Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 41 ✝ Guðbjörg Guð-jónsdóttir, hús- freyja á Bjarteyjar- sandi á Hvalfjarðar- strönd, fæddist í Vatnsdal í Fljótshlíð 15. mars 1909. Hún lést á sjúkrahúsi Akraness 10. maí síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Guðrún Magnús- dóttir, húsfreyja, f. í Hlíðarendasókn 30. janúar 1872, d. 10. júní 1956, og Guðjón Jónsson, bóndi og söðlasmiður, f. í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð 25. júlí 1868, d. 28. febrúar 1962. Systkini Guðbjarg- ar voru Gróa, húsfreyja, f. 22. ágúst 1872, d. 24.mars 1998, Sig- urjón, prestur, f. 16. september 1901, d. 17. júlí 1995, Helga, f. 3. janúar 1903, d. 10. október 1918, og Halla, f. 9. janúar 1914, d. 14. janúar 1942. Guðbjörg flutti að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd með séra Guð- jóni, bróður sínum 1930 og var bústýra hjá honum þar. Guðbjörg giftist Guðmundi Jónas- syni, bónda, 2. júní 1934, og flytur að Bjarteyjarsandi. Fósturdóttir Guð- bjargar og Guð- mundar er Guðbjörg Dúfa Stefánsdóttir, kúabóndi, f. 7. nóv- ember 1934, gift og á fjögur börn. Synir þeirra eru Guðjón, sjómaður, f. 29. október 1939, d. 7. júní 1973, Jón- as, jarðvinnuverktaki, f. 1.febr- úar 1944, hann á sex börn, Hall- grímur,húsasmiður, f. 27.ágúst 1945, kvæntur og á þrjá syni, Ótt- ar, vélstjóri, f. 28. febrúar 1947, í sambúð og á fjögur börn, og Sig- urjón, bóndi, f. 5. ágúst 1948, kvæntur og á tvo syni. Guðbjörg var jarðsungin frá Hallgrímskirkju í Saurbæ 18. maí. Við systkinin voru svo heppin að alast upp í vernduðu umhverfi sveitarinnar og aðeins nokkrum skrefum frá gamla bænum þar sem afi og amma bjuggu. Amma dekr- aði okkur afskaplega mikið og gerði allt fyrir okkur og hafði gam- an af því. Eldhúsið í ömmubæ er á neðstu hæðinni sem er hálfniðurgrafin og glugginn því í góðri hæð fyrir stutt fólk. Þegar amma var að baka vor- um við fljót að renna á lyktina og undantekningarlaust fylltist allt af krökkum fyrir utan gluggann hjá henni og það var afgreitt beint út um gluggann á smáfólkið og alltaf nóg til. Jafnvel þótt komið væri tvisvar eða oftar. Við áttum það líka til að banka á gluggann hjá ömmu ef okkur fannst maturinn hjá mömmu ekki vera að okkar skapi. Við sögðum ömmu þá að það væri enginn matur heima og spurðum hvort við gætum fengið eitthvað hjá henni. Hún trúði okk- ur sjálfsagt aldrei en alltaf gaf hún okkur eitthvað gott í gogginn. Hún bakaði ekki bara í okkur heldur líka fyrir málleysingjana. Við strákarnir áttum nokkrar dúf- ur. Þegar þær fóru að týna tölunni ein af annarri misstum við smám saman áhugann á að hirða um þær og þegar einungis ein var eftir tóku amma og afi að sér að sjá um hana. Það lýsir ömmu vel að þegar hún komst að því að dúfan vildi ekki rúsínurnar í jólakökunum sem hún gaf henni þá fór hún að baka rúsínulausar jólakökur fyrir hana. Og ekki nóg með það því hryssan Bjartey, sem vildi ekki heldur rús- ínur og var í miklu uppáhaldi hjá henni, naut líka góðs af. Hún sá alltaf mjög vel um sína og reyndar alla. Hún var stöðugt að prjóna sokka á kallana sína og öll börn í ættinni fengu sokka, boli, vettlinga og húfur á hverju ári og flestir fengu meira magn en nokk- urn tímann var hægt að nota. Eftir að hún flutti á Höfða á Akranesi hélt hún áfram að sjá um að gestir færu nú örugglega saddir og glaðir frá henni. Ótal tegundir af sætabrauði, kaffi, kakó og mjólk útí, sem hún fékk iðulega lánaða hjá