þessu félagi fékk hann 28. jan. 1860 20 rikisdala verðlaun, sem viðurkenning fyrir verðleika hans, án þess að hann sjálfur hefði mælzt til þess. Var það gert eftir tillögu fulltrúa félagsins, Guðmundar Brandssonar, sem mestan þátt mun hafa átt i þvi, að sótt var til hins Konunglega danska Landbústjórnarfélags, að honum væri eitthvað sent sem viðurkenning fyrir dugnað hans. Fékk hann þá frá þessu félagi 27. marz 1861 2an silfurbikar fé- lagsins. Þeim 20 rikisdölum, sem hann hafði fengið frá Húss og bústjórnarfé- laginu skipti hann á milli nokkurra bænda, sem honúm sýndistmesta rækt leggja við jarðabætur. Lengi var hann i miklum skuldum eftir þann kostnað, sem hann hafði gert i jarðábótum og húsabyggingum, en eftirhluta árið 1855 komst hann úr þeim öllum og fór jafnvel á hverju ári að eiga til góða i kaupstað, en þá fór hann lika að láta reisa timburhús, og byggði þá 12 álna langt og 8 álna breitt iveruhús, sem hann ætlaðist til að vera skyldi jarðhús i stað hinnar gömlu torfbaðstofu, sem hann lét þó standa og byggði upp með nýrri súð. Arið 1861 lét hann rifa niður i grunn Útskálakirkju, sem staðið haföi siðan séra Bjarni Pétursson hafði látið byggja hana árið 1798. (1 visitaziu Ölafs prófasts Pálssonar 1863, er kirkjan var fullgerð, er henni svo lýst, að varla sé að finna hér á landi svo fagurt og tignarlegt hús af timbri gert. Og ennfremur: „Allur frágangur á kirkjunni og hverju þvi er henni til- heyrir ber vott um framúrskarandi höfðingsskap, sem Benef. hefur haft á að gera þetta Guðshús sem veglegast að öllu. Er það og áður oftar sýnt með rausnarlegum gjöfum i ornamentis og peningum”. Hér um bil sama lýsing á kirkjunni finnst i visitaziu prófastanna Sigurður Brynjólfsson Sivertsen i allri embættistið séra Sigurðar. Biskup Pétur Pétursson segir um kirkjuna 7. júni 1875: „Sjálft er húsið I sama ágætu ástandi, sem seinni prófasta visitaziur greina, og lýsir öll umhirðing þess einstöku veglyndi og alúð Benef. eins og hann ekkert hafi sparað tii þess að það yrði prýðilegt Guðshús, hvar fyrir hann verðskuldar beztu þakkir”). Til byggingar Útskálakirkju gaf hann 632 kr. og til uppbyggingar hinna kirknanna 100 kr. Útskálakirkju gaf hann og afbragðs fagra altaristöflu og fleira. Eftir hans tillögum og undirlagi var skotið saman peningum til að byggja barnaskólahús i Gerðum handa öllum þremur sóknum prestakallsins. Var sú bygging byrjuð 1871 og kostaði hún 3600 kr., þar af gaf séra Sigurður sjálf- ur 1200 kr., barnakennsla byrjaði fyrst veturinn 1872—73. Útvegaði hann kennara til skólans og stýðri honum ávallt upp frá þvi. Arið 1868, þegar séra Sigurður var kominn á 60. ár og farinn að lýjast, tók hann sér fyrir aðstoðarprest, til að gegna prestverkum i Kirkjuvogssókn, son sinn, Sigurð, prestaskólakandidat, Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.