Morgunblaðið - 03.05.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.05.2004, Blaðsíða 8
Króatar verða fyrstu mótherjar Íslendinga á ÓL í Aþenu ÍSLENDINGAR mæta heimsmeisturum Króata í fyrsta leik sínum í hand- knattleikskeppni ólympíu- leikanna sem fram fara í Aþenu í Grikklandi í sumar. Laugardaginn 14. ágúst klukkan 19.30 að staðartíma verður flautað til leiks í við- ureign Íslands og Króatíu. Aðrir leikir Íslendinga í riðlinum eru þessir: Ísland – Spánn, mánudaginn 16. ágúst klukkan 19.30, Ísland – Slóvenía 18. ágúst klukk- an 14.30, Ísland – S-Kórea 20. ágúst klukkan 9.30, Ís- land – Rússland 22. ágúst klukkan 19.30. Þriðjudaginn 24. ágúst verður leikið í 8 liða úrslit- um og spilað um sæti 9–12, föstudaginn 27. ágúst fara undanúrslitaleikirnir fram og spilað um sæti 5–8 og mótinu lýkur svo með úr- slitaleik sunnudaginn 29. ágúst. Donnie Nelson, aðstoðarþjálfariliðsins, er sá aðili sem uppgötv- aði Jón Arnór Stefánsson á meðan hann lék með Trier í þýsku 1. deildinni fyrir ári og svo gæti farið að möguleikar Jóns Arnórs um áframhaldandi veru í NBA minnk- uðu verulega verði feðgarnir ekki áfram við stjórnvölinn hjá Dallas í Texas. Þeir eiga hins vegar tvö ár eftir af samningi sínum við félagið og nú reynir á þolinmæði hins litríka eiganda liðsins, Cuban. Það er ekki hægt að segja að Dall- as hafi tapað stórt gegn Kings þrátt fyrir að hafa aðeins náð að vinna einn leik í rimmunni sem endaði eins og áður segir 4:1. Í þremur leikjum af fimm réðust úrslit leiksins á síðasta skotinu, Þjóðverjinn Dirk Nowitzki náði ekki að setja knöttinn ofan í í síðasta skoti fimmta leiks liðanna sem endaði 119:118. Að venju hefur Dallas-liðið tekið breytingum frá því í fyrra og reyndu Nelson-feðgarnir að finna leikmenn sem hentuðu leikstíl liðsins, Antoine Walker var fenginn frá Boston Celtic og fögnuðu stuðningsmenn Celtic því að losna við leikmann sem þótti eigingjarn og ávallt til vandræða í liðinu. Antawn Jamison var einnig fenginn sl. sumar frá Golden State Warriors, en hann kom flestum á óvart með því að sætta sig við að koma inn á af varamannabekknum, en Jamison var útnefndur besti sjötti leikmaðurinn í NBA á leiktíðinni. Leitin að miðherja hefst á ný Cuban sagði við fjölmiðla að hann mundi ræða stöðu liðsins við þjálfara þess á næstu dögum og margir eru á þeirri skoðun að Cuban vilji gera enn frekari breytingar á leikmannahóp liðsins í þeirri von að krækja í kraft- mikinn miðherja sem gæti látið að sér kveða á vesturströndinni. Nelson hefur ávallt lagt meiri áherslu á sóknarleikinn sem þjálfari en vörnin hefur setið á hakanum. Það er und- arlegt til þess að hugsa að í leik- mannahópi Dallas er einn hávaxnasti leikmaður NBA frá upphafi, Shawn Bradley, en hinn 2,28 metra hái mið- herji átti við meiðsli að stríða í vetur og var lítt áberandi í leik liðsins. Steve Nash, leikstjórnandi liðsins, sagði eftir tapið gegn Kings að hann væri ekki viss um hver næstu skref liðsins ættu að vera, hvort skipta ætti um þjálfara og þar með áherslur eða hvort aðrir leikmenn hentuðu liðinu betur. „Það eina sem ég veit er að við þurfum að leika betri vörn ef við ætlum okkur lengra,“ sagði kanadíski landsliðsmaðurinn en hann átti í mesta basli með Mike Bibby í fimmta leik