stelpunum frammi. Þeir sem höfðu ennþá pláss eftir þessar veit- ingar fengu síðan ávexti með rjóma. Alltaf átti hún líka mola, konfekt eða brjóstsykur. Hún var mjög tónelsk og spilaði á orgelið í stofunni og var ein af fáum í fjölskyldunni sem gat haldið lagi. Eftir að hún flutti á Akranes hætti hún að spila en byrjaði að safna geisladiskum og taka tónlist af þeim upp á snældur og skipti síðan við aðra á Höfða. Hún átti orðið gott safn geisladiska og hljóðsnælda, aðallega með kórtón- list sem hún hélt mjög uppá og hlustaði mikið á. Amma var líka mikill ljóðaunnandi og ljóð eftir bróður hennar, séra Sigurjón Guð- jónsson, voru í miklu uppáhaldi. Ef einhver gaf ömmu eitthvað þá vildi hún ávallt fá að borga fyrir það því henni fannst ómögulegt að það væri verið að eyða peningum í hana. Sjálf var hún mjög gjafmild og gaf allt frá sér og vildi aldrei neitt í staðinn. Amma gamla var vel með á nót- unum allt til hins síðasta, orðin 95 ára. Hún fylgdist með öllu sem fólkið hennar var að gera og var stolt af fjölskyldunni sinni. Hún var hlý og vitur kona og við þökk- um fyrir að hafa getað lært svo mikið af henni sem ekki verður kennt í bókum. Hún var heiðarleg og hreinskiptin, lá ekki á skoð- unum sínum og sagði það sem henni fannst. Hún sá allt það besta í fari fólks og laðaði það fram. Var elskuð af sínum nánustu svo og öll- um sem henni kynntust. Það voru forréttindi að alast upp með slíka ömmu á hlaðinu heima, reynsla sem við búum að í framtíðinni. Starfsfólki dvalarheimilisins Höfða viljum við þakka sérstaklega fyrir að sjá vel um ömmu okkar, ekki síst síðustu stundirnar er hún þarfnaðist sérstakrar umönnunar. Hún talaði ávallt hlýlega til starfs- fólkins og leið afskaplega vel á Höfða. Þakka þér, amma, fyrir að hafa auðgað líf okkar. Megið þið afi hvíla í friði. Guðbjörg Elva, Guðlaug Helga, Arnfinnur, Guðjón, Samson Bjarni og Dofri Jónasarbörn. Nú þegar háttprúð og virðuleg gæðakona, Guðbjörg á Bjarteyjar- sandi, kveður langt líf, farsælt og fagurt, viljum við koma á framfæri kærri kveðju okkar og þakklæti fyrir okkur sýnda alúðarvináttu til margra ára. Fyrst í sveitinni heima á Hvalfjarðarströndinni, á Höfða- grundinni og Dvalarheimilinu Höfða. Hún lét oft ánægju sína og þakklæti í ljósi yfir verunni hér. Hún lofaði oft fólkið á Höfða fyrir vináttu þess og umhyggju við vist- menn. Sjálf var hún glöð og góð í viðmóti við alla, einlæg og jákvæð. Fólkið hér bar virðingu fyrir þess- ari miklu sómakonu, sem gekk fram með reisn og heilbrigðu hug- arfari. Guðbjörg var mikið náttúrubarn og elskaði sína fögru sveit og fólkið sitt, sem hún bar á hverri stundu fyrir brjósti. Hugur hennar var oft inni í sveit á Bjarteyjarsandi. Allt það mikla athafnalíf sem þar gerð- ist var henni að skapi. Hún sagði: Ég óskaði þess ung að ég væri drengur, þá hefðu útistörfin komið meira í minn hlut, svo gaman þótti mér að umgangast búféð og vinna úti. Er ekki allt búið þegar við deyjum? spurði hún mig fyrir fáum dögum. Ég sagði: Ég vil trúa því, og er nokkuð viss um að sálin þín sveimar inn í sveit að Bjarteyjarsandi þegar hún er laus úr öðrum viðjum. Já, held- urðu það, svaraði hún brosandi og virtist ánægð með það. Ég held það hafi verið henni mjög að skapi. Guðbjörg var hugsandi kona, greind og fylgdist vel með öllu til þess síðasta, að hún veiktist 20. apríl sl. Hún var tilbúin til farar. Varð 95 ára 15. mars sl. og sagði þá: Nú væri ég sátt við að fara, þetta er orðið