liðanna en Bibby skoraði 36 stig, og þar af 6 þriggja stiga körfur! Staða Nash hjá Dallas er með þeim hætti að hann hefur ákveðið að gefa frá sér lokaár samn- ingsins sem rennur út í lok næstu leiktíðar. Umboðsmenn Nash munu vinna hörðum höndum að því að fá önnur lið til þess að bjóða honum nýjan samning sem gæti verið tvö- falt meira en þær 420 millj. kr. sem hann fékk frá Dallas á þessu ári. Don Nelson, þjálfari Dallas, er ekki smeykur um að hann missi Nash frá sér. „Hann er snjall í viðskiptum, ef hann fær gott tilboð frá öðru liði veit hann að við munum gera honum betra tilboð. Hér vill hann vera og við viljum hafa hann í okkar röðum,“ sagði Nelson. Nelson segir við USA Today að ekki komi til greina að skipta á bestu leikmönnunum til þess eins að fá há- vaxnari og líkamlega sterkari leik- menn til liðsins. Hann rifjar upp leik- mannaskipti sem áttu sér stað hjá Golden State Warriors er hann var þjálfari liðsins. „Það er það heimskulegasta sem ég hef gert sem þjálfari en þá lét ég bakvörðinn Mitch Richmond fara frá liðinu í skiptum fyrir Billy Owens. Ég er ekki að gera lítið úr Owens en liðið varð ekki betra fyrir vikið þrátt fyrir aukna hæð. Við létum stjörnu- leikmann fara frá okkur og ég mun aldrei gera slíkt aftur,“ segir Nelson en hann hefur verið þjálfari hjá Dall- as undanfarin sjö ár og af orðum hans má ráða að hann hafi ekki hug á því að skipta út kjarna liðsins sem samanstendur af Nowitzki, Nash, Michael Finley, Antoine Walker, Antawn Jamison og nýliðunum Josh Howard og Marquis Daniels. „Rigna hressilega í Dallas“ Doug Collins, fyrrum þjálfari Chicago Bulls og nú síðast Wash- ington Wizards, er sérfræðingur TNT-sjónvarpsstöðvarinnar um NBA og ráðleggur Collins eigendum Dallas að draga djúpt andann og huga vel að stöðu liðsins, sem að mati Collins er ekki eins slæm og menn halda. „Það mun rigna hressilega í Dallas, þar sem stuðningsmenn liðs- ins munu krefjast breytinga. En þetta lið er ungt og á framtíðina fyrir sér. Ég sé ekki ástæðu til þess að láta undan þrýstingi um breytingar. Vandamálið er að á vesturströndinni eru mjög margir afgerandi miðherj- ar sem munu verða áfram um skeið, Yao Ming hjá Houston Rockets, Tim Duncan hjá San Antonio Spurs og Shaquille O’Neal hjá Los Angeles Lakers. Það er ekki létt að finna leið- ir til þess að leggja slík lið að velli,“ segir Collins en minnist ekki á að í liði Sacramento Kings var það ekki slíkur „sannur miðherji“ sem gerði Dallas lífið leitt. Það var afleitur varnarleikur sem varð liðinu dýr- keypt, enda fékk það á sig 100,8 stig að meðaltali í leik og var næstneðst á því sviði af 29 liðum deildarinnar. Reyndar skoraði ekkert lið meira að meðaltali í leik en Mavericks, 105,2 stig, en það hrökk ekki til. Körfuknattleiksspekingar vestan- hafs telja líklegt að Walker verði ekki áfram herbúðum Dallas á næstu leiktíð og telja að Nelson muni gera allt til þess að fá miðherja í staðinn fyrir Walker sem er á lokaári samn- ings síns sem hann gerði á sínum tíma við Boston Celtic en hann fær rúman milljarð kr. ári í laun frá Dall- as. Morgunblaðið hefur ítrekað reynt að ná í Jón Arnór Stefánsson und- anfarna daga án árangurs en von- andi verða næstu skref forráða- manna Dallas með þeim hætti að staða hans hjá liðinu verði sú sama í haust er leikmannahópur liðsins verður valinn. Staða Jóns Arnórs Stefánssonar í NBA gæti versnað ef aðrir skipstjórar taka við Dallas-skútunni sem sökk eins og steinn í Sacramento þriðja árið í röð Nelson- feðgarnir féllu á prófinu NBAE Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik og leik- maður Dallas Mavericks, hefur ekki fengið tækifæri í vetur. KEPPNISTÍMABILINU hjá NBA-liðinu Dallas Mavericks lauk í fyrri- nótt er liðið tapaði í fjórða sinn gegn Sacramento Kings í úrslita- keppni vesturstrandarinnar, en Kings vann einvígið 4:1, eftir að hafa verið í 4. sæti eftir deildarkeppnina en Mavericks var í því fimmta. Þar með er ljóst að íslenski landsliðsbakvörðurinn Jón Arn- ór Stefánsson fær ekkert að spreyta sig með Dallas Mavericks á leiktíðinni, en Jón Arnór samdi við Dallas sl. sumar til fimm ára en samningur hans er með þeim hætti að félagið getur látið hann fara frá sér án skuldbindinga í sumar. Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að framtíð feðganna Don og Donnie Nelson sem þjálfarateymis Dallas Mavericks sé nú í mikilli óvissu en eigandi liðsins, Mark Cub- an, er ekki sáttur við að liðið skuli hafa fallið úr keppni þriðja árið í röð gegn Sacramento Kings. Enda hefur Cuban sagt að hann hafi keypt Dallas með það að markmiði að gera liðið að NBA-meisturum í allra nánustu framtíð. Sigurður Elvar Þórólfsson tók saman  BRIAN Kidd, aðstoðarlandsliðs- þjálfari Englendinga í knattspyrnu, ætlar að reyna allt hvað hann getur til þess að vera til taks er enska landsliðið leikur á Evrópumótinu í Portúgal í sumar. Þessi 55 ára að- stoðarmaður Svens Görans Eriks- son fór í aðgerð á blöðruhálskirtli fyrir skemmstu en Kidd greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrr í vetur.  KIDD var áður aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United en þar á undan var hann leik- maður liðsins og skoraði m.a. mark sem tryggði liðinu Evrópumeistara- titilinn gegn Benfica árið 1968.  UMBOÐSMAÐUR Kobe Bryant, aðalstjörnu NBA-liðsins Los Angel- es Lakers, sagði á föstudaginn að engar líkur væru á því að Bryant gæti tekið þátt í verkefnum banda- ríska landsliðsins í körfuknattleik sem tekur þátt á ólympíuleikunum í sumar í Aþenu. Bryant hefur staðið í ströngu í réttarsölum vestanhafs þar sem hann er ákærður fyrir að hafa nauðgað konu sl. sumar í Col- arado í Bandaríkjunum.  MJÖG margir þeirra leikmanna sem hafa verið valdir í bandaríska landsliðið í körfuknattleik eru efins um að geta tekið þátt vegna meiðsla og má þar nefna Karl Malone og Jason Kidd.  JOEY Crawford, körfuknattleiks- dómari sem hefur dæmt í NBA- deildinni í 28 ár, sleit sin í fæti í fyrsta leikhluta í leik Miami Heat gegn New Orleans Hornets í úrslita- keppninni í gær. Gera þurfti hlé á leiknum en Crawford var síðan bor- inn af leikvelli og aðstoðardómari leiksins tók við hlutverki hans, en alls eru þrír dómarar að störfum inni á vellinum hverju sinni.  SPÁNVERJINN Tommy Robr- edo fagnaði sigri á atvinnumanna- móti í tennis sem fram fór í Barce- lona um helgina. Robredo lagði Gaston Gaudio í úrslitum í fimm settum en þetta er í annað sinn sem Robredo sigrar á atvinnumanna- móti. FÓLK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.