ágætt. Hún var allt- af svo hrein og bein og gladdi alla með nærveru sinni, blessuð. Að lokum hugheilar þakkir fyrir einlæga vináttu og blessunaróskir í okkar garð og annarra. Við send- um ástvinum hennar okkar bestu samúðarkveðju. Við vitum að undir það taka margir hér á Höfða og einnig fjölskylda okkar. Valgarður L. Jónsson og Guðný Í. Þorvaldsdóttir frá Eystra-Miðfelli. GUÐBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR Elsku mamma, tengdamma, amma og lang- amma, ARNHEIÐUR BJÖRGVINSDÓTTIR, Ásgarði 21, lést á heimili sínu að kvöldi þriðjudagsins 20. apríl 2004. Útför fór fram í kyrrþey. Þakklæti til alls þess frábæra starfsfólks Landspítala við Hringbraut, sem reyndist okkur mömmu svo vel. Sérstakar þakkir fá Hlíf Steingrímsdóttir, læknir, Vilhelmína Haraldsdóttir, læknir, Gunnhildur Magnúsdóttir, deildarstjóri, og starfsfólk hennar á 11B, Ingibjörg Fjölnisdóttir, deildarstjóri, og starfsfólki hennar á 11G, Svanur Sveinsson, heimilislæknir, og Elín ritari hans, starfsfólk í apótek- inu á Landspítala við Hringbraut og Ísleifur Jónsson, útfararstjóri. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Bessi Jóhannsson. Lokað Á morgun, föstudaginn 21. maí, verður d&e MS lokuð vegna útfarar GYÐU J. ÓLAFSDÓTTUR. Dagvist og endurhæfingamiðstöð MS sjúklinga. Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, HREFNU ORMSDÓTTUR, Safamýri 43, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Þórður Guðjónsson, Kolbrún Þórðardóttir, Stefán Jónsson, Matthías Þórðarson, Guðrún Harðardóttir, Steinunn Stefánsdóttir, Sverrir Olsen, Jón Henrik Bartels, Soffía Melsteð Eyjólfsdóttir, Þórður Matthíasson, Hrefna Rós Matthíasdóttir og barnabarnabörn. Móðurbróðir minn, PÁLL SIGURJÓNSSON frá Nautabúi í Hjaltadal, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki mánudaginn 10. maí, verður jarðsunginn frá Hóladómkirkju laugardaginn 22. maí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Gylfi Ísaksson. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR BJÖRNSSON, Hornbrekku, Ólafsfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 18. maí. Björn Gunnarsson, Sigríður Olgeirsdóttir, Sævar Gunnarsson, Ólöf Stefánsdóttir, Birgir Gunnarsson, Hrefna Axelsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Stella Bára Hauksdóttir, Sigurður Gunnarsson, Ólína Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn og frændi, INGVAR DANÍELSSON, Hólabergi 76, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 16. maí, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 25. maí kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Styrktarfélag vangefinna og Umsjónarfélag einhverfra. Fyrir hönd annarra ættingja, Daníel Viðarsson, Margrét Magnúsdóttir, Hjalti Daníelsson, Guðrún L. Friðjónsdóttir, Inga Skarphéðinsdóttir, Helga Viðarsdóttir. Elskuleg móðir mín, fósturmóðir, dóttir, systir og mágkona, GYÐA JÓNÍNA ÓLAFSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 9. maí. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 21. maí kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti MS-félag Íslands eða Krabbameinsfélagið njóta þess. Baldur Eyþór Eyþórsson, Valentína Manucci, Birna Gyða Ásmundsdóttir, Jónas Wínell, Birna J. Benjamínsdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Jón Þorgrímsson, Birna Ólafsdóttir Nyström, Lars Nyström, Jón Ólafur Ólafsson, Anna S. Jónsdóttir. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.